Morgunblaðið - 01.02.2017, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2017
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
og á leiðinni
Sími 4 80 80 80
2017 Ram Laramie Sport
Með 6,7L Cummins, loftpúðafjöðrun
og Aisin sjálfskipting.
2016 GMC All Terrain 3500
GFX Ultimate pakki, stórglæsilegur.
6.6 lítra Duramax,sóllúga,
2016 Suburban LTZ
7 manna bíll, fjórir kapteinsstólar,
Blu Ray spilari,
sóllúga o.fl.
5,3L V8,
355 Hö.
VERÐ
10.560.000
VERÐ
14.990.000
VERÐ
10.190.000
1. febrúar 2017
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 116.07 116.63 116.35
Sterlingspund 145.59 146.29 145.94
Kanadadalur 88.25 88.77 88.51
Dönsk króna 16.684 16.782 16.733
Norsk króna 13.933 14.015 13.974
Sænsk króna 13.132 13.208 13.17
Svissn. franki 116.17 116.81 116.49
Japanskt jen 1.0123 1.0183 1.0153
SDR 157.26 158.2 157.73
Evra 124.1 124.8 124.45
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 155.6021
Hrávöruverð
Gull 1198.8 ($/únsa)
Ál 1806.0 ($/tonn) LME
Hráolía 55.47 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Eigendur Ikea á Íslandi hafa til-
kynnt að þeir hyggist opna sambæri-
lega verslun í Riga, höfuðborg Lett-
lands, í ágúst á næsta ári. Frá þessu
greinir LSM, ríkisfjölmiðillinn í
Lettlandi.
Er það önnur verslunin sem þeir
opna í Eystrasaltsríkjunum því árið
2013 opnuðu þeir verslun í Vilníus í
Litháen.
Framkvæmdir við hina nýju versl-
un, sem staðsett verður um átta kíló-
metra austur af miðborg Riga, hefj-
ast nú á vordögum og mun hún verða
34.500 fermetrar að stærð. Þá er
gert ráð fyrir 1.000 bílastæðum við
verslunina. Sigurður Gísli Pálmason,
einn eigenda verslunarinnar, stað-
festir í samtali við LSM að fjárfest-
ing í verslunarhúsnæðinu kunni að
verða um 100 milljónir evra, jafngildi
12 milljarða íslenskra króna.
Hluti af undirbúningi fyrir opnun
verslunarinnar felst í að laga gatna-
kerfi nærumhverfis verslunarinnar
að þörfum hennar. Þannig hafa for-
svarsmenn hennar undirritað sam-
starfssamning við borgarstjóra Riga
varðandi þá aðlögun. Greina þar-
lendir fjölmiðlar frá því að fjárfest-
ing borgarinnar í innviðum, sem ætl-
að er að tryggja gott aðgengi að
versluninni, muni verða í kringum
500 þúsund evrur eða ríflega sextíu
milljónir króna.
Gert er ráð fyrir að um 300 starfs-
menn muni koma að uppbyggingu
verslunarhúsnæðisins og þá er einn-
ig gert ráð fyrir að um 400 störf verði
til í tengslum við verslunarrekstur-
inn sjálfan þegar hann verður kom-
inn í fullan gang. ses@mbl.is
Íslendingar opna
Ikea í Lettlandi
Fjárfesting upp á allt að 12 milljarða
IKEA Fjárfestingin í Lettlandi er
áætluð allt að 100 milljónir evra.
● Fjármála- og efnahagsráðherra hefur
skipað að nýju í stýrinefnd sem hefur
það verkefni með höndum að vinna að
fullri losun fjármagnshafta. Í henni sitja
Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra,
Benedikt Árnason, tilnefndur af for-
sætisráðherra, Guðmundur Árnason, til-
nefndur af fjármálaráðherra, Már Guð-
mundsson seðlabankastjóri og
Ragnhildur Arnljótsdóttir, tilnefnd af for-
sætisráðuneyti.
Ný haftanefnd skipuð
Burlington er írskt skúffufyrir-
tæki bandaríska vogunarsjóðsins
Davidson Kempner í New York og
er eitt af 480 fyrirtækjum sem eru
skráð hjá aflandsþjónustu
Deutsche International Finance á
Írlandi, samkvæmt grein The Irish
Times á síðasta ári.
Ríkið seldi vogunarsjóðnum
Snemma á síðasta ári tilkynnti
Fjármálaeftirlitið að ríkissjóði, í
gegnum Lindarhvol ehf. sem ann-
ast umsýslu, fullnustu og sölu á
eignum ríkissjóðs, væri heimilt að
fara með 20% óbeinan eignarhlut í
Lýsingu eftir að hafa eignast 17,6%
hlut Klakka. Hlutinn eignaðist ríkið
vegna stöðugleikaframlags Kaup-
þings.
Seint á síðasta ári seldi ríkið
þennan hlut til dótturfélags Burl-
ington, BLM fjárfestinga ehf., eftir
að hafa fengið tilboð frá þremur að-
ilum. Burlington á eftir kaupin 75%
hlut í Klakka.
Svigrúm til túlkunar
Lögfræðingar sem Morgunblaðið
ræddi við voru á því að Fjármála-
eftirlitið hefði mikið svigrúm til
mats þegar kemur að því að meta
hæfi aðila til að eiga íslensk fjár-
málafyrirtæki og litið væri til ým-
issa skilyrða. Erfitt væri þó að full-
yrða að mat á Burlington Loan
Management sem hæfum eiganda
fjármálafyrirtækis væri ekki for-
dæmisgefandi, eins og Jón Þór
Sturluson sagði í Morgunblaðinu í
gær.
Fékk heimild FME
nánast án eigin fjár
Burlington með 8 milljarða dala umsvif en 2.624 dali í eigin fé
AFP
Írland Burlington Loan Managment er skráð í fjármálamiðstöðinni í Dublin.
Í nýrri skýrslu greiningardeildar
Arion banka er gert ráð fyrir að hús-
næðisverð muni hækka um 34,4%
fram til ársloka 2019. Er matið háð
ströngum forsendum og bendir
bankinn á að breyttar forsendur geti
aukið eða slegið á verðhækkanir.
Sviðsmynd bankans gerir þó ráð
fyrir að húsnæðisverð muni hækka
um 14% á þessu ári, 9,7% árið 2018
og 7,5% árið 2019.
Segir bankinn að húsnæðisverð
hafi hækkað sífellt hraðar síðustu
mánuði og að árshækkunin á höfuð-
borgarsvæðinu hafi í desember num-
ið 15%. Þá hafi önnur svæði einnig
tekið við sér og að húsnæðisverð
utan höfuðborgarsvæðisins hafi
hækkað um 20% síðastliðna 20 mán-
uði og er sú hækkun að mestu tengd
verðhækkunum í nágrannasveitar-
félögum höfuðborgarsvæðisins.
Skýringar á sífellt hærra verði
tengjast fyrst og fremst hagstæðu
efnahagsástandi, fólksfjölgun, kaup-
máttaraukningu og góðu aðgengi að
lánsfé. Þá bendir Arion banki einnig
á að skortur á íbúðarhúsnæði hafi sín
áhrif til hækkunar. Þannig þurfi að
byggja að minnsta kosti 8.000 íbúðir
á næstu árum til að halda í við fólks-
fjölgun og að inni í þeim tölum sé
ekki fyllilega tekið tillit til uppsafn-
aðrar þarfar á síðustu árum. Spá
bankans bendir til að litlar líkur séu
á að takast muni að anna fyrrnefndri
eftirspurn.
Gangi spá bankans eftir mun hús-
næðisverð að öllum líkindum hækka
töluvert umfram flestar undirliggj-
andi stærðir í hagkerfinu, meðal
annars kaupmátt ráðstöfunartekna.
Í skýrslunni er bent á að af þeim sök-
um sé ástæða til að vara við ofhitnun
á markaðnum til lengri tíma litið.
ses@mbl.is
Spá 34% hækkun
fasteignaverðs
Gott efnahags-
ástand meðal þess
sem ræður mestu
Morgunblaðið/Kristinn
Spenna Bankinn spáir myndar-
legum hækkunum á fasteignaverði.
Lýsing er meðal elstu fjármála-
fyrirtækja landsins og elsta
starfandi eignaleigufyrirtækið.
Það annast einkum fjármögnun
á atvinnutækjum og bifreiðum
fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Samkvæmt árshlutareikningi
var hagnaður félagsins fyrstu
sex mánuði 2016 um 285 millj-
ónir króna.
Leigusamningar og útlán
námu um 17 milljörðum króna
um mitt síðasta ár en handbært
fé var um 5,9 milljarðar. Eignir
félagsins voru liðlega 25 millj-
arðar króna og eigið fé tæplega
11 milljarðar.
Handbært fé
um 6 milljarðar
TRAUST STAÐA LÝSINGAR
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Vogunarsjóðurinn Burlington Loan
Management DCA, sem hefur verið
umsvifamikill fjárfestir á Íslandi
frá hruni, og var í liðinni viku met-
inn hæfur til að fara með fullan
eignarhlut í fjármálafyrirtækinu
Lýsingu í gegnum eignarhald sitt á
eignarhaldsfélaginu Klakka, er með
aðeins 2.624 Bandaríkjadali í eigið
fé, eða um 305 þúsund íslenskar
krónur. Hlutafé í félaginu er enn
minna, eða 3 hlutir að nafnverði 1
dalur hver, eða samtals um 350
krónur. Þetta kemur fram í árs-
reikningi félagsins fyrir árið 2015
sem Morgunblaðið hefur undir
höndum. Samkvæmt ársreikning-
um er félagið skilgreint sem góð-
gerðarfélag á Írlandi.
Stjarnfræðileg umsvif
Fjármálaumsvif Burlington eru
stjarnfræðileg í samhengi við fyrr-
greindar tölur, en skuldir félagsins
nema rúmum 8 milljörðum dala,
eða um 935 milljörðum króna, og
eignirnar eru nánast þær sömu.
Mismunurinn er fyrrgreint eigið fé.
Hagnaður félagsins eftir skatta
nam 375 dölum árið 2015 og var
einnig 375 dalir árið á undan, eða
um 44 þúsund krónur.
Jón Þór Sturluson, aðstoðarfor-
stjóri Fjármálaeftirlitsins, sagði í
Morgunblaðinu í gær að ítarleg
könnun hefði verið gerð á eignar-
haldi Burlington. Flókið sé að
ákvarða hver hinn raunverulegi
eigandi félagsins sé. „Við teljum
hins vegar að öllum kröfum hafi
verið fullnægt í þessu tilviki,“ sagði
Jón Þór, en í lögum um fjármála-
fyrirtæki kemur fram að fjárhags-
staða umsækjanda sé eitt þeirra.