Morgunblaðið - 01.02.2017, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.02.2017, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2017 Reiknað er með að um 8,7 milljónir farþega muni fara í gegnum flug- stöðina árið 2017. Kemur fram í farþegaspá Isavia að teikn sjáist í spánni um að ferðamönnum muni fjölga mikið yfir vetrartímann. Spá- in gerir ráð fyrir tæplega 70 þúsund fleiri brottfararfarþegum í janúar 2017 miðað við 2016. Þegar litið er lengra aftur í tímann má sjá að árið 2010 voru um 50% ferðamanna að koma til Íslands yfir hásumarið (júní til ágúst) og 23% yfir vetrartímann (janúar til mars, nóvember og des- ember). Árið 2017 verður hins vegar vetrinum í vil því áætlað er að um 35% ferðamanna komi yfir vetr- armánuðina en einungis 33% yfir há- sumarið. yfir vetrartímann og segir bókunina ganga betur en í fyrra. „Sumarið hefur verið heiti tíminn í gegnum tíðina. Ég myndi segja að eftirspurnin væri töluvert meiri í ár en í fyrra. Það er mjög erfitt að bæta við fólki á sumrin, sumrin hafa verið þétt bókuð mörg ár í röð en það eru mjög jákvætt að sjá hvað hótelin eru uppbókuð yfir vetrartímann,“ segir Eva. Ísland heitur reitur að vetri til Farþegaspá Isavia fyrir árið 2017 reiknar með áframhaldandi vexti í farþegafjölda hingað til landsins. Flugfarþegar í Leifsstöð árið 2016 voru um 6,8 milljónir en það var 40,4% aukning frá árinu áður. Mikið hefur verið flutt inn af er- lendum gulrótum að undanförnu á sama tíma og mikið magn er til af góðum íslenskum gulrótum. „Ég sel 75% minna af gulrótum núna en á sama tíma í fyrra,“ segir Ragnhildur Þórarinsdóttir hjá SR grænmeti á Flúðum. „Út af því að síðastliðið sumar og haust var svo gott eru fleiri bændur sem eiga gul- rætur á lager en auk þess er heil- mikið flutt inn núna,“ segir Ragn- hildur, sem selur aðallega til heildverslunarinnar Innnes og í Víðisverslanirnar. „Það er sorglegt að vera að eyða gjaldeyri í gulræt- ur þegar við eigum til nóg af þeim, svo ég tali nú ekki um matar- sóunina, en ef ég sel ekki mínar gulrætur fara þær á haugana. Þá verða kolefnasporin mörg að óþörfu,“ segir Ragnhildur. Óvön þessari stöðu Gunnlaugur Karlsson, fram- kvæmdastjóri Sölufélags garð- yrkjumanna, segir að uppskeran í fyrra hafi verið góð og því til meira af gulrótum nú en oft áður. „En það sem er nýtt fyrir okkur er að það er talsverður innflutningur á gulrót- um á sama tíma. Það hefur ekki verið áður innflutningur á gulrót- um á meðan nóg er til af íslenskum, það er staða sem við erum óvön,“ segir Gunnlaugur. „Grænmetis- bændur vilja standa sig og eiga nóg til af vöru og þá kemur þessi inn- flutningur sem svolítill skellur.“ Hægt er að geyma góðar gulræt- ur fram í maí svo að Gunnlaugur býst við að flestir nái að selja lager sinn að mestu þegar upp er staðið. Hann segir söluna á íslensku græn- meti heilt yfir vera góða en Sölu- félag garðyrkjumanna sé alltaf að berjast fyrir réttum merkingum á grænmetinu og að gæta þess að neytandinn fái réttar upplýsingar um uppruna vörunnar. Í Krónuverslunum er boðið upp á lífrænar gulrætur frá Danmörku sem Krónan flytur inn sjálf. Sam- kvæmt upplýsingum frá Ósk Heiðu Sveinsdóttur, markaðsstjóra Krón- unnar, leggja þau áherslu á að geta boðið viðskiptavinum upp á lífræna valkosti til blands við íslenska. Hún segir Krónuna líka leggja mikla áherslu á að bjóða upp á íslenskt grænmeti og kaupa það sem í boði er og stilla íslenskum gulrótum og dönskum upp hlið við hlið í versl- unum. ingveldur@mbl.is Innlendar gulræt- ur seljast hægar vegna innflutnings  Mikið til af íslenskum gulrótum eftir góða uppskeru  Selur 75% minna Gulrætur Nóg er til af innlendum gulrótum á lager núna. Svanfríður Jón- asdóttir, nýr for- maður Samráðs- hóps um endurskoðun bú- vörusamninga, segir að unnið verði í samræmi við ákvæði bú- vörusamninga. „Þetta verður þjóðarsamtal. Þannig verða við borðið fulltrúar sem flestra sjónarmiða en um leið mikil þekking. Það er mikilvægt að landbúnaðurinn búi við ákveðið ör- yggi og mikilvægt að finna sátt fyr- ir alla, neytendur og bændur.“ Fara á fram ákveðið þjóðarsamtal í samráðshópnum Svanfríður Jónasdóttir Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is „Mér finnst það sérkennilegt að verið sé að taka fagmennsku úr nefndinni og færa aukna pólitík inn í hana með nýrri skipan nefndarmanna,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknarflokks og fyrrv. sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra, um breytingu Þorgerðar Katrínar Gunn- arsdóttur, sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra, á skipan samráðshóps um endurskoðun búvörusamninga. „Ekki er bara tekinn út formaður nefndarinnar, sem kom úr háskóla- samfélaginu, og settur inn nýr for- maður, fyrrverandi þingmaður Sam- fylkingarinnar, heldur er bætt við fulltrúa heildsala. Þetta snýst um lifi- brauð bænda og skyldur þeirra til að sinna neytendum. Á leiðinni þangað eru alls konar milliliðir en þeir eiga enga kröfu um að vera í þessum hóp og óeðlilegt að þeir séu það. Markmið heildsala er eingöngu að auka gróða sinn sem mest,“ segir Gunnar og vísar til fulltrúa Félags atvinnurekenda, sem kemur nýr inn í samráðshópinn. Þá segist Gunnar óttast að ný ríkis- stjórn opni landið fyrir innflutningi. Áhersla á umhverfismál Í tilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu segir að með breyttri skipan samráðshópsins sé sérstaklega verið að horfa til þess að auka vægi umhverfis- og neyt- endasjónarmiða í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Hefur Svanfríður Jónasdóttir, fyrr- verandi sveitarstjóri Dalvíkurbyggð- ar og fyrrverandi alþingismaður, ver- ið ráðin formaður hópsins auk þess sem fulltrúum hans er fjölgað úr tólf í þrettán. Umhverfisráðherra mun þá til- nefna einn fulltrúa og Félag atvinnu- rekenda annan. Hefur skipan þriggja fulltrúa af fimm sem fyrri ráðherra skipaði án tilnefningar verið aftur- kölluð. Í þeirra stað hefur ráðherra skipað Brynhildi Pétursdóttur, fyrr- verandi alþingismann og starfsmann Neytendasamtakanna, og Svanfríði Jónasdóttur. Gagnrýnir skipan í nefnd  Þorgerður Katrín hefur breytt skipan samráðshóps um endurskoðun búvöru- samninga  Gunnar Bragi óttast að opna eigi landið fyrir innflutningi Nýlokið er útboði sem Ríkiskaup sáu um fyrir Hagstofu Íslands og Ferða- málastofu um framkvæmd landamærarannsóknar meðal farþega á leið úr landi. Mun ekki hafa fengist jafnmikið fjármagn í slíkt verkefni áður. Fram kemur í útboðsgögnum, að rannsóknin verði gerð með könnun á Keflavík- urflugvelli, sem fylgt verður eftir með vefkönnun. Beinist rannsóknin að erlendum ferðamönnum sem hafa dvalið á Íslandi og Íslendingum búsett- um erlendis sem ferðast til Íslands. Vonir standa til að um 60% svarhlut- fall fáist í netkönnuninni, m.a. með því að bjóða þátttakendum upp á ein- hverskonar glaðning, sem verkkaupinn mun standa undir kostnaði við. Ætla að efla tölfræðiupplýsingar LANDAMÆRARANNSÓKN, GAGNAÖFLUN MEÐAL FERÐAMANNA Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Starfsmenn á hótelum hérlendis reikna með því að hótelin verði full- bókuð í sumar en sum þeirra eru það nú þegar. Þá hafa þau einnig fundið fyrir miklum mun í bókunum yfir vetrartímann og fagna því að hótel- starfsemi sé orðinn heilsársstarf- semi hérlendis. Finna fyrir fjölgun í febrúar „Það er nánast orðið troðið, eigum næst lausa helgi í október. Þetta er í raun ótrúleg staða í febrúar,“ segir Gunnar Már Árnason, bókunarstjóri Fosshótels, en hann hefur starfað í hótelbransanum í rúm 20 ár. „Við er- um með einhverja örfáa daga hér og þar sem eru lausir en annars erum við með u.þ.b 80% bókun út árið nú þegar.“ Mikil aukning hefur verið í bókunum yfir vetrartímann og fagn- ar Gunnar því. „Febrúar og janúar hafa hingað til verið dauðir tímar í hótelbransanum en nú eru þetta mánuðir þar sem er brjálað að gera hjá okkur. Í janúar í fyrra var um 35% bókun hjá okkur en nú erum við að klára mánuðinn í ár með 80% bókun,“ segir Gunnar. Eftirspurn meiri en í fyrra Eva Silvernail, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs CenterHotels, segir þau einnig vera að upplifa aukningu Morgunblaðið/Eggert Hrímland Ferðamenn láta frostið ekki á sig fá, heldur sækjast þeir frekar í hrím en hásumar í ár. Hótel fullbókuð fyrir árið í byrjun febrúar  Aukning yfir vetrartímann  Hásumarið fullbókað Ríkissáttasemjari lagði í gærkvöldi fram miðlunartillögu í deilu Kenn- arasambands Íslands vegna Félags kennara og stjórnenda í tónlistar- skólum (FT) og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Kjarasamningur aðila rann út þann 31. október 2015 og var málinu vísað til ríkissáttasemjara, þann 27. apríl 2016. Haldnir hafa verið 20 árangurslausir fundir í mál- inu og telur ríkissáttasemjari að frekari sáttaumleitanir beri ekki ár- angur, segir í tilkynningu frá Rík- issáttasemjara. Þar segir enn fremur að sam- komulag hafi náðst á milli samnings- aðila um öll meginatriði, að undan- skildu því að hvaða leyti samningslaust tímabil er bætt og gildistíma samningsins. Því hefur ríkissáttasemjari lagt fram miðlun- artillögu til lausnar deilunni sem byggist á fyrirliggjandi samkomu- lagsdrögum auk þess sem tekið er á útistandandi ágreiningi. Félagsmenn í FT annars vegar og stjórn Sambands íslenskra sveitarfé- laga hins vegar munu greiða atkvæði um miðlunartillöguna en atkvæða- greiðslan hefst svo skjótt sem verða má og henni lýkur kl. 13:00 föstudag- inn 10. febrúar næstkomandi. Miðlunartillaga í deilu tónlistarkennara  Samkomulag um öll meginatriði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.