Morgunblaðið - 07.03.2017, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.03.2017, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2017 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Fyrirbyggir exem • Betri og sterkari fætur Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Ingibjörg Auðunsdóttir, kenn-ari í áratugi og síðar sérfræð-ingur hjá Miðstöð skólaþró-unar við Háskólann á Akureyri, hefur síðustu tvo áratug- ina unnið með nemendum, for- eldrum og starfsmönnum skólanna að bættum samskiptum. „Um alda- mótin beindi ég sjónum mínum einkum að líðan drengja, en sjö ár- um síðar fóru grunnskólarnir á Ak- ureyri í auknum mæli að biðja mig um að aðstoða stúlkurnar,“ segir Ingibjörg, sem á morgun, 8. mars, á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna, verður einn þriggja fyrirlesara á há- degisfundi með yfirskriftinni Líðan ungs fólks – hvað er til ráða? í Borgum á Akureyri. Erindi Ingibjargar nefnist Ber- högg og bjargráð – erfið samskipti og líðan ungra stúlkna. „Ég fjalla um erfiðleika þeirra, og þá sér- staklega kvíða, sem hefur aukist mikið undanfarin ár. Samkvæmt niðurstöðum Rannsóknamiðstöðv- arinnar Rannsóknir & greining þjáðust 5,12% stúlkna í 9. og 10. bekk af kvíða aldamótaárið en 16,79% árið 2016,“ upplýsir hún. Stúlkurnar afskiptar Þegar Ingibjörg hóf að einbeita sér að líðan stúlknanna komst hún að raun um að þær höfðu verið af- skiptar og strákarnir meira undir smásjánni allar götur síðan 1970 að eineltishugtakið kom fyrst fram á sjónarsviðið. Neikvæð og erfið hegðun stelpnanna var einfaldlega ekki eins sýnileg og strákanna. „Ég leitaði að íslensku efni, en greip í tómt. Efni úr verkfærakistu viðurkenndrar erlendrar eineltis- áætlunar, sem ég hafði unnið með, dugði ekki til þegar eingöngu stúlk- urnar áttu í hlut. Helga Halldórs- dóttir, sem ég leiðbeindi við meist- araprófsritgerð um líðan ungra stúlkna, fann bandarískt efni, sem við þýddum í sameiningu og reynd- ist okkur afar gagnlegt.“ Í erindi sínu fjallar Ingibjörg lítillega hvernig þær nálguðust verkefnið, tekin voru einstaklings- viðtöl við stúlkur og hlustað á það sem þær höfðu að segja um stöðu sína og hvaða leiðir þær sáu færar. Síðan var fundað með foreldrum og stúlkunum var boðið upp á tíu um- ræðufundi, einn í viku. „Þar fengu þær tækifæri til að skoða samskipti sín í öruggu umhverfi gegnum leiki og ýmislegt skemmtilegt. Þeim var hjálpað að horfa inn á við og að taka á eigin málum. Eftir hvern fund fengu foreldrarnir bréf þar greint var frá umfjöllunarefninu án þess að brjóta trúnað við stúlkurnar. Þannig var foreldrum gefinn kostur á að vera þátttakendur og ræða málin við dætur sínar. Verkefninu lýkur síðan með sameiginlegum fundi stúlknanna, kennara og for- eldra þar sem málin eru gerð upp.“ Stundum mikið drama Ingibjörg segir flestar erlendar Berhögg og bjargráð í lífi ungra stúlkna Alþjóðlegs baráttudags kvenna verður minnst með margvíslegum hætti á morg- un. Á Akureyri efna Zontaklúbburinn Þórunn Hyrna og Zontaklúbbur Akureyrar í samstarfi við Jafnréttisstofu til hádegisfundar um líðan ungs fólks. Ingibjörg Auðunsdóttir, kennari og sérfræðingur hjá Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, er einn þriggja fyrirlesara, en hún fjallar um erfið samskipti og líðan ungra stúlkna í erindinu Berhögg og bjargráð. GettyImages Samfélagsmiðlar Rannsóknir sýna að tengsl eru á milli mikillar notkunar ungra stúlkna á samfélagsmiðlum og þunglyndis og kvíða. Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna sem er á morgun, miðvikudag 8. mars, verður í Hannesarholti í Reykjavík viðburður þar sem hjónin Gunnar Hersveinn og Friðbjörg Ingi- marsdóttir kynna bókina Hugskot, skamm-, fram- og víðsýni. Í tilkynn- ingu segir að markmið bókarinnar sé að upplýsa lesandann um grund- vallaratriði í mannlegri tilveru, eins og staðalímyndir, fordóma, jafnrétti, friðarmenningu, borgaravitund og hvernig bæta megi samfélagið. Í ritdómi um Hugskot í Tímaritinu uppeldi og menntun (2. tbl. 2016) segir: „Þetta er falleg, áhugaverð, gagnleg og mikilvæg bók – kannski mikilvægasta bókin. Ef allur almenn- ingur les þessa bók mun hamingja og farsæld aukast, borgaravitund verður sterkari og ekki síst verður lýðræðið virkara.“ Gunnar Hersveinn rithöfundur er menntaður í heimspeki og blaða- mennsku og höfundur nokkurra bóka, þar á meðal metsölubókarinnar Gæfuspor – gildin í lífinu. Friðbjörg Ingimarsdóttir framkvæmdastýra hefur MA-gráðu í mennta- og menn- ingarstjórnun og er sjálfstætt starf- andi fræðimaður. Frá kl. 18.30 getur fólk keypt sér léttan kvöldverð í veitingastofum Hannesarholts. Borðapantanir í síma 511-1904 eða hannesarholt@hann- esarholt.is. Bókaspjall í Hannesarholti á morgun, miðvikudag Erindi Friðbjörg og Gunnar tala í dag. Skamm-, fram- og víðsýni Kína heillar marga enda er þetta risa- stóra land í austri ríkt af menningu og sögu, náttúruundrum og stór- borgum. Á Wikipedia segir að í Kína sé ein elsta siðmenning á jörðinni og ritkerfið þar sé það elsta sem hafi verið í sífelldri notkun. Saga landsins hafi einkennst af stríði og friði til skiptis og blóðugum erjum mismun- andi keisaraætta. Nýlendustefna Evr- ópumanna, innrás Japana og borg- arastríð hafi bitnað illa á Kína á 19. og 20. öld og stuðlað að núverandi skiptingu landsins. Unnur Guðjónsdóttir er vel kunnug í Kína, enda hefur hún í 24 ár staðið fyrir hópferðum til Kína, með Kína- klúbbnum sínum. Í ferðum þessum hefur Unnur sankað að sér kínversk- um munum og hún opnaði fyrsta Kínasafn á Íslandi fyrir tveimur árum, í bakhúsi heima hjá sér í Reykjavík. Unnur segir kínverskt samfélag hafa breyst mikið á undanförnum árum og hún ætlar að vera með erindi í hádeg- inu í dag, þriðjudag, í Þjóðarbókhlöð- unni sem stendur við Arngrímsgötu í Reykjavík. Erindi hennar heitir Kína, land í breytingu, og hefst klukkan 12 og stendur í klukkustund. Erindið er hluti af fyrirlestraröð Landsbókasafns Íslands – háskóla- bókasafns, Konfúsíusarstofnunar og KÍM. Allir eru hjartanlega velkomnir. Hádegisfyrirlestur í Þjóðarbókhlöðu í dag Unnur segir frá Kína og breyt- ingunum þar undanfarin ár Morgunblaðið/Sigurður Bogi Unnur Guðjónsdóttir Hún hefur farið margsinnis til Kína og er fróð um landið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.