Morgunblaðið - 18.02.2017, Side 51
MENNING 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2017
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Í veröld nýrri nefnast næstu tón-
leikar raðarinnar Tíbrár, sem verða
haldnir í kvöld kl. 20 í Salnum og
verða tileinkaðir sönglögum og
verkum Áskels Mássonar. Þóra
Einarsdóttir sópran, Kristinn Sig-
mundsson bassi og Matthildur Anna
Gísladóttir píanóleikari munu á þeim
frumflytja nýtt verk eftir Áskel,
Kominn nóvember, sem er byggt á
ljóðum Matthíasar Johannessen úr
bókinni Söknuður. Verkið er um 20
mínútna langt og í tíu þáttum, jafn-
mörgum og ljóðin eru sem Áskell
valdi úr bók Matthíasar.
Á efnisskránni verða einnig eldri
verk Áskels, m.a. verk samin við ljóð
Jóhanns Jónssonar, Steins Steinarr,
Thors Vilhjálmssonar og Tómasar
Guðmundssonar. Í einu verkanna
leikur slagverksleikarinn Frank
Aarnink á bjöllur og í öðru Bryndís
Halla Gylfadóttir á selló.
Markmið tónleikanna er að kynna
söngtónlist Áskels, sem hefur samið
töluvert af vönduðum verkum fyrir
söngrödd og eru þetta fyrstu opin-
beru tónleikarnir þar sem einblínt er
á söngverk Áskels.
Áleitin ljóð
Kraftmikil rödd Kristins ómar í
bakgrunni þegar blaðamaður slær á
þráðinn til Áskels þar sem hann er
staddur á æfingu í Salnum. „Það er
búið að æfa mjög stíft, þetta er nátt-
úrlega ný músík,“ segir Áskell og er
spurður að því hvort hann fái að
skipta sér af flutningi tónlistar-
mannanna. „Ja, þau hafa gjarnan
viljað hafa mig á æfingum. Mér
finnst það nú fremur óvenjulegt, oft-
ast mæti ég einu sinni eða svo en þau
hafa viljað hafa mig meira og minna
með sér í þessu öllu saman.“
-Þú semur verkið við ljóð Matt-
híasar úr Söknuði, hvers vegna urðu
þau fyrir valinu?
„Það veit ég varla, þau bara sóttu
á mig. Það er eiginlega eina skýr-
ingin og jú, auðvitað heyrði ég fyrir
mér að það væri hægt að búa til
músík við þau þar sem hvort hjálp-
aði öðru,“ svarar Áskell.
-Eru þetta tregafull ljóð?
„Já, þau eru það mörg hver en
einmitt til að vega upp á móti því læt
ég konu syngja á móti karlmann-
inum, þ.e.a.s. Þóra syngur á móti
Kristni og það sem hún syngur er í
raun hugsanir hans. Og þar eru tvö
ljóð, annað er eins konar skínandi
sólargeisli og hitt er ákaflega
ánægjuleg og hamingjurík minning.
Ég geri þetta til að auka fjölbreyti-
leika tónverksins,“ útskýrir Áskell.
Mjög sérstakt hljóðfæri
-Það er töluverður munur á því að
semja sönglög og tónlist eingöngu
fyrir hljóðfæri …
„Jú, jú, söngröddin er auðvitað
mjög sérstakt hljóðfæri og ég reyni,
í þessum verkum sem hérna verða
flutt, að kynna hana í sem fjölbreytt-
ustu ljósi. Kristinn syngur t.d. með
bjöllum og gongum í einu verkinu og
Þóra syngur með píanói og sellói í
öðru, það eru ljóð sem Thor Vil-
hjálmsson samdi sérstaklega fyrir
mig og eru öll í tígulformi. Hann
samdi þau út frá litlu ljóði sem hann
birti í bók sinni Snöggfærðar sýnir
og ég spurði hann hvort hann væri
tilbúinn að bæta við þetta, búa til æ
stærri tígla og síðan æ minni þannig
að þeir mynduðu einn stóran í heild-
ina. Hann varð góðfúslega við því og
það var ákaflega ánægjulegt sam-
starf,“ segir Áskell. Það hafi verið
fyrsta samstarfsverkefni þeirra
Thors, árið 1984.
-Þú samdir þetta verk, Kominn
nóvember, sérstaklega fyrir Kristin
og Þóru. Hvers vegna þau tvö?
„Þau voru búin að ákveða að koma
að músíkinni minni og það náttúr-
lega inspírerar mann og hefur
ábyggilega orðið kveikjan að þessari
hugmynd minni, að fara þessa leið
sem ég lýsti áðan með karl- og kven-
röddina. Þá koma þau bara strax
upp í hugann.“
En hvernig skyldi það vera fyrir
tónskáldið að heyra verkið flutt í
fyrsta sinn á æfingu? „Þetta er alltaf
viðburður fyrir mig að upplifa þegar
nóturnar kvikna til lífs af blaðinu, að
ég tali nú ekki um svona eðalflutning
eins og hér er um að ræða,“ svarar
Áskell.
Hann er í kjölfarið spurður að því
hvort hann geri miklar kröfur til
flytjenda og segist hann gera það.
„Fyrir utan sönglínurnar er t.d.
píanóhlutverkið mjög umfangsmikið
og yfirleitt í allri þessari tónlist, þó
að það sé ólíkt frá einum ljóðaflokki
til annars,“ segir Áskell.
Með sönglögin í felum
-Þetta eru fyrstu opinberu tón-
leikarnir þar sem einblínt er á söng-
verkin þín, hvernig stendur á því að
slíkir tónleikar hafa ekki verið
haldnir fyrr?
„Ég hef kannski verið með söng-
lögin í hálfgerðum felum en hvaða
ástæða er fyrir því … ja, Diddú hef-
ur nú sungið eitt og eitt lag í gegnum
tíðina, alveg frá 1992 eða ’93 eða þar
um bil. En síðustu fimm árin hef ég
gert miklu meira af því en fyrr að
semja sönglög, það hefur opnast ein-
hvers konar flóðgátt og það er
ábyggilega helsta ástæðan. Maður
þarf að finna hjá sér þörf fyrir að
skrifa fyrir hljóðfæri – hvort sem
það er þetta merkilega hljóðfæri
söngröddin eða eitthvað annað – og
finna ástæðu til þess. Finna sína eig-
in rödd þar.“
Nóturnar kvikna til lífs
Þóra Einarsdóttir, Kristinn Sigmundsson og Matthildur
Anna Gísladóttir frumflytja verk eftir Áskel Másson
Morgunblaðið/Golli
Eftirvænting Áskell Másson ásamt Kristni Sigmundssyni, Þóru Einars-
dóttur og Matthildi Önnu Gísladóttur á æfingu í Salnum í vikunni.
Andans maður Andri Eyjólfsson stendur á bak við Anda-nafnið.
ast streymi á bandcamp. Nicolas
Kunysz, einn af fulltrúum
útgáfunnar, lýsti því fyrir Grape-
vine að útgáfan hefði fengið plöt-
una tilbúna og ákveðið að gefa
hana út, sem hún væri ekki vön að
gera. Það sem þeir vissu væri að
Andri væri frá Hafnarfirði, hann
léki á klassískan gítar en hefði og
sinnt kvikmyndagerð. Skyndigúggl
leiðir líka í ljós minni háttar bíl-
skúrsferil, hljómsveitanöfnin
Spacevestite og Grasrætur koma
upp og þátttaka í Músíktilraunum
fyrir meira en áratug.
Lady Boy Records er annars
þekkt fyrir tónlist sem liggur ansi
langt úti á jaðrinum og Andi fellur
raunverulega illa í þann flokk, ein-
faldlega vegna áhlýðileikans. Jú,
þetta er vissulega ekki hefðbundið
dagútvarp en í eyrum lætur þetta
alveg óskaplega vel. Í upphafi
nefndi ég að þau hefðu sperrst upp
við lag þrjú og leiðin er greið eftir
það. Lögin eru stutt og hnitmiðuð
og mögulega kann klassísk mennt-
un Andra að spila hér inn í, því
uppbygging efnisins er þægilega
rökrétt og fullnægjandi einhvern
veginn. Nefni sérstaklega lokalag-
ið, „Endamörk“, sem bindur þetta
eitthvað svo fallega saman. Brokk-
andi og grallaralegt; stórskemmti-
legt, fyndið og flott – allt í senn.
Leyfðu Andanum að koma yfir þig!
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Lau 18/2 kl. 20:00 153. s Lau 25/2 kl. 20:00 157. s Lau 22/4 kl. 20:00 161. s
Sun 19/2 kl. 20:00 154. s Lau 8/4 kl. 20:00 158. s Fös 28/4 kl. 20:00 162. s
Fim 23/2 kl. 20:00 155. s Þri 11/4 kl. 20:00 159. s Lau 6/5 kl. 20:00 163. s
Fös 24/2 kl. 20:00 156. s Mið 19/4 kl. 20:00 160. s
Glimmerbomban heldur áfram!
Úti að aka (Stóra svið)
Lau 4/3 kl. 20:00 Frums. Sun 12/3 kl. 20:00 5. sýn Fös 24/3 kl. 20:00 aukas.
Sun 5/3 kl. 20:00 2. sýn Fös 17/3 kl. 20:00 6. sýn Lau 25/3 kl. 20:00 9. sýn
Fim 9/3 kl. 20:00 3. sýn Lau 18/3 kl. 20:00 aukas. Sun 26/3 kl. 20:00 10. sýn.
Fös 10/3 kl. 20:00 aukas. Sun 19/3 kl. 20:00 7. sýn Fim 30/3 kl. 20:00 aukas.
Lau 11/3 kl. 20:00 4. sýn Mið 22/3 kl. 20:00 8. sýn Fös 31/3 kl. 20:00 aukas.
Sprenghlægilegur farsi eins og þeir gerast bestir.
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 19/2 kl. 13:00 33. s Sun 12/3 kl. 13:00 36. s Lau 1/4 kl. 13:00 39. s
Lau 25/2 kl. 13:00 34. s Sun 19/3 kl. 13:00 37. s Lau 8/4 kl. 13:00 40. s
Sun 5/3 kl. 13:00 35. s Sun 26/3 kl. 13:00 38. s Sun 23/4 kl. 13:00 41. s
Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Illska (Litla sviðið)
Fim 2/3 kl. 20:00 Fös 10/3 kl. 20:00
Fös 3/3 kl. 20:00 Lau 11/3 kl. 20:00
Samstarfsverkefni við Óskabörn ógæfunnar
Vísindasýning Villa (Litla svið )
Lau 18/2 kl. 13:00 5. sýn Lau 25/2 kl. 13:00 7. sýn Lau 4/3 kl. 13:00
Sun 19/2 kl. 13:00 6. sýn Sun 26/2 kl. 13:00 8. sýn Sun 19/3 kl. 13:00 Táknmáls.
Ferðalag fyrir börn um töfraheim vísindanna.
Fórn (Allt húsið)
Fim 16/3 kl. 19:00 Frums. Mið 29/3 kl. 19:00 3. sýn Sun 9/4 kl. 19:00 5 sýn
Fim 23/3 kl. 19:00 2. sýn Sun 2/4 kl. 19:00 4. sýn
Sköpunarkrafturinn ræður ríkjum um allt leikhúsið
Salka Valka (Stóra svið)
Sun 26/2 kl. 20:00 18.sýn
Ein ástsælasta saga þjóðarinnar. Síðustu sýningar.
Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið)
Þri 21/3 kl. 10:00 Mið 22/3 kl. 13:00 Fös 24/3 kl. 11:30
Þri 21/3 kl. 11:30 Fim 23/3 kl. 13:00
Þri 21/3 kl. 13:00 Fös 24/3 kl. 10:00
Uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í.
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Djöflaeyjan (Stóra sviðið)
Lau 18/2 kl. 19:30 Fös 24/2 kl. 19:30 Lau 4/3 kl. 19:30
Síðustu sýningar!
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Lau 18/2 kl. 19:30 Fim 23/2 kl. 19:30
Sun 19/2 kl. 19:30 Fös 24/2 kl. 19:30
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Óþelló (Stóra sviðið)
Lau 25/2 kl. 19:30 Fös 3/3 kl. 19:30 Fös 17/3 kl. 19:30
Sýningum lýkur í mars!
Gott fólk (Kassinn)
Lau 25/2 kl. 19:30
Síðustu sýningar!
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 19/2 kl. 13:00 Sun 5/3 kl. 13:00 Sun 19/3 kl. 13:00
Sun 19/2 kl. 16:00 Sun 5/3 kl. 16:00 Sun 19/3 kl. 16:00
Sun 26/2 kl. 13:00 Sun 12/3 kl. 13:00 Sun 26/3 kl. 13:00
Sun 26/2 kl. 16:00 Sun 12/3 kl. 16:00 Sun 26/3 kl. 16:00
Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa!
Gísli á Uppsölum (Kúlan)
Lau 18/2 kl. 17:00 Sun 19/2 kl. 17:00
Einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins.
Mið-Ísland að eilífu (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 18/2 kl. 20:00 Lau 25/2 kl. 20:00 Lau 4/3 kl. 22:30
Lau 18/2 kl. 22:30 Lau 25/2 kl. 22:30 Fim 9/3 kl. 20:00
Sun 19/2 kl. 21:00 Fim 2/3 kl. 20:00 Fös 10/3 kl. 20:00
Fim 23/2 kl. 20:00 Fös 3/3 kl. 20:00 Fös 10/3 kl. 22:30
Fös 24/2 kl. 20:00 Fös 3/3 kl. 22:30
Fös 24/2 kl. 22:30 Lau 4/3 kl. 20:00
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Tímaþjófurinn (Kassinn)
Fös 24/3 kl. 19:30 Frums Fös 31/3 kl. 19:30 5.sýn Sun 9/4 kl. 19:30 9.sýn
Lau 25/3 kl. 19:30 2.sýn Þri 4/4 kl. 19:30 6.sýn Mið 19/4 kl. 19:30 10.sýn
Mið 29/3 kl. 19:30 3.sýn Fim 6/4 kl. 19:30 7.sýn Fös 21/4 kl. 19:30 11.sýn
Fim 30/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 7/4 kl. 19:30 8.sýn Lau 22/4 kl. 19:30 12.sýn
Einstakt verk um ástina ■ um óslökkvandi þrá, höfnun og missi
Húsið (Stóra sviðið)
Lau 11/3 kl. 19:30 Frums Fös 24/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 31/3 kl. 19:30 7.sýn
Fim 16/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 25/3 kl. 19:30 5.sýn
Lau 18/3 kl. 19:30 3.sýn Fim 30/3 kl. 19:30 6.sýn
Frumuppfærsla á áður ósýndu verki eins helsta leikskálds Íslendinga.
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 22/2 kl. 20:00 Mið 8/3 kl. 20:00 Mið 22/3 kl. 20:00
Mið 1/3 kl. 20:00 Mið 15/3 kl. 20:00 Mið 29/3 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Íslenski fíllinn (Brúðuloftið)
Lau 18/2 kl. 13:00 Lau 18/2 kl. 15:00
Aukasýningar - aðeins þessar sýningar