Morgunblaðið - 21.01.2017, Page 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017
Sogavegi við Réttarholtsveg
Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Einkarekið apótek
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Möttulstrókurinn undir Íslandi verð-
ur á sýningu í Lava - Eldfjalla- og
jarðskjálftamiðstöð Íslands sem ver-
ið er að koma upp á Hvolsvelli. Þótt
hann sé í smækkaðri mynd sést samt
á hlutföllunum, þegar Íslandi er stillt
ofan á hann, hversu stór hann er.
Húsið hefur risið á skömmum tíma
og unnið er á fullu að frágangi innan-
húss. Í gær var haldið reisugildi. Að
því loknu var opið hús fyrir íbúa
Hvolsvallar og nágrennis.
„Við höfum kynnt hugmynd og
framkvæmd fyrir íbúunum alveg frá
upphafi. Það hefur skilað sér í að við
höfum alla tíð fengið góðan hljóm-
grunn,“ segir Ásbjörn Björgvinsson,
framkvæmdastjóri Lava. Starfsemin
á að hefjast 1. júní nk.
Bein útsending frá gosum
Auk eldfjalla- og jarðskjálftasýn-
ingarinnar verður veitingasalur með
veitingum úr héraði, auk fjölbreyttra
rétta sem höfða til fólks úr öllum
heimsálfum, og handverks- og
minjagripaverslun Rammagerð-
arinnar. Þá er ætlunin að veita ferða-
fólki sem á leið um Suðurland upp-
lýsingar um veður og náttúru-
hamfarir, í samvinnu við Almanna-
varnir, lögreglu, Veðurstofu og Safe
Travel.
Aðalaðdráttaraflið verður þó
fræðslusýningin. Þar fær fólkið
fræðslu og upplifun um jarðfræði Ís-
lands með hjálp ýmiskonar tækni-
búnaðar og fær svar við spurning-
unni um það hvernig Ísland varð til.
„Fólkið kemur vonandi fróðara út og
getur sett hlutina í samhengi, þótt
ekki verði það orðið að jarðfræð-
ingum.“
Ásbjörn bendir á að í kvikmynda-
sal verði 12 mínútna kvikmynd um
eldgos. „Næst þegar það fer að gjósa
fer fókusinn á það og vonandi verður
hægt að vera með beina útsendingu
frá gosinu í bíósalnum,“ segir hann.
Möttulstrókurinn
undir Íslandi sýndur
Eldfjallasýning, veitingar og verslun og upplýsingaþjón-
usta við ferðafólk um náttúruhamfarir og veður
Tölvuteikning/Basalt arkitektar
Aðdráttarafl Möttulstrókurinn undir Íslandi verður eitt aðalatriðið á eld-
fjalla- og jarðskjálftasýningunni sem verið er að koma upp á Hvolsvelli.
Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson
Opið hús Haldið var reisugildi í sýningarhúsinu á Hvolsvelli í gær.