Morgunblaðið - 07.03.2017, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 07.03.2017, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2017 Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 plankaparket Verðdæmi: 190 mm Eik Rustik burstuð mattlökkuð 6.990.- m2 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Mykines, 19 þúsund tonna flutn- ingaferja Smyril Line Cargo, er væntanleg til Þorlákshafnar föstu- daginn 31. mars næstkomandi. Það verður fyrsta áætlunarferð skipsins á milli Rotterdam og Þorlákshafnar. Skipið heldur svo héðan að kvöldi sama dags. Eykur samkeppni í flutningum „Viðtökurnar hafa verið mjög góðar,“ sagði Linda Björk Gunn- laugsdóttir, framkvæmdastjóri Smyril Line Cargo á Íslandi. „Við höfum verið úti að selja flutninga og það hefur gengið mjög vel. Það er augljóst að það er mikill spenningur fyrir þessu skipi. Þetta eykur sam- keppnina í flutningum fyrir lands- menn.“ Linda sagði að búið væri að semja um flutninga vegna almenns vöruinnflutnings og einnig vegna bíla, véla og tækja. Einnig hafa fisk- útflytjendur tek- ið þessum nýja flutnings mögu- leika vel. „Skipið er sér- hæft fyrir alls konar flutninga, meðal annars á bílum, vélum og tækjum. Farm- urinn er allur inni og enginn sjór leikur um vörurnar. Svo er það mikill munur að geta keyrt tengi- vögnum beint inn og út úr skipinu. Í staðinn fyrir að nota gáma þá not- um við tengivagna. Það er hægt að keyra öllu sem er ökufært inn og út úr skipinu. Það er ekki verið að hífa neitt,“ sagði Linda. Skipið getur tekið allt að 90 tengivagna og 500 bíla í ferð. Stór rampur í smíðum Framkvæmdum við aðstöðu fyrir skipið í Þorlákshöfn miðar mjög vel og sagði Linda gaman að vinna með þeim í Þorlákshöfn að undirbún- ingnum. „Það er verið að gera ramp fyrir skipið við Skarfaskersbryggju. Það þarf töluvert stóran ramp því opið á skipinu er 22 metra breitt. Verkið hefur gengið vel og því verður lokið 31. mars,“ sagði Linda. Skarfa- skersbryggja er næsta bryggja við Svartskersbryggju sem Herjólfur leggst að. Rampurinn sem Herj- ólfur notar er of mjór fyrir Myk- ines. Flutningaferjan leggur af stað frá Rotterdam á mánudagskvöldi og kemur til Þorlákshafnar aðfaranótt föstudags, samkvæmt áætlun. Hún fer svo á föstudagskvöldi frá Þor- lákshöfn. Brottfarartíminn verður sveigjanlegur með tilliti til fersk- fiskútflutnings. Ferjan kemur til Rotterdam á mánudagseftirmiðdegi og verður því hægt að afhenda fisk- inn til kaupenda í Evrópu á þriðju- dagsmorgni, að sögn Lindu. Ljósmynd/Smyril Line Cargo Mykines Flutningaferjan mun halda uppi áætlun á milli Þorlákshafnar og Rotterdam í Hollandi. Skipið er ekjuskip og er flutningavögnum og ökutækjum ekið til og frá borði. Farmurinn er í skjóli fyrir sjógangi, veðri og vindum. Mykines kemur 31. mars  Ferjusiglingar með vörur milli Þorlákshafnar og Rotter- dam  Undirbúningur gengur vel  22 metra breiðar dyr Linda Björk Gunnlaugsdóttir Jóhannes Tryggvason framkvæmdastjóri lést á Landspítalanum laugardaginn 4. mars, 71 árs að aldri, en hann var fæddur 5. desember 1945. Jóhannes lauk verslunarprófi frá Verzlunarskóla Ís- lands árið 1963 og starfaði síðan hjá ýmsum fyrirtækjum, meðal annars, Garðari Gíslasyni, Sambandi íslenskra samvinnu- félaga og Almenna bókafélaginu. Jóhannes gekk ævinlega undir nafninu Dengsi og árið 1987 stofnaði hann skiltagerðina og heildversl- unina Dengsa ehf., sem sett hefur upp og þjónustar fjölda veltiskilta á höfuðborgarsvæðinu. Þá var fyrir- tækið frumkvöðull í gerð og upp- setningu ljósleiðara og díóða til að lýsa upp bæði innanhúss og utan. Jóhannes starfaði mikið fyrir Knatt- spyrnufélagið Víking, sat í mörgum stjórn- um og var heið- ursfélagi í Víkingi. Hann lék um 100 leiki með meistaraflokki fé- lagsins í knattspyrnu og lék einnig hand- knattleik með meist- araflokki félagsins. Hann starfaði ötullega með skíðadeild Vík- ings á árum áður og var liðtækur kylfingur. Hann lét það ekki aftra sér við íþróttaiðkun þótt hann hefði misst handlegg við öxl í vinnu- slysi þegar hann var ellefu ára gam- all. Eiginkona Jóhannesar er Mar- grét Kristinsdóttir kennari, sem starfaði lengst af í Fossvogsskóla. Börn þeirra eru Sveinbjörn, Ína Rós, Karólína og Kristín Dagmar. Barnabörnin eru átta. Andlát Jóhannes Tryggvason Bjarni Benediktsson forsætisráð- herra er kominn til Bandaríkjanna til þess að taka þátt í viðburðum á vegum Sameinuðu þjóðanna í New York og Alþjóðabankans í Wash- ington tengt HeForShe-leiðtoga- hlutverki hans. Hann mun eiga fundi með helstu ráðamönnum stofnananna tveggja, forseta alls- herjarþingsins og yfirmönnum und- irstofnana Sameinuðu þjóðanna. Í forsvari fyrir átakið Forsætisráðherra er einn af tíu þjóðarleiðtogum í forsvari fyrir átaki UN Women sem miðar að því að fá karlmenn um allan heim til þess að taka þátt í baráttunni fyrir jafnrétti – „HeforShe 10x10x10 Impact Champions“. Um er að ræða 10 þjóðarleiðtoga, 10 forstjóra al- þjóðlegra fyrirtækja og 10 háskóla- rektora. Bjarni kynnir HeForShe í Bandaríkjunum Morgunblaðið/Eggert HeForShe Bjarni mun hitta ráðamenn SÞ. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Fram kemur í frétt Fjármálaeftirlits- ins á heimasíðu þess í gær, að það sé verkefni FME að rannsaka mál á sínu verksviði, svo sem vegna brota á lög- um um fjármálafyrirtæki og lögum um verðbréfaviðskipti og eftir atvik- um kæra til viðeigandi yfirvalda. Fram kemur í sömu frétt að vegna fréttar í Morgunblaðinu í gærmorgun, vilji Fjármálaeftirlitið koma upplýs- ingum á framfæri er varði Borgun hf.. Raunar geti lögregla/saksóknari í mörgum tilvikum ekki hafið rannsókn á málum nema að undangenginni kæru frá Fjármálaeftirlitinu. Auk þess hafi það tíðkast að senda yfir- völdum ábendingu eða vísun, ef Fjár- málaeftirlitið verði vart við hugs- anlegt brot á öðrum lögum, til dæmis brot á almennum hegningarlögum eða lögum um aðgerðir gegn pen- ingaþvætti. Það sé föst regla hjá stofnuninni að upplýsa ekki um slík mál, enda geti verið að um viðkvæma rannsóknar- hagsmuni sé þar að ræða. Fjármála- eftirlitið geri hins vegar ekki at- hugasemdir við það að viðtakandi slíkra mála upplýsi um hvort mál hafi borist honum. „Morgunblaðið hefur eftir stjórn- arformanni Borgunar hf. að það sé undarleg stjórnsýsla, af hálfu Fjár- málaeftirlitsins að upplýsa ekki Borg- un um vísun máls til Héraðssaksókn- ara. Fjármálaeftirlitið telur þvert á móti eðlilega stjórnsýslu að viðtak- andi ábendingar eða vísunar meti hvernig eðlilegt er að upplýsa al- menning og hlutaðeigandi um tilvist eða efni máls,“ orðrétt í frétt FME. Þar segir jafnframt: „Fjármálaeft- irlitið sér einnig ástæðu til að gera at- hugasemd við að í frétt Morgunblaðs- ins er látið að því liggja að upp- lýsingaleki hafi átt sér stað vegna framangreindrar vísunar. Fyrir ligg- ur að héraðssaksóknari hefur upplýst fjölmiðla um málið og engar vísbend- ingar um upplýsingaleka eru fyrir- liggjandi.“ Saksóknari upplýsti málið  FME segir engar vísbendingar um upplýsingaleka

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.