Morgunblaðið - 07.03.2017, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 07.03.2017, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2017 Í fyrsta sinn í sögu Pritzker- verðlaunanna, virtustu viðurkenn- ingarinnar sem er veitt fyrir heildar- verk í heimi arkitektúrs, deila þeim þrír arkitektar sem starfa saman, hin katalónsku Rafael Aranda, Carme Pigem og Ramon Vilalta, en þau kalla stofu sína RCR arkitekta. Sérfræðingar í hönnun hafa fagnað valinu á þremenningunum og segja að með því sé vikið af þeirri braut að verðlauna bara svokallaðra stjörnu- arkitekta og verðlaunin séu þess í stað nú veitt fólki sem hefur einkum, markvisst og ötullega, unnið að vandaðri uppbyggingu á heimaslóð. Arkitektarnir eru frá Olot á Spáni og hafa ætíð búið þar og starfað saman síðan þau luku saman námi. Í yfirlýsingu frá Thomas J. Pritz- ker, stjórnarformanni Hyatt Found- ation sem veitir verðlaunin, segir að sterk samvinna þremenninganna, þar sem þau deila jafnt sköpunar- ferlinu öllu, listrænni sýn og ábyrgð, sé ein meginástæða þess að þau hafi orðið fyrir valinu í ár. Þá hafi verk þeirra Aranda, Pigem og Vilalta „haft áhrif langt út fyrir þeirra nán- asta umhverfi“ og í heimi alþjóða- væðingarinnar sé líka mikilvægt að lyfta undir það sem vel er gert heima fyrir. Meðal þekktustu bygginga þre- menninganna eru Soulages-safnið í Rodez í Frakklandi, sem þykir afar frumlegt í útfærslu með sterkum tengingum við módernismann í byggingarlist, og kjarni bygginga í Barselóna, þar sem meðal annars er bókasafn, miðstöð fyrir eldri borg- ara og leikvöllur. Erlendir miðlar benda einnig á frjálsíþróttavöllinn Tussols-Basil og veitingastaðinn Les Cols, sem er að hluta utan dyra, sem framúrskarandi hönnunarverk. Arkitektarnir taka formlega við Pritzker-verðlaununum við athöfn í Tókýó 20. maí næstkomandi. AFP Einkennandi Bygging eftir RCR arkitekta, í miðbæ L’Hospitalet de Llobregat, rétt fyrir sunnan Barselóna. Þau Ar- anda, Pigem og Vialta hljóta Pritzker-verðlaunin í ár og eru fyrst arkitekta til að deila verðlaununum. Þrjú hljóta Pritzker Verðlaunabygging Matsveinar í eldhúsi veitingastaðarins Les Cols sem þau Aranda, Pigem og Vialta hönnuðu og hafa hlotið mikið lof fyrir. Caput-hópurinn, Kammersveit Reykjavíkur og Stórsveit Reykja- víkur fá hæstu styrkina úr Tónlist- arsjóði að þessu sinni, fjórar millj- ónir króna hver hópur, en menntamálaráðherra hefur sam- þykkt tillögu tónlistarráðs um út- hlutun úr sjóðnum fyrir fyrra tíma- bil ársins. Að þessu sinni bárust alls 149 um- sóknir um styrki úr sjóðnum og var sótt um rúma 171 og hálfa milljón króna. Heildarráðstöfunarfé Tón- listarsjóðs á þessu ári er 66,5 millj- ónir. Styrkir eru veittir nú til 52 verk- efna að upphæð 20,24 milljónir kr. Þá eru í gildi þrír verkefnasamn- ingar, að upphæð 10 milljónir, og einnig samþykkti ráðherra úthlutun til sjö stærri verkefna til eins árs, samtals 16,25 milljónir kr. Úthlut- unin úr Tónlistarsjóði nú er því sam- tals kr. 46.490.000. Stærri úthlutun Eftirtaldir sjö hópar og verkefni fá svokallaðar „stærri úthlutanir“ til eins árs:  CAPUT nýi músíkhópurinn – samstarfssamningur. Fjórar millj- ónir.  Kammersveit Reykjavíkur, vegna starfseminnar 2017-2019. Fjórar milljónir.  Stórsveit Reykjavíkur. Tónleika- röð og starfsemi sveitarinnar, eink- um í Hörpu. Fjórar milljónir.  Tónskáldafélag Íslands, vegna Myrkra músíkdaga. Þrjár milljónir.  Víkingur Heiðar Ólafsson, vegna Reykjavík Midsummer Music. Tvær milljónir.  FÍH, vegna landsbyggðar- tónleika. 1,75 milljónir.  Kammerhópurinn Nordic Affect. 1,5 milljón. Þriggja ára samningar  Sumartónleikar í Skálholti, 2015- 2017. Þrjár milljónir  Jazzhátíð Reykjavíkur, 2016- 2018. 2,5 milljónir.  Tónlistarhátíð unga fólksins, 2015-2017. 500 þúsund. Verkefnastyrkir  Mengi, menningarhúsið við Óð- insgötu fær hæsta styrkinn, tvær milljónir króna.  Tónleikaröð Jazzklúbbsins Múlans í Hörpu. Ein milljón.  Listvinafélag Hallgrímskirkju. Ein milljón.  Alþjóðlega tónlistarakademían í Hörpu. Ein milljón.  Kammertónleikar Camerarctica 2017. Ein milljón.  Ung Nordisk Musik 2016: Music and Space. Ein milljón.  Reykholtshátíð 2017. 800 þúsund.  Strokkvartettinn Siggi. 800 þúsund.  Hymnodia og Voces Thules. 700 þúsund.  15:15 tónleikasyrpan. 500 þúsund.  Listahátíðin Cycle 2017. 500 þúsund.  Útgáfa tuga tónverka eftir Atla Heimi Sveinsson. 500 þúsund.  Útvarpsþáttur KÍTÓN á X977. 500 þúsund.  Músík í Mývatnssveit 2017. 500 þúsund.  ReykjavíkBarokk: Elísabet og Halldóra – Saga tveggja siðbótar- kvenna. 500 þúsund.  Kammertónleikar á Kirkjubæj- arklaustri – Sönghátíð og tónlist- arsmiðja fyrir börn. 400 þúsund.  Tónleikahald í Laugarborg. 400 þúsund.  Kór Langholtskirkju – Tvö verk- efni. 400 þúsund.  Íslenski flautukórinn – Andrými í litum og tónum fyrri hluti 2017. 400 þúsund.  Tónleikar Electra Ensemble á Sí- gildum sunnudögum í Hörpu. 400 þúsund.  Blúshátíð í Reykjavík. 400 þús- und. Barokkbandið Brák, vegna 11 m/s. 400 þúsund.  Anna Gréta Sigurðardóttir, vegna Anna & Sölvi fara hringinn. 400 þús- und. Þá fá 22 önnur tónlistarverkefni lægri styrki, á bilinu 90 til 300 þús- und krónur. Lista yfir alla styrkþega má nálgast á vef Rannís. Um sextíu tónlistarverkefni styrkt  Caput-hópurinn, Kammersveitin og Stórsveitin fá hæstu styrkina Morgunblaðið/Styrmir Kári Sveifla Jazzklúbburinn Múlin er styrktur um eina milljón króna. Morgunblaðið/Einar Falur Víkingur Heiðar Midsummer Music er styrkt um tvær milljónir kr. Morgunblaðið/ÞÖK Kammertónlist Camerarctica- hópurinn er styrktur um milljón kr. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Úti að aka (Stóra svið) Fim 9/3 kl. 20:00 3. sýn Mið 22/3 kl. 20:00 8. sýn Lau 1/4 kl. 20:00 aukas. Fös 10/3 kl. 20:00 aukas. Fös 24/3 kl. 20:00 aukas. Mið 5/4 kl. 20:00 aukas. Lau 11/3 kl. 20:00 4. sýn Lau 25/3 kl. 20:00 9. sýn Fim 6/4 kl. 20:00 aukas. Sun 12/3 kl. 20:00 5. sýn Sun 26/3 kl. 20:00 10. sýn. Fös 7/4 kl. 20:00 aukas. Fös 17/3 kl. 20:00 6. sýn Þri 28/3 kl. 20:00 aukas. Fim 20/4 kl. 20:00 aukas. Lau 18/3 kl. 20:00 aukas. Fim 30/3 kl. 20:00 aukas. Sun 19/3 kl. 20:00 7. sýn Fös 31/3 kl. 20:00 aukas. Sprenghlægilegur farsi eins og þeir gerast bestir. Elly (Nýja sviðið) Mán 13/3 kl. 20:00 Fors. Fim 30/3 kl. 20:00 aukas. Fös 28/4 kl. 20:00 16.sýn Þri 14/3 kl. 20:00 Fors. Fös 31/3 kl. 20:00 7. sýn Lau 29/4 kl. 20:00 17.sýn Mið 15/3 kl. 13:00 Fors. Lau 1/4 kl. 20:00 8. sýn Sun 30/4 kl. 20:00 18.sýn Fim 16/3 kl. 13:00 Fors. Þri 4/4 kl. 20:00 9. sýn Fös 5/5 kl. 20:00 aukas. Fös 17/3 kl. 20:00 Fors. Mið 5/4 kl. 20:00 10. sýn Lau 6/5 kl. 20:00 19.sýn Lau 18/3 kl. 20:00 Frums. Fim 6/4 kl. 20:00 11. sýn Sun 7/5 kl. 20:00 20.sýn Sun 19/3 kl. 20:00 2. sýn Fös 7/4 kl. 20:00 aukas. Mið 10/5 kl. 20:00 21. sýn Þri 21/3 kl. 20:00 3. sýn Lau 8/4 kl. 20:00 12. sýn Fim 11/5 kl. 20:00 22.sýn Mið 22/3 kl. 20:00 aukas. Þri 11/4 kl. 20:00 aukas. Fös 12/5 kl. 20:00 23.sýn Fös 24/3 kl. 20:00 4. sýn Fös 21/4 kl. 20:00 13. sýn Mið 17/5 kl. 20:00 aukas. Lau 25/3 kl. 20:00 5 sýn Lau 22/4 kl. 20:00 14. sýn Fim 18/5 kl. 20:00 30. sýn Sun 26/3 kl. 20:00 6. sýn Sun 23/4 kl. 20:00 15 sýn Fös 19/5 kl. 20:00 aukas. Þri 28/3 kl. 20:00 aukas. Fim 27/4 kl. 20:00 aukas. Lau 20/5 kl. 20:00 32. sýn Samstarfsverkefni við Vesturport MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Lau 8/4 kl. 20:00 Fös 28/4 kl. 20:00 Lau 20/5 kl. 20:00 152 s. Þri 11/4 kl. 20:00 Lau 6/5 kl. 20:00 Fim 25/5 kl. 20:00 167 s. Mið 19/4 kl. 20:00 Fös 12/5 kl. 20:00 Fös 26/5 kl. 20:00 176 s. Lau 22/4 kl. 20:00 Fös 19/5 kl. 20:00 112 s. Lau 27/5 kl. 20:00 157 s. Glimmerbomban heldur áfram! Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Sun 12/3 kl. 13:00 aukas. Lau 1/4 kl. 13:00 aukas. Sun 30/4 kl. 13:00 97 s. Sun 19/3 kl. 13:00 aukas. Lau 8/4 kl. 13:00 86 s. Sun 7/5 kl. 13:00 85 s. Sun 26/3 kl. 13:00 aukas. Sun 23/4 kl. 13:00 102 s. Sun 14/5 kl. 13:00 123 s. Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar Vísindasýning Villa (Litla svið ) Sun 12/3 kl. 13:00 11. sýn Sun 26/3 kl. 13:00 aukas. Lau 8/4 kl. 13:00 aukas. Sun 19/3 kl. 13:00 Táknmáls. Lau 1/4 kl. 13:00 aukas. Ferðalag fyrir börn um töfraheim vísindanna. Illska (Litla sviðið) Fös 10/3 kl. 20:00 Lau 18/3 kl. 20:00 Lau 11/3 kl. 20:00 Lau 1/4 kl. 20:00 Samstarfsverkefni við Óskabörn ógæfunnar - Aðeins þessar sýningar Fórn (Allt húsið) Fim 16/3 kl. 19:00 Frums. Mið 29/3 kl. 19:00 3. sýn Sun 9/4 kl. 19:00 5 sýn Fim 23/3 kl. 19:00 2. sýn Sun 2/4 kl. 19:00 4. sýn Sköpunarkrafturinn ræður ríkjum um allt leikhúsið Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið) Þri 21/3 kl. 10:00 Mið 22/3 kl. 11:30 Fim 23/3 kl. 13:00 Þri 21/3 kl. 11:30 Mið 22/3 kl. 13:00 Fös 24/3 kl. 10:00 Þri 21/3 kl. 13:00 Fim 23/3 kl. 10:00 Fös 24/3 kl. 11:30 Mið 22/3 kl. 10:00 Fim 23/3 kl. 11:30 Uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.