Morgunblaðið - 18.02.2017, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 18.02.2017, Blaðsíða 12
Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Einn helsti ástmögurheimsbókmenntanna,herra Darcy, var hvorkidökkur yfirlitum né fjall- myndarlegur eins og Laurence Oli- vier í fyrstu kvikmyndinni sem gerð var árið 1940 eftir hinni dramatísku skáldsögu Hroki og hleypidómar eftir Jane Austen. Eða Colin Firth meira en hálfri öld síðar í sjónvarps- þáttum frá BBC. Síðan hafa sumir (lesist: konur) varla getað séð herra Darcy fyrir sér öðruvísi en sem Firth. Sérstaklega er mörgum minn- isstætt þegar hann í einu atriðinu stingur sér í Pemberlay-vatn og stígur síðan upp úr í rennblautri skyrtunni. Reyndar er atburðarins í engu getið í bókinni. „Ég held að hver ein- asta stúlka leiti að sínum Darcy,“ var haft eftir bresku leikkonunni Keira Knightley, sem lék Eliza- beth Bennet á móti Matt- hew Macfadyen sem herra Darcy í bíómynd frá árinu 2005, einni af mörgum sem gerðar hafa verið eftir þessari ástarsögu allra tíma að margra mati. Raunsæ mynd? Ef marka má sagnfræðinga sam- tímans í Bretlandi sem nýlega voru fengnir til að draga upp raun- sæja mynd af herra Darcy eins og hann hefði litið út – hefði hann verið til í alvör- unni – var Fitzwilli- am Darcy hennar Jane Austen ekkert líkur fyrrnefndum glæsimennum hvíta tjaldsins. Þvert á móti mun hann hafa verið mjósleginn og satt að segja hálf mélkisulegur útlits, a.m.k. á mæli- kvarða ríkjandi fegurðarstaðla, núna rúmlega tveimur öldum eft- ir að hann steig fram á sögusviðið. Þar sem Jane Austen gefur afar óljósa lýsingu á ytra atgervi herra Darcy og raunar flestra þeirra sem við sögu koma, höfðu sagnfræðing- arnir ekki úr miklu að moða. Hávax- inn, myndarlegur og göfugmann- legur, eru nánast einu vísbendingar skáldkonunnar. Engu að síður drógu þeir sínar ályktanir með hliðsjón haldbærum lýsingum á glæsilegum aðalsmönnum, tísku og tíðarand- anum í upphafi nítjándu aldar. Að því búnu fengu þeir listamanninn Nick Hardcastle til að teikna mynd af þessum helsta draumaprinsi bók- menntanna. Þær sem enn leita að sínum Darcy mættu hafa í huga þá gullnu reglu að eigi skal manninn af útlitinu dæma og að hleypidómar kunna ekki góðri lukku að stýra. Sagnfræðing- arnir gera því skóna að Darcy hafi þó verið hávaxinn miðað við karla í Hulunni svipt af herra Darcy Sagnfræðingar í Bretlandi hafa dregið upp allt aðra mynd af herra Darcy í bók- inni Hroki og hleypidómar eftir Jane Austen en þær sem birst hafa í sjónvarpsþátt- um og kvikmyndum áratugum saman. Fjallmyndarlegur Leikarinn Colin Firth sem Fitzwilliam Darcy, nýstiginn upp úr Pemberlay-vatni, í sjónvarpsþáttum BBC frá árinu 1995. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2017 Heimsdagur barna verður haldinn hátíðlegur með fjölmörgum smiðjum sem tengjast Japan og japanskri menningu í fjórum menningarhúsum Borgarbókasafnsins kl. 13-16 í dag, laugardaginn 18. febrúar. Smiðjurnar eru af ýmsum toga. Í Gerðubergi verður búningasmiðja og andlitsmálun. Gestir fá að máta lit- ríka kímonóa og ef þeir vilja geta þeir látið taka af sér mynd í þessum litríka þjóðbúningi Japana. Kennd verða grunnatriði í Ju-Jitsu, sem er meira en 2.000 ára gömul sjálfs- varnarlist. Einnig verður flugdreka- smiðja og smiðja sem hverfist um japönsk tákn og origami, aukin- heldur sem Noh-men grímurnar verða kynntar til sögunnar. Gestir geta búið til sínar eigin grímur til að vernda heimili sín fyrir illum öndum. Í Sólheimum verður boðið upp á órigamísmiðju og ljúffengt, grænt japanskt te. Þar verður einnig Póke- mon-ratleikur, sem snýst um að finna fimm pókemona á safninu og búa til eitt orð úr stöfnum sem á þeim eru. Heppinn þátttakandi fær verðlaun. Teiknimyndasmiðja byggð á jap- önsku manga verður í Kringlunni og geta gestir og gangandi kynnt sér heim japanskra myndasagna, sest niður og teiknað myndasögur. Þar verður líka ljóskerasmiðja í jap- önskum stíl og fá gestir tækifæri til að búa til sitt eigið pappírsljósker og taka með heim. Í smiðjunni Faldir furðuhlutir í Spönginni notast barnamenningar- hönnuðurinn Ninna Þórarinsdóttir við muni úr verki sem heitir Safn ímyndunar og furðuhluta, en það er samansafn ótrúlegra hluta sem fundist hafa víða í heiminum, m.a. í Japan. Í Spönginni verður einnig tækni- og tilraunaverkstæði í tón- listarforritin kl. 13-15. Borgarbókasafnið - Menningarhús Kímonó Litríkir kímonóar með fallegu mynstri eru þjóðbúningur Japana. Heimsdagur barna með jap- önsku sniði í fjórum söfnum Helgina 18.-19. febrúar verður söngs- miðja kvennaradda kirkjukórs Sel- fosskirkju, barna- og unglingakórs kirkjunnar, ásamt konum úr kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsókna, undir heitinu „Syngjandi konur“. Söngsmiðjan er unnin í samvinnu við Kristjönu Stefánsdóttur, sem útsett hefur lög fyrir einsöngvara og kvennaraddir. Efnisskráin er fjölbreytt blanda af gömlum og nýjum dægurperlum auk frumsamins efnis. Söngsmiðjunni lýkur klukkan 17 sunnudaginn 19. febrúar með tónleikum í Selfoss- kirkju. Auk Kristjönu koma fram með kór- unum Daði Birgisson píanóleikari og félagarnir Magnús Kjartan, Sigurgeir Skapti og Marinó Geir úr Stuðlaband- inu. Tónleikarnir verða svo endur- teknir mánudagskvöldið 20. febrúar klukkan 19.30 í Hveragerðiskirkju. Stjórnandi sameinaðs kvennakórs er Edit Anna Molnár. Aðgangseyrir á tónleikana er 2.000 kr. Gamlar og nýjar dægurperlur og frumsamið efni Syngjandi konur í kirkju Söngkona Kristjana Stefánsdóttir. 1940 Laurence Olivier túlkaði herra Darcy í fyrstu kvik- myndinni sem gerð var eftir sögunni árið 1940. „Ég held að hver einasta stúlka leiti að sínum Darcy.“ Keira Knightley Í alvörunni? Herra Darcy eins og lista- maðurinn Nick Hardcastle teiknaði hann sam- kvæmt for- skrift sagn- fræðinganna. Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Viltu meðhöndla liðverkinn án þess að taka töflur? 150g50% meira m ag n! Prófaðu að meðhöndla liðverkina með Voltaren geli. Lyfjaauglýsing
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.