Morgunblaðið - 07.03.2017, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2017
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður
Samtaka iðnaðarins og forstjóri Kjör-
íss, er formaður stjórnar Lífeyris-
sjóðs verslunarmanna. Hún sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að sér
litist vel á þá fyrirætlun Bjarna Bene-
diktssonar forsætisráðherra að láta
fara fram allsherjar úttekt á lífeyris-
sjóðakerfi landsmanna og þeim hætt-
um sem kunna að leynast í kerfinu til
framtíðar.
„Ég held að ég sem stjórnarfor-
maður myndi taka vel í þær hug-
myndir forsætisráðherra, að sett yrði
gólf á erlendar fjárfestingar lífeyris-
sjóða. Ég hef bæði talað fyrir því sem
stjórnarformaður Lífeyrissjóðs versl-
unarmanna og eins sem formaður
Samtaka iðnaðarins. Það er orðið
mjög knýjandi að taka mjög afger-
andi skref í afléttingu hafta og hluti af
þeirri vinnu gæti verið að setja gólf á
fjárfestingar lífeyrissjóðanna erlend-
is,“ sagði Guðrún.
Ekki við sjóðina að sakast
Guðrún var spurð hvað hún segði
um orð forsætisráðherra um það að
lífeyrissjóðirnir væru orðnir mjög
fyrirferðarmiklir í atvinnulífinu: „Það
þarf ekki að koma neinum á óvart að
lífeyrissjóðirnir eru orðnir fyrirferð-
armiklir í íslensku atvinnulífi, því þeir
hafa verið með fjárfestingar sínar
inni í lokuðu hagkerfi. Það hlýtur
hver maður að sjá að fjárfestingar-
þörf sjóðanna er mjög mikil og við
höfum ekki getað farið út með fjár-
magnið. Þetta hafa verið smá-
skammtalækningar, sem ekki hafa
dugað til. Því er ekki við sjóðina að
sakast í þeim efnum,“ sagði Guðrún.
Guðrún sagðist telja að áform for-
sætisráðherra um að láta gera úttekt
á lífeyrissjóðakerfinu væru af hinu
góða. „Ég fagna þeim áformum for-
sætisráðherra og vil bara beina því til
hans og annarra í ríkisstjórn að slík
úttekt verði gerð í góðri samvinnu við
Landssamtök lífeyrissjóða. Slík út-
tekt held ég að yrði til góða fyrir sjóð-
ina í heild og fagna þessum áformum
forsætisráðherra,“ sagði Guðrún.
Dreifum fjárfestingum
Harpa Ólafsdóttir, forstöðumaður
kjaramálasviðs Eflingar, er formaður
stjórnar lífeyrissjóðsins Gildi. Harpa
var í gær spurð hvernig hún teldi að
stjórn sjóðsins litist á hugmyndir for-
sætisráðherra um gólf á erlendar
fjárfestingar lífeyrissjóða:
„Það er náttúrlega í höndum for-
sætisráðherra hvernig hann er að
móta hugmyndir og skipa í nefndir.
En við í stjórn sjóðsins vinnum auð-
vitað bara samkvæmt okkar fjárfest-
ingastefnu, sem miðast við það að fá
sem mesta dreifingu í fjárfestingum,
til þess að vera með sem minnsta
áhættu,“ sagði Harpa.
Spurð um þann möguleika sem for-
sætisráðherra orðaði, að atkvæðis-
réttur lífeyrissjóða í félögum sem
þeir eiga hluti í yrði takmarkaður,
vegna fyrirferðar sjóðannái atvinnu-
lífinu, sagði Harpa: „Við hjá Gildi er-
um að dreifa okkar áhættu og okkar
sjóður á ekki það mikið hlutfallslega í
hverju félagi, að við séum þar ráð-
andi. Vissulega þurfum við og viljum
koma okkar áherslum að og við erum
svo sannarlega ekki að horfa til þess
að vera með okkar stjórnarmenn í
stjórnum félaga, þar sem Gildi á hlut,
heldur erum við að horfa á þetta út
frá því að vera ábyrgir fjárfestar, að
fara yfir samfélagslega ábyrgð og
hvernig við teljum að eigi að koma að
regluverkinu.“
Fagnar áformum um sjóðaúttekt
Formaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna styður að sett verði gólf á erlendar fjárfestingar lífeyrissjóða
Telur að slíkt geti orðið afgerandi skref við afléttingu hafta Smáskammtalækningar hafi ekki dugað til
Guðrún
Hafsteinsdóttir
Harpa
Ólafsdóttir
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Nemendur í 9. og 10. bekk grunn-
skólanna þreyta í dag í fyrsta sinn
rafrænt samræmd könnunarpróf í
ensku, stærðfræði og íslensku.
Standa prófin út þessa viku. Hér um
bil 4.000 nemendur eru á landsvísu í
báðum árgöngum, þannig að í heild-
ina eru það um 8.000 nemendur sem
þreyta prófin, en hvorum bekk um
sig eru úthlutaðir tveir dagar til þess
að ljúka prófunum. Heildar-
einkunnir fyrir prófin verða gefnar í
bókstöfunum A, B+, B, C+, C og D.
Ákveðið var í febrúar á síðasta ári
að samræmd könnunarpróf af þessu
tagi yrðu framvegis lögð fyrir nem-
endur í 9. bekk að vori en ekki 10.
bekk að hausti líkt og verið hafði.
Þetta verður því í eina skiptið sem
báðir bekkir þreyta prófið samtímis.
Í tilkynningu frá menntamála-
ráðuneytinu kemur fram að með því
að færa prófið til 9. bekkjar verði
nemendum, forráðamönnum þeirra
og kennurum gefið meira svigrúm til
þess að bregðast við og móta
áherslur í námi í 10. bekk.
Sjálfsvald framhaldsskólanna
Í svörum Menntamálastofnunar
við fyrirspurn Morgunblaðsins kem-
ur fram að þar sem innritun í fram-
haldsskóla sé á ábyrgð skólanna
sjálfra sé þeim það í sjálfsvald sett
hvort þeir nýti sér einkunnir úr sam-
ræmdu prófunum í 9. bekk til þess
að greina á milli væntanlegra ný-
nema. Ákveði þeir það, þarf það hins
vegar að vera tekið fram í inntöku-
skilyrðum þeirra, sem birt eru á
heimasíðum skólanna. Samkvæmt
þeim upplýsingum sem Mennta-
málastofnun hefur frá framhalds-
skólunum hyggjast þeir skólar sem
ætla að kalla eftir þessum gögnum
að nýta þau til að velja á milli nem-
enda sem hafa sömu eða sambæri-
lega einkunn úr lokaprófi í grunn-
skóla, en stofnunin vísar að öðru
leyti á skólana sjálfa um inntökuskil-
yrði þeirra.
Prófið tekið í gegnum vafra
Prófin eru nú haldin á rafrænan
hátt og fara þau fram í sama prófa-
umhverfi og notað var í samræmd-
um prófum í 4. og 7. bekk í sept-
ember síðastliðnum. Í svörum
Menntamálastofnunar segir að nem-
endur þreyti prófin enn sem komið
er á tölvur sem skólarnir sjálfir hafi
til umráða, en ekki sé hægt að segja
hvort það verði gert í framtíðinni,
eða hvort nemendur muni síðar geta
notað eigin tölvur við próftökuna.
Stofnunin segir að almennt séð sé
fremur lítil hætta á prófasvindli, þar
sem vafrinn sem prófið er tekið á
læsir tölvunni á meðan. Nemendur
komast þannig ekki á netið í þeirri
tölvu sem notuð er við prófið.
Samræmdu prófin hefjast í dag
Nemendur í 9. og 10. bekk þreyta samræmd könnunarpróf næstu daga Um 8.000 nemendur í
heildina Verða framvegis lögð fyrir nemendur í 9. bekk Prófað í íslensku, ensku og stærðfræði
Morgunblaðið/Eyþór
Samræmd próf Nemendur þreyta hér samræmt próf með gamla laginu, en
rafrænt próf verður lagt fyrir 9. og 10. bekk í fyrsta sinn í dag.
Húsin sjö sem eiga að rísa við Hafnartorg í
miðbæ Reykjavíkur eru smám saman að koma
upp úr jörðinni. Unnið hefur verið á fullu í vetur.
Stundum þurfa smiðirnir að nota heitt vatn til að
bræða snjó eða hita mótin áður en steypt er. 76
íbúðir verða í húsunum 7 sem þarna rísa, auk
þess sem gert er ráð fyrir skrifstofuhúsnæði og
aðstöðu fyrir þjónustu og verslun á jarðhæð.
Áætlað er að ljúka smíði húsanna á næsta ári.
Miðbæjarhúsin eru að koma upp úr jörðinni
Morgunblaðið/Eggert
Snjórinn bræddur við framkvæmdir á Hafnartorgi
Ekki er eining um það innan Al-
þýðusambands Íslands að fresta
uppsögn kjarasamninga um eitt ár,
sem ákveðin var um seinustu mán-
aðamót. Rafiðnaðarmenn eru ósáttir
við þá ákvörðun samninganefnda
ASÍ og SA, þar sem forsendur
samninga voru brostnar.
Í nýrri ályktun miðstjórnar Raf-
iðnaðarsambands Íslands (RSÍ),
sem er eitt af fimm landssam-
böndum ASÍ, er lýst yfir „mikilli
óánægju með ákvörðun samninga-
nefndar ASÍ um að segja ekki kjara-
samningum upp þrátt fyrir þá stöðu
að forsendur kjarasamninganna hafi
brostið,“ eins og þar segir.
Hallar á félagsmenn RSÍ
„Ljóst er að RSÍ mun skoða að-
komu sambandsins að sameiginlegri
kjarasamningagerð almennra kjara-
samninga á næstu mánuðum enda
hallar nokkuð á félagsmenn aðildar-
félaga RSÍ í launaþróun undanfar-
inna ára,“ segir í ályktun mið-
stjórnar RSÍ. omfr@mbl.is
Ósáttir við
ákvörðun
ASÍ um
frestun
Skoða aðkomu
að gerð samninga