Fréttablaðið - 18.11.2017, Blaðsíða 88
Handprjónasambandið er í fyrsta sinn að fara á stóran jólamarkað í Strassborg í Frakklandi. „Ísland er vinsælt í Frakklandi eftir
fótboltann í fyrrasumar og er heiðurs
gestur á þessum stóra jólamarkaði sem
verður opnaður 24. nóvember. Við erum
búin að senda tvö bretti og ég vona að
við þurfum ekki að koma með allt heim
aftur!“ segir Þuríður Einarsdóttir, for
maður sambandsins og starfsmaður.
Fyrr í þessum mánuði fagnaði Hand
prjónasambandið fertugsafmæli sínu í
nýrri verslun að Borgartúni 31. Þá var
gluggað í fundargerðir og blaðaúrklipp
ur frá fyrstu árunum. Meðal þess sem
þar kom fram var að um þúsund manns
mættu á stofnfundinn sem haldinn var í
Glæsibæ og mörg hundruð manns, aðal
lega konur gerðust félagar. „Það var stórt
skref að sameina prjónafólk landsins en
þótt samtökin ættu miklu fylgi að fagna
í byrjun átti, held ég, enginn von á því
að þau lifðu svona lengi,“ segir Þuríður.
Hún kveðst hafa prjónað frá því hún
var krakki og vera ein af stofnendum
sambandsins. Segir áherslur þess frá
byrjun hafa verið að félagar þess
ættu vísan sölustað fyrir prjónavörur
og fengju betur greitt fyrir þær en áður
hefði tíðkast. „Ég ætla ekki fullyrða að
draumurinn um góð vinnulaun hafi
ræst, það lifir enginn af því að prjóna
lopapeysur en hér eiga félagar víst að
tekið er við vörum þeirra, ef þær stand
ast gæðakröfur. Áður var ég kannski að
prjóna fyrir einhvern aðila sem hafði
beðið um svo og svo margar peysur í til
teknum útgáfum. Ég er fljót að prjóna og
þegar ég skilaði af mér þá gat ég átt von á
að heyra: „Við þurfum ekki peysur núna,
það er fullt hjá okkur,“ og ég mátti sitja
uppi með þessar flíkur í einhverja mán
uði þar til aftur var þörf fyrir þær. Það er
mun betri tilfinning að vinna fyrir eigið
félag.“
Þuríður telur Handprjónasam
bandið eiga framtíð fyrir sér, svo lengi
sem ferðamannastraumurinn varir.
„Handprjónavaran í okkar verslunum
er unnin af félagsfólki hér á landi. En
við erum að keppa við peysur sem eru
framleiddar í Kína og skreyta sig með
íslenskum merkjum. Þær eru seldar
í búðum hér og stjórnvöld á hverjum
tíma hafa heykst á því að gera kröfu
um upprunavottorð. Því höfum við
ekkert opinbert merki sem sannar það
að okkar peysur séu prjónaðar hér. Þar
gildir annað um kjötvöru. Í kæliborð
unum eigum við kröfu á að vita hvaðan
kjötbitinn kemur sem við kaupum. Það
er annað með fataframleiðsluna, hún er
að stærstum hluta komin til landa þar
sem fólk býr við ömurleg kjör.“
Í Handprjónasambandinu eru
líka vélprjónaðar vörur frá prjónastof
um hér á landi eins og Glófa í Ármúl
anum og Kitku sem er á Hvammstanga.
En heldur Þuríður að ferðamenn og aðrir
viðskiptavinir kunni að meta uppruna
varanna sem vert er? „Já, margir leggja
upp úr því að kaupa íslenskt og láta
það oft ráða úrslitum. Leiðsögumenn
eru líka meðvitaðir um gæði vörunnar
hér og þeir vísa á okkur.“ Oft berast líka
pantanir erlendis frá, að sögn Þuríðar.
„Við erum með söluaðila í Japan og tvo í
Þýskalandi sem panta reglulega.“
Þuríður er stödd í Borgartúninu
þegar viðtalið fer fram. „Við vorum með
verslun á Laugavegi 53 en bæði hækkaði
leigan þar árlega, umfram alla samninga,
og svo vantaði okkur betri vinnuaðstöðu
og lagerpláss. Þegar þetta húsnæði kom
upp í hendurnar á okkur stukkum við á
það. Verslunin á Skólavörðustígnum er
samt vinsælli enn þá hjá ferðamönnum,
þrátt fyrir þrengslin.“ gun@frettabladid.is
Á leið til Frakklands með
lopapeysur á jólamarkað
Um þúsund manns mættu á stofnfund Handprjónasambands Íslands í Glæsibæ og sam-
þykktu að opna sölustað fyrir sínar vörur til að efla eigin hag. Síðan eru fjörutíu ár.
Þuríður hefur prjónað frá því hún var krakki og er ein af stofnendum Handprjónasambandsins. Fréttablaðið/EyÞór
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma
og langamma,
Helga Geirsdóttir
frá Hallanda,
Þinghólsbraut 35, Kópavogi,
lést á dvalarheimilinu Sunnuhlíð
14. nóvember og verður jarðsungin frá Hraungerðiskirkju
þriðjudaginn 21. nóvember klukkan 14. Jarðsett verður í
Laugadælakirkjugarði.
Sævar Hjálmarsson María Baldursdóttir
Hafþór Björgvin Jónasson
börn og barnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Dagbjörg Svana
Engilbertsdóttir
er látin.
Fyrir hönd ættingja,
Thorvald K. Imsland
Albert Dagbjartarson Imsland Ólöf B. Jónsdóttir
Engilbert Imsland Margrét Hannesdóttir
Róbert Imsland Þórey Garðarsdóttir
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Guðmundur Óskarsson
læknir,
lést á líknardeild Landspítalans 7. nóv.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna. Þeim sem vilja minnast hans er
bent á líknardeild Landspítalans og minningarsjóð Karítas.
Anna Lilja Kjartansdóttir
Valur Guðmundsson, Fanný Bjarnadóttir
Eva Ósk Guðmundsdóttir, Valgarður Guðmundsson
Ása María Guðmundsdóttir, Morten Hansen
og barnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Silja Kristjánsdóttir
lést þann 9. nóvember sl. Útförin
fer fram frá Fossvogskapellu
miðvikudaginn 22. nóvember kl. 15.
María Hreinsdóttir
Benedikt Hreinsson Andrea Rafnar
Sveinn Árnason Herdís Guðjónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Hinsti vilji
Hver er vilji þinn varðandi skipulag og fyrirkomu-
lag útfarar, þ.e. hinsti vilji. Við bjóðum þér til
samtals um það sem er þér mikilvægast við
lífslok þín. Viljayfirlýsing þín verður eftirlifendum
mikilvægt leiðarljós. Samtalið og varðveisla
upplýsinga er þér að kostnaðarlausu.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Elín Sigrún Jónsdóttir,
lögfræðingur
Útfararstofa kirkjugarðanna
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
1 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r48 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
1
8
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
4
0
-8
0
A
4
1
E
4
0
-7
F
6
8
1
E
4
0
-7
E
2
C
1
E
4
0
-7
C
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
0
s
_
1
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K