Fréttablaðið - 18.11.2017, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 18.11.2017, Blaðsíða 4
FIAT ATVINNUBÍLASÝNING Í DAG Á MILLI KL 12 - 16 Umboðsaðili Alfa Romeo, Dodge, Fiat, Jeep og Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6 - 270 Mosfellsbær s. 534 4433 - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16 Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttis- málaráðherra, sagði að erindi f o r m a n n s Félags íslenskra leikara um fag­ lega rannsókn á meintu valda­ ójafnvægi og kyn­ ferðislegri áreitni innan leiklistar­ samfélagsins hér á landi væri til skoðunar. Þorsteinn kvaðst eiga von á að hart yrði tekið á þessum málum hér á landi. „Þetta eru grafalvarlegir hlutir sem þarna eru á ferðinni.“ Agnesi M. Sigurðardóttur biskupi var ekki skemmt u n d i r u p p ­ lestri séra Geirs Waage á tölvu­ pósti hennar á kirkjuþingi. Geir spurði bæði um umdeilda skipan biskups á presti við Dómkirkjuna sem síðan var afturkölluð og um málefni sóknar­ prests í Grensáskirkju sem sak­ aður hefur verið um kynferðislega áreitni. Biskup velti fyrir sér hvort trúnaður hefði verið brotinn með upplestrinum. Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknar- stjóri sagði liggja fyrir að einhver mál yrðu kærð vegna ákvörðunar hér­ aðssaksóknara um að fella niður mál er varða skattaskjól. Bryndís sagði 60 af 152 málum sem sem send voru  til héraðssaksóknara hafa verið felld niður. Óvíst væri með rest. Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari sagði að litið hefði verið til dóma­ fordæma við ákvörðunina. Þrjú í fréttum Áreitni, trúnaður og skattaskjól VIKAN 12.11.2017 tIl 18.11.2017 238 milljónir voru tekjur Hallgríms­ kirkju í fyrra af ferðum upp í útsýnispall kirkju­ turnsins. Það er tekju­ aukning um ríflega 77 milljónir króna á milli ára. 2,2 milljarðar króna voru tekjur stóru kaffi­ keðjanna tveggja, Kaffitárs og Te kaffi, í fyrra. 70% kr ón a er au kn in g in n­ lá na h ei m ila í ba nk ak er fin u á rú m le ga e in u ár i. 8 milljónir tæpar var upp­ hæðin sem ráðherrar nýttu af skúffufé sínu eftir að ríkis­ stjórnarsam­ starfi var slitið. 10 0 m ill ja rð ar er hækkunin á gjaldskrá Íslandspósts vegna póst­ sendinga frá árinu 2012. 883 sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi fyrstu níu mánuði ársins. StjórNmál  „Ég held að þetta sé stærsta verkefni þeirrar ríkisstjórn­ ar sem tekur við, að skapa sátt á vinnumarkaði,“ segir Katrín Jak­ obsdóttir, formaður Vinstri grænna. Flokkarnir sem vinna að myndun nýrrar ríkisstjórnar hafa átt fundi með aðilum vinnumarkaðarins á undanförnum dögum. Katrín segir tilganginn með fundunum fyrst og fremst hafa verið að hlusta á þeirra ólíku sjónarmið og leita að grund­ velli fyrir samtali milli þeirra. „Það er auðvitað óvenjulegt að taka svona fundi inn í stjórnar­ myndunarviðræður. Mér fannst það mjög mikilvægt, vegna þess að grundvöllurinn fyrir því að svona sátt geti orðið er að fólk geti allavega sameinast um einhvern grundvöll að samtali milli þessara ólíku aðila og að menn geti sammælst um ein­ hverja umgjörð um það samtal,“ segir Katrín. „Það liggur fyrir að verkalýðs­ hreyfingin er að leggja mikla áherslu á félagslegan stöðugleika og ýmsar aðgerðir á hinu félagslega sviði samhliða hinum efnahagslega stöðugleika,“ segir Katrín aðspurð um efni fundanna. „Mér fannst þetta góðir fundir og mjög mikil­ vægt að heyra sjónarmið verkalýðs­ hreyfingarinnar í þessu samhengi og auðvitað fulltrúa atvinnulífsins um hinn efnahagslega stöðugleika. „Þetta snýst um að ef á að nást sátt á vinnumarkaði þá verðum við líka að ná sátt um ákveðnar undirstöður í velferðarsamfélag­ inu og það er í takt við það sem verkalýðshreyfingin hefur verið að segja og það var svona aðalþemað í samtölum okkar við aðila vinnu­ markaðarins.“ Eins og greint var frá í Fréttablað­ inu í gær hafa flokkarnir rætt bæði breytingar í skattkerfinu og á sviði velferðarmála í tengslum við þær kjaraviðræður sem fram undan eru. Aðspurð um hvort rætt sé um nýtt vinnumarkaðslíkan í viðræðunum, segir Katrín mikilvægt að finna einhverja sátt um íslenskt vinnu­ markaðs líkan, og það þurfi ekki endilega að vera SALEK­líkanið. Hlé er nú á viðræðum flokkanna meðan haustfundur miðstjórnar Framsóknarflokksins stendur yfir, en bæði formaður flokksins og vara­ formaður eru farin norður í land til að sitja fundinn. Vonir stóðu til þess að bera stjórnarsáttmála undir miðstjórn á fundinum en þrátt fyrir að formenn flokkanna séu allir áfram um að ná saman, hafðist það ekki. Heimildir blaðsins herma að gera megi ráð fyrir að flokkarnir þurfi heila viku í viðbót til að ná öllu saman, ef af þessari ríkisstjórn verður. „Ég geri ráð fyrir að við hittumst aftur á sunnudaginn,“ segir Sigurður Ingi aðspurður um framhald við­ ræðna. Hann segir menn enn vera að einbeita sér að málefnunum en skipting ráðuneyta hafi lítið verið rædd. Heimildir Fréttablaðsins herma hins vegar að töluvert sé rætt um verkaskiptingu milli flokkana. Og ljóst er að flokkarnir hafa sínar óskir. Eins og Fréttablaðið hefur þegar greint frá hafa Sjálfstæðis­ menn lagt mikla áherslu á að fá utanríkismálin auk fjármálanna. Það skapar ákveðinn vanda fyrir Framsóknarmenn sem leggja áherslu á sömu mál samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.  Við­ mælendur blaðsins úr flokkunum þremur eru sammála um að verka­ skiptingin sé töluvert flóknari þegar um er að ræða fleiri en tvo flokka. adalheidur@frettabladid.is Telja viku eftir af viðræðunum Sátt á vinnumarkaði verður stærsta mál næstu ríkisstjórnar segir Katrín Jakobsdóttir. Undirstöður í vel- ferðarsamfélaginu skipta miklu máli fyrir þá sátt. Viðræðurnar ganga vel en gætu tekið viku í viðbót. Formenn flokkanna gera nú hlé á viðræðum vegna fundarhalda í miðstjórn Framsóknarflokksins. Fréttablaðið/Eyþór Þetta snýst um að ef á að nást sátt á vinnumarkaði þá verðum við líka að ná sátt um ákveðnar undirstöður í velferðarsamfélaginu. Katrín Jakobsdóttir, formaður VG 1 8 . N ó V e m b e r 2 0 1 7 l A U G A r D A G U r4 f r é t t I r ∙ f r é t t A b l A ð I ð 1 8 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 7 F B 1 2 0 s _ P 1 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 4 0 -4 A 5 4 1 E 4 0 -4 9 1 8 1 E 4 0 -4 7 D C 1 E 4 0 -4 6 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 2 0 s _ 1 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.