Fréttablaðið - 10.11.2017, Blaðsíða 16
Snjókoman hjálpaði ekki Stjörnukonum í Meistaradeildinni í gær
Tap á heimavelli Stjarnan tapaði 2-1 fyrir tékkneska liðinu Slavia Prag í Garðabænum í gær í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar
kvenna í fótbolta. Stjörnukonur fengu fín færi til að skora í fyrri hálfleiknum eins og það sem Ana Cate sést í hér fyrir ofan. Stjarnan náði síðan að
jafna í seinni hálfleik með marki Láru Kristínar Pedersen en Slavia komst strax aftur yfir með marki úr vítaspyrnu. Fréttablaðið/enir
Fótbolti Eftir þrettán ár í atvinnu-
mennsku er Sölvi Geir Ottesen
kominn aftur heim til Íslands. Að
baki er ævintýralegur atvinnu-
mannsferill, þar sem hann spilaði
með átta félögum í fimm löndum í
tveimur heimsálfum.
„Mér líður vel. Það var löngu
ákveðið að ég myndi koma heim á
þessum tíma og ég er sáttur við þá
niðurstöðu. Ég er feginn að vera
kominn heim og ég lít á þennan
tíma úti sem mjög góðan og
skemmtilegan,“ sagði Sölvi Geir en
börnin hans fluttu heim til Íslands
fyrir fjórum árum, um svipað leyti
og hann samdi við Ural í Rússlandi.
„Það hefur verið langerfiðast
við þetta, fjarveran frá börnunum
mínum. Það var því orðið tímabært
að koma heim,“ sagði Sölvi Geir
sem kom hingað til lands í upphafi
vikunnar.
Hef enn mikinn metnað
Ljóst er að allflest félög í Pepsi-
deildinni hafa áhuga á að fá jafn
sterkan leikmann og Sölva Geir í
sitt lið. Hann segist þó ekki búinn
að ákveða hvar hann muni spila í
sumar, en hann hefur til að mynda
verið orðaður við FH sem hann æfði
með þegar hann var staddur hér á
landi í byrjun árs.
„Ég á eftir að fara betur yfir þessi
mál. Það hafa verið einhverjar þreif-
ingar í gangi og samtöl við klúbba
en ég vil heyra betur hvað þeir hafa
að segja. Ég mun svo vega og meta
kostina til að sjá hver er bestur fyrir
mig í stöðunni,“ segir Sölvi Geir,
sem spilaði í yngri flokkum með KA
og Víkingi hér á landi en meistara-
flokksferilinn hóf hann með síðar-
nefnda liðinu.
„Það er langt í næsta tímabil og
ég hef nægan tíma til að finna út
úr þessu. Ég er 33 ára og þarf því
kannski ekki að æfa jafn mikið og
þessir ungu. En ég hlakka mikið til
og hef mikinn metnað til að standa
mig hér á landi og sýna að ég geti
enn spilað fótbolta.“
náði flestum markmiðum
Sölvi Geir hóf atvinnumannsferilinn
hjá Djurgården í Svíþjóð en spilaði
einnig með SönderjyskE og FCK í
Kaupmannahöfn, áður en hann hélt
til Rússlands þar sem hann spilaði í
tvö ár. Síðustu tvö árin hefur hann
verið í Kína, þar sem hann spilaði
með þremur félögum, og Taílandi.
„Ég er mjög sáttur við minn feril.
Maður getur alltaf hugsað til baka
um eitthvað sem hefði getað farið
betur en heilt yfir þá er ég mjög
sáttur. Ég náði flestum af þeim
markmiðum sem ég setti mér sem
ungur drengur,“ segir Sölvi Geir sem
segir að það hafi verið skemmtileg
reynsla að spila í Asíu.
„Það var frábært að fá að fara til
Asíu og kynnast fótboltanum þar
og menningunni. Þetta er mjög frá-
brugðið Evrópu, sérstaklega í Kína.
Ég upplifði margt skemmtilegt þar
– mér tókst að verða bikarmeistari
á fyrsta tímabili mínu í Kína og ég
verð sennilega taílenskur meistari
ef þeir klára leikina sína þar.“
Hann segist nú spenntur fyrir
framhaldinu á Íslandi, hvar sem
hann muni spila næsta sumar.
„Ég náði ekki að spila lengi í efstu
deild áður en ég fór út á sínum tíma,
aðeins hálft tímabil. Þetta verður
mjög skemmtilegt.“
eirikur@frettabladid.is
Vil sýna að ég get enn spilað
Sölvi Geir Ottesen, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, er kominn heim og ætlar að ljúka ferlinum
með því að spila í Pepsi-deildinni. Hann segist sáttur við atvinnumannsferilinn en hann eigi enn nóg inni.
Sölvi Geir Ottesen ætlar að spila í Pepsi-deildinni í sumar. Fréttablaðið/SteFán
Ég er feginn að vera
kominn heim ég og
lít á þennan tíma úti sem
mjög góðan og skemmti-
legan.
Sölvi Geir Ottesen
Domino’s-deild karla
Þór ak. - njarðvík 85-92
Stigahæstir: Ingvi Rafn Ingvarsson 36,
Marques Oliver 16/13 fráköst, Júlíus Orri
Ágústsson 13/5 stoðsendingar, Pálmi Geir
Jónsson 10 - Terrell Vinson 25/10 fráköst,
Logi Gunnarsson 22, Maciek Stanislav
Baginski 15, Oddur Rúnar Kristjánsson 12.
Haukar - Höttur 105-86
Stigahæstir: Haukur Óskarsson 23, Kári
Jónsson 22/13 stoðsendingar, Paul Ant-
hony Jones III 16, Emil Barja 15/6 frák./8
stoðs. - Kevin Lewis 28/6 frák./6 stoðs.,
Mirko Stefan Virijevic 17.
Keflavík - tindastóll 88-97
Stigahæstir: Reggie Dupree 19, Ágúst
Orrason 15, Magnús Már Traustason 13,
Cameron Forte 13/11 frák. - Pétur Rúnar
Birgisson 26/7 frák./13 stoðs., Sigtryggur
Arnar Björnsson 21, Antonio Hester 16.
Þór Þorl. - Ír 69-77
Stigahæstir: Jesse Pellot-Rosa 18/12 frák.,
Halldór Garðar Hermannsson 10 - Ryan
Taylor 22/15 frák., Kristinn Marinósson 19,
Danero Thomas 16.
efst
ÍR 10
Tindastóll 10
KR 8
Keflavík 8
Njarðvík 8
Haukar 6
neðst
Grindavík 6
Stjarnan 4
Þór Ak. 4
Valur 2
Þór Þorl. 2
Höttur 0
Nýjast
olís-deild kvenna
ÍbV - Fjölnir 33-22
Markahæstar: Ester Óskarsdóttir 7,
Karólína Bæhrenz 6, Ásta Björt Júlíusdóttir
6, Sandra Dís Sigurðardóttir 5 - Andrea
Jacobsen 6, Guðrún Jenný Sigurðardóttir 4.
Coca-Cola bikar karla
Ír - Stjarnan 37-25
Víkingur - Fjölnir 28-34
Í dag
18.00 PGa: OHl Classic Golfst.
19.35 Svíþjóð - Ítalía Sport 3
19.45 Grindavík - Kr Sport
19.55 england - Þýskaland Sport 2
22.00 Domino’s Körfub.kv. Sport
04.00 lPGa: blue bay Golfstöðin
Domino’s-deild karla:
19.15 Valur - Stjarnan Valshöll
20.00 Grindavík - Kr Mustad-h.
Coca-Cola-bikar karla:
19.00 ÍH - akureyri Höllin, Ak.
Coca-Cola-bikar kvenna:
20.00 HK - Selfoss Digranes
20.15 Ka/Þór - FH KA-heimili
ÓLAfíA enn uM MiðjAn hÓP
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er í
36.-41. sæti á Blue Bay-mótinu í
Kína en um síðasta hefðbundna mót
tímabilsins á LPGA-mótaröðinni er
að ræða. Ólafía lék á fjórum höggum
yfir pari í fyrrinótt við krefjandi
aðstæður. Hún er á samtals fjórum
höggum yfir pari en aðeins 80
kylfingar taka þátt í mótinu og því
enginn niðurskurður. Ólafía lék sinn
þriðja hring í nótt,
eftir að Fréttablaðið
fór í prentun, en upp-
lýsingar
um gengi
hennar
má finna
á íþróttavef
Vísis. Útsending
frá lokadegi mótsins
hefst klukkan 04.00 í
nótt á Golfstöðinni.
Umspil um HM-sæti - Fyrri leikur
norður Írland- Sviss 0-1
Króatía - Grikkland 4-1
1 0 . n ó v e M b e r 2 0 1 7 F Ö S t U D A G U r16 S p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
sport
1
0
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
F
-C
1
A
8
1
E
2
F
-C
0
6
C
1
E
2
F
-B
F
3
0
1
E
2
F
-B
D
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K