Morgunblaðið - 21.01.2017, Side 38
38 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017
Fyrrverandislökkvistjóri,rekstrarstjóri
og deildarstjóri á Kefla-
víkurflugvelli, Har-
aldur Stefánsson, á átt-
ræðisafmæli á morgun,
22. janúar. Hann er
fæddur í Vesturbæ
Reykjavíkur en ólst upp
í Austurbænum í stríð-
inu. Foreldrar Har-
aldar voru Þuríður
Stefánsdóttir og Stefán
Jónsson, sundmaður og
ólympíukeppandi á
árinu 1936. Systkini
Haraldar eru fjögur.
Uppeldisfaðir Haraldar
var Sigurður Sveinsson,
höfundur appelsínsins
frá Ölgerðinni.
Haraldur starfaði í fimmtíu ár samfleytt hjá Varnarliðinu og 49 og
hálft ár í slökkviliðinu. Haraldur lauk skólagöngu 1954, hóf flugnám
en hætti því og hóf störf hjá Varnarliðinu sem sjúkraflutningamaður
og hóf síðan slökkvistörf. Á ferlinum sótti hann fjölmörg námskeið og
nam við University of Maryland og Oklahoma State University.
Haraldur var sæmdur mörgum heiðri svo sem sæti í frægðarhöll
sjóhersins bandaríska. US Navy Hall of Fame. Einnig var hann sæmd-
ur sæti í Hall of Legends and Leaders bandaríska ríkisins. Haraldur
hlaut orður fyrir sín störf svo sem Meritorious Award og Superious
Civilian Service Award tvisvar sem er mjög óvenjulegt. Haraldur var
sæmdur fálkaorðunni árið 2003 fyrir störf sín við bruna- og varnar-
mál. „Starfsferill minn var ákaflega farsæll og skiptir þar mestu
hversu starfsmenn mínir voru frábærir og húsbændur tilbúnir að
gera okkur lausan tauminn við frumkvöðlastarfsemi og í tækja-
búnaði.“
Haraldur giftist árið 1957 Erlu Ingimarsdóttur sem er fædd og upp-
alin í Laugarási við Múlaveg í Laugardal í Reykjavík, þau eignuðust
fjögur börn og eiga nú níu barnabörn og eitt barnabarn.
Aðaláhugamál Haraldar er stangveiði og skotveiði og er hann
þekktur fyrir hönnun laxveiðiflugunnar Blacksheep.
Erla og Haraldur eiga sextíu ára brúðkaupsafmæli 6. apríl næst-
komandi. „Við kynntumst í Gaggó Aust og það má geta nærri hversu
stórkostlegur félagi Erla hefur verið mér.“ Þau hjónin ætla að eyða
afmælisdegi Haraldar með sínum nánustu.
Á Bessastöðum Haraldur og Erla við
afhendingu fálkaorðunnar.
Átti farsælan feril
hjá Varnarliðinu
Haraldur Stefánsson áttræður
H
alldór Jónatansson
fæddist í Reykjavík
21.1. 1932 og ólst
þar upp. Hann lauk
stúdentsprófi frá
MR 1951, lögfræðiprófi frá Há-
skóla Íslands 1956 og MA-prófi frá
Fletcher School of Law and Diplo-
macy í Bandaríkjunum 1957.
Snemma á uppvaxtarárum sín-
um gafst Halldóri tækifæri til að
kynnast störfum til sveita og sjáv-
ar, m.a. sem kaupamaður hjá
Gunnari Guðbjartssyni að Hjarð-
arfelli á Snæfellsnesi og sem há-
seti á varðskipinu Ægi undir
stjórn Eiríks Kristóferssonar
skipherra.
Á námsárum sínum í lögfræð-
inni stundaði Halldór nám í ensku
í London árið 1953, á sama tíma
Halldór Jónatansson, fyrrv. forstjóri Landsvirkjunar – 85 ára
Stórfjölskylda Halldór og Guðrún heima í stofu með börnum sínum, tengdabörnunum og barnabörnunum.
Segir að Grímsnesið
gefi Flórída ekkert eftir
Ármannsfellið fagurblátt Halldór og Guðrún í sumarblíðu á Þingvöllum.
Vinkonurnar Helga Dís Snæbjörnsdóttir og Arna Lísbet Ásgeirsdóttir gengu í
hús í hverfinu sínu, Giljahverfi, á Akureyri og söfnuðu dóti á tombólu sem þær
héldu síðan við verslun Samkaupa við Borgarbraut. Stúlkurnar söfnuðu alls
3.386 krónum sem þær styrktu Rauða krossinn með.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
STARFSMANNAFATNAÐUR
FYRIR HÓTEL OG VEITINGAHÚS
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | sími 525 8210 | eddaehf@eddaehf.is | www.eddaehf.is
85
ÁRA
Eigum allt fyrir:
• Þjóninn
• Kokkinn
• Gestamóttökuna
• Þernuna
• Vikapiltinn
• Hótelstjórnandann