Morgunblaðið - 21.01.2017, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Hjólað íSuður-Afríku
Á þessari einstöku hjólaleið líðum við fram hjá öllu því
sem gerir Suður-Afríku að einu fegursta svæði í heimi.
Við upplifum ósnerta náttúru, stórfenglegt dýralíf í þriðja
stærsta þjóðgarði landsins, regnskóga, iðandi borgir og
rómantísk smáþorp. Frábær ferð til kynnast mannlífi og
menningu Suður-Afríku.
Allir velkomnir á kynningarfund 24. janúar kl. 20:00
hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð.
sp
ör
eh
f.
20. október - 3. nóvember
Fararstjóri: Þórður Höskuldsson
„Eflaust má finna einhver dæmi þess
að ekki hafi allt verið kórrétt. En
heilt yfir sýnist mér fjölmiðlar hafa
staðið sig prýðilega í fréttaflutningi
af þessu máli og um leið gert það sem
þeim ber að gera.“
Þetta segir Valgerður Jóhanns-
dóttir, aðjunkt í fjölmiðlafræði við
Háskóla Íslands, en í máli sínu vísar
Valgerður til fréttaflutnings af hvarfi
tvítugrar stúlku, Birnu Brjánsdóttur,
sem ekkert hefur spurst til í sjö
sólarhringa.
Valgerður segir mál sem þetta
vera afar erfitt umfjöllunar og hafa
fjölmiðlar oft verið harðlega gagn-
rýndir fyrir fréttaflutning sinn af því,
einkum á samfélagsmiðlum á netinu.
„Það er hins vegar hlutverk fjöl-
miðla að fjalla um mál og þeir geta
ekki komið sér undan því þó það sé
erfitt, viðkvæmt eða snerti marga í
samfélaginu. Þeir verða bara að
vinna í samræmi við þau gildi sem
uppi eru í blaðamennsku og viðhafa
fagleg vinnubrögð,“ segir hún.
Misgagnlegar upplýsingar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hefur fengið fjöldann allan af ábend-
ingum og skilaboðum í gegnum sam-
félagsmiðla í tengslum við rannsókn-
ina á hvarfi
Birnu. Á sama
tíma hafa einnig
birtst þar villandi
ummæli og
ábendingar sem
lögreglan hefur
þurft að fylgja
eftir.
„Samfélags-
miðlar hafa
breytt miklu, en það getur verið
mjög erfitt, þegar maður er staddur
í miðri hringiðunni, að greina áhrif
þeirra nákvæmlega,“ segir Val-
gerður og bendir á að mikilvægt sé
að fólk dreifi ekki eða hlaupi á eftir
röngum upplýsingum. „Þetta er auð-
vitað einnig mikil áskorun fyrir fjöl-
miðlana því yfir þá dynja alls konar
upplýsingar. Og þá reynir á að
standast freistinguna og kanna hlut-
ina áður en farið er með þá í loftið,“
segir hún ennfremur.
Aðspurð hvort hún telji að mikill
fréttaflutningur geti skaðað rann-
sókn lögreglu svarar Valgerður: „Ég
hef ekki heyrt neitt óyggjandi svar
við því. En auðvitað er einhver tog-
streita á milli lögreglu sem vill sitja
á upplýsingum og fréttamanna sem
vilja fá þær birtar,“ segir hún.
Mál sem þetta
reynir á fjölmiðla
Fólk elti ekki rangar upplýsingar
Valgerður
Jóhannsdóttir
„Þetta hefur verið
mikið áfall fyrir
suma skipverja,
að vera viðfang
rannsóknar af
þessari stærðar-
gráðu og ekki síst
vegna athygl-
innar sem málið
hefur fengið á Ís-
landi. Þetta er
erfiður tími fyrir
þá,“ segir Vittus Qujaukitsoq, utan-
ríkisráðherra Grænlands, um áhöfn
Polar Nanoq.
Ráðherrann segir ráðuneyti sitt í
stöðugum samskiptum við yfirvöld á
Íslandi og útgerðarfyrirtækið Polar
Seafood, sem gerir út Polar Nanoq.
„Við höfum tekið í notkun tvö síma-
númer sem eru opin allan sólar-
hringinn, þangað sem fjölskyldur
áhafnarinnar geta hringt og óskað
eftir ráðgjöf og spurt allra spurn-
inga um skipið og málið almennt,“
segir Qujaukitsoq.
Ráðherrann segir málið hafa vak-
ið mikla athygli á Grænlandi, bæði í
fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum.
Hann segir að Grænlendingum sé
ekki síður umhugað um að rannsókn
lögreglu skili árangri.
„Hugur okkar er hjá fjölskyldu
stúlkunnar og ég vona að við kom-
umst að því hvað varð um hana.“
Vel fylgst
með málinu
á Grænlandi
Vittus
Qujaukitsoq
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Rannsókn lögreglunnar vegna hvarfs Birnu
Brjánsdóttur er ein stærsta aðgerð lögregl-
unnar frá aldamótum í máli af þessari tegund.
Þetta segir Ævar Pálmi Pálmason, lögreglu-
fulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Hann segir umfang málsins svipað og í mann-
hvarfsmáli Einars Arnar Birgissonar, sem var
myrtur árið 2000. Allar deildir embættisins
vinni nú að lausn málsins með einum eða öðr-
um hætti. Ævar Pálmi hefur þó ekki nákvæma
tölu á þeim sem komi eða hafi komið að málinu,
sem hófst fyrir viku.
„Það koma flestar deildir að þessu með ein-
um eða öðrum hætti. Þetta eru um fjórtán til
fimmtán deildir og þar með talið allar stoð-
deildirnar, t.d. tæknideild, tölvurannsókna-
deild, upplýsinga- og áætlanadeild og auðvitað
rannsóknardeild skipulagðra og alvarlegra
brota sem ber hitann og þungann af málinu.
Almenn deild lögreglu kemur líka að þessu og
rannsóknardeildir á lögreglustöðvunum hafa
reynst okkur mjög vel. Það leggjast allir á eitt í
þessu,“ segir Ævar Pálmi.
„Við getum hvílt okkur seinna“
Unnið er að lausn málsins allan sólarhring-
inn að sögn Ævars Pálma. Aðspurður segir
hann að starfsfólkið hafi lítið hvílst síðustu
daga.
„Fólk er það einbeitt og ákveðið í að finna
Birnu og upplýsa þetta mál að það er eiginlega
erfitt að fá fólk til að fara heim að hvíla sig. Það
er unnið myrkranna á milli. Eins og okkar fólk
segir: „Við getum hvílt okkur seinna,““ segir
Ævar Pálmi. „Við unnum okkur ekki hvíldar
fyrr en við upplýsum þetta mál. Það er alveg á
hreinu.“
Framvinda leitarinnar að Birnu Brjánsdóttur
Föstudagur
13. janúar
Birna fer ásamt
vinkonu sinni í
miðbæ Reykja-
víkur föstudags-
kvöldið 13. janúar.
Laugardagur 14. janúar
Vinnustaður Birnu hefur
samband við foreldra
hennar þegar hún mætti
ekki til vinnu ummorgun-
inn. Lögreglu gert viðvart.
Þriðjudagur 17. janúar
Allsherjarútkall björgunarsveita
gefið út og Birnu leitað úr lofti, á
láði og legi, aðallega í Hafnarfirði
og Urriðaholti. Rauð Kia-bifreið,
sem lögreglan leitaði að, finnst í
Hlíðasmára í Kópavogi.
Þriðjudagur 17. janúar
Að kvöldi 17. janúar er bíllinn tengdur við skip-
verja á grænlenska togaranum Polar Nanoq,
sem fór frá Hafnarfjarðarhöfn að kvöldi
laugardags. Lögreglan og danska varðskipið
HDMS Triton hefja eftirför og fjórir íslenskir
lögreglumenn fara með þyrlu Landhelgis-
gæslunnar um borð í Triton. Polar Nanoq fær
fyrirmæli um að snúa við og sigla aftur til
Íslands. Bænastund haldin í Hallgrímskirkju.
Miðvikudagur 18. janúar
Sérsveit ríkislögreglustjóra
sígur um borð í Polar Nanoq,
tekur yfir stjórn skipsins og
handtekur þrjá skipverja.
Áfram er leitað að Birnu í
Hafnarfirði, á Strandarheiði
og við Hvaleyrarvatn.
Fimmtudagur 19. janúar
Tveir menn úrskurðaðir í
gæsluvarðhald vegna gruns um
aðild að hvarfi Birnu, en þriðja
skipverjanum er sleppt. Fjórði
maðurinn handtekinn eftir að um
20 kg af fíkniefnum finnast um
borð í Polar Nanoq. Enn er leitað
að Birnu,m.a. á Strandarheiði.
Föstudagur
20. janúar
Yfirheyrslur yfir
skipverjunum halda
áfram og allsherjarleit
að Birnu boðuð um
allt suðvesturhorn
landsins um helgina.
Föstudagur
20. janúar
Lögreglan lýsir
eftir hvítum
fólksbíl sem
ekið var vestur
Óseyrarbraut
14. janúar kl.
12.24.
Miðvikudagur
18. janúar
Polar Nanoq
kemur að landi
í Hafnarfirði um
kl. 23 og hinir
handteknu færðir
til yfirheyrslu.
Sunnudagur
15. janúar
Móðir Birnu, aðrir
ættingjar og vinir
ganga á milli húsa
við Flatahraun í
Hafnarfirði.
Mánudagur 16. janúar
Lögreglan og fjölmennt lið
björgunarsveita leita Birnu í
300 m radíus frá Laugavegi 31,
í Urriðaholti, við Flatahraun og
í Heiðmörk. Lögreglan boðar til
blaðamannafundar.
Laugardagur 14. janúar
Hún yfirgefur skemmti-
staðinn Húrra ein síns
liðs um kl. 5 aðfaranótt
laugardags og hverfur
sjónum við Laugaveg 31
um kl. 5.25.
Sunnudagur 15. janúar
Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu lýsir eftir Birnu
aðfaranótt 15. janúar.
Þriðjudagur 17. janúar
Skór Birnu finnast við
birgðastöð Atlantsolíu
við Hafnarfjarðarhöfn
aðfaranótt þriðjudagsins
17. janúar.
Stærsta lögregluaðgerðin frá aldamótum