Morgunblaðið - 01.02.2017, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 01.02.2017, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2017 ar Fillons án þess að hafa starfað fyr- ir það. Franska lögreglan hóf rannsókn á málinu og yfirheyrði hjónin í fyrra- dag. Þau neituðu bæði þessum ásök- unum og Fillon lagði fram skjöl sem hann telur sanna að þær séu rangar. Hver sem niðurstaða rannsóknar- innar verður er talið að ásakanirnar skaði Fillon sem hafði lagt áherslu á að hann væri heiðarlegur stjórn- málamaður sem kjósendurnir gætu treyst. Hann hafði einnig gagnrýnt „ríkisbáknið“ og lagt til að útgjöld ríkisins yrðu minnkuð með því að fækka starfsmönnum þess um hálfa milljón. Macron í sókn Samkvæmt skoðanakönnun, sem birt var á sunnudag, hefur Macron notið góðs af vandræðum Fillons. Hún bendir til þess að 25% ætli að kjósa Le Pen í fyrri umferð kosning- anna 23. apríl, 21% styðji Fillon og 20% Macron. Hamon mældist með aðeins 13% fylgi. Ef marka má könnunina er þó ólík- legt að Le Pen sigri í annarri umferð kosninganna 7. maí þegar kosið verð- ur á milli tveggja efstu forsetaefn- anna. Hún bendir til þess að Fillon myndi sigra Le Pen með 60% at- kvæða gegn 40% ef valið stæði á milli Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Líkurnar á sigri franska þjóðernis- sinnans Marine Le Pen í forseta- kosningum í Frakklandi í apríl og maí eru taldar hafa aukist eftir að forsetaefni hægrimanna, François Fillon, var sakaður um spillingu, og róttækur vinstrimaður, Benoît Ham- on, var valinn forsetaefni Sósíal- istaflokksins. Le Pen hefur meðal annars lofað þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Frakklands að Evrópusam- bandinu og vill að Frakkar leggi nið- ur evruna. Á litla möguleika Hamon hefur verið líkt við Jeremy Corbyn, leiðtoga Verkamannaflokks- ins í Bretlandi, og talið er að hann eigi sáralitla möguleika á að verða næsti forseti Frakklands. Hann hef- ur meðal annars boðað að vinnuvikan verði stytt úr 35 stundum í 32 og öll- um íbúum landsins verði greidd borgaralaun, um 750 evrur (94.000 krónur) á mánuði, óháð öðrum tekjum þeirra. Talið er að þessi laun myndu kosta ríkissjóð Frakklands 480 milljarða evra (jafnvirði 60.000 milljarða króna) á ári. Andstæðingar Hamons í Sósíalistaflokknum segja að ógjörningur yrði að koma stefnu hans í framkvæmd og lýsa honum sem draumóramanni. Talið er að margir miðjumenn í Sósíalistaflokknum snúist gegn Hamon í forsetakosningunum og styðji Emmanuel Macron, fyrrver- andi efnahagsmálaráðherra í stjórn Sósíalistaflokksins. Macron sagði sig úr honum og stofnaði nýjan stjórn- málaflokk í ágúst til að bjóða sig fram til forseta. Fillon í vörn Síðustu vikur hefur Fillon, forseta- efni Lýðveldisflokksins, verið talinn sigurstranglegastur en hann hefur átt undir högg að sækja síðustu daga vegna ásakana um að eiginkona hans hafi fengið laun sem aðstoðarmaður hans án þess að hafa í raun starfað fyrir hann. Blaðið Le Canard Enchaîné segir að eiginkonan hafi fengið hálfa milljón evra (62 milljónir króna) á árunum 1998 til 2012 þegar hún var aðstoðarmaður hans. Tvö börn þeirra fengu einnig samtals 84.000 evrur fyrir aðstoð við hann sem þingmann. Franskir þingmenn mega ráða eiginkonu sína og börn sem aðstoðarmenn en blaðið segist ekki hafa fundið neinar vísbendingar um að kona Fillons hafi í raun unnið fyrir hann. Eiginkonan er einnig sögð hafa fengið laun sem ráðgjafi bókmenntatímarits í eigu auðugs vin- þeirra í síðari umferðinni. Macron myndi sigra Le Pen með 65% at- kvæða gegn 35% og næði einnig kjöri með 58% fylgi ef valið stæði á milli hans og Fillons. Fillon hefur lýst Macron sem „dæmigerðum yfirstéttarmanni sem er algerlega úr tengslum við raun- veruleikann í samfélaginu“. Stuðn- ingsmenn Fillons hafa einnig vakið athygli á nýrri bók þar sem Macron er gagnrýndur fyrir kostnaðarsöm veisluhöld þegar hann var efnahags- málaráðherra. Titringur á mörkuðum Þótt kannanirnar bendi til þess að ólíklegt sé að Le Pen sigri í annarri umferðinni er ekki hægt að útiloka að hún komi á óvart eins og Donald Trump í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í nóvember og and- stæðingar Evrópusambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslunni í Bret- landi í júní síðastliðnum. Auknar sigurlíkur Le Pen vegna klofnings sósíalista og vandræða Fill- ons hafa valdið titringi á fjár- málamörkuðum í Frakklandi, að því er fram kemur í fréttaskýringu Am- brose Evans-Pritchards, við- skiptaritstjóra breska dagblaðsins The Telegraph. „Markaðirnir eru farnir að líta aftur á Frakkland sem óöruggt land,“ hefur hann eftir franska hagfræðingnum Brigitte Granville. Evans-Pritchard segir að loforð Le Pen um að halda þjóðaratkvæða- greiðslu um aðildina að ESB og taka upp franska frankann að nýju geti orðið evrusamstarfinu að falli. „Evr- an hættir að vera til um leið og Frakkland leggur hana niður,“ sagði Le Pen eitt sinn í viðtali við The Tele- graph. Hún skírskotaði til þess að landið er næststærsta hagkerfi evru- svæðisins. „Við þorðum aldrei að ímynda okk- ar að þetta myndi fara svona vel fyrir okkur,“ hefur Evans-Pritchard eftir ráðgjafa Þjóðfylkingarinnar. Le Pen telur sig eiga mikla möguleika á sigri í síðari umferðinni ef kosið verður á milli hennar og Macrons. „Það er ein- vígi milli föðurlandsvinar og hnatt- væðingarsinna,“ sagði hún. Breytti stefnunni í evrumálum Le Pen varð í þriðja sæti, með 17,9% atkvæðanna, í fyrri umferð forsetakosninganna árið 2012. Á síð- ustu árum hefur hún mildað stefnu sína með það fyrir augum að auka fylgi sitt nógu mikið til að geta átt möguleika á að ná kjöri. Grundvallar- stefna hennar hefur þó ekki breyst. Hún vill enn að Frakkar segi sig úr ESB og endurheimti stjórn á landa- mærunum, hyggst herða innflytj- endalöggjöfina, bæta tengslin við Rússland og taka upp dauðarefs- ingar að nýju. Skoðanakannanir benda til þess að meirihluti Frakka sé hlynntur því að Frakkland verði áfram í ESB en að landið endurheimti völd frá Brussel. Í síðustu kosningum boðaði Le Pen að evran yrði lögð niður í einu vet- fangi en hún hefur nú mildað þá stefnu sína í von um að auka sigur- líkur sínar. Hún segist ætla að taka upp franska frankann, sem yrði not- aður samhliða evrunni í fyrstu. Hún kveðst ætla að hefja samninga- viðræður við önnur evruríki, sem eru óánægð með evrusamstarfið, um að þau taki upp eigin gjaldmiðla og stofni nýja myntkörfu. Þessar við- ræður eiga að standa í sex mánuði. Nýi frankinn yrði síðan tengdur við körfu þessara gjaldmiðla og evran lögð niður. Le Pen vonar að með þessari breytingu fái hún atkvæði kjósenda sem óttast að skyndilegt afnám evr- unnar myndi hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar. Andstæðingar hennar segja að þessi áform hennar séu óraunhæf og telja að samninga- viðræður um slíka myntkörfu yrðu mjög erfiðar. Sigurlíkur Le Pen aukast  Hefur mildað stefnu og ímynd sína til að auka fylgi sitt í kosningunum í Frakklandi  Klofningur sósíalista og spillingarásakanir á hendur forsetaefni hægrimanna gætu styrkt stöðu hennar AFP Á atkvæðaveiðum Forsetaefnið Marine Le Pen í verksmiðju í Forbach, sveitarfélagi í austanverðu Frakklandi. Mildari Marine » Marine Le Pen hefur lagt áherslu á að milda ímynd sína til að auka líkurnar á því að hún verði forseti. Hún vék föð- ur sínum, Jean-Marie Le Pen, frá sem heiðursformanni Þjóð- fylkingarinnar árið 2015 vegna umdeildra yfirlýsinga hans. Hún hefur einnig mildað yfir- lýsingar sínar um múslíma og íslam. » Í kosningaauglýsingum not- ar hún ekki eftirnafn sitt, held- ur aðeins skírnarnafnið Mar- ine. Markmið hennar með því er ekki aðeins að halda sig í hæfilegri fjarlægð frá föðurn- um, heldur einnig að vekja at- hygli á því að hún er eina kon- an á meðal helstu forseta- efnanna. » Kosningamerki Le Pen er blá rós sem hún segir að sé tákn um þá stefnu hennar að sam- eina alla Frakka. Rósin er tákn sósíalista og blái liturinn hefur verið tengdur við hægrimenn. A9 KR. 299.000,- Beolit15 KR. 69.000,- H2 KR. 26.000,- H6 KR. 43.000,- A1 KR. 34.000,- Einstök vinátta frá fyrstu hlustun lágmúla 8 · sími 530 2800 Verið velkomin í glæsilega verslun Bang & Olufsen í Lágmúla 8 og heyrið hljóminn. Það breytir öllu. Bluetooth/WiFi hátalari. Frumleg hönnun. Einstakur kröftugur hljómur, alls 480W magnarar. Bluetooth ferðahátalari. Öflugur bluetooth hátalari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.