Morgunblaðið - 18.02.2017, Side 26

Morgunblaðið - 18.02.2017, Side 26
AFP Forsetinn Trump á fundinum. Robert Harward, fyrrverandi að- míráll í Bandaríkjaflota, hafnaði beiðni Donalds Trump Bandaríkja- forseta um að hann yrði næsti þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkj- anna. Fregnir af ákvörðun Harw- ards bárust stuttu eftir að forset- inn hafði varið Michael Flynn, sem áður gegndi starfinu, og sagt að hann hefði ekki gert neitt af sér með því að ræða við sendiherra Rússa. Harward sagði CNN-frétta- stofunni að hann hefði neitað starfinu vegna fjölskyldu sinnar Neitaði að taka við stöðunni  Robert Harward aðmíráll hafnaði beiðni Donalds Trump um að verða þjóðar- öryggisráðgjafi  Fyrsti blaðamannafundur Bandaríkjaforseta vekur athygli og fjárhagslegra skuldbindinga. Aðrir fjölmiðlar vestanhafs gerðu því þó skóna að Harward hefði viljað fá loforð um að þjóðarör- yggisráðið myndi leiða stefnu- mótun í varnarmálum en ekki persónulegir og pólitískir ráð- gjafar Trumps. Mun þar vera sérstaklega átt við Steve Bannon, ritstjóra fréttaveitunnar Breit- bart, sem nú á sæti í ráðinu. Hafnaði tengingu við Rússa Trump hélt sinn fyrsta blaða- mannafund með fjölmiðlum í fyrri- nótt. Bar Rússland þar oft á góma. Hafnaði forsetinn því að menn úr kosningateymi sínu hefðu haft ítrekað samráð við rússneska tengiliði í aðdraganda kosning- anna. Sagði hann frétt New York Times, þar sem fullyrðingarnar höfðu birst, vera „falskar fréttir“. Sagði Trump allar þessar ásakanir um tengingu sína við Rússa vera moldviðri. Tók forsetinn þó fram að hann væri áfram um að eiga betri sam- skipti við Rússland en fyrirrenn- arar sínir í embætti. sgs@mbl.is 26 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2017 Þessir vígamenn í Hashed al- Shaabi-samtökunum áttu stund milli stríða í sandpokavígi sínu nálægt bænum Shar’iah í ná- grenni borgarinnar Mósúl í Írak, en þar eru íraskar öryggissveitir að undirbúa næstu stórsókn sína gegn vígasveitum Ríkis íslams í vesturhluta borgarinnar. Íbúar þess hluta borgarinnar sem þegar hefur verið frelsaður sögðu hins vegar við AFP- fréttastofuna að öryggissveit- irnar hefðu farið of fljótt frá borginni til þess að undirbúa næstu sókn, og að sjálfsvígsárásir væru aftur orðnar daglegt brauð þar. AFP Búa sig und- ir átök við Ríki íslams Ursula von der Leyen, varnar- málaráðherra Þýskalands, var- aði Bandaríkin við því í ræðu sinni á öryggis- ráðstefnunni í München að leita sátta við Rússa með því að fara á bak við sína hefðbundnu bandamenn. Það væri ekki hægt að taka hinum traustu tengslum sem gefnum. Sagði hún ljóst að orð og athafnir ráðamanna vestra myndu hafa áhrif á samvinnu ríkja í Evrópu. „Stöðugt Evrópusamband þjónar hagsmunum Bandaríkjanna, líkt og sterkt og sameinað Atlants- hafsbandalag“. Mike Pence, varaforseti Banda- ríkjanna, mun ávarpa ráðstefnuna í dag. Ursula von der Leyen ÞÝSKALAND „Ekki fara framhjá bandamönnum“ Pakistanski herinn tilkynnti í gær að hann hefði fellt meira en 100 „hryðjuverkamenn“ í hefndarskyni fyrir mannskæða hryðjuverkaárás, þar sem 88 manns létust í sprengjutilræði. Sprengingin markaði endinn á blóðugri viku í Pakistan, þar sem hryðjuverka- árásir felldu meira en eitt hundr- að manns og særðu marga til við- bótar. Nawaz Sharif, forsætisráðherra, lofaði því að hann myndi nota „allt vald rík- isins“ til þess að útrýma hryðju- verkamönnunum. 88 létust í hryðjuverkaárás PAKISTAN Til sölu eru fasteignir sem seldar verða í einu lagi. Eignirnar eru samtals að stærð 4.925,2 fm og skiptast þannig: Laugar-Hótel 1.075,5 fm hótelbygging með 20 fullbúnum hótelherbergjum, móttöku og fundarsal. Laugar-Skóli 2.019 fm skólabygging með 26 herbergjum, flest með handlaug. Baðherbergi, sturtuaðstaða og geymslur. Fullbúið eldhús, stór matsalur og salur. Laugar- íþróttamiðstöð og sundlaug 1365,5 fm íþróttahús með sviði og stúku, búningsaðstaða og sundlaug. Fjögur einbýlishús fylgja eignunum Laugaland, einbýlishús á einni hæð, 111,6 fm, byggt 1967 Laugasel, einbýlishús á einni hæð,156,8 fm, byggt 1969 Laugavellir, einbýlishús á einni hæð, 126,0 fm, byggt 1980 Laugafell, einbýlishús á tveimur hæðum, 97,7 fm, byggt 1953 Möguleiki er á því að bæta tugum herbergja við núverandi fjölda. Staðsetningin er einstök og bíður upp á fjöldamörg tækifæri. · Ásett verð er 530 milljónir 588 9090 . www.eignamidlun.is . Grensásvegi 11 . 108 Reykjavík Kjartan Hallgeirsson Löggiltur fasteignasali kjartan@eignamidlun.is 824 9093 Andri Guðlaugsson Löggiltur fasteignasali andri@eignamidlun.is 662 2705 Sverrir Kristinsson Löggiltur fasteignasali sverrir@eignamidlun.is 861 8514 NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA EINSTAKT TÆKIFÆRI Í FERÐAÞJÓNUSTU Laugar í Sælingsdal Ferðaþjónustuþorp til sölu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.