Morgunblaðið - 21.01.2017, Page 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017
Áþeim tveim sterku mótumsem þessa dagana farafram á höfuðborgarsvæð-inu, Skákþingi Reykjavík-
ur og Nóa-Síríus mótinu, er komin
upp sú staða að sami skákmaðurinn
er efstur í báðum mótunum. Hinn 19
ára gamli Dagur Ragnarsson hefur
teflt sex skákir í þessum mótum og
unnið þær allar.
Nóa-Síríus mótið er afar vel skip-
að eins og áður hefur komið fram en
það skekkir aðeins myndina að kepp-
endur eiga tvisvar kost á hálfs vinn-
ings hjásetu og nokkrir hafa enn ekki
hafið keppni. Staða efstu manna:
1.-3. Dagur Ragnarsson, Guð-
mundur Kjartansson og Daði Óm-
arsson 2 vinningar. Tíu skákmenn
eru með 1½ vinning þ. á m. stiga-
hæsti keppandinn Jóhann Hjartar-
son, sem gerði jafntefli við Örn Leó
Jóhannsson í 2. umferð.
Á Skákþingi Reykjavíkur hafa
verið tefldar fjórar umferðir og þar
er Dagur efstur ásamt Lenku
Ptacnikova sem vann Guðmund
Kjartansson nokkuð óvænt í 3. um-
ferð. Þau eru með 4 vinninga en
Björn Þorfinnsson og Guðmundur
Gíslason koma næstir með 3½ vinn-
ing.
Wesley So efstur í Wijk aan Zee
Wesley So, sem er fæddur og upp-
alinn á Filippseyjum en söðlaði um
fyrir nokkru og tefldi fyrir Bandarík-
in á síðasta Ólympíumóti, er í 4. sæti
á janúarlista FIDE með 2.808 Elo-
stig. Þar trónir á toppnum sem fyrr
norski heimsmeistarinn Magnús
Carlsen, sem teflir á sínu fyrsta móti
með venjulegan umhugsunartíma
eftir titilvörnina í New York á dög-
unum. Fátt bendir til annars en að
þessir tveir muni berjast um efsta
sætið á A-flokki hinnar árlegu
skákhátíðar í Wijk aan Zee í Hol-
landi á næstu dögum.
Úkraínumaðurinn Eljanov hóf
mótið af miklum krafti en á fimmtu-
dag tapaði hann fyrir Levon Aronjan
og við það komst So einn í efsta sæt-
ið. Staðan:
1. So 4 v. (af 5) 2.–3. Carlsen og
Eljanov 3½ v. 4. Aronjan 3 v. 5.–10.
Giri, Karjakin, Wojtaszek, Hari-
krishna, Wei og Andreikin 2½ v. 11.–
12. Nepomniachtchi og Adhiban 2 v.
13. Rapport 1½ v. 14. van Wely ½ v.
Hollendingar binda enn vonir við
hinn unga Anish Giri en hinn heima-
maðurinn, Loek van Wely, er heillum
horfinn. Vandinn við Giri, sem Nigel
Short kallaði túrbó-útgáfuna af Leko
á Twitter um daginn, er sá að hann
vill festast í jafnteflisgír og öllum
skákum hans í Wijk hefur lokið með
jafntefli. Þá hefur Karjakin heldur
ekki náð sér á strik og í 5. umferð
tapaði hann fyrir lítt þekktum Ind-
verja sem vann B-flokkinn í fyrra:
Sergei Karjakin – Baskaran Ad-
hiban
Frönsk vörn
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. e5
Rfd7 5. f4 c5 6. Rf3 Rc6 7. Be3 Be7 8.
Dd2 a6 9. a3 O-O 10. dxc5 Rxc5 11.
Df2 Rd7 12. Rd4 Rxd4 13. Bxd4 f6
14. exf6 Bxf6 15. Bxf6?
Merkileg ónákvæmni. Það er eins
og Karjakin hafi ekki viljað hrókera
langt vegna 15. … e5 með hugmynd-
inni 16. fxe5 Bg5+ og drottningin
fellur. En hann getur leikið 16. Bc5
með ágætri stöðu.
15. … Dxf6 16. g3 g5 17. O-O-O
gxf4 18. Kb1 f3 19. g4?!
Betra var 19. Hd4 með hótuninni
20. Hf4.
19. … Re5 20. g5 Dg7 21. g6?
Reynir að slá ryki í augu Indverj-
ans.
21. … hxg6 22. Bd3 Bd7 23. Hdg1
Rxd3 24. cxd3 Hf5 25. Hg4 Haf8 26.
Hhg1 Be8!
„Franski biskupinn“ valdar g6-
peðið kirfilega. Hvíta staðan er töp-
uð.
27. Rd1 Hh5 28. h4 He5 29. Re3
Bb5 30. Hd4
Reynir að halda stöðunni saman
en næsti leikur gerir út um taflið.
30. … He4! 31. Hxg6 Bxd3+
– og Karjakin gafst upp.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Dagur í efsta sæti
í tveim mótum
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Beltone Legend gengur með iPhone 6s og eldri gerðum, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
HEYRNARSTÖ‹IN
Beltone Legend
™
Enn snjallara heyrnartæki
Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.
Ókeypis
heyrnarmælingsíðan 2004
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
Um 3000
þjónustufyrirtæki
eru á skrá hjá
finna.is
HVAR ER
NÆSTA
VERKSTÆÐI?
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.