Morgunblaðið - 18.02.2017, Side 35

Morgunblaðið - 18.02.2017, Side 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2017 ✝ Stefanía Magn-úsdóttir fædd- ist í Flögu í Vill- ingaholtshreppi 29. apríl 1921. Hún lést á dvalarheim- ilinu Sólvöllum á Eyrarbakka 8. febrúar 2017. Foreldrar henn- ar voru hjónin í Flögu, þau Magnús Árnason, hrepp- stjóri, frá Hurðarbaki í Vill- ingaholtshreppi, f. 18. október 1887, d. 23. desember 1973, og Vigdís Stefánsdóttir frá Sela- læk á Rangárvöllum, f. 13. október 1891, d. 14. mars 1977. Stefanía var þriðja í röð tíu systkina en Magnús og Vigdís misstu sitt fyrsta barn. Systkini Stefaníu eru: 1) Árni, f. 1917, d. 2010, 2) Guðrún, f. 1919, 4) Brynjólfur, f. 1922, d. 1983, 5) Sigríður, f. 1924, d. 1987, 6) hildi Sveinsdóttur, f. 22. mars 1943, d. 1. febrúar 1997. Dætur þeirra: 1) Ragnhildur Hafdís Guðmundsdóttir, f. 28. desem- ber 1966, d. 13. júní 1998, gift Páli Þórarinssyni, f. 10. nóv- ember 1957, d. 12. desember 2014. Þau eignuðust synina Inga Hrafn, f. 1990, Þórarin Árna, f. 1992, og Jón Guðmann, f. 1995, maki Bergey Flosa- dóttir, f. 1997. 2) Sóley Huld, f. 1. desember 1973, maki Svein- björn Hjálmarsson, f. 28. mars 1973, börn þeirra eru Hjálmar Forni, f. 1994, Andri Fannar, f. 1999, Sindri Freyr, f. 2002, og Hrafnhildur Sara, f. 2012. 3) Dagný Hrund, f. 3. október 1977, hennar börn eru Birta Ögn, f. 1999, Emma Dögg, f. 2001, og Hrafnkell Orri, f. 2003. 4) Signý Hlíf, f. 21. maí 1980, maki Valborg Ösp Á. Wa- rén, f. 17. júní 1982, þeirra börn eru Árni Vilhelm, f. 2010, og Hildur Bigitta, f. 2015. Eft- irlifandi eiginkona Árna er Bergljót I. Þórarinsdóttir, f. 16. ágúst 1942. Útför hennar fer fram frá Eyrarbakkakirkju í dag, 18. febrúar 2017, klukkan 14. Guðríður, f. 1926, d. 2014, 7) Grímur, f. 1927, d. 2009, 8) Anna, f. 1929, d. 2005, 9) Unnur, f. 1930, d.2012. Upp- eldisbróðir þeirra var Stefán Gunnar Jónsson, f. 1934, d. 2011. Guðrún er ein eftirlifandi þeirra systkina. Stefanía giftist 1. janúar 1942 Jóni Guðmanni Valdimarssyni húsasmið, 5. október 1918, d. 28. september 1997. Foreldrar hans voru Valdimar Þorvarðarson frá Klasbarða í V-Landeyjum, f. 14. maí 1893, og Elín Jónsdóttir frá Laug í Biskupstungum, f. 10. október 1886. Þau eignuðust einkasoninn Árna Guðmanns- son, húsasmið í Kópavogi, f. 30. maí 1942, d. 18. maí 2014. Árni kvæntist 1. janúar 1969 Hrafn- Elsku amma. Það er svo óraunverulegt að þú sért farin, oft héldum við að þú værir að fara en alltaf reist þú upp aftur, alveg eldhress og til í flest. Það var kannski einmitt það sem var svo einkennandi fyrir þig, hugur þinn var alltaf á fullu og alveg nokkrum skrefum á undan þér. Þú varst orkumikil og hörkudugleg kona sem hlífði sér hvergi. Alltaf stóðst þú sem klett- ur, alveg sama hverju lífið henti í þig. Eitt af því sem ég hafði mest gaman af í þínu fari er hvað þú varst hreinskilin, kaldhæðin og með góðan húmor. Eins varstu vel inni í málefnum líðandi stund- ar. Það var alveg sama hvað mað- ur var að tala um, þú varst alltaf með á nótunum, til í grínið eða að segja þína skoðun á málinu, og alltaf hafðirðu skoðun. Þín verður sárt saknað en ef- laust ert þú hvíldinni fegin. Í dag skein sól á sundin blá og seiddi þá, er sæinn þrá og skipið lagði landi frá. Hvað mundi fremur farmann gleðja? Það syrtir að, er sumir kveðja. Ég horfi ein á eftir þér og skipið ber þig burt frá mér. Ég horfi ein við yztu sker. Því hugur minn er hjá þér bundinn, og löng er nótt við lokuð sundin. En ég skal biðja, og bíða þín uns nóttin dvín og dagur skín. Þó aldrei rætist óskin mín til hinsta dags ég hrópa og kalla, svo heyrast skal um heima alla. (Davíð Stefánsson) Góða ferð, elsku amma, skil- aðu kveðju. Þín, Signý Hlíf Það var sjaldan lognmolla í kringum hana ömmu enda sýndi það sig í veðrinu daginn sem hún kvaddi. Óveður, þrumur og eld- ingar. Hún var hreinskilin og lá ekki á sinni skoðun, hörkudugleg, fyrirmyndarhúsmóðir og mikil matarmanneskja. Hún fylgdist vel með og þótti fínt að sletta á dönsku. Lífið var henni ekki allt- af auðvelt en hún fór þetta á seiglunni. Það var gaman að koma á Bakkann, fjaran í bakgarðinum, risastór bílskúr sem var enda- laust hægt að kanna, fjöldi her- bergja til að dunda sér í og ekki má gleyma búrinu. Þar hófst yf- irleitt heimsóknin á könnunar- leiðangri til að vita hvað væri til. Í lok heimsóknar var yfirleitt laumað að manni nesti til að eiga á heimleiðinni. Og ávallt stóðu þau afi á tröppunum og vinkuðu þar til við hurfum úr augsýn. Hún var mikil selskapsmann- eskja, tók vel á móti gestum og þótti gaman að bregða sér af bæ. Þær eru dýrmætar minningarnar um ferðir okkar að Flögu síðustu sumur. Þar naut hún þess að vera innan um ættingjana á æskuslóð- um sínum. Í þessum ferðum fékk ég líka tækifæri til að kynnast ættmennum betur og voru þau ættmenni okkur systrum mikill styrkur síðustu viku, enda bak- landið orðið rýrt. Í þessum ferð- um okkar að Flögu var oftast tal- að um þegar hún var með bú í klettunum, hún sagði frá foreldr- um sínum og rifjaði upp ýmis skemmtileg atvik. Þótt amma hafi verið hvíldinni fegin, enda var hún á 96. aldurs- ári, er þetta ávallt erfitt. Þetta markar líka viss tímamót hjá okkur systrum þar sem við erum nú elsti ættliður í okkar nánustu fjölskyldu. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Valdimar Briem) Hvíl í friði, elsku amma. Dagný Hrund. Amma sem einhvern veginn var alltaf ótrúlega spræk þrátt fyrir háan aldur og mikil áföll er farin. Hún er eflaust hvíldinni fegin, blessunin, en þó að maður vissi í hvað stefndi, þá einhvern veginn var hún hálf eilíf í huga manns og eins og hún yrði alltaf til staðar. Maður sagði: já amma, hún er nú ansi brött, orðin 95 ára. En með fráfalli hennar er ég orðin aldursforsetinn í minni grunnfjölskyldu og það er soldið skrýtin tilfinning og bara dáldið mikið að bera. Hugurinn reikar þó aftur í tím- ann og minningarnar ylja manni, minningar eins og þegar ég fór í rútu ein á Bakkann til ömmu og afa að springa úr stolti, því ég rataði sko alveg og vissi hvar ég átti að fara úr rútunni. Svo var ég kannski send í kaupfélagið eftir einhverju smáræði og stundum fékk ég ömmuhjól lánað til far- arinnar. Einnig voru ófáar stund- irnar sem ég eyddi í fjörunni fyrir neðan húsin við leik. Það rifjast upp þegar við amma ætluðum að hjóla á Selfoss, en það var kannski ekki eins einfalt og það hljómaði, við þurftum að hvíla okkur vel í vegkantinum á leið- inni. Þær voru líka ófáar ferðirn- ar inn í búr til að laumast í súkku- laði, kandísmola, smákökur eða annað góðgæti. Hélt ég væri að stelast voða mikið en trúlega vissi amma alltaf af því og leyfði okkur það bara. Lífið var ekki alltaf dans á rós- um hjá henni með afa, mikinn sjúkling alla tíð og þurfti að standa sína plikt fyrir það. Hún var mikil húsmóðir og hjá henni var alltaf allt hrein og fínt og nóg að borða. Henni fannst erfiðast að geta ekki hellt upp á kaffi og eldað fyrir okkur mat þegar við kíktum á Sólvelli eftir að hún flutti þangað. Garðurinn var henni líka mik- ils virði og hún sinnti honum vel og maður var nú kannski ekki al- veg að nenna að hjálpa til sem krakki, en þurfti þó að gera eitt- hvað og svo skottaðist maður í kring. Hún talaði vel um Ísafjörð þar sem ég hef búið sl. 10 ár og fannst mikið til hans koma og það var gott að geta fengið að taka á móti henni þar í tvígang og Simbi stjanaði við hana og sauð skötu í potti á prímus úti á hlaði að sumri til, því amma vildi jú vestfirska skötu og hún fékk sínu oftast framgengt. Alltaf þegar við fórum frá Há- eyrarvöllum á sínum tíma þá stóðu amma og afi alltaf á tröpp- unum og veifuðu þangað til við vorum komin úr augsýn. Nú veif- ar þú okkur ekki lengur en ég veifa til þín. Við kveðjum þig, elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. (Halldór Jónsson frá Gili) Sóley Huld Árnadóttir. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Látin er á 96. aldursári móð- ursystir mín Stefanía Magnús- dóttir, eða Stebba frænka, eins og við kölluðum hana oftast. Hún móðursystir mín var hrein og bein, jafnvel stundum aðeins of hreinskilin að okkar mati, ef athugasemdirnar urðu of persónulegar en það gleymdist fljótt og í dag lifa margar fleygar setningar sem frá henni komu. Hún var harðdugleg og gafst ekki upp þó að á móti blési. Það kom sér líka vel þegar eiginmað- urinn missti heilsuna á besta aldri. Þá voru ermarnar brettar upp og vinnuframlagið aukið til muna, jafnvel teknir nokkrir kostgangarar eða prjónaðar lopapeysur ásamt föstu vinnunni til að drýgja tekjurnar. Ég man eftir sameiginlegri vinnu hjá systrunum, mömmu, Dúu og Stebbu, á haustin þar sem unnið var saman í kjöti, salt- að niður og gerð bjúgu, þá heyrð- ist nú oft til hússins og mikið hlegið. Stebba frænka var mikil fé- lagsvera og samkvæmiskona. Ef mikið stóð til í fjölskyldunni fékk maður það embætti að sækja Stebbu og Manna á „Bakk- ann“svo þau væru með í veisl- unni. Þá naut hún sín vel sem miðpunktur með fólkinu sínu. Ef rétt var hjálparhönd varð að launa með greiða á móti. Eitt sinn var greiðinn launaður með því að keyra okkur vinkonurnar á ball á Hvoli og bíða eftir okkur. Það var reyndar aldrei boðið aft- ur. Samkomuhaldið hafði breyst mikið frá því þau voru ung. Ættarmótin í Flögu voru eitt- hvað sem hún vildi alls ekki missa af og síðasta sumar kom hún með fólkinu sínu, þá 95 ára. Ég spurði hana um miðnættið hvort hún væri ekki orðin þreytt, hún svar- aði því að hún hefði ekkert annað að gera á morgun en að liggja í rúminu. Þessu vildi hún ekki missa af. Hún var kjarnakona komin af kjarnafólki. Blessuð sé minning Stefaníu Magnúsdóttur frá Flögu. Kristín Gísladóttir. „Jáhhá, á morgnana maður“ var svarið. Að láta hugann reika í minn- ingaleit um Stefaníu móðursyst- ur okkar eða Stebbu frænku eins og hún var alltaf kölluð kallar bara fram bros og gleði. Það var alltaf tilhlökkun hjá okkur systkinunum að fara í heimsókn á Bakkann því hún tók alltaf fagnandi á móti okkur og gjörsamlega snerist í kringum okkur og dekraði við okkur. Stebba átti það til að hringja á Álfhólsveginn ef gott hrossakjöt eða góð hrossabjúgu voru sett í pott og ekki þurfti að bjóða það oftar en einu sinni til að fjölskyld- an renndi austur. Á milli þeirra systra, Unnar móður okkar og Stebbu frænku, var gott samband þrátt fyrir níu ára aldursmun og fjarlægð milli heimila og má segja að þær hafi verið hjálparhellur hvor annarr- ar þegar á þurfti að halda. Þegar Manni veiktist og þurfti að dvelja lengi á sjúkrastofnun flutti hún tímabundið til okkar á Álfhóls- veginn og deildi þar herbergi með unglingnum á heimilinu og þegar pabbi þurfti að fara til London í aðgerð og mamma fylgdi honum taldi Stebba það ekki eftir sér að taka við heim- ilinu og sjá um börn og bú. Þá fengu eldri bræðurnir nokkrum sinnum að fara í „orlof“ til hennar á Bakkann og var þá margt brall- að í Kirkjuhúsi. Eftir eina slíka orlofsferð sat Haukur í eldhúsinu hjá mömmu þegar hún óvart „hleypti af“ og baðst afsökunar á því. Þá sagði sá stutti að þetta væri nú ekki mikið – „þú ættir að heyra í henni Stebbu frænku á morgnana mað- ur“ og lifir þessi setning enn góðu lífi. Hún hafði mjög gaman af því þegar vinir okkar komu í heim- sókn og lagði sig fram um að kynnast þeim enda muna allir eftir henni Stebbu frænku frá þeim tíma og maður sér fyrir sér glampann í augunum og brosið sem færist yfir andlit þeirra þeg- ar þeir minnast hennar. Stebba frænka hafði létta lund, einkar smitandi hlátur, pínu svartan húmor en umfram allt hlýju sem við systkinin og af- leggjarar komum alltaf til með að minnast. Með virðingu og þakklæti minnumst við sómakonunnar Stefaníu Magnúsdóttur frá Flögu. Haukur, Alma og Valur. Það var aldrei nein lognmolla eða andvaraleysi í kringum hana Stebbu á Bakkanum. Hún var þriðja elst í níu systkina hópi sem ólst upp í Flögu. Fyrir tveimur árum fór ég ásamt Stebbu og Hönnu, mágkonu hennar og móð- ursystur minni, í bílferð austur að Flögu. Stebba naut sín vel við að segja okkur frá æskuárunum á þessum fallega stað. Hún færði okkur aftur í tímann og setti okk- ur inn í þær aðstæður sem hún bjó við. Hún talaði um m.a. myrkrið og hvað þau krakkarnir voru myrk- fælin. Það var barnmargt þarna í hverfinu og krakkarnir frá Flögu, Hróarsholti og Kambi hittust á kvöldin til leikja og var kærleikur þeirra á milli. Á Flögu rís landið hátt og tilkomumiklir klettar setja sterkan svip í lands- lagið. Stebba erfði frásagnarhæfi- leika og kímnigáfu móður sinnar, Vigdísar. Því var það svo, að þar sem Stebba var – þar var fjörið. Smitandi hlátur hennar gerði hversdagslega hluti skemmtilega og lifandi. Rétt rúmlega tvítug fór hún til Þorlákshafnar þar sem hún gerð- ist ráðskona og þar hitti hún mannsefnið sitt, hann Manna, sem var þá sjómaður á bát. Þau áttu vel saman og fóru fljótlega að búa í Kirkjuhúsi á Eyrarbakka hjá Valdimari og Elínu, foreldr- um Manna, sem eru afi minn og amma. Þarna hófust kynni mín af Stebbu. Hún tók fagnandi á móti fólki og lét öllum líða vel. Kirkju- hús var lifandi staður, því margir komu og litu inn til Stebbu og Manna. Eyrarbakki á þessum tíma var í blóma – mikið atvinnu- líf með bátaslipp, verkstæðum og höfn, þar sem bátar lögðu upp. Flest hús höfðu sín nöfn og fólkið kennt við húsin. Margir voru með skepnur í bakgarðinum og því var þetta draumur fyrir strák úr Reykjavík að njóta tímans í þessu umhverfi. En lífið gaf og lífið tók. Manni var ekki alltaf heilsuhraustur, fyrst fékk hann berkla og seinna á lífsleiðinni veikindi sem tóku af honum mál og þrótt. Manna var lagið að bjarga sér og notaði sín- ar leiðir til að tjá sig. Hann hafði símaskrá við höndina og fletti henni upp til að sýna nöfn á þeim sem hann vildi tala um eða segja frá. Þeir sem þekktu hann vel náðu því ágætum samskiptum við hann. Stebba stundaði ýmis störf á Bakkanum. Lengst af starfaði hún í frystihúsinu, vinnuhælinu og kvenfélaginu lagði hún traust lið. Þau eignuðust einkasoninn Árna, sem var þeim kær, ekki ólíkur móður sinni, málsterkur með smitandi hlátur, vel ættaður Flögu-piltur enda var hann þar mörg sumur í sveit og mótaðist ættareinkennunum. Árni eignaðist þrjár dætur og eina stjúpdóttur, sem hafa verið ljós í lífi Stebbu og stutt vel við hana, ásamt tveimur tengda- dætrum, fyrst Hrefnu, barns- móður og fyrri eiginkonu Árna, en hún lést 1997, og eftirlifandi eiginkonu Árna, Bergljótu. Við Hanna tókum okkur ferð seinni part janúar sl. til að heim- sækja Stebbu. Hún var hress og lék á als oddi með 96 ár að baki. Ég átti svo að sækja hana þegar voraði og fara með í heimsókn til mín. Hún bætti síðan við þegar við vorum að kveðjast, „Þormar, eig- um við svo ekki að fara í réttirnar í haust?“ Já, sæll. Hvíl í friði, vinkona. Þinn vinur, Þormar Ingimarsson. Lágreistu húsin á Eyrarbakka segja sína sögu um lífið við ströndina. Þau kúra þar og láta lítið fyrir sér fara þegar brimið ólmast fyrir utan og vindar gnauða. Þá gefst best að láta lítið fyrir sér fara og bíða átekta. Þegar fegurð himins og jarðar gælir við ströndina er hægðarleikur að njóta lífsins þó að turnana skorti. Þessi var götumyndin þegar Stefanía og Guðmann fluttu á Eyrarbakka, efnin rýr en hugur fólksins óbeygður og sterkur. Í Kirkjuhúsi hófst hreiðurgerðin, fyrst í sambúð við tengdaforeldra Valdemar og Elínu og síðar í tví- býli. Allt var með hefðbundnu sniði, Guðmann dró björg í bú og konan sinnti barni og heimili. Þá kom sér vel að vera búin að taka út nokkra menntun í skóla lífsins á mannmörgu æskuheimili í stórum hópi systkina. Þar var unnið frá morgni til kvölds að bú- skap, gerð matar og klæða. Þó gleymdist andleg næring ekki í öllu amstrinu og sögurnar frá þessum tíma leiftruðu af glensi og prakkaraskap. Þangað rek ég frændrækni og réttlætiskennd. Stefanía var stórhuga og ekki tilbúin að gefa sinn hlut í skoðanaskiptum en skorti þó ekki samúð og innsæi til að setja umræðuna í samhengi við hið rétta og sanngjarna og bjargföst var trú hennar á sam- hjálp og samtakamátt. Hún var kölluð Stebba í Kirkjuhúsi þegar ég kynntist þeim hjónum og þau urðu vel- gjörðarmenn mínir. Síðan þá hefur líf okkar tvinnast saman og fjölskyldan hefur búið við þá auðlegð að eiga viðbótarömmu og afa á Eyrarbakka. Stebba var dálítið hrjúf við fyrstu kynni en óskoruð vináttan og velvilj- inn viskuðu það burtu, allt var bjart og fallegt í kringum hana. Heimilishaldið var enda allt í þeim stíl. Inni í búri biðu kræs- ingar, sultur og sætabrauð og matur í keröldum útundir vegg. Fyrst og fremst var hugsað um að allir fengju mettan maga en við litla borðið sem Manni hafði sérsmíðað í eldhúskrókinn reis háskóli umræðna um menn, málefni, jafnaðarstefnuna og þjóðarhag. Og Stefanía þurfti mörgu að sinna. Ef ekki var farið í frysti- húsið, gat þurft að baka flatkökur úti í skúr með Völu, sinna kart- öfluræktinni, fara út í kirkju að hafa allt fínt, hreinsa úti og inni, sækja kvenfélagsfund eða heim- sækja nágranna, undirbúa erfi- drykkju, leikrit í Fjölni eða bas- arinn. Á kvöldin tóku við hannyrðir og handverk í ýmsum myndum, hlustað á útvarpið og spjallað. Við koddann beið Hjalti litli eða annað gullvægt lesefni. Í öllum verkefnunum fengu börnin, sem hændust léttilega að heimilinu að taka þátt, voru hvött með hrósi, stundum af ofrausn svo að bakið réttist og hugurinn sperrtist. Ekki fengist um mistökin og passað að létta lundina með hressingu og gleðilegum uppá- tækjum. Allt ómetanlegt. Sælureit reistu þau svo síðar með harðfylgi austur á Bakkan- um, og nefndu Ægissíðu. Þar naut Stefanía sín við garðyrkjuna og glæsilegt húshald. Þrátt fyrir heilsubrest og ýmis áföll, meðal annars frá Ægi sjálf- um, var haldið áfram af æðru- leysi, sem verður eftirlifendum til eftirbreytni. Styrkur andans fylgdi elskulegri vinkonu sem nú er kvödd með þakklæti fyrir dýr- mæta samfylgd. Guð blessi minn- ingu hennar. Jónína Eiríksdóttir. Stefanía Magnúsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.