Morgunblaðið - 21.01.2017, Page 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017
✝ Jón Á. Hjart-arson fæddist
20. janúar 1928 á
Bakka í Ölfusi.
Hann lést á Sól-
völlum, Eyrar-
bakka, 15. janúar
2017. Foreldrar
hans voru Hjörtur
Sigurðsson og Jó-
hanna Ásta Hann-
esdóttir, bændur að
Auðsholtshjáleigu
Ölfusi.
Eftirlifandi systur Jóns eru:
Ástríður, f. 1932, og Jónína, f.
1942.
Látin eru Hannes, f. 1919,
Guðmundur, f. 1925, Sigurður,
f. 1926, Rósanna, f. 1930, og
Steindór, f. 1936.
Árið 1954 kvæntist Jón eig-
inkonu sinni, Guðríði Magn-
úsdóttur (Dúu) frá Flögu. For-
eldrar hennar voru Magnús
Árnason og Vigdís Stefánsdóttir
bændur í Flögu. Guðríður lést
árið 2014.
fyrstu árin. 16 ára gamall hóf
hann nám í bifvélavirkjun hjá
KÁ á Selfossi og útskrifaðist
sem sveinn fjórum árum síðar.
Starfaði hann þar um hríð en
upp úr 1950 keypti hann sinn
fyrsta vörubíl og 1954 gekk
hann til liðs við Vörubílstjóra-
félagið Mjölni og varð vörubíla-
akstur hans ævistarf. Á veturna
þegar minna var að gera í akstri
stundaði hann sjómennsku frá
Þorlákshöfn og smíðaði
vörubílspalla fyrir sjálfan sig og
aðra, gerði við bíla sína, fyrst á
Eyravegi 16 og síðar meir í bíl-
skúrnum á Rauðholtinu.
Á Selfossi kynntist hann Dúu
eiginkonu sinni. Fyrstu árin
bjuggu þau í Flögu, en 1954
fluttu þau í nýtt hús að Eyra-
vegi 16, Selfossi, sem þau höfðu
byggt með Siggu systur Dúu og
Gísla. 1965 flutti fjölskyldan í
nýtt hús að Rauðholti 13, sem
Dúa og Jón byggðu sér og bjó
hann þar allt þar til síðustu tvö
árin að hann var búsettur á Sól-
völlum á Eyrarbakka.
Jón verður jarðsunginn frá
Selfosskirkju í dag, 21. janúar
2017, og hefst athöfnin kl. 14.
Börn þeirra eru
1) Vigdís, f. 1951, d.
2011. Sambýlis-
maður hennar Geir-
finnur Sigurgeirs-
son er látinn. Sonur
Vigdísar er Guðjón
Þórisson. Sambýlis-
kona hans er
Hanna Rut Sam-
úelsdóttir. Börn
þeirra eru Jón
Smári, Jóhann Már
og Vigdís Katla.
2) Jóhanna, f. 1954. Maki Stein
Åge Lysgård. Börn þeira eru Jón
Wilhelm, sonur hans er Stein
Grímur. Kristín, maki Sveinung
Lillerud og eru dætur þeirra
Marie og Ingrid.
3) Grímur, f. 1963. Maki Stef-
anía Geirsdóttir. Börn þeirra eru
Steinunn Dúa og dóttir hennar
Sóley Ósk Sigþórsdóttir.
Geir Evert. Sambýliskona
hans er Heiða Björg Jónasdóttir
og dóttir þeirra Thelma Líf.
Jón gekk í hin ýmsu bústörf
Elsku Jón.
Þegar ég kynntist þér fór
strax mjög vel á með okkur, við
vorum með svipaðan húmor og
þú varst hægur og þægilegur.
Ég man t.d. þegar ég kom í
fjölskylduna að ég gat ekki
heyrt hvort það var Jón eða
Grímur að tala svo lík fannst
mér röddin og ekki lagaðist það
þegar Geir Evert fór að full-
orðnast, þá talaði hann auðvitað
nákvæmlega eins og þeir tveir.
En þegar við Grímur vorum
rétt að byrja saman voruð þið
að laga bifreið inni í bílskúr, ég
hringdi og hélt auðvitað að ég
væri að tala við Grím svo ég
byrjaði bara strax að tala við
hann: liggur þú enn undir þess-
ari druslu? og mér var svarað
um hæl: já, og spurði svo hvort
ekki væri gaman hjá honum, jú
jú, þetta var allt í lagi.
Svo var símtalið lengra og
spurningarnar orðnar svolítið
persónulegri eins og hvort við
ættum ekki að hittast um
kvöldið, en hann sagðist bara
ekkert vita það sem mér kom á
óvart.
Þá loksins spurði ég hvort
þetta væri ekki Grímur, en þá
kom svarið: nei, þetta er Jón.
Hann var nefnilega mjög
stríðinn en ekki með nein læti
og þrjóskur gat hann líka verið.
Annað dæmi um stríðnina í
Jóni og hvað hann var fljótur
að hugsa, við vorum í erfi-
drykkju og Grímur og Dúa
fengu sér fyrst að borða, en við
Jón sátum við borðið á meðan
til að missa það ekki. Þá kemur
maður til okkar og spyr svo
Jón hver ég sé, ég svaraði strax
án þess að hugsa að ég væri
nýja konan hans Jóns (skamm-
aðist mín strax þegar ég var
búin að segja þetta). En hann
var fljótur að taka undir þetta
með mér og endurtók þetta svo
líka að ég væri nýja konan
hans, hann hefði yngt upp um
nokkur ár og svaraði hann öll-
um spurningum hvaðan ég væri
og fleira og fleira, alveg skæl-
brosandi á meðan. Jón hafði
það gaman af þessu að hann
hætti ekki fyrr en Dúa kom til
okkar við borðið og þá hló hann
mikið.
Eins man ég eftir því þegar
við fórum öll á þorrablót í Vill-
ingaholtshreppi, eða Jón, Dúa,
Grímur og ég. Hann keyrði allt-
af eins og hann væri á vörubíl
þannig að keyrslan var ekkert
hröð en alltaf jöfn, svo var bíll
fyrir aftan okkur sem var að
reyna að komast fram úr,
Grímur kallaði til hans að það
væri einn að reyna að komast
fram úr en Jón svaraði að ef
hann væri að flýta sér hefði
hann átt að leggja fyrr að stað
og hleypti honum auðvitað ekk-
ert fram úr sér.
En eftir að börnin mín fædd-
ust var farið með afa Jóni í
vörubílnum upp í sveit og fleira
og fleira. Þær voru ófáar ferð-
irnar í Ingólfsfjall á vörubílnum
eða í sveitina með nesti og var
verið þar allan daginn. Eftir að
Sóley Ósk kom í heiminn var
hann ennþá meiri barnakall en
við okkar börn, þá virtist hann
hafa svo óhemjugaman af þessu
og naut þess virkilega vel þeg-
ar hún var í pössun hjá þeim.
Með þessum orðum kveð ég
þig í bili.
Ég vil gjarnan lítið ljóð
láta af hendi rakna.
Eftir kynni afargóð
ég alltaf mun þín sakna.
(Guðrún V. Gísladóttir.)
Guð geymi þig.
Stefanía Geirsdóttir.
Elsku afi Jón.
Takk fyrir allt, afi, þú varst
mín fyrirmynd. Þú hafðir góða
nærveru og varst umhyggju-
samur.
Það fyrsta sem kemur upp í
huga minn er hvað þú varst
duglegur að taka mig með í
vörubílinn, þegar ég var lítill
strákur, og sat ég þar með þér
heilu dagana. Einnig varst þú
alltaf að, ef þú varst ekki með
verkefni í sumarbústaðnum þá
varstu að dytta að og gera við
hina ýmsu hluti í bílskúrnum.
Ég var nú ekki gamall þegar þú
kenndir mér að nota verkfærin
í skúrnum, ég hef verið svona
níu ára þegar ég lærði að raf-
sjóða hjá þér. Ég var alla daga
að leika mér í skúrnum og aldr-
ei sagðir þú neitt, þó að allt
væri í drasli eftir mig og vini
mína.
Síðustu tvö árin dvaldirðu á
elliheimilinu á Eyrarbakka, þar
leið þér vel og var gott að koma
og heimsækja þig og spjalla um
daginn og veginn. Fannst þér
gaman og brostir þú mikið þeg-
ar Vigdís, litla stelpan mín,
dansaði eða söng fyrir þig en
hún kom oft með mér í heim-
sókn til þín.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Nú ertu kominn til ömmu
Dúu og veit ég að hún hefur
tekið á móti þér með opinn
faðm. Þinn,
Guðjón Þórisson.
Jón Á. Hjartarson
HINSTA KVEÐJA
Með þessum línum kveð
ég þig kæri og bróðir og
mágur, Jón Hjartarson.
Við erum þakklát fyrir
stundirnar sem við höfum
átt saman.
Við vitum að vel verður
tekið á móti þér þar sem þú
ert núna.
Guð blessi þig.
Jóna og Gísli.
Hún Gígja systir
er látin, systirin
sem var límið í
stórum systkina-
hópi sem fæddist og ólst upp á
Geirseyri við Patreksfjörð.
Gígja var að verða níu ára göm-
ul er undirritaður bættist í fjöl-
skylduna og að hennar sögn
kom hún mikið við sögu við að
passa þennan litla bróður sinn
og síðar að aðstoða mömmu við
Guðríður Soffía
Sigurðardóttir
✝ GuðríðurSoffía Sigurð-
ardóttir fæddist 23.
febrúar 1928. Hún
lést 7. janúar 2017.
Guðríður Soffía
var jarðsungin 18.
janúar 2017.
að kenna honum
skrift, reikning og
önnur lífsfræði
sem nauðsynleg
eru fyrir komandi
fullorðinsár. Að
mestu var þetta í
sátt og samlyndi
þó að stundum
þyrfti systir mín að
lesa yfir litla bróð-
ur ef hann var ekki
nógu duglegur við
námið eða var búinn að
óhreinka nýju fínu fötin. Tals-
verður búrekstur var rekinn á
Geirseyri bæði fé og kýr. Hon-
um fylgdi mikið starf sem lenti
í vaxandi mæli á Gígju eftir því
sem eldri systkini fluttu að
heiman eða fóru í önnur störf,
m.a. var mjólk seld til fjölda
heimila í lausasölu sem var
mikil vinna. Er ég var farinn að
hafa hvolpavit um 1940 var
staðan sú að Árni elsti bróðir
okkar var heima en var vél-
smiður í mikilli og fullri vinnu,
Sigurður var einnig heima en í
vegavinnu öll sumur, þá var
Rögnvaldur líka heima og hafa
þau Gígja sagt mér að þunginn
af búrekstrinum hafi hvílt á
þeim tveimur í nokkuð mörg ár.
Lengst af þessum tíma vann
Gígja fullan vinnudag utan
heimilis, svo langur hefur
vinnudagurinn verið.
Þrátt fyrir miklar annir var
Gígja mikil félagsmálamann-
eskja, hún stundaði íþróttir
með Ungmennafélaginu Herði,
var í Skátafélaginu Samherjum
frá upphafi og tók þátt í leik-
starfsemi auk þess að syngja í
kirkjukórnum. Árið 1955 var
Gígja búin að finna sér lífs-
förunautinn í Jónasi Ásmunds-
syni frá Bíldudal og fluttist á
hans heimaslóðir. Næstu ára-
tugina bjuggum við Gígja hvort
í sínum hvorum landsfjórð-
ungnum sem varð til að öll
samskipti urðu í lágmark þrátt
fyrir örfáar heimsóknir í báðar
áttir. Það breyttist eftir flutn-
ing beggja á höfuðborgarsvæð-
ið.
Þau Gígja og Jónas voru
höfðingjar heim að sækja þó að
ekki sé meira sagt. Ég minnist
fjölda heimboða á meðan allur
systkinahópurinn var ennþá
þessa heims, svo ekki sé talað
um öll heimboðin vegna afmæla
eða annarra tilefna innan fjöl-
skyldunnar. Fljótlega eftir
flutninginn suður keyptu þau
hjónin Regnhlífabúðina á
Laugavegi sem Gígja rak með
miklum dugnaði á meðan heils-
an leyfði. Nánast beint á móti á
Laugaveginum rak Lillý systir
okkar verslunina Nálina, það
var því stutt að fara í kaffisopa
og spjall á meðan ég vann í
fjölmörg ár við Laugaveginn.
Mér hefur fundist Laugaveg-
urinn vera hálftómur eftir að
þær systur hættu verslunar-
rekstri.
Rögnvaldur bróðir okkar lést
15. desember síðastliðinn og
má því segja að stutt sé stórra
högga á milli og fámennt orðið í
fyrrverandi stórum systkina-
hópi. Hjartans þakkir, kæra
systir, fyrir allt sem þú hefur
fyrir mig gert á lífsleiðinni.
Hugurinn er hjá þér, kæri
mágur, á þessum erfiðu tímum.
Ásgeir Hjálmar Sigurðsson
(Hjalli).
Við munum eftir Pétri frá ung-
lingsárum sem gáskafullum ung-
lingi í vinnu hjá Amerískum verk-
tökum en þar hóf hann vinnu við
jarðvegsrannsóknir sem urðu síð-
an að hans ævistarfi. Pétur átti sér
draum um að komast til Ameríku
sem varð að veruleika 1958. En
svo skildi leiðir okkar þegar fjöl-
skylda okkar flutti til Ameríku
1951.
En 1987 kynntist hann og
kvæntist æsku vinkonu og ferm-
ingarsystur okkar Ernu Sigur-
bergsdóttir og hófst þá nýr þáttur
í lífi í samskiptum við þau hjón
sem voru okkur mjög kær. Á
stríðsárunum kynntist Pétur
enskum hermönnum og af þeim
lærði hann ensku. Eins og að
framan greinir hófst ævistarf
Pétur Þórðarson
✝ Pétur Þórðarsonfæddist 29. maí
1932. Hann lést 23.
nóvember 2016.
Foreldrar Péturs,
sem bæði eru látin,
voru Inga Kristjáns-
dóttir og Þórður Pét-
ursson og átti Pétur
þrjú systkin sem lifa
bróður sinn. Eftirlif-
andi eiginkona hans
er Erna Sigurbergs-
dóttir. Þau bjuggu lengst af í
Bandaríkjunum, eða frá árinu
1987-2011.
Útför Péturs var gerð í kyrr-
þey frá Keflavíkurkirkju 8. des-
ember 2016.
hans á Keflavíkur-
flugvelli sem hann
þróaði mjög vel.
Pétur var glöggur
maður og fann fljótt
þörf fyrir nýjungar í
tækjum fyrir jarð-
vegsrannsóknir og
byrjaði að hanna
slíkan búnað og
framleiða sem varð
hans ævistarf. Pétur
var sannur uppfinn-
ingamaður og átti átta einkleyfi á
uppfinningum sínum.
Eftir giftingu sína fluttist Erna
búferlum til Ameríku þar sem hún
og Pétur hófu búskap sinn og
kynntumst við þá Pétri en vin-
skapur okkar Ernu rofnaði aldrei
þrátt fyrir erlenda búsetu okkar.
Árið 2011 ákváðu Erna og Pét-
ur að flytjast aftur til Íslands og
eyða efri árum sínum hér meðal
ættingja og vina. Þegar að heim-
flutningurinn var ákveðinn var
samþykkt að við Erlingur færum
vestur til San Diego og keyrðum
saman til austurstrandarinnar og
áttum góðar samveru stundir.
Pétur greindist með alzheimer-
sjúkdóm og dvaldi á Hlévangi tvö
síðustu æviár sín og lést þar. Eru
starfsmönnum þar færðar alúðar
þakkir fyrir frábæra umönnun.
Pétur var þríkvæntur og átti
börnin Ingu Rut, Þórð og Peter
sem öll lifa föður sinn.
Við vottum Ernu og öðrum ást-
vinum okkar dýpstu samúð.
Þórhildur og Júlíus (Bússi).
Ástkær móðir okkar, amma og langamma,
UNNUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Holtsgötu 13, Reykjavík,
lést á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn
16. janúar.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 25. janúar klukkan 13.
.
Guðmundur Gunnarsson, Guðrún Arndal,
Kristinn H. Gunnarsson, Sigrún G. Ragnarsdóttir,
Björn V. Gunnarsson, Guðrún Kr. Óladóttir,
Margrét Gunnarsdóttir, Sigurður V. Jónsson,
Helga Gunnarsdóttir, Jón Júlíusson,
Gunnar J. Gunnarsson, Ágústa Halldórsdóttir,
Hulda Gunnarsdóttir, Ísak J. Matthíasson,
Unnur B. Gunnarsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN HELGADÓTTIR,
Sandlæk, Gnúpverjahreppi,
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands aðfaranótt
13. janúar. Útförin fer fram frá Skálholts-
kirkju laugardaginn 28. janúar klukkan 14.
Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Stóra-Núpskirkju
(minningarsjóð), kt. 630269-7179, banki 0152-15-370330.
.
Erlingur Loftsson,
Elín Erlingsdóttir, Bjarni Jón Matthíasson,
Valgerður Erlingsdóttir, Brian R. Haroldsson,
Loftur Erlingsson, Helga Kolbeinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
SIGURÐUR PÁLSSON
byggingameistari,
áður til heimilis að Árskógum 6,
Reykjavík,
lést fimmtudaginn 19. janúar á hjúkrunarheimilinu Sólteigi,
Hrafnistu Reykjavík.
Útför hans fer fram frá Áskirkju mánudaginn 30. janúar
klukkan 15.
.
Heimir Sigurðsson, Sigríður Hjaltadóttir,
Kristrún Sigurðardóttir, Símon Ólafsson,
Viðar Sigurðsson, Kristrún Lilja Garðarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.