Fréttablaðið - 10.11.2017, Blaðsíða 30
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is „Þegar ég panta
í fyrsta sinn
af einhverri
síðu spyrst ég
fyrir um hvort
einhver sem
ég þekki hafi
reynslu af við-
komandi síðu.
Þegar Sólveigu Helgu Hjarðar sálfræðinema vantar föt eða annað fer hún í verslunar-
ferð í tölvunni heima hjá sér. „Mér
finnst mjög þægilegt að versla á
netinu. Yfirleitt kynni ég mér vel
þá vöru sem ég hef áhuga á að
kaupa. Ef um er að ræða fatnað
skoða ég vel númerin, kanna úr
hvaða efni fötin eru og horfi jafnvel
á myndbönd til að sjá betur snið
og liti,“ segir Sólveig sem stundar
fjarnám við Háskólann á Akureyri.
Þarf ekki að snúa ættingjum
Sólveig býr á Egilsstöðum og segir
netverslun afar mikilvæga fyrir
þá sem búa úti á landi, þar sem
úrvalið er oft minna en í stærri
bæjum. Hún byrjaði að versla á
netinu í kringum sautján ára aldur-
inn og uppgötvaði þá strax kostina
sem felast í því að fá vöruna senda
heim. „Ég kíki reglulega á íslenskar
netverslanir, eins og heimkaup.
is og ikea.is og finnst gott að geta
pantað varning á þeim síðum í
staðinn fyrir að fá ættingja eða vini
til að snúast fyrir mig í Reykjavík.
Ég fylgist líka vel með því sem er í
gangi í Kringlunni og Smáralind og
nýti mér oft tilboð sem ég rekst á á
netinu,“ segir Sólveig.
Inn á milli kaupir hún vörur á
eBay og AliExpress en hvaða síður
eru í mestu uppáhaldi hjá henni?
„Ég er mjög hrifin af asos.com,
boohoo.com, fashionnova.com
og torrid.com sem eru kvenfata-
verslanir. Ég kaupi líka margt á
íslenskum síðum, eins og fotia.is.
Úrvalið af íslenskum vefverslunum
er alltaf að aukast.“
Keypti jólagjafirnar á netinu
Sólveig segir aðalkostinn við net-
verslun vera þann að úrvalið er
breitt og hægt að kaupa í raun allt
sem hugurinn girnist. „Fyrir jólin
í fyrra pantaði ég rosalega mikið á
netinu, ekki síst ef það voru tilboð
Innkaupaferð í tölvunni heima
Sólveig Helga Hjarðar var á menntaskólaaldri þegar hún verslaði í fyrsta sinn á netinu. Hún
kaupir helst fatnað, snyrtivörur og gjafir í netverslunum, innlendum sem erlendum.
Mér finnst mjög
þægilegt að versla á
netinu. Yfirleitt kynni ég
mér vel þá vöru sem ég
hef áhuga á að kaupa. Ef
um er að ræða fatnað
skoða ég vel númerin,
kanna úr hvaða efni fötin
eru og horfi jafnvel á
myndbönd til að sjá betur
snið og liti.
í gangi. Ég keypti jólafötin mín og
nær allar jólagjafirnar.“
Spurð hvaða ókosti það hafi að
panta vörur á netinu segir Sólveig
að það sé helst að sendingar-
kostnaður geti verið hár og biðin
eftir vörunni, ef hún skilar sér ekki
á réttum tíma. „Ég held mig við
netsíður sem ég þekki vel og hef
góða reynslu af. Þegar ég panta í
fyrsta sinn af einhverri síðu spyrst
ég fyrir um hvort einhver sem ég
þekki hafi reynslu af viðkomandi
síðu. Reynslan skiptir miklu máli
upp á hvort ég versla við viðkom-
andi netverslun eða ekki.“
Sólveig segir netverslun tví-
mælalaust vera framtíðina. „Ég
þekki fjölda fólks sem kaupir vörur
á netinu. Mér finnst eins og að þeir
sem búa fyrir sunnan versli líka á
netinu þótt úrvalið af búðum sé
mun meira þar en úti á landi.“
En er eitthvað sem þú myndir
alls ekki kaupa á netinu? „Nei, ég
held ekki.“
Fyrir áhugasama er Instagram-
síða Sólveigar solveighjardar.
Pei er einföld
greiðslulausn sem
sett var á markað í
byrjun árs 2016. Pei
býður fjölbreyttar
greiðslulausnir til að
gera viðskiptavin-
um kleift að ganga
frá kaupum með
greiðsluseðlum
á öruggan og ein-
faldan máta.
Greiðsluleiðin Pei er einföld og örugg fyrir alla ein-staklinga. „Að borga með
Pei gæti ekki verið auðveldara,“
segir Guðni Birkir Ólafsson, ráð-
gjafi hjá Greiðslumiðlun. „Allt er
gert rafrænt án korts og það
tekur enga stund
að klára kaupin
sem þýðir að
einstaklingur
getur verslað á
netinu án þess
að eiga eða nota
kreditkort,“
útskýrir hann.
„Við notkun á Pei
getur fólk valið
eingreiðslu eða
fjölgreiðslur og dreift á allt að 36
mánuði. Þegar valin er eingreiðsla
fær viðkomandi 14 daga frest til
að borga fyrir vöruna. Hægt er að
kaupa vörur eða þjónustu með
Pei í netverslunum og í verslunum
hjá þjónustuaðilum okkar,“ segir
Guðni.
Tæplega 600 fyrirtæki bjóða
upp á Pei greiðsluþjónustu og
þeim fjölgar
ört. Hámarks-
heimild er
1,9 millj-
ónir króna og
getur hver
og einn
séð sína
heimild
á heima-
síðunni Pei.
is. Eina sem
þarf eru rafræn skilríki eða
Íslykill til að skrá sig inn í þjónust-
una og kanna heimildina.
Guðni segir að þessi möguleiki
hafi komið að góðum notum
hjá einstaklingum frá því að
þjón usta Pei hófst hér á landi.
„Þessi þjónusta hefur fengið
frábærar viðtökur. Viðskipta-
vinir eru almennt sammála um
að þessi kostur sé frábær,“ segir
Guðni og bætir við að fyrirtækið
sé alltaf að bæta þjónustuna. „Á
næstu dögum förum við af stað
með þá nýjung að viðskiptavinir
geta fengið aukinn greiðslufrest í
30 eða 60 daga eftir óskum. Fólk
getur keypt jólagjafirnar núna og
greitt fyrir þær 30 til 60 dögum
seinna, að viðbættum þeim 14
daga fresti sem innifalinn er í
þjónustu okkar. Dæmi má nefna
að ef jólainnkaupin hefjast í
byrjun desember þarf ekki að
greiða vöruna fyrr en í janúar eða
febrúar. Nýtt Pei app fer jafnframt
í dreifingu á næstunni, sem mun
bæta þjónustu við viðskiptavini
okkar enn frekar,“ segir Guðni.
„Við hvetjum fólk til að skrá sig
hjá Pei og skoða heimildina sína.
Það kostar ekkert að skrá sig,“ segir
Guðni.
Hægt er að fá frekari upplýsingar
um Pei greiðsluþjónustu á heima-
síðu www.pei.is eða með því að
hringja í síma 527 5400.
Pei – örugg leið til
að versla á netinu
Pei – greiðsluþjónusta hefur verið starfrækt frá árinu 2016.
CMYK
C 75 M 90 Y 5 K 0 C 0 M 50 Y 92 K 0
8 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . N óv e m B e R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U RNetsöLudAGuRINN
1
0
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
2
F
-D
5
6
8
1
E
2
F
-D
4
2
C
1
E
2
F
-D
2
F
0
1
E
2
F
-D
1
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K