Fréttablaðið - 18.11.2017, Side 44
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Aðventan byrjar seint í ár eða 3. desember. Margir eru engu að síður farnir að huga að
aðventuskreytingum, jafnvel byrj-
aðir að setja upp jólaskrautið. Elísa
segir að margvíslegar breytingar
hafi orðið í skreytingum á undan-
förnum árum, til dæmis sé hinn
hefðbundni kringlótti aðven-
tukrans á undanhaldi. Fósturfaðir
Elísu rak Alaska blómabúðirnar og
hún var aðeins tólf ára þegar hún
hóf störf þar fyrir jólin og á sumrin.
Elísa var verslunarstjóri í Alaska
í Breiðholti til ársins 1994 þegar
hún byrjaði að vinna sjálfstætt sem
blómaskreytingameistari.
Dempaðir litir
„Ég vinn sjálf nær eingöngu
með efni úr náttúrunni, vil hafa
skreytingarnar ferskar og sem nátt-
úrulegastar. Við blöndum saman
mismunandi greni og tilheyrandi
greinum. Svo bæti ég við hinum
ýmsu plöntum úr náttúrunni.
Litirnir eru muskaðir eða dempað-
ir, dumbrauður, -grænn, -fjólublár,
eða -blár. Með þessum litum eru
notaðir beige, hvítur og svo auð-
vitað gull og silfur sem mikill áhugi
er fyrir. Fjólublái liturinn er mjög
vinsæll og gerir skreytingarnar
jólalegar. Kertakrúsir eru gylltar
og sömuleiðis jólaskreytingar,“
útskýrir Elísa.
„Þetta hringlaga form í aðventu-
krönsum er á undanhaldi en í
staðinn erum við að vinna með fer-
kantaða eða ílanga bakka. Einnig
eru ég með glerhús sem skreytingar
eru unnar ofan í. Í rauninni er verið
að vinna í alls kyns formum með
kertum,“ segir Elísa en hún hefur
rekið 4 Árstíðir í Lágmúla í þrjú ár.
Í blómum alla tíð
Elísa segist alltaf hafa haft áhuga
á blómaskreytingum. „Þetta var
mér eiginlega í blóð borið. Amma
mín var mikil blómakona og fyrir
alls kyns plöntur. Svo ólst ég upp
með blómabúðinni Alaska. Ég held
samt að maður fæðist með græna
fingur því mér finnst þessi vinna
alveg dásamlega skemmtilegt. Þess
vegna opnaði ég blómabúð aftur.
Mér finnst svo æðislegt að fólk vill
aftur hafa lifandi plöntur í kringum
sig á heimilum. Blómabúðir hafa
líka breyst, það er heldur meiri
metnaður en var um árabil. Mikið
úrval af alls kyns plöntum og fal-
legum gjafavörum. Fólk vill gera
kósí í kringum sig, þá sérstaklega
yfir vetrartímann meðan það er
mikið innandyra. Það er mikið
úrval af fallegum kertum, sum
með góðum ilmi og það er hægt að
fegra heimilið á auðveldan hátt.
Allar árstíðir hafa sjarma í blóma-
búðinni. Ég fagna því. Sjálf er ég
jólabarn og byrja að skreyta smátt
og smátt eftir því sem aðventan
líður. Ég hlakka alltaf til jólanna,
þetta er fjölskyldutími og svo margt
að þakka fyrir,“ segir Elísa.
Aðventukransinn
alltaf að breytast
Elísa hefur langa reynslu í blóma-
skreytingum og veit hvað er vin-
sælast hverju sinni. MYND/ANTON BRINK
Glæsileg aðventuskreyting þar sem Elísa leitar til náttúrunnar eftir efniviði. MYND/ANTON BRINK
Hinn hefðbundi aðventukrans er á undanhaldi en nú má leika sér með formið.
Hér eru aðventukertin á glerþaki.
Elísa Ólöf Guðmundsdóttir, blóma-
skreytir og eigandi blómabúðarinnar
4 Árstíðir, hefur starfað við fagið frá
því hún var unglingur. Hún segir að
miklar breytingar hafi orðið í jóla-
skreytingum á síðustu árum.
Levi ś Kringlunni – Levi ś Smáralind – Levi ś Glerártorgi
12.990
502 STRETCH SVARTAR
Vörunúmer: 29507-0031
Danmörk kr 14.870*
Svíþjóð kr. 12.314*
*Skv. levi.com og gengiskrán. Isl.banka 15.11.17
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . N Óv E M B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
1
8
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
4
0
-A
8
2
4
1
E
4
0
-A
6
E
8
1
E
4
0
-A
5
A
C
1
E
4
0
-A
4
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
0
s
_
1
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K