Fréttablaðið - 18.11.2017, Blaðsíða 26
meira, því að þeir voru með áhyggjur
af því að myndin fengi ekki neina
umfjöllun,“ segir Björk sem tók þetta
afar nærri sér, að ósannar sögur um
hana væru að birtast á síðum frétta-
og slúðurblaða.
Um vorið árið 2000 fékk Björk
svo veður af því að hún ætti mögu-
leika á að vinna til verðlauna fyrir
besta leik í aðalkvenhlutverki á
kvikmynda hátíðinni í Cannes. „Þá
fór ég að hugsa hvað ég ætti að gera.
Og ég ákvað bara að af því að ég hafði
lagt þetta á mig þá myndi ég fara út.
Þetta var erfið ákvörðun. Ég var með
Jógu vinkonu minni á þessum tíma,
hún var með mér í gegnum þetta allt
saman. Og við ákváðum bara að fara
til Cannes og taka þetta með trompi.“
Björk fór út, hreppti verðlaunin og
tók við þeim með bros á vör. Spurð út
í hvort hún sé ánægð með ákvörðun-
ina um að fara til Cannes svarar hún
hiklaust játandi.
„Nýja platan mín fjallar svolítið um
þetta. Um mæðraveldi, feðraveldi og
hvernig við getum náð saman á nýjan
og frjóan máta. Það er mín skoðun að
áður en Lars vann með mér skrifaði
hann rullur fyrir kvenpersónurnar
sínar sem spegluðu maníuna í honum
sjálfum en hann lét eins og það kæmi
allt frá leikkonunum. Síðan benti
hann á þær eins og hann hefði ekk-
ert með þetta að gera. Eftir myndina
með mér, af því að ég lét hann ekki
komast upp með það, þá hefur hann
viðurkennt að leikkonurnar eru að
manifesta hans eigin djöfla. Það er
stórmunur þar á. Hann spurði mig
líka endurtekið hissa af hverju ég vildi
ekki brenna á fórnarlambsbálinu
og frelsast, kvenleikkonurnar hans
gerðu það venjulega. Ég benti honum
á að það væri hin þreytta síendur-
tekna rulla sem karlaveldið færði
okkur, eins og Jóhanna af Örk. Það
eru til fjöldamargar kvenerkitýpur,
t.d. í norrænni og grískri goðafræði,
mjög fjölbreyttar og með alls konar
narratífu.“
Breyttir tímar fram undan
Innt eftir því hvernig henni líði eftir
að hafa deilt sinni hlið á málinu segir
hún það vera mikinn létti. Hún segir
að það sem sé að gerast núna á net-
inu, það að fólk sé að fá vettvang til
að tala um reynslu sína, geti breytt
hlutunum.
„En svo held ég að það sé líka
mikilvægt að vita hvenær maður á
að hætta, að fara ekki yfir strikið. Mér
finnst mikilvægt að taka inn í dæmið
að karlmenn hafa verið að festast í ein-
hverjum hlutverkum. Við konurnar
höfum gert það líka, í einhverju gömlu
mynstri. En við erum kannski aðeins á
undan þegar kemur að því að vinna í
sjálfum okkur og brjótast út úr staðal-
ímyndum. Þeir eru í raun og veru á eftir
okkur, smá klaufar,“ segir hún og bros-
ir. „En ég sé núna að strákar, unglingar,
þeir eru öðruvísi núna heldur en þeir
voru. Þeir eru tilfinningalega miklu
opnari. Þessi vandamál verða nefnilega
oft til þegar menn og fólk er að bæla til-
finningar sínar niður allt líf sitt og svo
brýst þetta út, á einhvern skrítinn hátt.
Ég held að það sé að verða breyting.“
Daður og húmor
Öll listræn umgjörð í kringum plöt-
una er einstök og hefur nú þegar
vakið mikla athygli. Beðin um að
segja nánar frá henni segir Björk
umgjörðina vera unna í nánu sam-
starfi með góðum vinum, meðal
annars listamönnunum James Merry,
Jesse Kands og tónlistarmanninum
Alejandro Ghersi (Arca).
„Ég er náttúrulega mjög tengd
James Merry, ég er búin að vinna með
honum núna í átta ár. Og við byrj-
uðum að tala saman um þetta mjög
snemma. Mig langaði að búa til, með
smá húmor, svona vísindaskáldsögu
þar sem við höfðum öll flúið á okkar
eyju og þar er svona post-kjarnorku-
áhrif liggur við. Þar sem fuglarnir
væru að breytast í blóm og blómin
væru að breytast fólk, og fólkið væri
að breytast í blóm og fugla.“
„Þannig að James, verandi snill-
ingurinn sem hann er, fór út í búð
og keypti sér silíkon og lærði bara
sjálfur á YouTube eða eitthvað að búa
til svona silíkonform heima hjá sér,“
segir hún og hlær. „Svo er líka smá
Upp á yfirborðið: Fjölmargar frásagnir af kynferðisofbeldi og áreitni
5. október: Ljóstrað upp
um Weinstein
New York Times birtir ítarlega
umfjöllun um kynferðislega áreitni
og ofbeldi Weinsteins. Í fréttinni
kom fram að ásakanir á hendur
Weinstein spanna yfir þrjá áratugi.
Harvey er vikið úr störfum sem
stjórnarformanni The Weinstein
Company og úr Óskarsakademí
unni. Hann sætir lögreglurannsókn.
15. október: Björk stígur fram
Björk stígur fram og greinir frá kyn
ferðislegri áreitni Lars von Trier sem
beitti hana kynferðislegu ofbeldi
1999 við gerð myndarinnar Dancer
in the Dark.
17. október: Björk
lýsir áreitninni
Björk birtir aðra stöðuuppfærslu
þar sem hún lýsti áreitninni. Að
Lars hafi hlaupið til hennar eftir
hverja töku, tekið utan um hana
fyrir framan allt tökuteymið og
stundum strokið hana mínútum
saman gegn hennar vilja.
Í töku hafi hann stöðugt hvíslað
að henni kynferðislegum boðum
gegn hennar vilja. Þeim fylgdu graf
ískar lýsingar sem Björk segir hafa
verið lamandi fyrir hana.
Þá hafi Lars skáldað sögur í fjöl
miðlum um það að hún hefði verið
erfið á tökustað.
22. október: Toback
sakaður um áreitni
Á fjórða tug kvenna saka leikstjór
ann James Toback um kynferðis
lega áreitni. The Los Angeles Times
greindi frá því að 31 kona hefði
stigið fram og lýst reynslu sinni af
áreitni Tobacks síðustu þrjátíu ár.
23. október: Terry settur
á bannlista
Útgáfurisinn Condé Nast setur
tískuljósmyndarann Terry Richard
son á bannlista. Fyrirsætur hafa
árum saman kvartað undan áreitni
hans á opinberum vettvangi.
3. nóvember: Kevin Spacey
rekinn
Anthony Rapp greinir frá áreitni
Kevins Spacey. Lögreglan í Bretlandi
rannsakar ásakanirnar. Netflix lætur
Kevin í kjölfarið taka pokann sinn
og hættir við framleiðslu myndar
innar Gore.
8. nóvember: Sænskar
leikkonur stíga fram.
585 sænskar leikkonur skrifa opið
bréf þar sem þær lýsa reynslu sinni
af kynferðislegu ofbeldi og áreitni
af hálfu yfirmanna sinna og kollega.
8. nóvember: Ed Westwick
til rannsóknar
Lögreglan í Los Angeles rannsakar
hvort leikarinn Ed Westwick hafi
nauðgað leikkonunni Kristinu
Cohen á heimili sínu í febrúar árið
2014 í kjölfar Facebookfærslu
hennar þar sem hún lýsir kynferðis
ofbeldi af hans hálfu.
9. nóvember: Seagal sakaður um
kynferðislega áreitni
Leikkonan Portia De Rossi segir
frá kynferðislegri áreitni Stevens
Seagal í áheyrnarprufu.
9. nóvember: Louis C.K.
Fimm konur sem flestar starfa sem
uppistandarar ásaka Louis C.K. um
ósæmilega hegðun gagnvart þeim.
HBO slítur samstarfi við Louis C.K.
13. nóvember: Formaður Félags
íslenskra leikara vill rannsókn
fagaðila
Birna Hafstein, formaður Félags
íslenskra leikara, leggur fram form
lega beiðni um rannsókn fagaðila
á kynferðislegu ofbeldi og áreitni í
starfsumhverfi leikara og og óskar
eftir samstarfi ráðuneyta.
17. nóvember: Tekur kynferðis-
lega áreitni til skoðunar
Þorsteinn Víglundsson tekur til
skoðunar í velferðarráðuneyti
valdaójafnvægi og kynferðislega
áreitni innan leiklistarsamfélagsins
hér á landi.
Við ákVáð-
um bara
að fara
til Cannes
og taka
þetta með
trompi.
norDiCphoToSa/gETTy
mig lang-
aði að búa
til, með
smá húmor,
sVona
Vísinda-
skáldsögu
þar sem Við
höfðum
öll flúið á
okkar eyju.
lega bara lögreglumál. Við vorum öll
klædd í svart og vorum í raun bara
alveg jafn „visual“ og diskófólkið,“
segir hún og hlær.
„Svo þegar ég geri mína eigin plötu
fyrst, þá var ég 27 ára, þá voru liðin
einhver 12, 13 ár frá því að ég var í
pönkinu. Og þá byrjaði ég að pæla
mikið í þessu.
Fyrir utan að ég hafði gert mína
eigin plötu þegar ég var 11 ára. Þá var
mamma mín listrænn stjórnandi.
Hún gerði þetta mjög svona DIY fyrir
mig. Ég man að hún sagaði spóna-
plötur og málaði og setti dúsk á þær,“
rifjar Björk upp með bros á vör. „Ég
lærði mjög mikið af því,“ bætir hún
við og tekur fram að hún sé afar þakk-
lát mömmu sinni fyrir að hafa lagt
þessa vinnu í plötuumslagið.
Hún reiknar með að mamma
hennar og amma eigi stóran þátt í að
hún sé myndrænt þenkjandi. „Það er
nefnilega annað, sem ég var bara að
fatta. Amma mín, hún fór í mynd-
listarskólann þegar hún var fertug og
börnin voru farin að heiman. Ég var
elsta barnabarnið og var mikið hjá
henni á þessum tíma um helgar og
eftir skóla. Hún æfði sig þá á mér og
gerði mörg málverk af mér. Hún féll
frá fyrir nokkrum árum og þá erum
við að sjá öll málverkin aftur, mörg
verkin eru af mér.
Svo þegar ég byrja aftur að gera
tónlist sjálf, þá 27 ára, þá er ég með
mjög ákveðnar hugmyndir um hvað
ég vil. En það var búin að vera mjög
löng söltun í gangi og ég er kannski
fyrst að fatta þetta sjálf. En svo fer
þetta alltaf eftir því hvaða teymi er
í kringum mann. Og það vill bara
þannig til núna að minn nánasti vina-
hópur er sjónrænt þenkjandi.“
Tónleikaferðalag á næsta ári
Að lokum, hvað tekur við þegar
Utopia er komin út?
„Ég hef smátt og smátt verið að
minnka það að túra. Biophilia er
fyrsta platan þar sem ég sleppi því að
fara í tónleikaferðalag til 100 borga. Þá
fórum við bara til 10 borga og vorum
í mánuð í hverri borg. Það er líka ein
ástæðan fyrir því að það er svona stutt
á milli platna núna, því ég túraði ekk-
ert. Ég hélt bara nokkra tónleika. Mig
langar miklu meira að vera bara hérna
heima og semja. Núna til dæmis set ég
enga pressu á mig. Ég ætla ekki að túra
fyrr en á næsta ári.“
Sólóplötur
Bjarkar eru
Björk 1977
Debut 1993
post 1995
homogenic 1997
Vespertine 2001
Medúlla 2004
Volta 2007
Biophilia 2011
Vulnicura 2015
Utopia 2017
Ég man að hún sagaði
spónaplötur og málaði
og setti dúsk á þær.
húmor einkennir alla umgjörð í kringum nýju plötuna.
svona „flirt“ í gangi á plötunni og líka
húmor.
Við erum búin að hanga mikið
saman undanfarið, ég, James, Alej-
andro og Jesse. Og við höfum verið að
kjafta mikið um þetta, alveg í einhver
tvö ár. Þannig að þetta hefur verið
mikil samvinna,“ útskýrir Björk. Hún
segir sjálfa sig hafa sterkar skoðanir á
listrænni umgjörð hljómplatna sinna
og leggur æ meiri vinnu í umgjörðina
á hverri nýrri plötu sem hún gerir.
Erfði listræna hugsun
frá ömmu og mömmu
„Þetta byrjar auðvitað þegar ég var
í pönkinu, þá mátti ekki vera neitt
„visual“ í kringum tónlistina. Það var
bara hégómi. Diskóið var náttúru-
1 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r26 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
8
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
4
0
-7
6
C
4
1
E
4
0
-7
5
8
8
1
E
4
0
-7
4
4
C
1
E
4
0
-7
3
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
2
0
s
_
1
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K