Fréttablaðið - 18.11.2017, Blaðsíða 46
Frægðin er áhuga-
verð. Eitt sinn sat
ég inni í stofu þegar
unglingsstrákur kom
hjólandi inn um svala-
dyrnar til að segja hæ.
Jón Jósep Snæbjörnsson
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@365.is
Ég held að hrukkur séu kúl og grá hár svöl. Örugglega skalli og bumba líka, en það að fá að lifa
verður alltaf það besta sem er,“ segir
Jónsi sem varð fertugur í sumar.
„Mér finnst ég afskaplega heppinn
því ég á vini sem aldrei urðu fertugir.
Ég er því ævinlega þakklátur, með
öllum þeim kenjum sem fylgja því
að ná þessum aldri, og hlakka til
framhaldsins.“
Jónsi ber aldurinn vel.
„Ég hef alltaf verið í fínu formi en
það er genetískur arfur frá foreldr-
um mínum, enda er pabbi flottasti
sjötugi maðurinn norðan heiða. Ég
hef alltaf hreyft mig mikið og þykir
skemmtilegra að hlaupa upp stiga
en að taka lyftuna. Ég þarf líka að
hafa meira fyrir því að halda mér í
þyngd en að léttast.“
Á nýárinu verður Jónsi kynnir í
Skólahreysti tíunda árið í röð.
„Skólahreysti er verkefni sem ég
er hvað stoltastur af og mín besta
stund í íþróttastarfi. Annars er ég
afleitur í íþróttum og ef það þvælist
bolti fyrir mér er ég glataður. Allt
sem er kringlótt og ég eru sama sem
núll.“
Varð að betri manni
Jónsi er staddur á Akureyrarflugvelli
og bíður flugs suður. Þó ekki svart-
klæddur.
„Ég dulbýst bara sem maður í
svörtum fötum með hljómsveitinni
og breyti þar ekkert út af gömlum
vana,“ segir hann kátur í sínum
gamla heimabæ. „Ég fer heim þegar
ég fer til Akureyrar og þar býr öll
mín fjölskylda. Það er kærkomið
að geta faðmað þau og kysst, og ég
nýt þess að setjast niður með kaffi-
bolla og fylgjast með mannlífinu
í göngugötunni, enda lærði ég að
þekkja alla Akureyringa í sjón þegar
ég vann árum saman í grænmetinu í
Hagkaup.“
Jónsi er með í smíðum meistara-
ritgerð í mannauðsstjórnun. Hann
hefur unnið sem flugþjónn í áratug
en er nú í leyfi til að sinna þjónustu-
verkefni fyrir Arion banka.
„Mig langaði að ljúka háskóla-
námi og fann hvernig það þroskaði
mig. Ég bý vel að því að hafa farið
seint í háskóla sem auðveldaði
mér námið. Ég vil vera börnunum
mínum góð fyrirmynd og hvet þau
til mennta því sjálfur gat ég ekki
farið í háskóla eftir menntaskóla þar
sem ég var kominn í vinsæla hljóm-
sveit og vann með. En háskóla-
gráðan er holl og námið gerir menn
iðulega að betri mönnum.“
Losnaði við óbeinar reykingar
Í kvöld stígur Jónsi á svið á Spot með
hljómsveit sinni Í svörtum fötum.
Tilefnið er fimmtán ára afmæli
fyrstu breiðskífu sveitarinnar sem
seldist í bílförmum og varð fyrsta af
þremur sem fór í gullplötu.
„Við ætlum að gera það sem við
höfum alltaf verið bestir í að gera;
að spila ótrúlega kröftugt ball. Við
ætlum að sýna hvers vegna við
vorum valdir „bestir á balli“ árum
saman og hvers vegna við spiluðum
á Þjóðhátíð átta ár í röð,“ segir Jónsi
sem hefur sungið allar helgar í haust
með hljómsveitinni Trúbador og
einsöngvari.
„Ég var allt í einu tilbúinn til að
bóka mig oftar. Mér finnst gaman
að segja já við verkefnum því þau
veita mér sanna ánægju. Mér finnst
gaman að gleðja fólk og skora á
sjálfan mig að standa mig vel og jafn-
vel betur en fólk telur mig geta,“ segir
Jónsi og rödd hans hefur breyst.
„Ég er mun ánægðari með rödd
mína nú en um tvítugt. Hún er
hærri, dýpri og stöðugri, og ég verð
minna hás en áður. Það gerbreyttist
þegar hætt var að reykja á skemmti-
stöðum því áður hafði ég verið
sprengmóður eins og eftir þrjá eró-
bikktíma þar sem allir reyktu ofan í
mig. Með óbeinum reykingum náði
ég einfaldlega ekki að syngja eins
hátt og ég hefði ella getað gert.“
Elskar þennan fíling
Tímamót urðu í lífi Jónsa árið 2002
þegar Í svörtum fötum fékk plötu-
samning við Skífuna upp á fjórar
plötur. Við tók frægð og fjögurra ára
rússíbanareið.
„Frægðin hefur orðið meðfæri-
legri með tímanum. Ég var heppinn
að þroskast með henni á heil-
brigðan hátt og hafa haft ánægju
af henni á stundum. Ég held að
það endurspegli hvernig ég mæti
fólki á hverjum degi; ég er enn sami
jákvæði gaurinn,“ segir Jónsi sem var
eltur uppi þegar hæst stóð.
„Það endurspeglaði ekki hvað ég
var þekktur heldur hversu ungir og
óheflaðir aðdáendurnir voru. Það
var stundum áhugavert. Eitt sinn sat
ég inni í stofu þegar unglingsstrákur
kom hjólandi inn um svaladyrnar til
að segja hæ. Ég tók honum vitaskuld
vel en bað hann að skilja hjólið eftir
úti,“ segir Jónsi og hlær að minn-
ingunni.
Andlit fortíðar birtast nú líka á
böllum hljómsveitarinnar.
„Við tökum vel eftir þessum yndis-
legu og heilbrigðu andlitum og sem
betur fer var Í svörtum fötum þeim
alltaf góð fyrirmynd. Mér finnst
gaman að sjá þetta unga fólk vera
orðið fullorðna mektarborgara. Við
bjuggumst hins vegar ekki við að
mikið af ungu fólki kæmi á böllin
okkar nú,“ segir Jónsi og telur það
vera vegna skorts á sterkum ball-
hljómsveitum. „Það jafnast fátt á
við það að sjá lifandi hljóðfæraleik
á sviði. Þá gerast töfrar og ég verð
alltaf nostalgískur þegar ég hugsa
um það. Ég þekki þennan fíling svo
vel og elska hann.“
Vinskapur strákanna í Í svörtum
fötum til nítján ára verði einstaklega
gjöfull á slíkum stundum.
„Yngri hélt ég því fram að við
værum fimm sæmilegir tónlistar-
menn sem væru ógeðslega góðir
saman, en það hefur breyst því
strákarnir eru stórkostlega sterkir og
góðir hljóðfæraleikarar. Í svörtum
fötum státar af besta ryþmapari
landsins, því Páll og Áki eru svaka-
legir á trommur og bassa. Einar er
jafnvígur á hljómborð og píanó og
djásnið mitt, hann Hrafnkell, sem
er eins og bróðir minn og alveg eins
og ég, nema ótrúlegur listamaður á
gítar,“ segir Jónsi.
Hljómsveitin tók sér pásu árið
2007 en hefur spilað reglulega síðan.
„Við auglýsum okkur lítið en erum
heppnir hvað síminn hringir mikið.
Nú erum við farnir að spila mun
oftar því alltaf þegar við stígum af
sviði horfumst við í augu og segjum:
Djöfull var þetta gaman!“
Hamingjusamastur heima
Jónsi þvertekur ekki fyrir að syngja
jólarokksmellinn Jólin eru að koma
á Spot í kvöld, en lagið samdi hljóm-
borðsleikarinn Einar Örn Jónsson.
„Mér væri heiður að syngja þetta
geggjaða jólalag. Ég söng það á
sínum tíma í hljóðveri klukkan sjö
á þriðjudagsmorgni því það var eini
tíminn sem hljóðverið var laust. Þá
var óvænt hringt og ég sagður eini
maðurinn sem gæti komið á þessum
tíma dags og verið hress. Ég er
snöggur að vakna og blessaður af því
að vera með mikla orku og kunna að
fara með hana,“ segir orkuboltinn
Jónsi sem nýtur þess að eiga fríhelgi
þegar þær gefast.
„Þá finnst mér draumur að vakna
með fjölskyldunni á laugardags-
morgni og fá mér hleypt egg á súr-
deigsbrauði með heitum kaffibolla.
Eins og á venjulegu heimili þarf
að setja í þvottavél, þrífa aðeins og
kannski fara með rusl í Sorpu, og
svo er æðislegt að fara að versla,
elda góðan mat að kvöldi og reyna
að stela stund með börnunum sem
orðin eru 12 og 16 ára. Fara svo sæl
í rúmið og eyða sunnudeginum
í að kanna hvort ekki sé búið að
læra og undirbúa næstu viku. Þessir
einföldu, heimilislegu hlutir þykja
mér heillandi því þeir hafa aldrei
verið sjálfsagðir í mínum huga. Ég
er því hamingjusamastur þegar skín
í rútínu með fjölskyldunni á frídegi
og tek því fagnandi þegar allir eru
saman.“
Best af öllu að mega lifa
Söngvarinn Jón Jósep Snæbjörnsson er orkubolti sem elskar tyrkneskan piparbrjóstsykur og
venjulegt fjölskyldulíf. Hann ætlar að trylla áhorfendur í kvöld á afmælisballi Í svörtum fötum.
Jónsi rokkar á Spot í kvöld. Honum þykir tyrkneskur piparbrjóstsykur besta
sælgætið og borðar hann þar til hann fær brjóstsviða. MYND/ERNIR
JÓLABLAÐ FRÉTTABLAÐSINS
Stóra jólablaðið frá Fréttablaðinu kemur út
þriðjudaginn 28. nóvember.
Áhugasamir auglýsendur hafið samband við
auglýsingadeild sérblaða í síma 512 5402
Blaðið er stútfullt af allskonar skemmtilegu efni tengdu jólunum.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . N ÓV E M B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
1
8
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
4
0
-9
4
6
4
1
E
4
0
-9
3
2
8
1
E
4
0
-9
1
E
C
1
E
4
0
-9
0
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
0
s
_
1
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K