Morgunblaðið - 21.01.2017, Side 41
DÆGRADVÖL 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017
Fjöldi fólks sem hefur tekið upp vegan-mataræði hefur margfald-
ast. Veitingastöðum sem bjóða upp á
vegan-rétti á matseðli hefur fjölgað
mikið. Víkverji nánast missti andlitið
þegar fréttist af því að höfuðvígi kjöt-
ætanna á borð við Aktu taktu og Pít-
una væru komin með vegan-rétti á
matseðilinn. Víkverji hefur nefnilega
ekki borðað kjöt í meira en tvo ára-
tugi og hingað til hafa flestir veitinga-
staðir ekki verið með mikla áherslu á
grænmetisrétti þó að þeim hafi fjölg-
að í takt við ferðamannafjöldann.
x x x
Víkverji er með kenningu um það afhverju skyndibitastaðir bregðast
við veganismanum en ekki þrýstingi
frá grænmetisætum. Það eru nefni-
lega til svo margar vegan-matvörur
núna sem gera út á það að líkja eftir
kjötvörum. Þetta er nokkuð sem kjöt-
æturnar skilja, að vesalings fólkið
sem borði ekki kjöt þrái að borða eitt-
hvað sem líkist kjöti. Þá þarf heldur
ekki að breyta matseðlinum mikið.
Þess má þó geta að margir staðir
sýna metnað á þessu sviði, eins og
Bryggjan brugghús sem býður upp á
vegan-þorraplatta sem inniheldur
m.a. tvíreykta rauðbeðu með pek-
anhnetum, kapers og piparrót og
grafna gulrót á rúgbrauði. Ekkert
gervikjöt þar.
x x x
Nýbúið er að opna vegan-kjúk-lingastaðí London þar sem boðið
er upp á djúpsteikt seitan í stað kjúk-
lings. Eigandi staðarins sagði við
Mashable að hún væri að endurskapa
uppáhalds réttina sína frá því að áður
en hann gerðist vegan. Rebecca
McGuinness sagði að það væri al-
gengur misskilningur að vegan-fólk
hataði bragðið af kjötvörum heldur
væri það vegan af siðrænum og um-
hverfisástæðum.
x x x
Víkverji minnist heimsóknar á jóla-hlaðborð í Skrúð á Hótel Sögu
fyrir um fimmtán árum. Þar var fátt
um fína drætti fyrir grænmetisætur
en Víkverja var boðið upp á salat með
torkennilegum bitum. Aðspurður
svaraði þjónninn: Nei, þetta er ekki
kjöt, þetta er bara pulsa!
vikverji@mbl.is
VíkverjiStjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það sem maður getur ekki gert með
líkamlegu afli, getur maður látið gerast með
því að beina hugsunum sínum. Breyttu til.
20. apríl - 20. maí
Naut Reyndu að hafa stjórn á sjálfum þér á
öllum sviðum, sérstaklega skaltu gæta hófs í
mat og drykk. Líttu á atburði dagsins sem
vísbendingu um það sem koma skal.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér kann að finnast þú eiga fullt í
fangi með að halda í við aðra en í reynd
stendur þú þig ágætlega. Snúðu þér að öðru.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú stendur frammi fyrir svo mörgum
möguleikum að það er úr vöndu að ráða. Vog-
in er til í að tala um hluti núna sem hún að
jafnaði vill alls ekki ræða.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú elskar að hegða þér eins og sá sem
allt veit, stórlax og eðaltöffari. Svaraðu bréf-
um og skilaboðum strax. Gefðu fólkinu í
kringum þig það svigrúm sem það þarf.
Þannig færð þú líka þitt svigrúm.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það væri rangt af þér að svara ekki
beiðni gamals vinar um aðstoð. Endurskoð-
aðu það sem þú hefur verið að gera og íhug-
aðu hvort það hafi skilað tilætluðum árangri.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er ekki alltaf rétta ráðið að grípa inn
í líf annarra þótt aðstæður séu til þess. Kvik-
mynd eða bók gæti verið leiðin til að losa um
hana.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú vilt alltaf segja sannleikann
og því er alltaf allt á hreinu í þínum sam-
böndum. Nýttu þér það í persónulegum sam-
skiptum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Reyndu að sýna börnum þol-
inmæði og sveigjanleika í dag. Láttu falda föt-
in þín og stoppa í götin, hreinsa þau og
pressa.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Veltu því fyrir þér hvernig hægt er
að bæta vinnuaðstöðu þína. Sumar létt-
vægar, en hvað með það? Mestu skiptir að á
þig er hlustað. Gerðu hlutina bara á þeim
hraða sem þér hentar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Stundum leysir það vandamálið
að spyrja „hvað ef?“, en stundum skapar það
vandamál. Sýndu þeim fram á að þau muni
uppskera eins og þau sái.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þið búið yfir miklum fróðleik sem þið
getið miðlað til annarra ef þið eruð tilbúin til
að gefa af sjálfum ykkur. Lærðu þær aðferðir
sem gagnast vel án of mikilla átaka.
Laugardagsgátan er sem endra-nær eftir Guðmund Arnfinns-
son:
Nú er stefnan vestur á við.
Víst á báðum eruð þið.
Kona þessi eign þín er.
Ætt til forna merkir hér.
Hér er lausn Helga R. Ein-
arssonar:
Á báðum áttum er ég
og á því frekar bágt.
Í brestina svo ber ég
þá birtist loksins „átt“.
Harpa á Hjarðarfelli leysir gát-
una þannig:
Lausn á gátu laugardags
líta má hér brátt.
Mér finnst vera meining brags
margra kosta átt.
Helgi Seljan svarar:
Í vesturátt halda nú víkingar enn
en vísast á báðum áttum líka.
Og eiginkonu sem eign töldu menn
og ættinni margir af stolti flíka.
Árni Blöndal á þessa lausn:
Áttin blæs úr einni hlið.
Eru á báðum áttum þið.
Eiginkonu áttu þér.
Ætt er fyrirboði hér.
Guðmundur skýrir gátuna þann-
ig:
Í vesturátt við ætlum nú.
Á áttum báðum hann og þú.
Þú átt konu þá að frú.
Þekkt til forna áttin sú.
Þá er limra:
„Nú fína drætti er fátt um,“
kvað Fúsi, sem náði háttum,
Veru hjá
á Vesturá
en var þó á báðum áttum.
Og síðan kemur Guðmundur með
laugardagsgátuna:
Kliður vex um borg og bý,
burtu hverfa næturský,
starf að hefja hæfir því,
hérna kemur gáta ný:
Partur er af ævi manns.
Ill er vist í návist hans.
Stýrt með henni stundum var.
Stórfljót belja hér og þar.
Sigurður Pétursson orti þegar
taka átti af honum annan fótinn:
Þó að ég fótinn missi minn
mín ei rénar kæti
hoppað get ég í himininn inn
haltur á öðrum fæti.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Margur snýst á áttinni
Í klípu
ÞETTA HJÁLPAR EKKI
ÁFALLASTREITURÖSKUNINNI MINNI.
MÉR VAR HRINT NIÐUR STIGA.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG ER KOMINN MEÐ
RÖNTGEN-MYNDIRNAR ÞÍNAR.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... hlið inn í annan heim.
VOFF! VOFF! VOFF! VOFF!
VOFF!
VOFF!
ÞÚ ÆTTIR BARA AÐ GELTA
AF GÓÐRI ÁSTÆÐU
TELST „TIL
GAMANS“ GÓÐ
ÁSTÆÐA?
MAMMA,
STORMURINN
HRÆÐIR MIG!
ER PLÁSS
FYRIR MIG
TIL AÐ
SOFA HÉR?
ÞAÐ ER
NÓG
PLÁSS…
FAÐIR ÞINN ER
UNDIR RÚMINU!BUMM!
Allt sem faðirinn gefur mér mun
koma til mín og þann sem til mín
kemur mun ég alls eigi brott reka.
(Jóh. 6:37)
mbl.is
alltaf - allstaðar Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200Opið: Virka daga 9.30-18 Laugardaga 11–14
GOTT ÚRVAL AF
UMGJÖRÐUM
Á UNGA FÓLKIÐ
Verið velkomin til
okkar í sjónmælingu
Afgreiðum samdægurs