Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@gmail.com
Það væri að æra óstöðugan að telja
upp öll þau verkefni sem Þorkell og
Pan hafa komið að en við skulum
segja að báðir hafa verið giska virkir
í íslenskri neðanjarðartónlist undan-
farna áratugi. Pan hefur t.a.m. verið
með augu og eyru á jaðarkenndu
hipp-hoppi og
reis Ambátt upp
við dogg er Þor-
kell lagði einu
slíku, Beatmak-
in Troopa, lið
árið 2012 (stutt-
skífan If You
Fall You Fly).
Pan og Þorkell hafa þá líka starfað
saman í Stereo Hypnosis ásamt
Óskari Thorarensen þannig að hæg
voru sköpunarlegu heimatökin.
Hvað þetta verkefni varðar sá Þor-
kell um bassa, gítar, hljómborð og
ýmis áhrifshljóð en Pan tefldi fram
áhrifs- og umhverfishljóðum ýmiss
konar. Benjamín Bent Árnason lék
svo á trommur, Sebastian Stud-
nitzky spilar á trompet og Katrína
Mogensen (Mammút) leggur til
rödd.
Flugufen er ómþýður staður. Þeir
félagar hafa á stundum reynt með-
vitað á þanþol hlustenda með því að
keyra fram að hengiflugi hins mögu-
lega í tónlist en Flugufenið er ekki
vettvangur fyrir slíkt. Lagt er upp
með stemningu, alltumlykjandi, og
platan rennur af hægð og með ör-
yggi. Kannski er það vegna lagatitl-
anna („Svefney“, „Augnlækur“,
„Undirtún“) en manni líður eins og
maður sé á svifi yfir einhverja
ókennilega náttúru á meðan hlýtt er.
Titillagið kallar fram evrópska
sveimdjassstemningu, Jon Hassell
kemur í hugann, ábyggilega vegna
trompetleiks Studnitzky, og Þorkell
styður smekklega við með gítarleik.
„Kóðá“ lykkjast um döbblendur og
þegar komið er að fjórða lagi,
„Augnlækur“ dettur maður niður í
notalega, „tsjillaða“ stemningu
(munum að Pan er einn af skipu-
leggjendum hinar dásamlegu hátíð-
ar Extreme Chill Festival). Katrína
leiðir lagið „Brenningur“ með sinni
seiðandi röddu og aftur kemur Stud-
nitzky inn í „Undirtún“. Plötunni er
svo lokað með „Lognheimar“, sem
er dramatískasta lagið hér mætti
segja, verkinu lokað með stæl.
Platan er fáanleg á vínyl en einnig
er hægt að nálgast hana rafrænt. Í
samtali við Morgunblaðið á dög-
unum fóru þeir félagar mikinn hvað
kosti vínylformsins varðar, sér-
staklega þá hvernig hægt er að
skipta plötum niður á ólíkar hliðar,
vinnuaðferð sem þeir sögðust sakna
og sú nálgun/aðferð er eðlilega yngri
kynslóðum í raun hulin og á líkast til
eftir að hverfa algerlega þegar fram
í sækir. Fyrir mann sem er alin upp
við svarta hringinn ljúfa toppar fátt
það að heyra lágt snarkið er nálinni
er smellt á vínylinn. Og að standa
upp eftir ljúft niðurlag Augnlæksins,
snúa plötunni og bíða eftir himn-
eskri söngrödd Katrínu sem opnar
seinni hliðina verður eitthvað svo
eðlilegt. Í vínyl er vinningur falinn!
Morgunblaðið/Golli
Félagar Pan Thorarensen og Þorkell Atlason eru léttir þrátt fyrir allan stafaruglinginn!
Fljótandi að
fögrum ósi
» Þeir félagar hafa ástundum reynt með-
vitað á þanþol hlustenda
með því að keyra fram
að hengiflugi hins
mögulega í tónlist en
Flugufenið er ekki vett-
vangur fyrir slíkt.
Flugufen er plata eftir dúettinn Ambátt, en hann
skipa þeir Pan Thorarensen og Þorkell Atlason.
Þeir kappar hafa komið víða við í alls kyns
verkefnum en hugmyndin að Ambátt fæddist
fyrir röskum fimm árum.
Bítillinn Paul McCartney reynir nú
að ná aftur útgáfuréttinum að tón-
list Bítlanna og hefur því höfðað
mál gegn Sony-fyrirtækinu sem á
réttinn. McCartney höfðar málið
fyrir bandarískum dómstól og fer
fram á að fá aftur útgáfuréttinn að
267 lögum Bítlanna, og þar með
sínum hlut í lögunum sem þeir John
Lennon sömdu saman en Yoko Ono
seldi Sony hlut Lennons árið 2009.
McCartney reyndi fyrst að kaupa
útgáfuréttinn aftur á áttunda ára-
tugnum en kollegi hans Michael
Jackson bauð þá betur. Skuldum
hlaðið dánarbú Jackson seldi Sony
síðan réttinn að Bítlalögunum 2014.
Samkvæmt fréttavef BBC gerir
McCartney nú tilraun til að fá út-
gáfuréttinn og byggir á ákvæði í
bandarísku höfundaréttarlöggjöf-
inni sem gerir ráð fyrir því að höf-
undar og erfingjar þeirra geti eign-
ast rétt á eigin hugverkum eftir
ákveðinn tíma. Hafa listamenn á
borð við Prince, Billy Joel og Blon-
die nýtt ákvæðið á undanförnum
árum til að öðlast aftur útgáfurétt
að eigin verkum.
Breska hljómsveitin Duran Dur-
an tapaði hins vegar á dögunum
fyrir breskum dómstóli sambæri-
legu máli, þegar hæstiréttur Bret-
lands úrskurðaði að samningar sem
voru undirritaðir í Bretlandi hefðu
forgang á rétt þeirra í Bandaríkj-
unum. Talið er að úrskurðurinn
geti haft fordæmisgildi fyrir mál
annarra breskra listamanna.
Samkvæmt breskum lögum geta
útgáfufyrirtæki átt útgáfurétt að
tónlist í allt að 70 ár eftir lát lista-
manns en í Bandaríkjunum er hægt
að segja upp útgáfusamningum um
lög 56 árum eftir að þau voru sam-
in. Samkvæmt því gæti McCartney,
ef honum tekst að ógilda samninga
Sony, eignast réttinn að elstu lög-
unum, eins og „Love Me Do“, á
næsta ári en lög eins og „Come To-
gether“ og „Get Back“ árið 2025,
56 árum eftir útgáfu þeirra.
AFP
Stórstjarnan Paul McCartney vill eiga réttinn að eigin lagasmíðum.
McCartney fer í hart
um útgáfuréttinn
mbl.is
alltaf - allstaðar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 2
TILBOÐ KL 2
TILBOÐ KL 2
SÝND KL. 5, 8
SÝND KL. 8, 10.40
SÝND KL. 10.40
SÝND KL. 2, 4, 6
SÝND KL. 2 - ísl tal
SÝND KL. 2, 4.30 - ísl tal
SÝND KL. 6.50, 10
Tíska & förðun
Fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 17. febrúar
Fjallað verður um vor tískuna 2017
í förðun, snyrtingu, útliti og fatnaði
auk umhirðu húðarinnar, dekur og fleira.
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til kl. 16 mánudaginn 13. febrúar.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
SÉRBLAÐ