Fréttablaðið - 18.11.2017, Blaðsíða 82
L íf Ástu Kristínar Parker er ævintýri líkast. Hún býr ásamt fjölskyldu sinni í Arabíuríkinu Óman í höfuðborginni Múskat þar sem umhverfið er
sveipað dulúð og minnir helst á
leiksvið Aladdíns. Ásta Kristín,
sem er menntaður dýralæknir, er
keppnismanneskja í öllu sem hún
tekur sér fyrir hendur og kappsfull-
ur maraþonhlaupari. Þessa dagana
tekst hún á við þraut sem er ekki á
færi nema allra reyndustu hlaupara,
eyðimerkurhlaup í Wahiba eyði-
mörkinni í Óman. Alls eru hlaupnir
165 kílómetrar í gegnum gífurlegar
sandbreiður. Einungis velþjálfaðir
hlauparar mega skrá sig til leiks,
en það eru hundrað þátttakendur
frá 15 þjóðlöndum sem taka þátt.
Keppnin fer fram dagana 17.-25.
nóvember, áhugasamir geta fylgst
með hlaupinu á heimasíðu mara-
þonsins www.marathonoman.com.
Þrekraun í eyðimörk
„Ég tók þátt í þessari keppni í fyrra,
og lofaði sjálfri mér að gera þetta
aldrei aftur. Síðasta keppni reynd-
ist mér afskaplega erfið, það tekur
á að hlaupa í gegnum sandhóla og
endalausar sandbreiður. Ég barðist
við flökurleika, blóðsykursfall og
krampa. En ég stóð ekki við lof-
orðið og skráði mig til leiks á ný. Ég
er töluvert betur undir þetta búin
að þessu sinni. Ég æfði mig í Wahiba
eyðmörkinni hér í Óman, en ekki
jafn mikið reyndar og upphaflega
stóð til því að ég hef verið við góð-
gerðarstörf í Taílandi.“
Hlaupaleiðinni er skipt í sex
hluta og gista keppendur í tjöldum
í eyðimörkinni á milli hlaupaleiða,
endamarkið er við Arabíuhaf. Kepp-
endur hlaupa með eigin vistir og
tjöld, lengsta einstaka dagleiðin er
40 kílómetrar. Einn hluti er hlaup-
inn að næturlagi, en þá ríkir algjör
þögn í Wahiba eyðimörkinni og
stjörnurnar lýsa leiðina. Keppni af
þessu tagi væri ekki möguleg yfir
sumartímann, en hitastigið í eyði-
mörkinni er rétt yfir 30 gráður á
þessum árstíma að jafnaði en rakinn
þó nokkur.
Hleypur af því að hún getur það
„Ég var alltaf léleg í öllum bolta-
íþróttum þegar ég var yngri svo ég
Hleypur 165 kílómetra í eyðimörk
Ásta Kristín Parker býr í Óman, stundar dýralækningar með góðgerðarsamtökum í Asíu á milli þess sem hún
hleypur maraþon víðsvegar um veröldina. Hún keppir núna í ofurmaraþoni í Wahiba eyðimörkinni.
Ásta tekur þátt maraþonhlaupum um allan heim.
Ásta kennir dýraskurðlækningar í Taílandi á vegum góðgerðarsamtakanna Worldwide Veterinary Service.
Hlauparar í eyði-
merkurmaraþoninu
þurfa að leggja 165
kílómetra að baki.
Ásta Kristín Parker býr í borginni Múskat í Arabíuríkinu Óman og er margfaldur Ómanmeistari í maraþoni.
hleyp í staðinn. Þegar ég keppti í
róðri á háskólaárunum í Edinborg
þá voru hlaup hluti af æfingunum
okkar.“ Þess má geta að Ásta er
margfaldur Skotlands- og Bretlands-
meistari í kappróðri. Árið 1994 tók
hún þátt samveldisleikunum í Kan-
ada, fyrir hönd Skotlands.
„Það eru ekki mörg ár síðan ég fór
að keppa í hlaupum, vinkona mín
stakk upp á því að ég keppti í hálfu
maraþoni í Reykjavík og ég hef vart
stoppað síðan.“ Árangur Ástu er
ekki síðri í hlaupaskónum en í róðr-
inum og í sumar vann hún Íslands-
meistaramót kvenna í Reykjavíkur-
maraþoninu, og hún hefur unnið
maraþonið í Múskat fjögur ár í röð
og svo mætti lengi telja.
„En þessa miðaldra hlaupakerl-
ingu vantar hlaupaþjálfara,“ segir
Ásta og hlær við. „Það er enginn í
boði hér í Óman, ég hef bara hann-
að mín eigin æfingaplön. Íþrótta-
lífið hér er á byrjunarstigi miðað
við það sem við þekkjum á Vestur-
löndum. Hér fæ ég til dæmis ekki
íþróttaskó eða fatnað, það kaupi ég í
Evrópu.“ En hvert skyldi markmiðið
vera með öllum þessum hlaupum?
„Langtímamarkmiðið mitt er að
komast nær þremur tímum í mara-
þoni áður en ég verð of gömul til
að hlaupa og til þess vantar mig
styrktaraðila en ég er einmitt að
leita að honum.“
Kennir ungum dýralæknum í
Taílandi
Ásta Kristín starfaði sem dýralæknir
í fjölmörg ár í Bretlandi þar sem hún
var búsett lengst af. „Ég hef sinnt
dýralækningum minna eftir að við
fjölskyldan fluttum til Múskat, vann
við það hérna til að byrja með. Ég
þurfti að kynna mér uppskurð á
úlföldum eftir að ég flutti hingað,
eðlilega þar sem úlfaldarnir hér eru
fleiri en hestar og töluvert minna
um gæludýr en á Englandi.“
Í vetur hefur Ásta dvalið í Chiang
Maí í Taílandi á vegum góðgerðar-
samtakanna Worldwide Veterinary
Service (WVS). Samtökin senda
dýralækna, hjúkrunarfræðinga og
lyf til vanþróaðari landa. Eitt helsta
verkefni samtakanna er að berjast
gegn hundaæði sem dregur fjölda
fólks og dýra til dauða á þessum
slóðum. Í ár hleypur Ásta til styrkt-
ar samtökunum, áhugasamir geta
styrkt hana og flett henni upp á
www.justgiving.com og lagt mál-
efninu lið.
„Að starfa við dýralækningar í
vanþróuðum löndum er allt öðru-
vísi en á Vesturlöndum. Aðstæður
eru frekar frumstæðar, jafnvel ekki
aðgengi að blóðrannsóknum eða
röntgen. Lyf eru oft ekki fáanleg,
það flækir málin ef hvorki eru til
verkjastillandi lyf né efni til svæf-
inga. Tilfinningin er stundum eins
og að hafa bara plástur til að laga
beinbrot. Samtökin berjast mark-
visst fyrir útrýmingu hundaæðis í
þróunarlöndunum og til að ná því
markmiði bólusetjum við þúsundir
hunda á þessum svæðum. Ég er að
kenna ungum dýralæknum skurð-
lækningar, fer næst til Góa á Ind-
landi í sama tilgangi og verð þar
fram að jólum.“
Á hlaupum um heiminn
Undirbúningur undir næsta hlaup
hefst innan skamms þrátt fyrir að
eyðimerkurhlaupið sé enn í fullum
gangi. „Ég býst við að taka eina til
tvær vikur í að ná mér eftir þetta
og svo byrjar undirbúningur fyrir
Múskat maraþonið sem fer fram í
janúar og svo er það Boston í apríl
og að sjálfsögðu Reykjavík í sumar,“
segir Ásta Kristín og leggur af stað í
leiðangur.
Ég tók þátt
í þessari
keppni í
fyrra, og
lofaði sjálfri
mÉr að gera
þetta aldrei
aftur. síð-
asta keppni
reyndist
mÉr afskap-
lega erfið.
Ásta Hrafnhildur
Garðarsdóttir
astahrafnhildur@frettabladid.is
ERTU LÖNGU HÆTT/UR AÐ REYKJA EN
SITUR UPPI MEÐ SKEMMDIRNAR!
Supreme Demantshúðslípun + Intraceuticals
“Hollywood-meðferð”
Fyrir Eftir
Fyrir þá sem gera kröfur um
gæði og árangur
Jólagjöfin í ár
Hlíðasmára 9 • Kópavogi • S. 893 0098 • snyrt@snyrt.is • www.snyrt.is
Snyrtistofan Hafblik
1 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r42 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
8
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
4
0
-B
B
E
4
1
E
4
0
-B
A
A
8
1
E
4
0
-B
9
6
C
1
E
4
0
-B
8
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
0
s
_
1
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K