Morgunblaðið - 18.02.2017, Qupperneq 50
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2017
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
T E X T I 15.9 - 16.4.2017
Valin textaverk úr safni Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur
VALTÝR PÉTURSSON 24.9 - 26.3.2017
JOAN JONAS Reanimation Detail 2010/2012 26.10 - 26.02 2017
VASULKA-STOFA Miðstöð fyrir raf- og stafræna list á Íslandi
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur
KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Opið alla daga kl. 11-17. Lokað á mánudögum
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
SAMSKEYTINGAR 3.9. - 17.09. 2017
Leiðsögn með safnstjóra, sunnudaginn 19. febrúar kl. 15
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 7.5.2017
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17.
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Sunnudaginn 19. febrúar: Tveir fyrir einn af aðgangseyri
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Steinholt-saga af uppruna nafna í Myndasal
Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi í Bogasal
Grímsey á Vegg
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17.
Sunnudaginn 19. febrúar: Fjölskyldustund kl. 14
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Geirfugl †Pinguinus impennis Aldauði tegundar – Síðustu sýnin
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna.
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi,
opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík s: 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
Ný sýning á verkum Errós, Því
meira, því fegurra, verður opnuð í
Listasafni Reykjavíkur – Hafnar-
húsi, í dag kl. 14 og um leið verður
opnað endurbætt rými á jarðhæð
hússins, Stofa, þar sem gestum og
gangandi er boðið að tylla sér við
hverskyns iðju, eins og því er lýst í
tilkynningu en Thomas Pausz
hönnuður sá um endurbæturnar.
Við opnunina flytur listamaður-
inn Curver Thoroddsen hljóðverkið
Erró: Hljóðvíðátta og skömmu síð-
ar leiðir hann hljóðklippismiðju í
Stofunni. Boðið verður upp á leið-
sögn um sýninguna kl. 16.
„Á sýningunni Því meira, því
fegurra er varpað sérstöku ljósi á
verk Errós sem byggjast á ofgnótt
og ofmettun. Slík myndgerð hefur
alla tíð verið mikilvægur þáttur í
listsköpun hans. Meira en þrjátíu
verk úr Errósafni Listasafns
Reykjavíkur – málverk, klippi-
myndir og kvikmyndir – sýna
hvernig listamaðurinn skapar
flóknar og hlaðnar myndbygg-
ingar, sem miðla myndefni tengdu
stjórnmálum, vísindum, skáldskap
og listasögu,“ segir um sýninguna
en sýningarstjóri er Danielle Kvar-
an.
Odelscape Eitt af málverkum Errós á sýningunni, unnið á árunum 1982-3.
Ný sýning á verkum Errós
opnuð í Hafnarhúsi
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Lokadagur Sónar tónlistarhátíðar-
innar er í dag og koma fram nokkrar
af stærstu stjörnum hennar, m.a.
Fatboy Slim og De La Soul. Um
miðnætti, í bílastæðakjallara húss-
ins, hefur hins vegar leik kanadísk
tónlistarkona, plötusnúður, tónlist-
arútgefandi og þáttagerðarmaður á
BBC Radio 1, Brianna Price, sem
gengur undir listamannsnafninu B.
Traits.
Price er fædd árið 1986 og hóf að-
eins 16 ára að koma fram sem plötu-
snúður í heimalandi sínu. Að lokinni
skólagöngu fékk hún verkefni í
Norður-Ameríku og Evrópu og
fluttist síðar til Lundúna. Árið 2012
sendi hún frá sér lagið „Fever“ en í
því naut hún liðsinnis söngkonunnar
Elisabeth Troy. Lagið naut mikilla
vinsælda í Bretlandi, komst í 36.
sæti breska lagalistans og sama ár
hóf hún að gera tónlistarþætti fyrir
fyrrnefnda útvarpsstöð breska rík-
isútvarpsins. Í fyrra stofnaði hún út-
gáfufyrirtækið In-Toto, gaf út EP-
plötuna Still Point og eftir sex daga
kemur sú næsta út, Basic Scenario.
Átti ekki vegabréf
„Ég er fædd og uppalin í smábæn-
um Nelson í Kanada, þar búa aðeins
um tíu þúsund manns og lítið við að
vera. Þegar ég var ung uppgötvaði
ég plötuspilara, fór að safna vínyl-
plötum og byrjaði að koma fram sem
plötusnúður,“ segir Price, spurð að
því hvernig ferillinn hófst. Hún seg-
ist einkum hafa safnað plötum með
downtempo-, trip hop- og jungle-
tónlist. „Þegar ég lauk miðskóla
fluttist ég til Vancouver og fór að
spila þar og í kjölfarið um allan
heim. Ég hafði aldrei farið áður til
útlanda, átti ekki einu sinni vega-
bréf,“ segir Price og hlær.
– Hvernig myndirðu lýsa tónlist-
inni þinni, þeirri sem þú flytur núna?
„Ég sanka miklu efni að mér og
spila mjög fjölbreytta tónlist, bræð-
ing af teknó og house og lög sem eru
í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Ég
legg mikla áherslu á takt og tromm-
ur þannig að það er mikið af áhuga-
verðu slagverki og óvenjulegu
bassatrommumynstri í tónlistinni.“
– Eru lögin sem þú hefur gefið út
ólík tónlistinni sem þú flytur sem
plötusnúður?
„Já, sum þeirra eru það núna.
Fyrsta platan sem ég gerði kom út
fyrir nokkrum árum og hún var
meiri poppplata og varð mjög vinsæl
í Bretlandi. Tónlistin sem ég bý til í
dag er meira instrúmental og ekki
eins formúlukennt danspopp. Hún er
meira neðanjarðar og með árunum
hef ég áttað mig á að þar slær hjarta
mitt örast. Ég spila mín eigin lög
þegar ég kem fram sem plötusnúður
og nýt þess virkilega.“
Skemmtilegt starf
– Þú stýrir vikulegum þætti á
BBC Radio 1, The B. Traits Show, á
föstudögum. Segðu mér aðeins frá
honum, hvernig tónlist spilarðu?
„Þeir leyfa mér að spila sömu tón-
list og ég myndi spila á næturklúbbi,
það er mikið til teknó og tilrauna-
kennd danstónlist. Þetta er neðan-
jarðartónlist, ekki tónlist sem þú
býst við að heyra í breska ríkisút-
varpinu. Ég er neðanjarðarplötu-
snúður BBC og það er virkilega
skemmtilegt starf,“ segir Price. Það
taki langan tíma að safna efni í hvern
þátt, að baki liggi mikil leit á netinu
að nýrri og spennandi tónlist og hún
fái feikilegan fjölda tölvupósta með
ábendingum og tónlist í viku hverri,
auk þess að vera í stöðugu sambandi
við færa plötusnúða. „80% af tónlist-
inni sem ég leik eru glæný og mér
finnst það líka skylda mín að kynna
nýja tónlistarmenn,“ segir hún.
– Nú er plötusnúðaheimurinn
mjög karllægur. Var erfitt fyrir þig
að hasla þér völl í honum, að fá að
spila og öðlast viðurkenningu?
„Já, sér í lagi þegar ég var yngri.
Ég þurfti að spila jafnvel og strák-
arnir, ef ekki betur, svo þeir hefðu
ekkert út á mig að setja. Ég hef ver-
ið plötusnúður í rúm tíu ár og margt
hefur breyst á þeim tíma. Staða
kynjanna er miklu jafnari í tónlist-
arbransanum en hún var,“ svarar
Price. Nú sé fjöldi hæfileikaríkra
kvenna í faginu og því beri að fagna.
Konur verði að standa saman í þessu
fagi líkt og svo mörgum öðrum þar
sem karlar eru í miklum meirihluta.
Mjög ólíkar plötur
–Í næstu viku kemur út önnur
plata þín á vegum In-Toto. Hvernig
er hún í samanburði við þá fyrri?
„Þær eru mjög ólíkar,“ segir
Price. Fyrri platan sé rólegri en sú
nýja og lagrænni, takturinn hægari
og tónlistin meira í ætt við house og
breikbít. Sú nýja verði hins vegar
taktþung og hröð klúbbaplata.
Price segist mjög spennt fyrir Ís-
landsferðinni en hún hefur aldrei
komið hingað áður. Hún kemur af
fjöllum þegar blaðamaður segir
henni að hún muni leika í bílastæða-
kjallara Hörpu. „Það er frábært!
Þetta verður gott partí,“ segir hún,
full tilhlökkunar.
Hjartað slær örast
neðanjarðar
B. Traits leikur í bílastæðakjallara Hörpu á Sónar
Partí „Þetta verður gott partí,“ segir Brianna Price um tónleikana í Hörpu.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Þegar hlustað er á Anda-plötuna
byrjar hún nokkuð eðlilega, nett
Kraftwerk-skotið tölvupopp og
kannski lítið meira. Hefðbundið.
Maður á ekki von á neinu. Þremur
lögum síðar stendur maður sig að
því að hugsa: „Voðalega er þetta
Ekkert andleysi
eitthvað
skemmtilegt!?“
Athyglin beinist
ósjálfrátt að því
sem í gangi er.
„Minninga mað-
urinn“, lag þrjú,
er eins og lag úr
tölvuleik, með
viljandi hallæris-
hljóðgervlum og það er eitthvað
svakalega evrópskt og „eitís“ við
lagið. Eins og ef Giorgio Moroder
hefði verið beðinn um að semja
tónlistina við Donkey Kong Jr. Það
er einhver galgopaháttur í gangi
sem nær manni algerlega. Maður
er seldur, maður er búinn að
kveikja og gamanið hefst. Öll lögin
átta hafa eitthvað við sig að þessu
leytinu til, rúlla á margan hátt eins
og hvert annað rafskotið tölvupopp
en Andi kemur með eitthvað auka-
lega að borðinu, einhverja gleði og
gáska (en aldrei fíflalæti) sem
hefja verkið upp á annað stig.
Andi er annars Andri Eyjólfs-
son, og í raun vita menn lítið ann-
að. Grapevine-tímaritið valdi plöt-
una einn af hápunktum síðasta árs
en það er hið dásamlega merki
Lady Boy Records sem gefur plöt-
una út, sem kassettu í fimmtíu ein-
tökum en einnig er hægt að nálg-
» „Minninga maður-inn“, lag þrjú, er eins
og lag úr tölvuleik, með
viljandi hallæris-
hljóðgervlum og það er
eitthvað svakalega evr-
ópskt og „eitís“ við lag-
ið. Eins og ef Giorgio
Moroder hefði verið
beðinn um að semja tón-
listina við Donkey Kong
Jr.
Ein allra frambærileg-
asta raftónlistarútgáfa
síðasta árs var sam-
nefnd plata eftir lista-
manninn Anda. Glúrið
tölvupopp sem býr yfir
óræðum galdri.