Morgunblaðið - 01.02.2017, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2017
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
B-Gata 11, Rangárþing eystra, fnr. 219-4744, þingl. eig. Ágúst Sigurðs-
son, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., mánudaginn 6. febrúar nk. kl.
09:30.
Galtalækur 164973, Rangárþing ytra, ehl. gþ., fnr. 164973, þingl. eig.
Páll Sigurjónsson, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf.,
mánudaginn 6. febrúar nk. kl. 10:35.
Galtalækur 2 lóð 214067, Rangárþing ytra, ehl. gþ., fnr. 219-6402,
þingl. eig. Páll Sigurjónsson, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands
hf., mánudaginn 6. febrúar nk. kl. 10:45.
Galtalækur lóð 215832, Rangárþing ytra, ehl. gþ., fnr. 219-6404, þingl.
eig. Páll Sigurjónsson, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf.,
mánudaginn 6. febrúar nk. kl. 10:55.
Miðkot 1 165404, Rangárþing ytra, þingl. eig. Erla M Hjartar Grétars-
dóttir og Pascale Elísabet Skúladóttir, gerðarbeiðandi Rangárþing
ytra, mánudaginn 6. febrúar nk. kl. 11:55.
Þrándartún 1, Skeiða- og Gnúpvhr., fnr. 230-7106, þingl. eig.
Þrándartún ehf., gerðarbeiðendur Skeiða- og Gnúpverjahreppur og
Landsbankinn hf., mánudaginn 6. febrúar nk. kl. 13:50.
Þrándartún 3, Skeiða- og Gnúpvhr., fnr. 230-7103, þingl. eig.
Þrándartún ehf., gerðarbeiðendur Skeiða- og Gnúpverjahreppur og
Landsbankinn hf., mánudaginn 6. febrúar nk. kl. 13:55.
Þrándartún 9, Skeiða- og Gnúpvhr., fnr. 234-5838, þingl. eig.
Þrándartún ehf., gerðarbeiðandi Skeiða- og Gnúpverjahreppur,
mánudaginn 6. febrúar nk. kl. 14:00.
Þrándartún 11, Skeiða- og Gnúpvhr., fnr. 234-5839, þingl. eig.
Þrándartún ehf., gerðarbeiðandi Skeiða- og Gnúpverjahreppur,
mánudaginn 6. febrúar nk. kl. 14:05.
Þrándartún 17, Skeiða- og Gnúpvhr., fnr. 234-5842, þingl. eig.
Þrándartún ehf., gerðarbeiðandi Skeiða- og Gnúpverjahreppur,
mánudaginn 6. febrúar nk. kl. 14:10.
Þrándartún 19, Skeiða- og Gnúpvhr., fnr. 234-5843, þingl. eig.
Þrándartún ehf., gerðarbeiðandi Skeiða- og Gnúpverjahreppur,
mánudaginn 6. febrúar nk. kl. 14:15.
Þrándartún 21, Skeiða- og Gnúpvhr., fnr. 234-5844, þingl. eig.
Þrándartún ehf., gerðarbeiðandi Skeiða- og Gnúpverjahreppur,
mánudaginn 6. febrúar nk. kl. 14:20.
Þrándartún 23, Skeiða- og Gnúpvhr., fnr. 234-5845, þingl. eig.
Þrándartún ehf., gerðarbeiðandi Skeiða- og Gnúpverjahreppur,
mánudaginn 6. febrúar nk. kl. 14:25.
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
31. janúar 2017
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Stóraborg 2, 3609, sumarbústaður, Borgarbyggð, fnr. 229-6425, þingl.
eig. Cabin & art ehf., gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., miðvikudaginn
8. febrúar nk. kl. 11:00.
Lækjarás 5,50% ehl. Skorradalshreppur, fnr. 233-3716, þingl. eig. Jón
Guðni Sandholt, gerðarbeiðandi ÞB.Jón Guðni Sandholt,
miðvikudaginn 8. febrúar nk. kl. 12:20.
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
31. janúar 2017
Félagsstarf eldri borgara
y , g g , p ,
kvennabrids kl. 13, línudans kl. 16.30, línudans byrjendur kl. 17.30,
hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa á staðnum, allir velkomnir!
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, kl. 9 zumbadans og líkamsrækt með Carynu, morg-
unleikfimi kl. 9.45, samverustund kl. 10.30, lestur og spjall, matur kl.
11.30, handavinnuhópur kl. 13, kaffi kl. 14.30, félagsmiðstöðin er
öllum opin óháð búsetu og aldri og allir velkomnir.
Hæðargarður 31 Qigong kl. 6.30. Við hringborðið kl. 8.50, upplestr-
arhópur Soffíu kl. 9.30, ganga kl. 10, línudans með Ingu kl. 10.15,
framhaldssagan kl. 11, hláturjóga kl. 13.30, tálgun í ferskan við með
Valdóri kl. 14.30, síðdegiskaffi kl. 14.30. Árgangur ´51 kl. 16.30. Allir
velkomnir í Hæðargarð óháð aldri og búsetu. Nánar í síma 411-2790.
Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, myndlistarnámskeið kl. 9
hjá Margréti Zóphoníasd., thai chi kl. 9, leikfimi kl. 10, Bónusbíll kl.
12.40, brids kl. 13, leiðbeiningar á tölvu falla niður í dag, bókabíllinn
kl. 14.30, síðdegiskaffi kl. 14.30. U3A kl. 17.15. Allir velkomnir í Hæðar-
garð óháð aldri og búsetu. Nánar í síma 411-2790.
Korpúlfar Glerlistarnámskeið kl. 9 í Borgum, gönguhópar kl. 10 frá
Borgum og í Egilshöll, stjórnar- og nefndarfundur Korpúlfa kl. 10 í
Borgum. Gaman saman í Borgum kl. 13 og prjónanámskeið með
Fjólu kl. 13 í Borgum, þátttökuskráning og qigong kl. 16.30 í dag í
Borgum.
Neskirkja Krossgötur kl. 13.30, Stefán Pálsson, sagnfræðingur ræðir
framlag Danans Rasmusar Christian Rask til íslenskrar málfræði í er-
indi sem hann kallar Eini góði Daninn: málvísindarokkstjarnan Ras-
mus Rask og Ísland. Kaffiveitingar.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Kaffi, spjall og blöðin kl. 10, framhaldssaga
kl. 10.10, hádegismatur kl. 11.30, handavinna kl. 13 og kaffi og með-
læti kl. 14.30. Húsið er opið kl. 10-16 á miðvikudögum.
Seltjarnarnes Leir- og listasmiðja á Skólabraut kl. 9, botsía í Gróttu-
sal kl. 10, kaffispjall í króknum kl. 10.30, kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12,
handavinna Skólabraut kl. 13, timburmenn í Valhúsaskóla kl. 13,
vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Ath. félagsvistin sem vera átti á
morgun fimmtudag fellur niður vegna jarðarfarar.
Stangarhylur 4, Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4, kl.
10. Söngfélag FEB kóræfing kl. 16.30, stjórnandi Gylfi Gunnarsson.
Neytendavernd og kynning á starfsemi Neytendasamtakanna,
fræðslufundur FEB fimmtudaginn 2. febrúar kl. 15.30 í Ásgarði,
Stangarhyl 4.
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, morgunleikfimi kl. 9.45,
útskurður 2 kl. 13, postulínsmálun 2 kl. 13, söngstund við píanóið kl.
13.45, bókaspjalla Hrafns Jökulssonar kl. 15.
Árbæjarkirkja Kyrrðarstund kl. 12, (fyrirbænir), súpa og meðlæti á
eftir gegn vægu gjaldi. Opið hús fyrir eldri borgara frá kl. 12.30-15.30.
Margvísleg starfsemi.
Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 9-16, handavinna með leiðbeinanda
kl. 8.30-16.30, stóladans með Þóreyju kl. 9.30-10.10, heilsugæslan kl.
13-14. Opið hús, m.a. spiluð vist og brids kl. 13-16, Ljósbrotið, prjóna-
klúbbur með Guðnýju Ingigerði kl. 13-16, bingó föstud. 3. febrúar.
Boðinn Vatnsleikfimi kl. 9, handavinna kl. 9-15, harmonikkuspil og
söngur kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16, morgunkaffi kl. 10-
10.30, leikfimi með leikfimikennara kl. 10.30-11.20, spiladagur, frjáls
spilamennska frá kl. 12.45-16, prjónaklúbbur kl. 13-16, glerlist kl. 13-
16. Verið velkomin.
Dalbraut 27 Handavinnustofa kl. 8, botsía kl. 14.
Garðabæ Opið og heitt á könnunni í Jónshúsi frá kl. 9.30-16, vatns-
leikfimi kl. 7.40, 12.10, kvennaleikfimi í Sjálandsskóla kl. 9, stólaleik-
fimi í Sjálandsskóla kl. 10 og kvennaleikfimi í Ásgarði kl. 11, búta-
saumur í Jónshúsi kl. 13, brids í Jónshúsi kl. 13, leir og gler í Kirkju-
hvoli kl. 13, zumba fyrir félagsmenn FEBG í Kirkjuhvoli kl. 16.30.
Gerðuberg 3-5 Kl. 8.30-16 opin handavinnustofa, kl. 13-16 félagsvist,
kl. 9-16 útskurður með leiðbeinanda.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.30 botsía, kl. 9.30 glerlist, kl. 13
félagsvist, kl. 13 gler- og postulínsmálun.
Grensáskirkja Samverustund eldri borgara kl. 14. Allir hjartanlega
velkomnir.
Guðríðarkirkja Félagsstarf fullorðina í dag kl. 12, fyrirbænastund.
Hægt er að hafa samband við Guðríðarkirkju með fyrirbænaefni í
síma 577-7770 eða á netfangið kirkjuvordur@grafarholt.is. Eftir stund-
ina höldum við okkar árlega þorrablót kr. 2000 á mann. Ástvaldur
Traustason þenur harmonikkuna og við brestum í söng eins og okkur
einum er lagið. Kaffisopi í lokin.
Gullsmári Myndlist kl. 9, ganga kl. 10, póstulínsmálun kl. 12.30,
Félagslíf
Samkoma kl. 20 í Kristni-
boðssalnum. Keníufréttir.
Ræðumaður Guðlaugur
Gunnarsson. Allir velkomnir.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
HELGAFELL 6017020119 IV/V
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Þjónusta
ALHLIÐA
FASTEIGNAVIÐHALD
Uppl. í s: 788 8870 eða
murumogsmidum@murumogsmidum.is
Múrum og smíðum ehf
Ýmislegt
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
VIÐHALD
FASTEIGNA
Lítil sem stór verk
Tímavinna eða tilboð
℡
544 4444
777 3600
jaidnadarmenn.is
johann@2b.is
IÐNAÐARMENN
JÁ
Allir iðnaðarmenn
á einum stað
píparar, múrarar, smiðir,
málarar og rafvirkjar.
Viðhalds-
menn
Tilboð/tímavinna
s. 897 3006
vidhaldsmenn.is
vidhaldsmenn@gmail.com
Hreinsa
þakrennur
og tek að mér ýmis
verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
✝ Sveinbjörg Vil-hjálmsdóttir
fæddist á Eyr-
arbakka 26. ágúst
1922. Hún lést á
Hjúkrunarheim-
ilinu Skógarbæ 27.
janúar 2017.
Foreldrar henn-
ar voru Elín Sveins-
dóttir, f. 24.5. 1886,
d. 13.12. 1984, og
Vilhjálmur Andr-
ésson, f. 27.5. 1887, d. 19.4. 1972.
Systkini Sveinbjargar eru: Unn-
ur, f. 14. júlí 1918, d. 11.1. 1999,
Reynir Sveinn, f. 25.6. 1921, d. í
júlí 1922, Stefán Gunnar, f. 25.6.
1931, d. 12.9. 2015, og eftirlifandi
er Andrés Már, f. 17.9. 1929.
Hinn 1. júlí 1944 gekk Svein-
björg að eiga Georg Ámundason
rafeindavirkja, f. 11. febrúar
1917, Mjóanesi, Þingvallahr., d.
20. desember 2007. Trúlofuð síð-
an 1938.
Börn þeirra eru:
1) Vilhjálmur Örn,
f. 24. mars 1946,
maki Ágústa Sig-
ríður Jóhannesdótt-
ir og eiga þau tvo
syni, Andrés og
Georg, og fjögur
barnabörn. 2)
Kristján, f. 4. júní
1949, maki Jóhanna
Guðrún Gunnars-
dóttir, eiga þau
saman fjögur börn, þau eru
Gunnar Heimir, Marín, Íris
Björg og Kristján Unnar og ell-
efu barnabörn. 3) Birgir, f. 11.
september 1953, maki María
Hreinsdóttir og eiga þau saman
þrjú börn, Ástu Hólm, Sigurjón
Vigfús, Birgi Má og sjö barna-
börn.
Sveinbjörg verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju í dag, 1.
febrúar 2017, og hefst athöfnin
klukkan 15.
Það er ekkert sjálfgefið við það
að ná 95 ára aldri, eiga farsælt og
gæfuríkt líf, kærleiksríkt og virð-
ingarvert hjónaband að baki, af-
komendur sem elska þig og virða
og að öðru leyti nokkuð áfallalausa
ævi. Það er heldur ekkert sjálf-
gefið að eiga ömmu eins og við
frændsystkinin áttum.
Ástin, kærleikurinn og umvefj-
andi faðmur ömmu hefur mótað líf
okkar og verið mikilvægur hlekk-
ur í því að gera okkur að þeim
manneskjum sem við erum. Með
því að vera alltaf til staðar veitti
hún okkur hugrekki og styrk til að
takast á við lífið og verða að full-
orðnum ábyrgum manneskjum.
Hjá ömmu og afa átti ég alltaf at-
hvarf og gat alltaf til þeirra leitað.
Það var ekki fyrr en á fullorðins-
aldri sem ég gerði mér grein fyrir
mikilvægi þess að hafa fengið
þessa gjöf í lífinu. Við erum afurð
umhverfisins sem við fæðumst og
ölumst upp í. Að eiga kærleiksríkt
og skilyrðislaust athvarf frá fæð-
ingu til fullorðinsára er ómetan-
legt og mun dýrmætari þáttur í
uppeldi en við gerum okkur grein
fyrir. Alltof margir alast upp án
þessa.
Mannkynssagan er uppfull af
afrekum karla og lýsingum á at-
burðum og sigrum meðan sögur af
konum, mæðrum og ömmum og
sigrum þeirra er eins og skugginn
sem hefur fallið í gleymsku.
Með árunum verður þessi stað-
reynd sífellt kjánalegri enda ljóst
að ekki einungis er móðirin nauð-
synleg fæðingu barns heldur hafa
konur gegnt lífsnauðsynlegu hlut-
verki við að breyta barni í hvort
tveggja fullvaxta sem og fullorð-
inn einstakling. Sem er forsenda
þess að vinna sigra og bæta heim-
inn.
Við fjölskyldan áttum ömmu
svolítið fyrir okkur sjálf. Amma
lifði frekar einföldu lífi og hennar
nánustu vinir fyrir utan afa voru
systkini hennar og mágkona. Syn-
irnir og tengdadæturnar skiptu
hana miklu máli auk okkar afkom-
endanna sem hún hafði mikla un-
un af að hitta og fylgjast með. Ró-
lyndi, sjálfsagi og yfirvegun
hennar hefur stundum verið mér
undrunarefni. Hún og afi Georg
ráku fallegt og snyrtilegt heimili
þar sem verkaskiptingin var frek-
ar skýr. Eitt skemmtilegt dæmi
um verkaskiptingu þeirra er að
þegar afi var á lífi og hafði heilsu
til fór hann á hverjum degi eld-
snemma í laugarnar, kom svo
heim og hellti upp á te, smurði
brauð og skammtaði þeim lýsis-
töflur og þegar allt var tilbúið
vakti hann ömmu. Daginn eftir
andlát hans fyrir rúmum tíu árum
vaknaði amma ein, hellti upp á te,
smurði brauð og skammtaði sér
lýsi. Þann sama dag eldaði hún
kvöldmat fyrir einn í stað tveggja.
Eins og ekkert hefði í skorist.
Þetta er einungis eitt dæmi af
mörgum sem sýndu hvernig
amma var gerð. Amma sagði ekki
margt og síst af öllu um eigið
ágæti en með gjörðum sínum
kenndi hún okkur hvað það þýðir
að vera fullorðinn og sýndi okkur
jafnframt að lífið heldur áfram.
Svo lengi sem ég man þá þótti
mér fátt yndislegra en að leita
skjóls heima hjá ömmu og afa. Ég
var orðin fullorðin þegar ég áttaði
mig á að amma hafði einstaka
nærveru sem hafði áhrif á hvern
þann sem komst í námunda við
hana.
Það var komið að kveðjustund
hjá ömmu. Hún var södd lífdaga
og trúði því staðfastlega að afi
kæmi að sækja hana. Amma
Sveinbjörg lifði löngu og farsælu
lífi og fyrir það megum við vera
þakklát. Lífið gefur og lífið tekur.
Lífið verður þó ekki samt án henn-
ar en hún mun lifa áfram í hjart-
anu og minningunni og það er ósk-
andi að hún hafi skilið eftir
eitthvað af kærleikanum og um-
burðarlyndinu í okkur afkomend-
unum.
Íris Björg Kristjánsdóttir.
Löngum ferli lokið er,
lífsins bók er skráð,
upp þú skerð af akri hér,
eins og til var sáð.
Til ljóssins heima lífið snýr,
langt með dagsverk þitt,
Drottinn sem þér bústað býr,
barnið þekkir sitt.
Í margra huga er minning skær,
og mynd í hjarta geymd.
Stöðugt okkur stendur nær,
stund sem ekki er gleymd.
Nú komið er að kveðjustund,
klökkvi hjartað sker,
nú gengin ertu Guðs á fund
sem góður líknar þér.
(Kristján Runólfsson)
Marín Kristjánsdóttir.
Sveinbjörg
Vilhjálmsdóttir
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar