Morgunblaðið - 21.01.2017, Síða 1
L A U G A R D A G U R 2 1. J A N Ú A R 2 0 1 7
Stofnað 1913 18. tölublað 105. árgangur
MAÐUR
SELUR EKKI
ÖMMU SÍNA
FULL AF
BIRTU OG
FEGURÐ
KAMMERMÚSÍKKLÚBBURINN 43FORMÆÐUR HEIÐRAÐAR 12
Donald J. Trump sór embættiseið sem 45. for-
seti Bandaríkjanna í gær. Athöfnin fór fram á
vestursvölum þinghússins á Capitol-hæð í höf-
uðborginni, Washington DC. Mikill mannfjöldi
var samankominn fyrir framan þinghúsið af
þessu tilefni eða um átta hundruð þúsund
manns.
Forseti Hæstaréttar Bandaríkjanna, John G.
Roberts, hlýddi forsetanum yfir eiðinn. Á
þeirri stundu hélt Trump hægri hendi á lofti
en þá vinstri lagði hann á tvær Biblíur sem
kona hans, Melania Trump, hélt á. Aðra þeirra
hlaut hann að gjöf frá móður sinni árið 1955
en hitt eintakið er hið sama og Abraham Lin-
coln sór embættiseið við 4. mars 1861. Forveri
Trumps í embætti, Barack Obama, sem við-
staddur var athöfnina, notaðist einnig við Bibl-
íu Lincolns í bæði skiptin sem hann sór eiðinn
að embættinu 2009 og 2013.
Eina barn nýrra forsetahjóna, Barron
Trump, fylgdist ábúðarfullur með föður sínum
við embættistökuna. Fjögur börn forsetans,
sem hann eignaðist með tveimur fyrri konum
sínum, voru einnig viðstödd. »24-25
Nýr forseti tekur við valdataumunum í Washington
AFP
Donald Trump er nýr forseti Bandaríkjanna
Anna Sigríður Einarsdóttir
Jón Birgir Eiríksson
Lífsýni voru tekin úr fatnaði skip-
verjanna tveggja sem nú sitja í
gæsluvarðhaldi vegna hvarfs Birnu
Brjánsdóttur. Þetta staðfestir Grím-
ur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu,
en hann gefur þó ekki upp hverrar
gerðar sýnin eru. Lagt var hald á
fatnaðinn í togaranum Polar Nanoq.
Mennirnir tveir eru grunaðir um
manndráp og meðal þess sem til
rannsóknar er vegna málsins er
blóðsýni sem fannst í bifreið þeirra.
Þeir eru báðir grænlenskir, annar
þeirra er um þrítugt og hinn nær 25
árum í aldri. Þeir hafa báðir komið til
Íslands áður.
Rannsókn lögreglu byggist á rök-
studdum grun um að Birna hafi sest í
farþegasæti bifreiðarinnar við
Laugaveg 31, en lífsýni voru einnig
tekin úr skotti bílsins.
Fram kom við yfirheyrslur að
mennirnir voru að skemmta sér í
miðbæ Reykjavíkur síðastliðinn
laugardag og var annar þeirra undir
áhrifum áfengis.
Grímur segir lögreglu undanfarið
hafa skoðað farsímagögn og þannig
reynt að rekja ferðir mannanna.
Spurður hvort farsímagögn vegna
ferða þeirra á laugardeginum hafi
verið skoðuð sérstaklega, segir hann
að hann geti ekki tjáð sig um það
mál. Enginn staðsetningarbúnaður
var í bílaleigubíl mannanna.
Leitarsvæði vegna hvarfs Birnu
verður stækkað verulega í leit að
henni í dag og munu björgunarsveit-
ir á Selfossi, í Borgarnesi og á
Reykjanesi leita hennar. Fyrst um
sinn verður leitað á vegum og vega-
slóðum og í nágrenni þeirra.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landsbjörg er um stærstu leitarað-
gerð að ræða frá upphafi og munu að
minnsta kosti 440 björgunarsveitar-
menn taka þátt í leitinni um helgina.
Ein stærsta aðgerð lögreglu
Ævar Pálmi Pálmason, lögreglu-
fulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborg-
arsvæðinu, fullyrðir að lögregluað-
gerðir vegna hvarfs Birnu séu þær
mestu frá aldamótum.
Hann segir mikið álag á starfsfólki
embættisins og lögreglumönnum.
Allir séu þó einbeittir og ákveðnir í
að upplýsa málið.
„Við unnum okkur ekki hvíldar
fyrr en við upplýsum þetta mál. Það
er alveg á hreinu,“ segir hann.
Lífsýni tekin úr fatnaði
Enginn staðsetningarbúnaður var í bifreiðinni Annar hinna grunuðu undir
áhrifum áfengis Langstærsta leitaraðgerð sem ráðist hefur verið í frá upphafi
MTvö þúsund leitarsvæði... »4 & 6
Framvinda málsins
» Lögregla tók lífsýni úr fatn-
aði sem hald var lagt á í togar-
anum Polar Nanoq.
» Blóð fannst í bílaleigubifreið
sem hinir handteknu höfðu til
umráða á laugardag.
» Björgunarsveitirnar ráðast í
allsherjarleit að Birnu Brjáns-
dóttur um helgina.
Kúabændum er að fækka og fram-
leiðsla hvers og eins að aukast.
Þannig fækkaði þeim sem tóku þátt
í skýrsluhaldi nautgriparæktarinnar
í desember úr 573 í 547 á milli ára,
eða um 26 bændur. Meðalinnlegg
jókst á móti úr 234 þúsund lítrum í
250 þúsund lítra, sem er nærri 7%
aukning.
Guðmundur Jóhannesson,
ábyrgðarmaður RML í naut-
griparækt, segir að auknar kröfur í
reglugerð um velferð nautgripa
kalli á fjárfestingar í aðstöðu á
næstu árum. Mönnum sé í raun og
veru settur stóllinn fyrir dyrnar
nema þeir stækki upp í 60-70 kýr.
Ekki eigi allir kost á því, vegna
landrýmis og ræktunarmöguleika,
auk þess sem menn eldist og oft sé
enginn til að taka við. Margir hafi
hætt í haust og vetur. Þeir sem
gátu hafi selt kvótann á kvótamark-
aðnum í haust, þeim síðasta sem
haldinn er.
Mikil aukning varð á afurðum ís-
lensku mjólkurkúnna á síðasta ári
og hefur nytin aldrei verið meiri.
Afurðamesta búið, Brúsastaðir í
Vatnsdal, setti nýtt og glæsilegt Ís-
landsmet í afurðum. Þar stendur
einnig í fjósi kýrin Nína 676 sem
setti Íslandsmet í afurðum á einu
ári. »14
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Met Kýrnar á Brúsastöðum í Vatns-
dal slógu Íslandsmet á nýliðnu ári.
26 hættu
búskap
Nína var afurða-
mesta kýrin í fyrra
„Þetta lag virðist ganga mann fram
af manni, kynslóða á milli,“ segir
Eyjólfur Kristjánsson, spurður út í
lagið sem hann söng fyrir hönd Ís-
lands, ásamt Stefáni Hilmarssyni, í
Eurovision árið 1991.
Í viðtali í sunnudagsblaði Morg-
unblaðsins segja þeir félagarnir að
þeir hafi, vegna sérstakrar vináttu,
getað komið fram og sungið lagið
aftur og aftur síðastliðin 26 ár. Í ár
fagna þeir vináttu sem varað hefur
í þrjá áratugi samfleytt.
Draumurinn um
Nínu eldist vel
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Vinir Félagarnir hafa tekið ófáar æfingar.