Morgunblaðið - 21.01.2017, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017
Fararstjóri: Steingrímur Gunnarsson
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Brasilía&Argentína
Þessi ævintýraferð er blanda af stórfenglegri náttúru og
tveimur af fallegustu borgum veraldar, Buenos Aires og
Rio de Janeiro. Við kynnumst Iguazú þjóðgarðinum, Casa
Rosada og sjáum eitt af sjö undrum veraldar. Ferð sem skilur
eftir sig ljúfar og litskrúðugar minningar.
Allir velkomnir á kynningarfund 23. janúar kl. 20:00
hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð.
sp
ör
eh
f.
8. - 21. október
„Ég held að þetta muni fjara út. Ég hef ekki trú á því að
þetta verði viðvarandi,“ segir Kristjana Guðmunds-
dóttir Motzfeldt um neikvæð áhrif af máli grænlensku
skipverjanna á Polar Nanoq á sam-
skipti Íslendinga og Grænlendinga
og andrúmsloftið á milli þjóðanna.
Fréttir í vikunni bentu til þess að ein-
hverjir hér á landi væru að skeyta
skapi sínu á Grænlendingum al-
mennt vegna málsins.
Dásamleg þjóð
Kristjana þekkir vel til Grænlend-
inga eftir að hafa verið búsett þar í
landi um langt árabil. „Það kom í ljós
að verið var að gera úlfalda úr mý-
flugu í þessum fréttum,“ segir Krist-
jana. Hún hefur þó áhyggjur af þungum orðum sem lát-
in hafa verið falla í umræðum á netinu.
„Grænlendingar eru dásamlegar manneskjur og
glaðir eru þeir í viðmóti. Við getum margt lært af
Grænlendingum, m.a. að gleðjast yfir hinu smáa og að
maðurinn er hluti af náttúrunni en náttúran sé ekki
undirokuð af manninum,“ segir hún.
Hassneysla mikið vandamál
Kristjana segir fréttir um að 20 kg af hassi hafi fund-
ist um borð í Polar Nanoq hafa vakið athygli sína. Um
er að ræða gífurlegt magn. Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu er einn skipverja, sem talinn er vörslu-
maður fíkniefnanna, nú í gæsluvarðhaldi.
„Hassneysla er landlægt vandamál á Grænlandi og
rosalegur gróði fylgir því ef tekst að flytja það inn.
Hass er víst hvergi dýrara á Vesturlöndum en á Græn-
landi og margfalt dýrara en annarstaðar á Vestur-
löndum. Sjóleiðin er löngu þekkt leið og margar sögur
af því að þegar skip nálgast Grænland er hassinu fleygt
fyrir borð og sótt síðar. Sjómennirnir eru væntanlega
burðardýr. Fyrir utan áfengi er víst svo til eingöngu
um hassneyslu að ræða og sagt er að fólk á Grænlandi
komi í veg fyrir önnur efni en hass.“
Kristjana veltir því fyrir hvort íslenska fíkniefna-
lögreglan sé nógu upplýst um hina mikla hassneyslu á
Grænlandi og þurfi ef til vill að grípa til frekari að-
gerða þegar grænlensk skip koma hingað til hafnar.
„Það er óhugnanlegt að heyra að fleiri kynslóðir í fjöl-
skyldu reyki hass saman; afi, amma, foreldrar og
börn,“ segir hún. gudmundur@mbl.is
Telur að málið muni ekki
skaða samband þjóðanna
Hass hvergi dýrara en á Grænlandi Neyslan vandamál
Morgunblaðið/Eggert
Grænlenskir Mennirnir sem eru í varðhaldi vegna
hvarfs íslenskrar stúlku eru frá Grænlandi.
Kristjana
Guðmundsdóttir
Motzfeldt
Anna Sigríður Einarsdóttir, Freyr
Bjarnason, Guðrún Hálfdánardóttir,
Jón Birgir Eiríksson, Sunna Ósk
Logadóttir, Þorsteinn Ásgrímsson,
Þorsteinn Friðrik Halldórsson, Viðar
Guðjónsson.
Aukinn þungi verður settur í leitina
að Birnu Brjánsdóttur um helgina,
en í dag er liðin vika frá því síðast
spurðist til hennar. Lögregla hefur
stækkað leitarsvæðið verulega og af-
markast það nú af Selfossi, Borg-
arnesi og öllu Reykjanesi. Radíusinn
er frá þeim stað þar sem síðast sást
til rauðrar Kia Rio-bifreiðar sem
tveir skipverjar á togaranum Polar
Nanoq höfðu á leigu.
Þorsteinn G. Gunnarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsbjargar, segir leit-
ina þá stærstu sem Landsbjörg hafi
tekið þátt í frá upphafi, en um 440
leitarmenn voru skráðir í gærkvöldi.
Miða við ákveðinn radíus
Aðgerðastjórnendur skiptu leitar-
svæðunum upp í minni leitarsvæði í
gærkvöldi og eru þau yfir tvö þús-
und talsins. Fyrst um sinn verður
lögð áhersla á leit á og meðfram veg-
um og vegaslóðum á svæðinu öllu.
Þorsteinn segir leitarsvæðið og
radíusinn einnig afmarkast af kenn-
ingum í leitarfræðum.
„Við miðum við ákveðinn radíus
og ákveðna prósentutíðni í leitar-
fræðum sem segja okkur hversu
langt manneskja er flutt frá þeim
stað þar sem hún sást síðast, ef um
er að ræða brottnám,“ segir hann.
Leitarhundar, drónar, fjórhjól og
sexhjól eru meðal þeirra bjarga sem
leitarhóparnir munu styðjast við, en
þyrla Landhelgisgæslunnar mun
einnig sinna leitinni í dag. Þetta á við
um allt leitarsvæðið.
Í gær var leitað á Strandarheiði
líkt og fyrri daga. Fram til þessa
hafa tæplega 300 björgunarsveitar-
menn komið að leitinni.
Blóð fannst í bílnum
Skipverjarnir tveir, sem hand-
teknir voru um borð í togaranum
Polar Nanoq, eru grunaðir um
manndráp. Blóð fannst í bifreiðinni
sem skipverjarnir höfðu á leigu.
Lögregla hefur ekki staðfest að
blóðið sé úr Birnu.
Blóðsýni auk annarra lífsýna úr
bifreiðinni og togaranum hafa verið
send utan til rannsóknar. Vonast er
til þess að niðurstöður berist á allra
næstu dögum.
Upptökur úr eftirlitsmyndavélum
við Hafnarfjarðarhöfn staðfesta að
bíll skipverjanna sé sá sami og lög-
regla hefur lagt hald á. Unnið er út
frá því að bíllinn sem sást á upp-
tökum eftirlitsmyndavéla á Lauga-
vegi sé einnig sá sami og lagt var
hald á.
Einnig er unnið út frá þeirri kenn-
ingu að Birna hafi tekið sér far með
mönnunum, en Grímur Grímsson,
yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu, staðfesti að
sést hefði til mannanna á svipuðum
stað og svipuðum tíma og síðast sást
til Birnu. Allt kapp er nú lagt á að
sannreyna að Birna hafi verið í bif-
reiðinni. Yfirheyrslur yfir skipverj-
unum tveimur stóðu yfir frá hádegi í
gær og um það bil fram að kvöldmat.
Svöruðu þeir spurningum lögreglu
og neituðu ekki að hafa hitt Birnu.
Þeir hafa þó ekki játað sök í málinu.
Skipverjarnir sáust í Kvosinni
Lögreglu hefur tekist að greina
bifreið skipverjanna á nokkrum
stöðum í Kvosinni í miðbænum.
Birna og mennirnir sjást þó aldrei
saman á þeim upptökum sem um
ræðir.
Lögregla einblínir nú á tímabilið
frá því klukkan sjö að morgni laug-
ardags til kl. hálftólf, sama dag. Bíl-
stjórar voru í gær beðnir um að láta
lögreglu í té myndbandsupptökur úr
bifreiðum sem voru á svæðinu á
tímabilinu í þeim tilgangi að rekja
ferðir Kia Rio-bifreiðarinnar.
Undir kvöld bað lögreglan öku-
mann hvítrar bifreiðar sem vitað er
til að hafi keyrt um Óseyrarbraut í
Hafnarfirði klukkan 12:24 á laugar-
dag. Er hann ekki grunaður um
neitt misjafnt, að sögn lögreglu.
Síðast sást til skipverjanna á höfn-
inni um klukkan 6:10 á laugardags-
morgun þar sem þeir stigu út úr bif-
reiðinni og ræddust við áður en
annar þeirra fór um borð í togarann.
Hinn keyrði að flotbryggju við höfn-
ina og staldraði þar við áður en hann
keyrði á brott nokkrum sinnum.
Tvö þúsund leitarsvæði skilgreind
Stærsta leit Landsbjargar frá upphafi Vegir og vega-
slóðar í forgangi Blóðsýni úr bílnum meðal sönnunargagna
Borgarnes
Akranes
Reykjanesbær
Grindavík
Hveragerði
Sefoss
Reykjavík
Leitarsvæði helgarinnar
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Aukinn þungi í leitinni
» Leitarsvæðið stækkað til
muna nú um helgina.
» Blóð fannst í bifreið tveggja
skipverja á togaranum Polar
Nanoq. Lífsýni úr bifreiðinni og
togaranum hafa verið send ut-
an til rannsóknar.
» Skipverjarnir tveir sáust í
Kvosinni í miðbænum á upp-
tökum úr eftirlitsmyndavélum
frá því á laugardag.
» Unnið er að því að sann-
reyna að Birna hafi tekið sér
far með mönnunum.
R E Y K J AV Í K
K Ó PAVO G U R
GARÐABÆR
SÆ
B
R
A
U
T
REYK
JAN
ESB
RA
UT
Vífilsstaðavatn
HAFNARFJÖRÐUR
Ferðir bílsins
Urriðakotsvatn
Laugavegur 31: kl. 5.25
Rauð Kia Rio-bifreið sást ekið vestur
Laugaveg til móts við hús nr. 31.
1
Golfklúbbur Kópavogs og
Garðabæjar: 5.53
Sambærilegum bíl sást ekið við
áhaldageymslu Golfklúbbs
Kópavogs og Garðabæjar.
2
Hafnarfjarðarhöfn: 6.10
Bílnum ekið um Hafnarfjarðarhöfn,
að Polar Nanoq.
3
Hlíðarsmári Kópavogi: 17. janúar,
um kl. 15
Hald lagt á bílinn sem sást við
Hafnarfjarðarhöfn í Hlíðarsmára
í Kópavogi.
4
Grunnkort/Loftmyndir ehf.