Fréttablaðið - 18.11.2017, Page 46

Fréttablaðið - 18.11.2017, Page 46
Frægðin er áhuga- verð. Eitt sinn sat ég inni í stofu þegar unglingsstrákur kom hjólandi inn um svala- dyrnar til að segja hæ. Jón Jósep Snæbjörnsson Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@365.is Ég held að hrukkur séu kúl og grá hár svöl. Örugglega skalli og bumba líka, en það að fá að lifa verður alltaf það besta sem er,“ segir Jónsi sem varð fertugur í sumar. „Mér finnst ég afskaplega heppinn því ég á vini sem aldrei urðu fertugir. Ég er því ævinlega þakklátur, með öllum þeim kenjum sem fylgja því að ná þessum aldri, og hlakka til framhaldsins.“ Jónsi ber aldurinn vel. „Ég hef alltaf verið í fínu formi en það er genetískur arfur frá foreldr- um mínum, enda er pabbi flottasti sjötugi maðurinn norðan heiða. Ég hef alltaf hreyft mig mikið og þykir skemmtilegra að hlaupa upp stiga en að taka lyftuna. Ég þarf líka að hafa meira fyrir því að halda mér í þyngd en að léttast.“ Á nýárinu verður Jónsi kynnir í Skólahreysti tíunda árið í röð. „Skólahreysti er verkefni sem ég er hvað stoltastur af og mín besta stund í íþróttastarfi. Annars er ég afleitur í íþróttum og ef það þvælist bolti fyrir mér er ég glataður. Allt sem er kringlótt og ég eru sama sem núll.“ Varð að betri manni Jónsi er staddur á Akureyrarflugvelli og bíður flugs suður. Þó ekki svart- klæddur. „Ég dulbýst bara sem maður í svörtum fötum með hljómsveitinni og breyti þar ekkert út af gömlum vana,“ segir hann kátur í sínum gamla heimabæ. „Ég fer heim þegar ég fer til Akureyrar og þar býr öll mín fjölskylda. Það er kærkomið að geta faðmað þau og kysst, og ég nýt þess að setjast niður með kaffi- bolla og fylgjast með mannlífinu í göngugötunni, enda lærði ég að þekkja alla Akureyringa í sjón þegar ég vann árum saman í grænmetinu í Hagkaup.“ Jónsi er með í smíðum meistara- ritgerð í mannauðsstjórnun. Hann hefur unnið sem flugþjónn í áratug en er nú í leyfi til að sinna þjónustu- verkefni fyrir Arion banka. „Mig langaði að ljúka háskóla- námi og fann hvernig það þroskaði mig. Ég bý vel að því að hafa farið seint í háskóla sem auðveldaði mér námið. Ég vil vera börnunum mínum góð fyrirmynd og hvet þau til mennta því sjálfur gat ég ekki farið í háskóla eftir menntaskóla þar sem ég var kominn í vinsæla hljóm- sveit og vann með. En háskóla- gráðan er holl og námið gerir menn iðulega að betri mönnum.“ Losnaði við óbeinar reykingar Í kvöld stígur Jónsi á svið á Spot með hljómsveit sinni Í svörtum fötum. Tilefnið er fimmtán ára afmæli fyrstu breiðskífu sveitarinnar sem seldist í bílförmum og varð fyrsta af þremur sem fór í gullplötu. „Við ætlum að gera það sem við höfum alltaf verið bestir í að gera; að spila ótrúlega kröftugt ball. Við ætlum að sýna hvers vegna við vorum valdir „bestir á balli“ árum saman og hvers vegna við spiluðum á Þjóðhátíð átta ár í röð,“ segir Jónsi sem hefur sungið allar helgar í haust með hljómsveitinni Trúbador og einsöngvari. „Ég var allt í einu tilbúinn til að bóka mig oftar. Mér finnst gaman að segja já við verkefnum því þau veita mér sanna ánægju. Mér finnst gaman að gleðja fólk og skora á sjálfan mig að standa mig vel og jafn- vel betur en fólk telur mig geta,“ segir Jónsi og rödd hans hefur breyst. „Ég er mun ánægðari með rödd mína nú en um tvítugt. Hún er hærri, dýpri og stöðugri, og ég verð minna hás en áður. Það gerbreyttist þegar hætt var að reykja á skemmti- stöðum því áður hafði ég verið sprengmóður eins og eftir þrjá eró- bikktíma þar sem allir reyktu ofan í mig. Með óbeinum reykingum náði ég einfaldlega ekki að syngja eins hátt og ég hefði ella getað gert.“ Elskar þennan fíling Tímamót urðu í lífi Jónsa árið 2002 þegar Í svörtum fötum fékk plötu- samning við Skífuna upp á fjórar plötur. Við tók frægð og fjögurra ára rússíbanareið. „Frægðin hefur orðið meðfæri- legri með tímanum. Ég var heppinn að þroskast með henni á heil- brigðan hátt og hafa haft ánægju af henni á stundum. Ég held að það endurspegli hvernig ég mæti fólki á hverjum degi; ég er enn sami jákvæði gaurinn,“ segir Jónsi sem var eltur uppi þegar hæst stóð. „Það endurspeglaði ekki hvað ég var þekktur heldur hversu ungir og óheflaðir aðdáendurnir voru. Það var stundum áhugavert. Eitt sinn sat ég inni í stofu þegar unglingsstrákur kom hjólandi inn um svaladyrnar til að segja hæ. Ég tók honum vitaskuld vel en bað hann að skilja hjólið eftir úti,“ segir Jónsi og hlær að minn- ingunni. Andlit fortíðar birtast nú líka á böllum hljómsveitarinnar. „Við tökum vel eftir þessum yndis- legu og heilbrigðu andlitum og sem betur fer var Í svörtum fötum þeim alltaf góð fyrirmynd. Mér finnst gaman að sjá þetta unga fólk vera orðið fullorðna mektarborgara. Við bjuggumst hins vegar ekki við að mikið af ungu fólki kæmi á böllin okkar nú,“ segir Jónsi og telur það vera vegna skorts á sterkum ball- hljómsveitum. „Það jafnast fátt á við það að sjá lifandi hljóðfæraleik á sviði. Þá gerast töfrar og ég verð alltaf nostalgískur þegar ég hugsa um það. Ég þekki þennan fíling svo vel og elska hann.“ Vinskapur strákanna í Í svörtum fötum til nítján ára verði einstaklega gjöfull á slíkum stundum. „Yngri hélt ég því fram að við værum fimm sæmilegir tónlistar- menn sem væru ógeðslega góðir saman, en það hefur breyst því strákarnir eru stórkostlega sterkir og góðir hljóðfæraleikarar. Í svörtum fötum státar af besta ryþmapari landsins, því Páll og Áki eru svaka- legir á trommur og bassa. Einar er jafnvígur á hljómborð og píanó og djásnið mitt, hann Hrafnkell, sem er eins og bróðir minn og alveg eins og ég, nema ótrúlegur listamaður á gítar,“ segir Jónsi. Hljómsveitin tók sér pásu árið 2007 en hefur spilað reglulega síðan. „Við auglýsum okkur lítið en erum heppnir hvað síminn hringir mikið. Nú erum við farnir að spila mun oftar því alltaf þegar við stígum af sviði horfumst við í augu og segjum: Djöfull var þetta gaman!“ Hamingjusamastur heima Jónsi þvertekur ekki fyrir að syngja jólarokksmellinn Jólin eru að koma á Spot í kvöld, en lagið samdi hljóm- borðsleikarinn Einar Örn Jónsson. „Mér væri heiður að syngja þetta geggjaða jólalag. Ég söng það á sínum tíma í hljóðveri klukkan sjö á þriðjudagsmorgni því það var eini tíminn sem hljóðverið var laust. Þá var óvænt hringt og ég sagður eini maðurinn sem gæti komið á þessum tíma dags og verið hress. Ég er snöggur að vakna og blessaður af því að vera með mikla orku og kunna að fara með hana,“ segir orkuboltinn Jónsi sem nýtur þess að eiga fríhelgi þegar þær gefast. „Þá finnst mér draumur að vakna með fjölskyldunni á laugardags- morgni og fá mér hleypt egg á súr- deigsbrauði með heitum kaffibolla. Eins og á venjulegu heimili þarf að setja í þvottavél, þrífa aðeins og kannski fara með rusl í Sorpu, og svo er æðislegt að fara að versla, elda góðan mat að kvöldi og reyna að stela stund með börnunum sem orðin eru 12 og 16 ára. Fara svo sæl í rúmið og eyða sunnudeginum í að kanna hvort ekki sé búið að læra og undirbúa næstu viku. Þessir einföldu, heimilislegu hlutir þykja mér heillandi því þeir hafa aldrei verið sjálfsagðir í mínum huga. Ég er því hamingjusamastur þegar skín í rútínu með fjölskyldunni á frídegi og tek því fagnandi þegar allir eru saman.“ Best af öllu að mega lifa Söngvarinn Jón Jósep Snæbjörnsson er orkubolti sem elskar tyrkneskan piparbrjóstsykur og venjulegt fjölskyldulíf. Hann ætlar að trylla áhorfendur í kvöld á afmælisballi Í svörtum fötum. Jónsi rokkar á Spot í kvöld. Honum þykir tyrkneskur piparbrjóstsykur besta sælgætið og borðar hann þar til hann fær brjóstsviða. MYND/ERNIR JÓLABLAÐ FRÉTTABLAÐSINS Stóra jólablaðið frá Fréttablaðinu kemur út þriðjudaginn 28. nóvember. Áhugasamir auglýsendur hafið samband við auglýsingadeild sérblaða í síma 512 5402 Blaðið er stútfullt af allskonar skemmtilegu efni tengdu jólunum. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . N ÓV E M B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R 1 8 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 7 F B 1 2 0 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 4 0 -9 4 6 4 1 E 4 0 -9 3 2 8 1 E 4 0 -9 1 E C 1 E 4 0 -9 0 B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 1 2 0 s _ 1 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.