Morgunblaðið - 18.02.2017, Qupperneq 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2017
Fyrir síðustu umferð NóaSíríus mótsins, sem hófst íStúkunni á Kópavogsvellií ársbyrjun og hefur silast
áfram með einni umferð á viku, voru
jafnir í efsta sæti þeir Daði Ómars-
son og Þröstur Þórhallsson. Næstu
menn voru vinningi á eftir og þess
vegna kom ekki sérlega á óvart að
þessir tveir skyldu slíðra sverðin eft-
ir stutta viðureign og deila efsta
sætinu. Í A-riðli voru keppendur 42
talsins og efstu menn urðu:
1.-2. Daði Ómarsson og Þröstur
Þórhallsson 5 v. (af 6) 3.-4. Guð-
mundur Kjartansson og Jón Viktor
Gunnarsson 4½ v. 5.-9. Benedikt
Jónasson, Jóhann Hjartarson,
Magnús Örn Úlfarsson, Björgvin
Jónsson og Oliver Aron Jóhannes-
son 4 v.
Frammistaða Daða Ómarsson
stendur upp úr og leiðir saman-
burður á frammistöðu hans og
Þrastar í ljós að andstæðingar Daða
voru mun stigahærri og árangur
hans, sem reiknast uppá 2.798 Elo-
stig, er frábær.
Jón Viktor Gunnarsson sat yfir í
tveim fyrstu umferðunum en fékk
3½ vinning úr þeim skákum sem
hann tefldi. Friðrik Ólafsson tefldi
fimm skákir og gerði jafntefli í þeim
öllum. Jón L. Árnason virkaði örlítið
ryðgaður og sigurstranglegasti
keppandinn, Jóhann Hjartarson,
tapaði fyrir einum sem ekki gefst
upp fyrr en í fulla hnefana; Benedikt
Jónasson hækkaði um meira en 40
Elo-stig og einungis Daði Ómarsson
og Björn Hólm Birkisson slógu hon-
um við í þeim efnum.
Í B-riðli urðu efstir tveir úr Rima-
skóla, Hörður Aron Hauksson og
Jón Trausti Harðarson, en í 3. sæti
varð ungur og efnilegur skákmaður,
Stephan Briem.
Eins og áður hefur komið fram er
það Jón Þorvaldsson markaðs-
ráðgjafi sem hefur staðið fyrir þess-
um mótum undanfarin ár í samvinnu
við styrktaraðila og tekist að búa til
skemmtilega stemningu á skákstað.
Lundar Reykjavíkur í skemmti-
legri netkeppni
Af ýmsum ástæðum hafa skipu-
lagðar keppnir á netinu átt erfitt
uppdráttar þar sem möguleikar á
svindli hafa eyðilagt góðar fyrirætl-
anir um mótahald. En eftirlit með
svindli á stóru vefsvæðunum hefur
aukist og í seinni tíð hafa menn mis-
kunnarlaust verið settir út af sakra-
mentinu vegna grunsemda um tölvu-
svindl. Undanfarin miðviku-
dagskvöld hefur sveit sem nefnir sig
Lundar Reykjavíkur tekið þátt í
sterku alþjóðlegu netmóti á Chess-
.com og hafa unnið eina viðureign,
gert eitt jafntefli en tapað þrisvar og
eiga þegar tvær umferðir eru eftir
enn veika von um að komast áfram í
sérstaka úrslitakeppni. Þarna hafa
teflt mest bræðurnir Björn og Bragi
Þorfinnssynir og Jón Viktor Gunn-
arsson en einnig Ingvar Þ.
Jóhannesson, Einar Hjalti Jensson,
Jóhann Hjartarson og Hjörvar
Steinn Grétarsson. Tímamörkin eru
15 2. Björn Þorfinnsson átti góðan
dag þegar Lundarnir mættu sveit
frá Stokkhólmi:
Björn Þorfinnsson – Evgení Ag-
rest
Vængtafl
1. c4 c6 2. g3 d5 3. Bg2 Rf6 4. Rf3
Bg4 5. Re5 Bh5 6. cxd5 Rxd5 7. Rc3
e6 8. O-O Bd6 9. Rc4 Bc7 10. He1
O-O 11. Db3 b5 12. Re3 Rxe3 13.
dxe3 a6 14. a4 Ba5 15. Hd1 Db6 16.
axb5 axb5 17. e4 Ra6 18. Be3 Dc7
19. e5 Bb6
20. Rxb5!
Hugmyndin með þessum snjalla
leik kemur fram eftir 24. leik hvíts.
20. … cxb5 21. Bxa8 Hxa8 22.
Bxb6 Dxb6 23. Hd6 Db7 24. Da2!
Bxe2
24. … Rc7 strandaði á 25. Dxa8+
og síðan mát í borðinu.
25. Dxa6 Dxa6 26. Hdxa6 Hxa6
27. Hxa6 g5 28. f4 gxf4 29. gxf4
Kg7 30. Kf2 Kg6 31. Kxe2
- og svartur gafst upp.
Daði og Þröstur efstir
á Nóa Síríus mótinu
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Þórir Benedikts
Sannfærandi sigur Daði Ómarsson.
Um þessar mundir
eru 90 ár frá því að
fyrsti fundur var hald-
inn í Alþjóðlegri frí-
múrarareglu karla og
kvenna, Le Droit
Humain, á Akureyri en
reglan var stofnuð hér
á landi í Reykjavík í
mars 1921.
Á miðöldum var fé-
lagsleg og réttarfars-
leg staða konunnar önnur en nú á
tímum. Konur voru í vissum skiln-
ingi ófrjálsar og líf þeirra á tíðum í
skugga karla sem jafnvel véluðu um
örlög þeirra. Þeim var t.d. óheimilt
að sinna félagsstarfi í frímúrara-
reglum þar sem einungis frjálsir
karlmenn fengu inngöngu. Þetta
þýðir ekki að konur hafi ekki viljað
afla sér meiri menntunar og þroska
heldur sýnir takmörkunin misrétti
kynjanna í hnotskurn. Nú eru marg-
ar frímúrarareglur starfandi í heim-
inum, sumar einungis ætlaðar karl-
mönnum, aðrar aðeins konum, og í
enn öðrum starfa bæði kynin saman.
Flestar gerðir frímúrarareglna má
finna í Frakklandi en þar átti Al-
þjóðleg frímúrararegla karla og
kvenna, Le Droit Humain, upptök
sín árið 1893. Sú regla starfar nú í 63
þjóðlöndum. Orðin Le Droit Humain
þýða mannréttindi og segir það sitt
um viðfangsefni reglunnar sem þó
öðru fremur lýtur að mannrækt.
Upp úr 1900 breiddist út í Evrópu
vitundin um að konum bæri sami
réttur og körlum og það gaf hug-
myndum um blandaða frímúrara-
reglu byr undir báða vængi. Mikil-
vægt var að skapa vettvang þar sem
konur og karlar ynnu hlið við hlið að
mannrækt. Hinn 12. mars 1921 var
fyrsta stúka Alþjóðlegrar frímúrara-
reglu karla og kvenna, Le Droit
Humain, stofnuð hér á landi í
Reykjavík og ári síðar á Akureyri en
um þessar mundir er 90 ára afmæli
reglunnar þar haldið hátíðlegt (18.
feb.). Hinn 15. október sl. var vígt á
Akureyri nýtt glæsilegt musteri fyr-
ir starfsemina að Óseyri 2. Nú eru
stúkurnar á Íslandi orðnar tíu tals-
ins, sjö í Reykjavík, tvær á Akureyri
og ein á Egilsstöðum.
Árið 1985 var stofnað sérstakt
samband á Íslandi sem hefur bein
samskipti við aðalstöðvar reglunnar
í París. Æðsti yfirmaður reglunnar í
heiminum um tíma kom úr röðum ís-
lenskra systkina. Þetta var Njörður
P. Njarðvík, prófessor emeritus,
sem gegndi því embætti um 10 ára
skeið.
Hvernig starfar reglan?
Frímúrarareglur leggja fram
ákveðna aðferð til að kynnast sjálf-
um sér í því skyni að
efla andlegan þroska
manna. Við starfið í
stúkunum vaknar
skilningur á óeigin-
gjarnri þjónustu sem
leiðir til aukins mann-
skilnings, virðingar,
jafnréttis og réttlætis-
kenndar. Þannig er
stefnt að bjartari fram-
tíðarvonum mannkyni
til handa. Starfið bygg-
ist á táknfræði og
grundvöllur hennar er
byggingarlist miðalda, þegar menn
reistu stórfenglegar dómkirkjur
með miklu hyggjuviti en fábrotnum
áhöldum. Sumir telja að smám sam-
an hafi samfélag steinhöggvaranna
og iðnaðarmannanna þróast út í það
sem við nefnum frímúrarafræði þar
sem táknmálið sjálft varð aðalatriði.
Aðrir vísa til launhelga fyrri tíða,
ekki síst launhelga Egyptalands og
Grikklands, þar sem einstaklingar
vígðust inn í ákveðinn helgidóm í
fleiri en einum skilningi og tóku
framförum í leyndum fræðum sem
fleyttu þeim áfram til dýpri skiln-
ings á tilverunni og sjálfum sér.
Hvers vegna leynd?
Leiðir til andlegs þroska eru
margar og ekki hentar öllum það
sama. Leyndin sem er viðhöfð um
það sem fram fer á fundum hefur
tvíþættan tilgang, þ.e. að verja þær
siðaathafnir sem iðkaðar eru fyrir
rangtúlkunum og aðkasti þeirra sem
ekki bera skynbragð á hvað býr að
baki athöfnunum en einnig sér
leyndin um að þeir sem ganga inn í
regluna upplifa vígslu sína algerlega
á eigin forsendum; þeir geta ekki
undirbúið sig fyrir hana. Gætu þeir
það yrðu áhrifin ekki söm.
Á frímúrararegla erindi
við nútmímamenn?
Spyrja má hvort frímúrarareglur
eigi erindi við nútímamenn, hvort
þær séu ekki tímaskekkja í vísinda-
samfélaginu þar sem áherslan er oft
á hraðan lífsmáta og kapphlaup um
það sem nefnt hefur verið lífsgæði. Á
sama hátt og maðurinn byggir sér
líkamlegt skjól þarfnast hann einnig
andlegs skjóls, eins konar vés, þar
sem hann byggir upp sinn innri
mann, styrkir sjálfan sig og minnir
sig á hver hin raunverulegu lífsgildi
eru. Í Alþjóðlegri frímúrarareglu
karla og kvenna, Le Droit Humain
starfa bæði kyn saman með mann-
rækt að leiðarljósi í því skyni að
karlar og konur um víða veröld fái
notið félagsleg réttlætis. Þar er
starfað saman án tillits til uppruna,
kynþáttar, heimspeki- eða trúar-
skoðana og leitast við að sýna í verki
gildi frelsis, jafnréttis og bræðra-
lags. Þeir sem af alvöru og einlægni
leita sannleikans í auðmýkt og bera í
hjarta góðvild til annarra eiga erindi
í félagsskap á borð við frímúrara-
reglu.
Nánari upplýsingar, s.s. um inn-
tökuskilyrði, má lesa á heimasíðu
reglunnar www.samfrim.is þar sem
nálgast má ýmsar upplýsingar.
Alþjóðleg frímúrararegla
karla og kvenna
Eftir Kristínu
Jónsdóttur
»Margar frímúrara-
reglur starfa víða
um heim, hér á landi
tvær: Alþjóðleg frímúr-
araregla karla og
kvenna, Le Droit
Humain, og Frímúrara-
reglan á Íslandi.
Kristín Jónsdóttir
Höfundur er yfirmaður Alþjóðlegrar
frímúrarareglu karla og kvenna, Le
Droit Humain á Íslandi.
Híbýli Úr musteri reglunnar á
Kirkjustétt í Reykjavík.
Mikið úrval af öflugum vegg- og
loftafestingum frá KÖNIG
fyrir skjái og sjónvörp
Ármúla 17, 108 Reykjavík, sími 552 8636, mbr.is
Allt fyrir raftækni
Veggfestingar
www.likamioglifsstill.is
Móttaka
aðsendra greina
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í
hægra horni forsíðu mbl.is.
Þegar smellt er á lógóið birtist
felligluggi þar sem liðurinn
„Senda inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf not-
andinn að nýskrá sig inn í
kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar
fylgja hverju þrepi í skráning-
arferlinu. Eftir að viðkomandi
hefur skráð sig sem notanda í
kerfið er nóg að slá inn kenni-
tölu notanda og lykilorð til að
opna svæðið. Hægt er að
senda greinar allan sólarhring-
inn.
Nánari upplýsingar veitir
starfsfólk Morgunblaðsins alla
virka daga í síma 569-1100 frá
kl. 8-18.