Morgunblaðið - 18.02.2017, Page 29

Morgunblaðið - 18.02.2017, Page 29
29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2017 Blíða Mannlífið í miðborg Reykjavíkur einkennist þessa dagana af hlýindum og ferðamönnum sem njóta þess að spóka sig í höfuðborginni og fara jafnvel á rúntinn með tveggja hæða rútu. Eggert Við lifum á tímum örra breytinga. Getan til að breytast – til að laga sig að breyti- legum þörfum kröfu- harðra viðskiptavina – ræður úrslitum um samkeppnishæfni fyrirtækja og sam- félaga. Hér er ekki vísað til íslensks veru- leika sérstaklega; þetta á við um heiminn allan. Verk- efnastjórnun er tæki til að koma breytingum í framkvæmd og Ís- lendingar geta tryggt og eflt stöðu sína með eflingu verkefnastjórn- unar á öllum stigum samfélagsins. Í þessari grein ræðum við almennt um sýn okkar á stöðu verkefna- stjórnunar á Íslandi og hvað þurfi að breytast á komandi árum. Grein- in er sjálfstætt framhald af grein okkar „Verkefnastjórnun alls staðar – líka á Alþingi“ sem birtist í Morg- unblaðinu 8. desember 2015. Um allan heim bregðast menn við þessum veruleika með því að efla faglega verkefnastjórnun. Í Bret- landi er gríðarleg eftirspurn eftir verkefnastjórum í einkageiranum, vegna margvíslegra breytingaverk- efna sem fyrirtæki eru að fara í gegnum. Helmingur stjórnenda í einkageiranum er að leita að verk- efnastjórum til tímabundinnar ráðn- ingar til að takast á við breytinga- verkefni á næstu 12 mánuðum. Þessi mikla eftirspurn er sögð drifin af þörf fyrir þá sérstöku hæfni og færni sem faglegir verkefnastjórar hafa og geta nýtt sér við undirbún- ing og framkvæmd erfiðra breyt- ingaverkefna. Hér er vísað til menntunar og reynslu á sviði verk- efnastjórnunar. Þessar upplýsingar frá Bretlandi koma ekki á óvart. Breska verkefnastjórnunarfélagið APM er langstærsta aðildarfélag IPMA, Alþjóðasamtaka Verkefna- stjórnunarfélaga. Í Bretlandi er mikil hefð fyrir faglegri stjórnun, þar skipa alþjóðlegir stjórnunar- staðlar á borð við ISO 9001 háan sess og starfsheitið verkefnisstjóri er nú lögverndað þar í landi. Við höfum séð sömu þróun á Ís- landi og eftirspurn eftir faglegum verkefnastjórum, með réttan bak- grunn – menntun og reynslu – hefur farið vaxandi undanfarin ár. Áhersl- an á verkefnastjórnun hefur um langa hríð verið áberandi í mörgum öflugum íslenskum fyrirtækjum sem starfa í kröfuhörðu alþjóðlegu samkeppnisumhverfi. En verkefna- stjórnun er ekki einungis stjórn- unaraðferð fyrirtækja sem skila virði til viðskiptavina í formi verk- efna. Hún er í raun mikilvægari sem tæki til að bæta árangur, draga úr sóun, bæta skilvirkni, auka nýtni, draga úr orkunotkun, innleiða nýja tækni, styrkja innviði og vinna markaði. Þessi upptalning snýst einmitt um kjarna málsins, um þá hugmyndafræði sem stjórnendur innleiða, um þá menningu sem þeir byggja upp innan fyrirtækja sinna. Þeir verða að byggja upp menningu sem styður við bætta samkeppnis- færni, og þar með getu fyrirtækja sinna til að standa sig betur en sam- keppnin þegar þau bjóða vörur sín- ar og þjónustu á markaði, hvort heldur sem hann er hér heima eða alþjóðlegur. Til að tryggja samkeppnisfærni íslensks atvinnulífs dugar ekki að eiga dæmi um nokkur verkefna- miðuð fyrirtæki, sem standa sig vel á alþjóðamarkaði. Sú menning sem vísað var til hér á undan þarf að vera ríkjandi menning í öllum fyrir- tækjum og stofnunum. Við kjósum að kalla þetta verkefnamenningu. Í slíkri menningu er til staðar getan til að sjá viðfangsefnin fyrir sér sem afmörkuð verkefni með skýr mark- mið og með upphaf og endi. Þessi verkefni eru undirbúin ef þau eru í samræmi við stefnu fyrirtækisins og í sátt við viðhorf helstu hagsmunaaðila. Síðast en ekki síst eru þau framkvæmd ef til staðar eru næg aðföng og þeim er skilað innan gefinna viðmiða um tíma, gæði og kostnað. Til að halda utan um allt þetta þarf að byggja upp viðeigandi stjórnkerfi. Í árdaga verkefnastjórnunar snérist hún um einstök verkefni, undirbúning þeirra og framkvæmd. Í dag snýst verkefnastjórnun miklu fremur um alhliða stjórnunaraðferð fyrirtækja og stofnana. Þróun skammt á veg komin Því miður óttumst við að þessi þróun sé of skammt á veg komin á Íslandi. Enn er sú hugmynd algeng að til að stjórna verkefni þurfi tæknimenntun – og víða er litið á verkefnastjórnun sem einangraða aðferð til að sinna einstökum tækni- legum viðfangsefnum, til dæmis að byggja hús eða brýr. Hvorug þess- ara hugmynda á sér stoð. Verkefni samtímans eru af öllu tagi og í öll- um geirum atvinnulífsins, eins og rakið var í upptalningunni hér að of- an. Tæknimenn geta verið góðir verkefnisstjórar, en því miður geta þeir líka verið slakir verkefnis- stjórar. Geta manna til að stjórna verkefnum ræðst af hæfni þeirra í mannlegum samskiptum, leiðtoga- hæfileikum, skipulagshæfileikum og fjölda annarra þátta sem flesta má efla með sértækri þjálfun og æf- ingu, þó sumir séu meðfæddir. Önn- ur birtingarmynd þess að verk- efnastjórnun er skammt á veg komin sem faggrein á Íslandi er sú að fjöldi fólks sem ber starfsheitið verkefnisstjóri í stofnunum og fyrir- tækjum á Íslandi er ekki að fást við verkefni í sínum daglegu störfum og hefur enga þjálfun, menntun eða reynslu í stjórnun verkefna. Verkefnastjórnunarfélag Íslands var stofnað 1984 af miklum stórhug frumkvöðla fagsins hér á landi. Þró- un verkefnastjórnunar á Íslandi er endurómur af þróun fagsins á heimsvísu, en með töluverðri tíma- seinkun. Til dæmis var CPM- aðferðinni fyrst beitt í Bandaríkj- unum snemma á 6. áratug 20. aldar en fyrsta dæmið um notkun hennar á Íslandi var við undirbúning vatns- aflsvirkjunar undir lok 7. áratugar- ins. Fleiri dæmi má nefna, sérhann- aðar námsbrautir í verkefnastjórnun á háskólastigi voru í boði í Bretlandi strax á 9. áratug 20. aldar en á Íslandi var boðið upp á námsbrautina Verk- efnastjórn og leiðtogaþjálfun 2003 og MPM námið 2005 og fleiri náms- brautir í verkefnastjórnun eru nú í boði á Íslandi. Fyrstu alþjóðlegu vottanir einstaklinga í verkefna- stjórnun voru í boði í Bandaríkj- unum um miðjan 9. áratug 20 aldar en frá árinu 1997 hefur Verkefna- stjórnunarfélag Íslands staðið fyrir alþjóðlegri vottun verkefnisstjóra á Íslandi, í umboði IPMA – Alþjóða- samtaka verkefnastjórnunarfélaga. Átaks er þörf víða Grettistaki hefur vissulega verið lyft frá því Verkefnastjórnunar- félagið var stofnað, en eins og upp- talningin ber með sér hefur þróun fagsins ætíð verið allmörgum árum á eftir þróuninni í ýmsum viðmið- unarlöndum og þessu þarf að breyta. Við teljum að til að tryggja samkeppnishæfni íslensks atvinnu- lífs sé þörf sé á stórátaki til að efla vitund um verkefnastjórnun. Þetta átak þarf að gera á öllum sviðum at- vinnulífsins. Í skólakerfinu þarf að byrja snemma, strax í grunnskóla, til að sá fræjum og byrja að móta menninguna. Til að koma slíku átaki til framkvæmda þurfa menn að snúa bökum saman. Allir áhuga- menn um verkefnastjórnun eru kall- aðir til, en einnig stofnanir mennta- kerfisins, samtök atvinnulífsins og öflug verkefnamiðuð fyrirtæki sem vilja láta gott af sér leiða í þágu samfélagsins. Verkefnastjórn- unarfélag Íslands þarf að gegna leiðandi hlutverki í þessu átaki. Fé- lagið þarf að halda áfram sínu starfi og gefa hvergi eftir í að halda utan um grunnhugtök verkefnastjórn- unar á íslensku og gera þau að- gengileg öllum almenningi. En bet- ur má ef duga skal og við skorum á félagið að hefja nú þegar umræðu um stöðu og framtíð verkefna- stjórnunar í íslensku samfélagi og leggja grunn að þeirri vitundar- vakningu sem við höfum rakið hér á undan. Eftir Helga Þór Ingason og Sigurð R. Ragnarsson » Við skorum á félagið að hefja nú þegar umræðu um stöðu og framtíð verkefnastjórn- unar í íslensku sam- félagi og leggja grunn að vitundarvakningu. Helgi Þór Ingason Helgi Þór er véla- og iðnaðarverk- fræðingur, prófessor við Háskólann í Reykjavík, forstöðumaður MPM náms (B vottun). Sigurður er MSc byggingaverkfræðingur, forstjóri ÍAV og eini Íslendingurinn með hæsta stig (A vottun) alþjóðlegrar vottunar IPMA í verkefnastjórnun. Hvernig stjórnun – til að tryggja samkeppnisfærni íslensks atvinnulífs? Sigurður Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.