Morgunblaðið - 21.01.2017, Qupperneq 30
30 UMRÆÐAN Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017
Nýjasti Nóbelsverð-
launahafinn í bók-
menntum, Bob Dylan
(1941-), hefur ort
marga góða lagatexta í
gegnum tíðina. Þar á
meðal einn frá 1964,
sem kom upp í huga
mér við lestur nýlega.
Hann byrjar nokkurn
veginn; The times
they are a-changin’…
Ýmislegt breytist þeg-
ar tíminn líður, og framþróun fræða
á sumum sviðum á sér stað. Svo
sem við rannsóknir á margra alda
gömlum handritum. Það varð mér
ljóst þegar ég las í öndvegisriti sem
ég fékk í jólagjöf nýlega. Ritið heit-
ir Heiður og huggun; erfiljóð,
harmljóð og huggunarkvæði á 17.
öld, eftir Þórunni Sigurðardóttur.
Stofnun Árna Magnússonar í ís-
lenskum fræðum gaf ritið út 2015. Í
ritinu má finna fjölda frumortra
ljóða og kvæða frá 17. öld, sem líta
nú dagsins ljós, eftir langa varð-
veislu í handritum. Áður en ég las
þau hélt ég að eini merkilegi kveð-
skapurinn frá þessum tíma væri
Passíusálmar Hallgríms Péturs-
sonar. Lítið verður fjallað um ritið
hér annað en kveðskapinn í því, en
þess má geta að verkið var til um-
fjöllunar í þessu blaði nú í haust.
Verkið er að stofni til dokt-
orsritgerð með tilheyrandi rann-
sóknarvinnu og fjölþættri umfjöllun
um flokkun kveðskapar, svo eitt-
hvað sé nefnt. Verkið er mjög vand-
að. Vel á annan tug 17. aldar ljóða
og kvæða er birt þar bæði með
gömlum rithætti og svo endurrituð
á góðri nútímaíslensku. Mörg
þeirra eru löng. Rétt flokkun þeirra
skiptir máli og Þórunn útfærir hana
þannig á einum stað:„ Í erfiljóðum
er hinn látni í brennidepli, í harm-
ljóðum talar einn ákveðinn syrgj-
andi, en huggunarkvæði beina sjón-
um sínum að ástvinum hins látna“
(HogH bls. 340).
Flokkun þessa kveðskapar
ákvarðar þá útgangspunkta sem
notaðir eru við lestur, þegar lesandi
setur sig í spor höfundar. Fólkið
sem yrkir verður þá oft í huga les-
anda að tilfinningaríkum mann-
eskjum, sem tjá sig í ljóðum. Sorg-
arferlið var svipað á árnýöld
(Þórunn nefnir tímabilið svo) og á
21. öld. Á 17. öld voru engir sjúkra-
húsprestar eða sálfræðingar til að
styrkja fólk sem var í sorg. Stuðn-
ingsaðilar voru þá aðrir ástvinir og
sveitungar. Þá var hefð fyrir kveð-
skap í harmi og huggun. Í harm-
ljóðum var almættið ávarpað eða sá
sem verið var að syrgja, eins og
þegar Hallgrímur Pétursson orti til
Steinunnar dóttur sinnar: „ Næm,
skynsöm, ljúf í lyndi lífs meðan
varstu hér. Eftirlæti og yndi ætíð
hafði ég af þér“. (HogH bls. 93-7)
Hugljúf hugleiðing, en þá út í aðra
sálma, því nú ætla ég að kynna
kjarna míns máls hér.
Við lestur þessara gömlu ljóða
opinberast ekki bara hugarfar til
látins fólks, heldur einnig ýmsar
hugmyndir höfunda um lífið og til-
veruna. Almennt endurspegla birt
ljóð/kvæði umhyggju og virðingu
gagnvart látnu samferðarfólki og
trúnaðartraust gagnvart Guði.
Yrkjendur eru vel
heima í Biblíunni, enda
margar klerkar í þeim
hópi. Að syrgja frá sín-
um sjónarhóli vitnaði
um gott sjálfstraust,
sem kom sér vel á erf-
iðum tímum. Einnig
gefa kvæðin til kynna
félagslega velferð
þessa fólks og sam-
ábyrgð í harmi og
huggun. En hvernig
háttaði þá til hérlendis
og hvernig var á búa á
Íslandi á 17. öld? Það var erfitt,
segir sagan. Tíðarfarið var yfirleitt
slæmt. Frosthörkur og hafís um
land allt. Mörg eldgos, nokkur stór
bæði í Heklu og Kötlu með tilheyr-
andi búsifjum. Fjölmörg íslensk
skip farast. Hvernig dafnaði mann-
lífið á meðan? Hungurdauði varð
hlutskipti margra. Baskavígin voru
framin. Tyrkjaránið. Mannlíf ald-
arinnar virðist hafa kristallast í
mörgum glæpum og galdrabrenn-
um. Hins vegar í Heiðri og huggun
má finna langan lista kvæða til við-
bótar þeim sem birt eru í heild.
Greinargóðar upplýsingar eru um
hvert og eitt í kvæðalistanum. Ætla
má að sá kveðskapur hafi þá kosti
sem hér hafa verið kynntir. Sem
sagt; fjöldi slíkra kvæða er fyr-
irliggjandi.Orðum það svo: Fjöl-
margar frumheimildir frá 17. öld
gefa til kynna jákvæðar hugmyndir
efnishöfunda um lífið og tilveruna.
Má þar nefna náungakærleik og
gott sjálfstraust. Finna má í þessari
staðreynd mótsögn við öll þau nei-
kvæðu tíðindi sem einkenna öldina.
Það er nánast hægt að fullyrða að
kveðskapurinn í Heiðri og huggun
sé jákvæðasta prentaða efnið frá
17. öld síðan Passíusálmar Hall-
gríms komu út á Hólum 1666! Þeir
sálmar sem og kvæðin eiga það
sameiginlegt að orsök þeirra var
þjáning og harmur, en afleiðingin
skilaði sér í huglægri velferð fólks.
Nóg um það. En var siðvit og fé-
lagsleg samstaða fjölda fólks á
sorgartímum það sterk að þessi
kveðskapur blómstraði í erfiðu ár-
ferði? Alla vega er eru þessi ljóð/
kvæði uppbyggileg viðbót við sögu
17. aldar. Kannski er kominn tími
til að fólk með þekkingu úr öðrum
fræðigreinum en bókmenntafræði
kanni nánar menningu þessarar
aldar, og endurskrifi að einhverju
leyti sögu hennar varðandi fólkið í
landinu (forfeður okkar). Horn-
steininn að slíku verki má finna í
hinu frábæra riti: Heiður og hugg-
un.
Forn gæðakvæði
fundin og birt
Eftir Ævar Halldór
Kolbeinsson
» Í bókinni Heiður
og huggun (2015)
má finna fjölda ljóða
og kvæða frá 17. öld.
Þau hafa varðveist í
handritum á söfnum
og í þeim má finna
nýtt sjónarhorn í sögu
aldarinnar.
Ævar Halldór
Kolbeinsson
Höfundur hefur lokið háskólanámi
hérlendis og erlendis. Þjónusta við
fólk með fötlun var lengi hans starfs-
vettvangur.
AÐVENTKIRKJAN í Reykjavík | Lokað vegna
sameiginlegrar guðsþjónustu í Keflavík,
AÐVENTSÖFNUÐURINN á Akureyri | Eiðs-
vallagötu 14, Gamli Lundur Í dag, laugardag:
Biblíurannsókn kl. 11. Guðsþjónusta (alþjóðleg
bænavika) kl. 12. Ræðumaður: Gavin Anthony.
AÐVENTSÖFNUÐURINN á Suðurnesjum | Í
dag, laugardag: Biblíufræðsla kl. 11. Guðsþjón-
usta kl. 12. Ræðumaður: Björgvin Snorrason.
Sameiginleg máltíð eftir samkomu.
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Árnesi |Í dag,
laugardag: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta
kl. 11. Ræðumaður: Eric Guðmundsson. Barna-
og unglingastarf.
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Hafnarfirði | Í
dag, laugardag: Guðsþjónusta kl. 11. Ræðu-
maður er Stefán Rafn Stefánsson. Biblíu-
fræðsla kl. 11.50. Barna- og unglingastarf. Um-
ræðuhópur á ensku. Súpa og brauð eftir
samkomu.
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur sr. Svavar Alfreð Jónsson. Félagar úr
Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Eyþór
Ingi Jónsson. Sunnudagaskóli í Safnaðarheim-
ilinu kl. 11. Umsjón sr. Sunna Dóra Möller og
Hjalti Jónsson.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Þór Hauksson þjónar fyrir altari og prédikar.
Kirkjukórinn leiðir safnaðarsöng undir stjórn org-
anistans og kórstjórans Krisztine Kalló Szklen-
ár. Sunnudagaskólinn á sama tíma í safn-
aðarheimili kirkjunnar. Léttar veitingar á eftir.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Benjamín Hrafn Böðvarsson og Dagur Fannar
Magnússon guðfræðinemar annast sam-
verustund sunnudagaskólans. Séra Sigurður
Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kamm-
erkór Áskirkju syngur. Organist er Magnús Ragn-
arsson. Kaffisopi í Ási eftir messu. Passíusálm-
arnir eru lesnir í Áskirkju á þriðjudögum,
miðvikudögum, fimmtudögum og föstudögum
kl. 10 árdegis fram í dymbilviku, einn sálmur í
senn. Öllum er velkomið að taka þátt í þeim
samverustundum.
ÁSTJARNARKIRKJA | Messa kl. 11. Kór
Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Matthíasar V.
Baldurssonar tónlistarstjóra. Meðhjálpari er
Sigurður Þórisson og prestur er sr. Kjartan Jóns-
son. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá
Hólmfríðar S. Jónsdóttur. Hressing og samfélag
á eftir.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í
Brekkuskógum 1 kl. 11. Sigrún Ósk og Jón Örn
hafa umsjón með stundinni. Síðdegismessa í
Bessastaðakirkju kl. 17. Sr. Hans Guðberg
þjónar og Karen Ösp Friðriksdóttir flytur hugleið-
ingu. Hljómsveitin Lærisveinar hans leikur undir
sönginn ásamt Bjarti Loga organista.
BORGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Guðs-
þjónusta í Brákarhlíð kl. 13.45. Organisti er
Steinunn Árnadóttir. Prestur er Þorbjörn Hlynur
Árnason.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur
er Þórhallur Heimisson. Organisti er Örn Magn-
ússon. Kór Breiðholtskirkju syngur. Fundur með
fermingarbörnum og foreldrum þeirra eftir
messuna. Sunnudagaskóli kl. 11. Sunnudags-
kólinn byrjar í kirkjunni en heldur svo áfram í
safnaðarheimilinu.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11
Messa kl. 14. Kór ásamt Antoniu Hevesi, sr.
Pálmi Matthíasson þjónar. Kaffi e. messu.
DIGRANESKIRKJA | Messa og sunnudaga-
skóli kl. 11. Prestur erMagnús Björn Björnsson.
Organisti er Sólveig Sigríður Einarsdóttir. Kór
Kammerkórs Digraneskirkju syngur. Einsöngv-
arar: Marteinn Snævarr Sigurðsson, Hanna
Ágústa Olgeirsdóttir, Ásdís Arnalds og Una Dóra
Þorbjörnsdóttir. Súpa í safnaðarsal að messu
lokinni.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti |
Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á
íslensku, kl. 13 á pólsku, kl. 15 á litháísku og
kl. 18 á ensku. Messa virka daga kl. 18 og má.
mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18
er sunnudagsmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, séra Sveinn Val-
geirsson prédikar og þjónar fyrir altari. Sunnu-
dagaskólinn á kirkjuloftinu, Dómkórinn og org-
anisti er Kári Þormar. Minni á bílastæðin gegnt
Þórshamri.
EYRARBAKKAKIRKJA | Messa kl. 11. Kór
Eyrarbakkakirkju. Organisti er Haukur Arnarr
Gíslason. Sr. Kristján Björnsson.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli kl.
11. Kvöldmessa kl. 20. Kór og hljómsveit kirkj-
unnar leiða sönginn undir stjórn Arnar Arn-
arsonar. Organisti er Skarphéðinn Þór Hjart-
arson og bassaleikari er Guðmundur Pálsson.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 14. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson
leiðir stundina. Fermingarbörn taka þátt. Barn
verður borið til skírnar. Sönghópurinn við Tjörn-
ina leiðir tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni,
organista. Barnakór Fríkirkjunnar syngur undir
stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Við hvetjum fjöl-
skyldur fermingarbarna til að mæta og vera með
börnum sínum í guðsþjónustunni.
GAULVERJABÆJARKIRKJA | Messa kl. 14.
Barnaefni og nýjar myndir. Kór Gaulverjabæj-
arkirkju. Organisti er Haukur Arnarr Gíslason.
Sr. Kristján Björnsson.
GLERÁRKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli.
Sameiginlegt upphaf í messu. Sr. Gunnlaugur
Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng
undir stjórn Valmars Väljaots.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Arna Ýrr og sr. Sigurður Grétar þjóna. Kór Graf-
arvogskirkju syngur. Organisti er Hákon Leifs-
son. Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón hefur Þóra
Björg, undirleikari er Stefán Birkisson.
GRAFARVOGUR – kirkjuselið í Spöng | Sel-
messa kl. 13. Sr. Grétar Halldór Gunnarsson
prédikar og þjónar fyrir altari. Vox populi syngur
og organisti er Hilmar Örn Agnarsson. Sunnu-
dagaskóli kl. 13. Umsjón hefur Bjarki Geirdal
Guðfinnsson og undirleikari er Stefán Birkisson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10,
bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11 í umsjá
Ástu Lóu, Silvíu o.fl. Messa kl. 11. Altarisganga.
Samskot til Hjálparstarfs kirkjunnar. Messuhóp-
ur þjónar. Félagar úr kirkjukór Grensáskirkju
syngja. Organisti er Ásta Haraldsdóttir. Prestur
sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi eftir messu.
Hversdagsmessa með léttu sniði á fimmtudag
kl. 18.10-18.50. Þorvaldur Halldórsson sér um
tónlist
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðs-
þjónusta í umsjón Félags fyrrum þjónandi
presta klukkan 14 í hátíðarsal Grundar. Séra
Auður Eir Vilhjálmsdóttir þjónar. Grundarkórinn
leiðir söng undir stjórn Kristínar Waage org-
anista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðsþjón-
usta og barnastarf kl. 11. Prestur sr. Karl V.
Matthíasson, organisti er Hrönn Helgadóttir og
kór Guðríðarkirkju syngur. Sunnudagaskólinn,
umsjónarmenn Sigurður og Andrea Ösp. Hvetj-
um fermingarbörn og foreldra þeirra að koma í
messu. Kirkjuvörður er Lovísa Guðmundsdóttir.
Kaffisopi eftir messu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Prestur er Jón Helgi Þór-
arinsson. Organisti er Guðmundur Sigurðsson.
Félagar í Barbörukórnum syngja. Sunnudagskól-
inn hefst í kirkjunni en síðan sjá Erla Björg og
Hjördís Rós um samveru í safnaðarheimilinu.
Kaffisopi og djús eftir stundina.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt hópi messuþjóna. Fé-
lagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Org-
anisti er Hörður Áskelsson. Umsjón barnastarfs
Inga Harðardóttir. Kór Harvard-háskóla syngur í
messunni. Bænastund mánud. kl. 12.15. Fyrir-
bænaguðsþjónusta þriðjud. kl. 10.30. Árdeg-
ismessa miðvikud. kl. 8. Kyrrðarstund fimmtud.
kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11 í Al-
þjóðlegri samkirkjulegri bænaviku fyrir einingu
kristninnar. Magnús Gunnarsson, for-
stöðumaður Betaníu, prédikar. Fulltrúar krist-
inna trúfélaga lesa lestra. Kvennakór Háskóla
Íslands syngur undir stjórn Margrétar Bóasdótt-
ur ásamt Kór Ísaksskóla undir stjórn Ásu Val-
gerðar Sigurðardóttur. Kári Allansson organisti
annast undirleik. Prestur er dr. María Ágústs-
dóttir, formaður Samstarfsnefndar kristinna trú-
félaga á Íslandi. Um barnastarfi sjá Jóhanna og
Kristján. Súpa á eftir.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl. 11. Sr.
Sigfús Kristjánsson þjónar og prédikar. Org-
anisti er Guðný Einarsdóttir. Félagar úr kór kirkj-
unnar leiða sálmasöng og messusvör. Sunnu-
dagaskóli á sama tíma í salnum niðri í umsjón
Markúsar og Heiðbjartar. hjallakirkja.is
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam-
koma í Mjódd Álfabakka 12 kl. 20.
ÍSLENSKA KIRKJAN í Svíþjóð | Gautaborg:
Guðsþjónusta sun. 22. janúar kl. 14 í V-
Frölundakirkju. Íslenski kórinn í Gautaborg syng-
ur. Orgelleik og kórstjórn annast Lisa Fröberg.
Altarisganga, barnastund, smábarnahorn.
Kirkjukaffi. Prestur er Ágúst Einarsson.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Barnakirkja og al-
menn samkoma kl. 13. Vitnisburðastund og eft-
ir hana kaffi og samfélag.
KÁLFATJARNARKIRKJA | Messa kl. 14. Kór
Kálfatjarnarkirkju syngur undir stjórn Elísabetar
Þórðardóttur organista. Meðhjálpari er Símon
Rafnsson. Prestur er Kjartan Jónsson. Kirkju-
kaffi á eftir messu.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Messa og sunnudaga-
skóli kl. 11. Rótarý- og Faxafélagar fjölmenna.
Súpa og brauð lagt á borð af fermingarfor-
eldrum og súpuþjónum. Kórfélagar syngja undir
stjórn Arnórs Vilbergssonar organista. Sr. Erla
Guðmundsdóttir þjónar. Miðvikudagur 25. jan-
úar kl. 12. Kyrrðarstund í kapellu vonarinar í um-
sjón presta og organista. Gæðakonur matreiða
súpu og brauð. Fimmtudagur 26. janúar kl. 16.
Fermingarfræðsla. Organisti leiðir söng. Prestar
annast fræðslu.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Dr.
Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur prédikar
og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur
undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar.
Kærleikssmiðja sunnudagskólans verður kl. 11
í safnaðarheimilinu Borgum undir stjórn Lilju
Katrínar Gunnarsdóttur og Braga Árnasonar.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Jó-
hanna Gísladóttir þjónar. Organisti er Þorvaldur
Örn Davíðsson. Stúlknakórinn Graduale Futuri
tekur lagið fyrir kirkjugesti undir stjórn Rósu Jó-
hannesdóttur. Messuþjónar aðstoða við helgi-
haldið. Kaffihlaðborð í safnaðarheimili eftir
messu til styrktar kórnum.
Sunnudagaskólinn fer fram á sama tíma undir
stjórn Söru Grímsdóttur og Snævars J. Andrej-
essonar. Börn á öllum aldri velkomin.
Langholtskirkja minnir á starf eldri borgara alla
miðvikudaga kl. 12-15.30.
LÁGAFELLSKIRKJA | Taize kvöldguðsþjón-
usta kl. 20. Prestur er Ragnheiður Jónsdóttir.
Kirkjukór Lágafellssóknar syngur og leiðir söng
undir stjórn Kjartans Jósefssonar Ognibene.
Meðhjálpari er Hildur Backman. www.lagafells-
kirkja.is
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
kl. 11. Umsjón: sr. Guðni Már og sunnudaga-
skólakennararnir. Guðsþjónusta kl. 20, Kristján
Þór Gunnarsson, framkvæmdastjóri og mat-
vælafræðingur, flytur hugvekju. Hljómsveitin
Sálmari leiðir tónlistina og sr. Guðni Már Harð-
arson þjónar fyrir altari.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Kór Neskirkju
syngur og leiðir söng, organisti er Steingrímur
Þórhallsson. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður
Björnsdóttir.
Sunnudagaskólinn hefst í messunni kl. 11.
Nebbi, Rebbi og Vaka koma í heimsókn. Umsjón
Guðrún Þorgrímsdóttir, Katrín H. Ágústsdóttir og
Ari Agnarsson.
Samfélag á kirkjutorgi eftir messu og sunnu-
dagaskóli. neskirkja.is
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Tregatrúartónlist-
armessa kl. 14. Blússveit Þollýjar sér um tón-
listina. Barnastarfið er á sínum stað. Ræðu-
maður er Aðalsteinn Þorsteinsson. Sr. Pétur
Þorsteinsson þjónar fyrir altari og messugutti er
Petra Jónsdóttir. Maul eftir messuna.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 14 í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60. 3.
hæð. Ræðumaður er sr. Kjartan Jónsson. Túlk-
að á ensku. Barnastarf.
SELFOSSKIRKJA | Messa sun. kl. 11. Org-
anisti er Edit A. Molnár, kirkjukórinn syngur,
prestur er Guðbjörg Arnardóttir. Súpa og brauð í
safnaðarheimilinu eftir messu.
Sunnudagaskóli á sama tíma, umsjón hefur Jó-
hanna Ýr Jóhannsdóttir.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Biblíusaga, bænir, söngur og gleði. Ávaxtastund
í lokin. Guðsþjónusta kl. 14, sr. Bryndís Malla
Elídóttir þjónar fyrir altari og Þorgils Hlynur Þor-
bergsson guðfræðingur prédikar. Kór Seljakirkju
syngur undir stjórn Tómasar Guðna Eggerts-
sonar. Kaffi að messu lokinni.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Sóknarprestur þjónar.
Organisti kirkjunnar leikur á orgelið. Leiðtogar
sjá um sunnudagaskólann. Þátttakendur á
námskeiði með Paul Phoenix syngja. Félagar úr
Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiða almennan
safnaðarsöng. Kaffiveitingar og samfélag eftir
athöfn.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Ax-
el Á Njarðvík, héraðsprestur, þjónar fyrir altari.
Organisti er Jón Bjarnason.
SÓLHEIMAKIRKJA | Messa með altarisgöngu
kl. 14. Sr. Sveinn Alfreðsson þjónar fyrir altari.
Organisti er Ester Ólafsdóttir. Ritningarlestra
lesa starfsmenn Sólheima. Meðhjálpari: Valdís
Ólöf Jónsdóttir.
VÍDALÍNSKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli
kl. 11. Kór Vídalínskirkju syngur. Organisti er Jó-
hann Baldvinsson. Börnin byrja í kirkjunni en
fara síðan með leiðtogum sínum í sunnudaga-
skólann. Sr. Friðrik J. Hjartar prédikar og þjónar
ásamt messuþjónum. Kaffi og djús að messu
lokinni.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Messa kl.
11. Kór Víðiðstaðasóknar syngur undir stjórn
Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur. Prestur er
Hulda Hrönn Helgadóttir. Sunnudagaskólinn kl.
11. Umsjón: María og Bryndís. Hressing í safn-
aðarsalnum eftir guðsþjónustu.
ÞORLÁKSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11.
Skemmtilegar fígúrur og fræðandi efni, vinsælir
söngvar. Hafdís stjórnar.
Orð dagsins: Jesús gekk
ofan af fjallinu.
(Matt. 8)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisso
Illugastaðakirkja í Fnjóskadal
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
HVAR ER
NÆSTA
VERKSTÆÐI?