Morgunblaðið - 21.01.2017, Page 27
27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017
Það var auðvitað
ánægjulegt að Hæsti-
réttur skyldi taka upp
skráningu og birtingu
á upplýsingum um
hagsmunatengsl dóm-
aranna frá og með síð-
ustu áramótum. Þar
með munu aðilar
dómsmálanna geta
hugað að því sjálfir
hvort hagsmunatengsl
einstakra dómara
kunni að valda vanhæfi þeirra og
gert kröfur þar að lútandi telji þeir
ástæðu til. Í skráningu og birtingu
þessara upplýsinga felst líka við-
urkenning af réttarins hálfu á að
hagsmunatengsl vegna þeirra atriða
sem upplýsingar taka til, skipti máli
við ákvörðun um hæfi dómara til að
dæma í einstökum málum. Þó að svo
sem hafi ekki verið nein sérstök
þörf á þeirri viðurkenningu skiptir
samt máli að hún skuli nú liggja fyr-
ir. Hið eina sem má að þessu finna
er að ekki virðist gert ráð fyrir að
upplýsingar þessar nái
til maka dómaranna
með sambærilegum
hætti og þeirra sjálfra.
Úr því ætti dómstóllinn
að bæta nú þegar.
Þá er bara eftir að
tryggja réttlæti þeim
til handa sem á und-
anförnum misserum og
árum hafa fengið á sig
dóma réttarins í mál-
um, þar sem hugs-
anlegt er að um hags-
munatengsl dómara
hafi verið að ræða sem
gerðu þá vanhæfa, án þess að máls-
aðilarnir hafi átt þess kost að vita
um slíkar aðstæður. Sumir þeirra
hafa hlotið þunga fangelsisdóma,
sem sætt hafa gagnrýni. Þeir ættu
að eiga sjálfsagða kröfu til þess að
fá upplýsingar um fjárhagslegar
kringumstæður dómaranna sem
hugsanlega hafa getað valdið van-
hæfi þeirra til setu í málunum.
Sumir þessara dómþola kunna að
huga að endurupptöku mála sinna
og eiga þá auðvitað kröfu til að fá
upplýsingar um slík atriði. Raunar
sjá flestir að upplýsingar, sem lekið
var til fjölmiðla í nýliðnum desem-
bermánuði, en enginn hefur véfengt
að efni til, sýna með óyggjandi
hætti dæmi um tilvik þar sem dóm-
arar við réttinn dæmdu vanhæfir í
málum.
Nú fær ný ríkisstjórn og þá eink-
um nýr dómsmálaráðherra tækifæri
til að sýna í verki að til standi að
taka upp ný og heilbrigðari vinnu-
brögð á vettvangi dómsýslunnar. Í
stað leyndarhyggju og þagnar lið-
inna ára verði tekin upp vinnubrögð
sem einkennast af gagnsæi og rétt-
læti þeim mönnum til handa sem
þurfa að una ákvörðunum þeirra
valdamiklu stofnana sem dómstól-
arnir eru. Fyrsta verkið í þessu
skyni ætti að vera að afla lagaheim-
ildar til að láta rannsaka fjár-
málaumsvif dómara við Hæstarétt á
árunum fyrir hrun, einkum á vett-
vangi hinna föllnu banka. Þessar
upplýsingar virðist vera unnt að
taka saman eins og gert var að því
er snertir Glitni banka hf. og birt
var í desember. Eðlilegt er að slík
öflun upplýsinga eigi sér stað með
lögmætum hætti og taki að minnsta
kosti til allra bankanna sem störf-
uðu hér fyrir hrunið og allra hæsta-
réttardómara sem tekið hafa þátt í
meðferð mála fyrir réttinum síðan
þá. Þeir sem hér kunna að eiga hlut
að máli eiga þess auðvitað ekki kost
að afla þessara upplýsinga sjálfir.
Þar þarf atbeina réttra yfirvalda í
landinu og heimildir frá löggjaf-
anum. Í sjónvarpsviðtali fyrir síð-
ustu áramót (Þátturinn Víglínan í
umsjón Heimis Más Péturssonar
10. des. á Stöð 2) kvað formaður
Sjálfstæðisflokksins, sem nú er orð-
inn forsætisráðherra, skýrt á um að
menn með hagsmuni af þessu tagi,
ættu tvímælalaust rétt á upplýs-
ingum um hagsmunatengsl dómara
aftur í tímann. Gagnsæi væri lykil-
orðið. Þetta varðaði traust almenn-
ings til dómstólanna.
Enginn á að þurfa að sitja uppi
með dóm, þar sem vanhæfur dómari
hefur setið. Hugsanlegir hagsmunir
dómara af leynd um fjármál sín eru
smávægilegir í samanburði við
hagsmuni þeirra manna sem átt
hafa jafnvel lífshagsmuni sína undir
ákvörðunum þessara sömu dómara.
Þeir sem sækjast eftir embættum
sem fara með völd til að ákveða rétt
og órétt almennum borgurum til
handa verða að sæta því að per-
sónulegir leyndarhagsmunir þeirra
um fjármál sín víki fyrir hags-
munum þess fólks sem þarf að lifa
við dómsákvarðanir þeirra.
Ef nýjum stjórnarherrum tekst
að hverfa frá baktjaldamakki og
leyndarhyggju á vettvangi dóms-
mála munu þeir stíga stórt skref í
átt að endurreisn á trausti almenn-
ings til þessara stofnana.
Eftir Jón Steinar
Gunnlaugsson »Nú fær ný ríkis-
stjórn og þá einkum
nýr dómsmálaráðherra
tækifæri til að sýna í
verki að til standi að
taka upp ný og heil-
brigðari vinnubrögð á
vettvangi dómsýsl-
unnar.
Jón Steinar
Gunnlaugsson
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
Gagnsæi og réttlæti í stað leyndar og ranglætis
Skilti fyrir ferðamenn Starfsmaður Reykjavíkurborgar ber með hamri og setur upp leiðbeiningarskilti fyrir ferðalanga á gangstétt við gatnamót Templarasunds og Kirkjustrætis í miðborginni.
Ómar