Fréttablaðið - 10.11.2017, Blaðsíða 33
Við sjáum fram á um 30 pró-senta aukningu í innlendri netverslun til ársins 2021 en
netverslun á Íslandi hefur aukist
með hverju árinu. Stærstu dagarnir
eru fram undan, 11.11. eða Singles’
Day á morgun, Black Friday þann 24.
nóvember, Cyber Monday þann 27.
nóvember og svo jólagjafainnkaup-
in. Fólk nýtir sér það sérstaklega að
panta á netinu síðustu dagana fyrir
jól og sparar með því heilmikinn
tíma. Margar netverslanir bjóða
einnig upp á innpökkunarþjónustu
svo fólk fær allt klárt heim að dyrum
með Póstinum,“ segir Vésteinn
Viðarsson, vörustjóri Póstsins.
Fyrirtækið mæti aukinni netverslun
Íslendinga með fleiri útkeyrslu-
dögum og endurbættu kerfi.
Keyrt út á laugardögum
„Við höfum verið að keyra út
pakkasendingar til einstaklinga
á höfuðborgarsvæðinu öll virk
kvöld, milli klukkan 17 og 22. Nú
höfum við bætt sjötta deginum
við og keyrum einnig út á laugar-
dögum, milli klukkan 12 og 17,“
útskýrir Vésteinn. „Þær netverslan-
ir sem nýta útkeyrsluþjónustuna á
laugardögum skila sendingunum
til okkar á föstudegi og sendingar
komast því til skila daginn eftir.
Laugardagsferðirnar voru prufu-
keyrðar í október og gengu mjög
vel. Nú er þetta orðin föst þjónusta
hjá okkur og var full þörf á þessari
viðbót. Hér eru sífellt fleiri net-
verslanir opnaðar og fólk er ánægt
með að hafa þennan möguleika á
laugardögum,“ segir Vésteinn.
Nákvæmari tímasetning
„Við erum einnig að gera breytingar
á útkeyrslukerfinu í kjölfarið á
aukinni netverslun. Breytingar
sem gera okkur kleift að gefa við-
skiptavinum okkar nákvæmari
tímasetningu á því hvenær við
rennum við með sendinguna,“ segir
Vésteinn. „Núna er þetta þann-
ig að viðskiptavinur þarf að vera
heima frá 17 til 22, þessu viljum
við breyta og stytta þennan tíma
sem fólk þarf að bíða. Í dag er það
þannig að þegar innlend netverslun
sendir pakka með okkur, sendum
við viðskiptavinum tölvupóst þegar
pakkinn berst okkur og látum vita
að hann sé væntanlegur. Þegar
pakkinn fer inn í bílinn sendum
við sms um að pakkinn sé að fara í
útkeyrslu. Viðbótin sem nýja kerfið
býður upp á er að við getum sent
annað sms þegar útkeyrsluröðin er
komin á hreint hjá bílstjóranum og
gefið nákvæmari tímasetningu, til
dæmis að pakkinn berist milli 17 og
19. Fljótlega munu viðskiptavinir
svo geta fylgst með ferðum bílsins á
korti, séð hvar hann er nákvæmlega
staddur og fengið þá enn nákvæm-
ari tímasetningu á því hvenær hann
kemur heim til viðkomandi.“
Keyra út sex daga vikunnar
Pósturinn mætir aukinni netverslun Íslendinga og keyrir nú vörur heim á höfuðborgarsvæðinu sex daga
vikunnar. Þá er endurbætt útkeyrslukerfi í þróun. Vésteinn Viðarsson, vörustjóri Póstsins, segir fólk í
auknum mæli nýta sér netverslanir til jólagjafakaupa og þau þægindi að fá pakkana heim að dyrum.
„Fólk nýtir sér
það sérstaklega
að panta á netinu
síðustu dagana
fyrir jól og sparar
með því heil-
mikinn tíma,“
segir Vésteinn
Viðarsson, vöru-
stjóri Póstsins.
MYND/EYÞÓR
VIÐ SKILJUM EFTIR
TILHLÖKKUN Í PÓSTBOXI
Hægt er að nálgast pakka í póstboxi
hvenær sem er sólarhringsins
KYNNINGARBLAÐ 11 F Ö S T U DAG U R 1 0 . n óV e m b e r 2 0 1 7 NETSÖLUDAGURINN
1
0
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
F
-F
7
F
8
1
E
2
F
-F
6
B
C
1
E
2
F
-F
5
8
0
1
E
2
F
-F
4
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K