Fréttablaðið - 18.11.2017, Side 86

Fréttablaðið - 18.11.2017, Side 86
Vélmenni utan úr geimn-um hafa lagt undir sig jörðina en piltar tveir bjóða þessum illu öflum birginn.“ Svo hljóðaði stuttaraleg lýsing á breskri sjónvarpsþáttaröð fyrir börn og unglinga, sem hóf göngu sína í Ríkissjónvarpinu í lok janúar árið 1987. Þeir voru sagðir gerðir eftir kunnri vísindaskáldsögu og ættu að gerast árið 2193. Þættirnir nefndust Þrífætlingarnir. Það má teljast kaldrifjuð ákvörð- un hjá stjórnendum RÚV að hefja sýningar á Þrífætlingunum (eða The Tripods, eins og þættirnir nefndust á frummálinu) í ljósi þess að í ársbyrjun 1987 lá fyrir að framleiðslu þeirra væri hætt. Eftir gerð tveggja þáttaraða, með samtals 25 þáttum, ákvað BBC að láta staðar numið. Ástæðan var hár framleiðslukostnaður, auk þess sem Michael Grade, yfirmanni dagskrár- gerðar hjá stofnuninni, var í nöp við vísindaskáldskap og taldi slíkt efni ómerkilegt. Um svipað leyti lét Grade gera hlé á gerð þáttanna um Dr. Who og bakaði sér þar með ævarandi óvild nördaheimsins. Myndaflokknum um Þrífætlingana lauk þar með í miðju kafi, við lok ann- arrar bókar þríleiksins og sjónvarps- áhorfendur fengu því aldrei að sjá hin dramatísku sögulok. Það var breski rithöfundurinn John Cristopher sem samdi bækurnar þrjár um Þrífætling- ana á ofanverðum sjöunda áratugnum. Hann var afkastamikill höfundur og sendi frá sér fjölda bóka undir ýmsum nöfnum. Í flestum tilvikum var um að ræða vísindaskáldskap og var mark- hópurinn yfirleitt ungmenni. Sem fyrr segir gerast sögurnar í framtíðinni, þar sem geimverur hafa hertekið Jörðina. Helstu stórborgir eru rústir einar, en mannkynið fæst við fábreyttan sjálfsþurftarbúskap í samfélagi sem helst minnir á Evrópu miðalda. Mestöll nútímatækni er horf- in úr sögunni, þó hafa stöku minjar varðveist, svo sem vasaúr og eru slíkir undragripir í miklum metum. Mannkynið heilaþvegið Þorri almennings hefur aldrei litið geimverurnar sjálfar augum, heldur einungis séð risavaxin og þrífætt farar- tæki þeirra sem arka um heiminn og halda hinum innfæddu í skefjum. Eru þrífætlingar þessir augljós vísun í sams konar vélar innrásarliðsins í sögu H.G. Wells, Innrásinni frá Mars. Raunar þurfa geimverurnar lítið fyrir málunum að hafa, því allur mót- þrói er brotinn aftur með heilaþvotti. Við fjórtán ára aldurinn er hvert mannsbarn tekið af geimverunum og það „markað“, með búnaði sem er komið fyrir á höfðinu og brýtur niður allt frumkvæði, drifkraft og frelsisþrá. Sagan hefst þegar tveir enskir piltar á fjórtánda ári komast í kynni við flakkara nokkurn, en ekki er óþekkt að heilaþvottaraðgerðin mistakist og viðkomandi sturlist og leggist í flakk. Maðurinn dularfulli reynist þó enginn útigangsmaður heldur útsendari upp- reisnarmanna – fólks sem sloppið hefur undan geimverunum og skipu- leggur á laun hersveitir til að undirbúa uppreisn. Piltarnir tveir, Will og Henry, ákveða að stinga af og leita uppi búðir uppreisnarmanna á „Hvíta fjallinu“ í svissnesku Ölpunum, en af því dregur fyrsta bók sagnaflokksins nafn sitt. Á leiðinni kynnast þeir frönskum pilti, Jean-Paul, sem slæst í hópinn. Bókinni og fyrri sjónvarpsþátta- röðinni lýkur báðum þar sem félag- arnir þrír ná takmarki sínu og komast í raðir andspyrnumanna eftir æsilegan eltingaleik við Þrífætlinga. Synd væri að segja að atburðarás þessa fyrsta hluta sögunnar væri hröð og einkum kvörtuðu yngri áhorfendur þátttanna yfir löngum og tilgangslitlum senum þar sem félagarnir vinna landbúnaðar- störf eða þramma langar vegalengdir í sveitum Frakklands. Til að draga úr flóknum tæknibrellum gripu hand- ritshöfundar einnig til þess bragðs að skrifa inn í söguna hersveitir skip- aðar mönnum sem sáu að mestu um eftirförina, fyrir vikið voru sjálfir Þrí- fætlingarnir fremur lítt sýnilegir í þáttunum. Jafnframt var í sjónvarps- þáttunum bætt við nokkrum kvenper- sónum, stúlkum sem unglingspiltarnir verða ástfangnir af, en í bókum Johns Christopher komu nær engar konur við sögu. Þrátt fyrir göngutúrana endalausu og leiðigjarna vinnu á vínekrunum, fönguðu sjónvarpsþættirnir athygli fjölmargra áhorfenda sem biðu spenntir eftir næstu þáttaröð. Hún nefndist Gullborgin og fylgdi í grófum dráttum fléttunni í annarri bók þrí- leiksins, Borginni úr gulli og blýi. Í þeirri sögu nær vísindaskáldskapurinn sér á flug og lesendur fá loks að fræðast um eðli geimveranna. Djöfulleg áform Geimverurnar hafast við í þremur ógnarstórum borgum, sem eru eins konar gylltir píramídar. Ein þeirra er í námunda við rústir Berlínar, önnur í grennd við Peking og sú þriðja í Mið- Ameríku. Þangað eru í sífellu fluttir stórir hópar vaskra íþróttamanna og fagurra stúlkna og þykja það eftir- sóknarverð örlög, þótt enginn snúi aftur. Einsetja uppreisnarmenn sér að koma flugumönnum sínum í þennan hóp til að afla upplýsinga og tekst Will að hreppa hnossið við annan mann með því að sigra í íþróttakeppni. Í ljós kemur að unga fólksins bíður ekkert sældarlíf í gullborginni. Í skáld- sögunni eru allar ungu konurnar drepnar og þær gerðar að skrautgrip- um fyrir geimverurnar að dást að, en piltarnir verða að þrælum. Aðdráttar- aflið innan borgarinnar er tvöfalt sterkara en utan veggja og loftið bráð- drepandi án öndunargrímu. Fyrir vikið deyja flestir þrælanna innan tveggja ára. Í sjónvarpsútgáfunni er dregið úr hryllingnum og hlutskipti þrælanna gert allbærilegt. Annað frávik er á milli bókanna og sjónvarpsþáttanna varðandi útlit geimveranna. Í bókinni eru þær í laginu eins og risastórar umferðarkeilur á fótum, en í þáttunum voru þær þrífættar með risastórt höfuð í stað búks, líkt og smækkuð útgáfa af farartækjum sínum. Í báðum útgáfum kemst Will á snoðir um að geimverurn- ar hyggist breyta loftslagi Jarðarinnar að sínum þörfum og þar með þurrka út allt líf á plánetunni. Honum tekst að sleppa við illa raun og hyggst flytja félögum sínum í andspyrnunni þessar mikilvægu fregnir, en þegar komið er að Hvíta fjallinu bíða hans einungis brunarústir búða þeirra. „Var þetta þá allt til einskis?“ – spyr unglingurinn sig í örvilnan. Stutt gaman Og með þessa spurningu voru bresk ungmenni skilin eftir í lausu lofti síðla árs 1985 og íslenskir sjónvarpsáhorf- endur sömuleiðis tveimur árum síðar. Vonbrigði beggja hópa urðu þau sömu þegar fréttist að það yrði ekkert fram- hald. Sjónvarpið byði engin svör um afdrif Wills, uppreisnarmanna og Jarðarbúa allra. Margir upplifðu sár persónuleg svik. Höfundur þessarar greinar var í þeim hópi. Meðan flest ungmenni létu sér nægja að bölva skúnknum Michael Grade, gripu þau lausnamiðaðri til þess ráðs að lesa einfaldlega loka- bókina, en hana mátti finna á fáeinum íslenskum bókasöfnum. Í lokahlutanum kemur í ljós að and- spyrnuhreyfingin lifir enn og eflist að krafti. Meðlimir hennar uppgötva að alkóhól getur lamað geimverurnar og með þá vitneskju að vopni tekst þeim að sigra tvær af þremur gullborgunum og ráða niðurlögum óvinanna. Sú þriðja vinnst eftir harðan bardaga þar sem pilturinn Henry fórnar lífi sínu til að tryggja sigurinn og er hylltur eftir dauðann. Geimverurnar á Jörðinni eru allar dauðar og yfirboðarar þeirra játa sig sigraða og tortíma því sem eftir er af gullborgunum með loftárásum, væntanlega til að hindra að mennirnir nái að tileinka sér tækni þeirra. Mannkynið réttir hratt úr kútnum og tekst á undraskjótum tíma að endurheimta fyrra tæknistig. Þó eru endalokin ekki að öllu leyti hamingju- rík, því draumsýn leiðtoga uppreisnar- manna um að reisa nýtt og samhent samfélag með bræðralagi allra manna fer út um þúfur. Þess í stað hefjast þegar flokkadrættir og mannkynið skiptir sér aftur niður í þjóðir og ríki. Sú ákvörðun BBC að slá af þættina um Þrífætlingana varð höfundinum John Christopher talsverð vonbrigði. Hann ákvað þó að nýta sér hinar nýju vinsældir sagnaflokksins árið 1988 og bætti við fjórðu sögunni, sem rakti komu Þrífætlinganna til Jarðar og upphaf andspyrnuhreyfingarinnar. Auðvelt er að túlka þá sögu sem gagn- rýni á innantómt sjónvarpsgláp, en samkvæmt henni náðu geimverurnar völdum á Jörðinni með því að dáleiða drjúgan hluta heimsbyggðarinnar með sérstökum hljóðmerkjum sem leikin voru undir vinsælum sjónvarpsþátt- um. Ber flestum saman um að þessi síðasta bók sé langlökust og er henni oftast sleppt í heildarútgáfum Þrí- fætlingaritraðarinnar. Á liðnum árum hafa borist fregnir af áhuga kvikmyndagerðarmanna á að koma ævintýrinu um Þrífætlingana á hvíta tjaldið. Hvort þær áætlanir ná fram að ganga er ómögulegt að spá um – en ef til kemur, mælir höfundur þessarar greinar sterklega með því að sagan verði kláruð í einni mynd í stað þess að treysta á framh … Þrífætlingarnir Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um svikult sjónvarp. Margir uPPlifðu Sár PerSónuleg Svik. 29. NÓVEMBER Í HöRPu HEIMSTÚRINN MIÐASALA á TIX.IS, HARPA.IS OG Í SÍMA 528 5050 1 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r46 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 1 8 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 7 F B 1 2 0 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 4 0 -9 4 6 4 1 E 4 0 -9 3 2 8 1 E 4 0 -9 1 E C 1 E 4 0 -9 0 B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 1 2 0 s _ 1 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.