Fréttablaðið - 10.11.2017, Blaðsíða 26
Netverslun á kínverskum vefsíðum eins og Tmall.com hefur margfaldast á örfáum árum. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
Það er nóg að gera hjá póstafgreiðslumönnum í Kína á degi einhleypra.
MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
Ungt fólk í Asíu verslar mjög mikið á netinu.
Hlutabréf í Alibaba hafa tvöfaldast í verði á árinu. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
Netverslun í Asíu hefur marg-faldast á örfáum árum. Tækniþróun og vöxtur milli-
stéttarinnar eru stærstu áhrifaþætt-
irnir og unga fólkið keyrir þróunina
áfram, en í Asíu er meira af ungu
fólki en í nokkurri annarri heims-
álfu. Fyrir vikið eru Kínverjar nú
ábyrgir fyrir 40% af allri netverslun
í heiminum. Þessari þróun fylgja þó
ný vandamál.
Stökkbreyting Alibaba
Langstærsti hluti netverslunar í
Kína fer fram á síðum sem eru í
eigu netverslunarrisans Alibaba,
en fyrirtækið hefur ítrekað farið
fram úr væntingum með vexti
sínum. Tekjurnar aukast gríðarlega
á hverju ári og hlutabréf í fyrir-
tækinu hafa meira en tvöfaldast í
verði á þessu ári.
Nú er Alibaba að undirbúa
stærsta söludag ársins, svokallaðan
„Singles’ Day“ eða „dag einhleypra“,
sem er haldinn 11. nóvember hvert
ár. Dagurinn var upprunalega
hátíðisdagur einhleypra í Kína, en
Alibaba gerði þetta að útsöludegi
árið 2009. Það ár seldi fyrirtækið
vörur fyrir 50 milljónir Bandaríkja-
dollara á þessum degi, en þremur
árum síðar seldust vörur fyrir þrjá
milljarða dollara og í fyrra seldust
vörur fyrir 18 milljarða dollara á
þessum eina degi. Vöxturinn hefur
því verið gríðarlega hraður og gert
er ráð fyrir að hann haldi áfram.
Sérfræðingar segja að Asía, sér-
staklega Kína, sé í þungamiðju
alþjóðlegra breytinga á verslun,
sem sé sífellt meira að færast yfir
á netið. Árið 2015 tóku Kínverjar
fram úr Bandaríkjamönnum og
varð sú þjóð sem eyðir mestu
á netinu og í dag eru Kínverjar
ábyrgir fyrir 40% af allri verslun á
netinu.
Margfalt fleira ungt
fólk í Asíu
Unga fólkið í Asíu hefur tekið staf-
rænum viðskiptum fagnandi og
það er fyrst og fremst þetta fólk sem
keyrir vöxtinn áfram.
Sameinuðu þjóðirnar áætla að
það séu 720 milljón manns á aldr-
inum 15-24 ára í Asíu, ekki nema 47
milljónir í Norður-Ameríku og 82
milljónir í Evrópu. Á sama tíma er
fólk að verða mun ríkara en nokkru
sinni áður. Það er því engin furða
að Asía keyri þessa þróun áfram af
mestum krafti.
Á sama tíma hafa líka orðið
miklar framfarir í tækni og póst-
flutningum í Asíu, sem ýtir enn
frekar undir þróunina.
Lög gegn vörusvikum
Þessari miklu verslun hafa fylgt
skuggahliðar. Kínverskir sölu-
menn hafa orðið uppvísir að alls
kyns vörusvikum, sem varð til þess
að nýlega vöru sett lög í Kína sem
gera yfirvöldum kleift að sekta
svikahrappa að lágmarki um þrjár
milljónir króna. Söluaðilar sem
eyða neikvæðum umsögnum eða
birta falsaðar jákvæðar umsagnir
um vörur sínar á netinu geta átt von
slíkum sektum.
Hugmyndin með nýju lögunum
er að hreinsa til í netverslun fyrir
verslunaræðið á degi einhleypra, en
Alibaba hefur verið gagnrýnt mikið
fyrir skort á gæðaeftirliti.
Sóun og mengun
Annar og verri fylgifiskur þessarar
gríðarlegu netverslunar er sóun og
mengun. Samkvæmt könnun sem
Shue Yan-háskóli í Hong Kong vann
fyrir Greenpeace í Austur-Asíu endar
ein af hverjum fjórum flíkum, sem
Hong Kong-búar kaupa á netinu, í
ruslinu án þess að vera notuð oftar
en tvisvar.
Algengustu ástæðurnar sem fólk
gaf fyrir þessu voru að fötin væru
óvönduð, pössuðu illa eða litu öðru-
vísi út en það bjóst við. Þar sem fötin
eru mjög ódýr hugsar fólk sig ekki
vandlega um áður en það kaupir
og lætur það ekki stoppa sig að fá
stundum ekki það sem það vill. Fyrir
vikið fara milljónir flíka í ruslið á
hverju ári. En þótt fötin séu ódýr
kosta þau náttúruna mikið. Þau fylla
ruslahauga og mikil vatnsnotkun,
plastnotkun og útblástur fylgir fram-
leiðslunni. Því hvetur Greenpeace
fólk til að hugsa vandlega um hvort
það vanti fötin sem það er að hugsa
um að kaupa.
Netverslun eykst hratt í Asíu
Í Asíu eykst netverslun mjög hratt. Netverslunarfyrirtæki græða á tá og fingi og fleira ungt fólk
verslar á netinu þar en í nokkurri annarri heimsálfu. En þessi mikla verslun hefur slæmar hliðar.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@365.is
4 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . N óv E M B E R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U RNETSöLUDAGURINN
1
0
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
F
-E
4
3
8
1
E
2
F
-E
2
F
C
1
E
2
F
-E
1
C
0
1
E
2
F
-E
0
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K