Morgunblaðið - 07.03.2017, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.03.2017, Blaðsíða 21
til í alheiminum trúi ég að allt hið góða og glaða umvefji hann í nýj- um, betri heimkynnum. Og trúi að nú líði honum vel. Guð blessi elsku bróður minn. Berglind. Elskulegur Þórður frændi minn hefur lokið jarðvist sinni og fengið sína hinstu hvíld. Þegar ég hugsa um hann Þórð þá koma upp í huga mér þeir mannkostir sem hann bjó yfir eins og þrautseigja, glettni, stríðni og gjafmildi. Hann lét oftast fötlun sína ekki stöðva sig. Hér fyrr á ár- um var hann daglegur gestur í Laugardalslauginni, hann vann eins lengi og unnt var, lengst af í Kornmarkaðnum og fór í mörg ferðalög bæði innanlands og utan. Hann var samviskusamur og fór sparlega með fjármuni en gat ver- ið þrjóskari en margur. Honum var mjög annt um okkur frænd- systkinin og börnin í fjölskyldunni og var duglegur að muna eftir öll- um afmælisdögum og stórvið- burðum í lífi okkar. Á þeim dögum kom iðulega frá honum símtal og gjafir sem oft voru keyptar til styrktar góðu málefni. Ófá höfum við fengið silfurskeiðar með ágröfnum nöfnum okkar frá Sidda gullsmiði í Kópavogi og oftar en ekki hafði Þórður lagt mikið á sig til þess að koma með þær gjafir færandi hendi. Þrátt fyrir að heilsu Þórðar hafi hægt og bítandi hrakað á undan- förnum árum þá hafði hann unun af mannamótum og ávallt var stutt í skemmtileg tilsvör og glettnissvip. Mikið óska ég þess að hann sé nú kominn á góðan stað í skemmtilegan félagsskap og er ég viss um að áfram sé stutt í kímni þar sem hann nú er staddur. Elsku Þórður, hvíl í friði. Þín frænka Hrönn. Hún hafði ótrúlegt minni og missti ekki af einum einasta fréttalestri. Hún var ræðin um málefni líðandi stundar og hafði öll nýjustu stjórnartíðindin á tak- teinum. Hún gat greint orsök og afleiðingu stórra mála. Eitt sinn bauð Maja mér í kvöldmat að sumri til á meðan aðrir fjölskyldu- meðlimir voru í fríi. Ég kom til kvöldverðar á nýja bílnum hennar mömmu minnar. Þegar Maja, í kringum níræðisaldurinn, spurði hvernig bíll þetta væri svaraði ég að þetta væri lítill, vínrauður bíll. Henni fannst það ómerkilegt svar, vildi frekar vita hver teg- undin væri. Þegar ég sagði bílinn vera Volkswagen Polo var hún öllu sáttari. Hún hafði ekki mikla skoðun á því en þekkti þá tegund svo sannarlega. Maja passaði mig og bræður mína þegar við vorum yngri ef við vorum lasnir eða vetrarfrí var í skólum. Oft kom hún með púsl eða einhvers konar leikjaspil með sér vegna þess að Maja hugsaði fyrir öllu. Maja fór gangandi flestar sínar leiðir og kom víða við. Ég man eftir skemmtilegum sögum af henni að ganga í Kringluna til að fá aðstoð hjá og spjalla við strákana í þjónustunni hjá Síman- um. Þær eru gott dæmi um fram- takssemi Maju og hversu óhrædd hún var við nýjungar. Á efri árum tók hún upp á því að mála myndir. Á skömmum tíma náði hún upp mikilli færni í að mála glaðlegar og litskrúðugar myndir. Maja var mikil félagsvera og hafði gaman af samneyti við ann- að fólk. Eitt sinn eftir kvöldverð hjá henni slakaði ég á með bók úti á svölunum á Sléttuvegi. Þá spurði Maja mig brosandi hvort mér stæði á sama þó hún færi út til annarra íbúa sem stæðu úti á spjalli. Það væri lítið við efri árin að óttast ef allir tækju þeim eins fagnandi og hún Maja frænka. Ég vona innilega að þú dveljir sæl og glöð í Sumarlandinu – og að þar sé jafn gott að vera gestur og það var yfir kakóbolla heima hjá þér. Einar Jóhann Geirsson. MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2017 ✝ ViðarOddgeirsson fæddist í Keflavík 3. ágúst 1956. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu í Kópavogi 24. febrúar 2017. Viðar var yngst- ur fjögurra barna hjónanna Þórhild- ar Valdimarsdótt- ur, f. 16.9. 1915, d. 6.9. 1982, og Oddgeirs Friðriks Péturssonar, f. 5.7. 1914, d. 4.10. 2008. Systkini Viðars eru: Garðar, f. 1941, búsettur í Keflavík, kvæntur Helgu Gunn- laugsdóttur og eiga þau tvö börn. Eva, f. 1942, búsett í Keflavík, gift Elíasi Guðmunds- syni og eiga þau fjögur börn. Nína, f. 1947, búsett í Los Ang- eles, var gift Timo Peeltomaa, þau skildu. Viðar kvæntist 18.8. 1984 Eddu Sólrúnu Einars- Jón Hans, f. 1978, í sambúð með Ólöfu Ósk, börn þeirra eru Ester Ugla og Kjartan Tumi, Hanna Sif, f. 1981, dætur henn- ar eru Ólöf Erla og Kolbrún Emma, Ída María, f. 1989, synir hennar eru Friðjón Ingi og Karl Georg, Ingi Björn, f. 1991, í sambúð með Andreu. Viðar starfaði hjá RÚV frá árinu 1986, um tíma sem yf- irmaður tæknisviðs fréttastof- unnar. Viðar kenndi grunnnám rafiðna við Fjölbrautaskóla Suðurnesja um tveggja ára skeið, en hann var rafvirkja- meistari að mennt. Hann var ötull safnari myndbandsefnis sem tengdist Suðurnesjum og myndaði íþróttakappleiki í ára- tugi auk þess að mynda þar annað efni fyrir fréttastofu RÚV. Hann hélt úti vefsíðunni keftv.org þar sem má nálgast brot af þeim myndböndum sem hann tók upp í gegnum tíðina. Útför Viðars verður gerð frá Keflavíkurkirkju í dag, 7. mars 2017, og hefst athöfnin klukkan 13. dóttur, f. 13.2. 1956, d. 14.4. 2005, þau skildu. Viðar og Edda Sólrún áttu saman synina: Davíð, f. 12.1. 1979, í sambúð með Theódóru Friðbjörnsdóttur, Davíð á son og dóttur frá fyrra sambandi með Helgu Maríu Harð- ardóttur, Ágúst, f. 2002, og Guðlaugu Árnýju, f. 2006, Theódóra á tvær dætur, Birg- ittu og Emilíu. Þórir, f. 24.9. 1983, í sambúð með Hörpu Æg- isdóttur, þau eiga Stefaníu Lind, f. 2014, og Leó Viðar, f. 2017, fyrir á Þórir dótturina Eddu Sóleyju, f. 2005, með Dís Gylfadóttur. Sambýliskona Viðars var Ólöf Hildur Jónsdóttir, f. 10.4. 1959. Ólöf Hildur á fjögur börn, Elsku yndislegi tengdapabbi minn er farinn allt of fljótt frá okkur. Minningarnar eru svo ótal margar og skemmtilegar sem við fjölskyldan áttum með þér og Ólöfu. Allar útilegurnar á Apavatni, matarboðin, heim- sóknirnar og ekki má gleyma yndislegri viku síðasta sumar þegar þú hélst upp á 60 ára af- mælið þitt. Þá var ekkert til sparað, flottasta sumarhúsið á Íslandi tekið á leigu í heila viku og öllum nánustu ættingjum boðið. Þú varst svo góður afi og hafðir svo gaman af barnabörn- unum. Áttir alltaf til sleikjó eða súkkulaði sem þú laumaðir að börnunum. Þú varst svo stoltur af þeim. Nýjasta barnabarnið fékk einungis að njóta samveru þinnar í fjórar vikur en við mun- um segja honum frá því hversu yndislegur þú varst. Stefanía Lind á eftir að sakna þín svo mikið enda var hún mikil afa- stelpa og fannst henni ekkert skemmtilegra en að fara að „passa afa“. Við munum varð- veita með henni allar góðu og skemmtilegu minningarnar um þig. Mér fannst svo gaman að því hvað þú varst skipulagður með allt, það var öllu hent upp í excel og allir kassar merktir með mið- um í geymslunni. Það var oft sem gert var grín að þér með þetta og þá var mikið hlegið, ekki að ástæðulausu að þú varst stundum kallaður „Miðar“ . Ég er svo þakklát fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur. Þú varst alltaf tilbúinn að hjálpa, sama hvað það var, og áttir mik- inn þátt í því að gera íbúðina okkar svona fallega eins og hún er í dag. Takk fyrir að vera alltaf til staðar fyrir okkur. Við mun- um sakna þín sárt. Hvíldu í friði. Þín tengdadóttir, Harpa Ægisdóttir. Þakklæti og virðing er mér efst í huga er kvaddur er hinstu kveðju tengdafaðir minn Viðar Oddgeirsson. Viðar var hlýr og góður við mig og stelpurnar mín- ar. Frá okkar fyrstu kynnum opnaði hann faðm sinn fyrir okk- ur og lét okkur finna hversu vel- komnar við vorum í fjölskyldu hans. Fyrir það verð ég honum ævinlega þakklát. Viðar var með góða nærveru og það var skemmtilegt að setjast niður og spjalla við hann um daginn og veginn. Hann var áhugasamur um það sem við vorum að gera, leiðbeindi okkur ef því var að skipta, enda vel að sér í mörgum málefnum. Fyrir það vil ég þakka honum nú og allar góðu stundirnar sem verða aldrei frá mér teknar. Við- ar var svo mikill drifkraftur í svo mörgu og var alltaf með skemmtilega viðburði í deiglunni fyrir okkur öll. Söknuðurinn er sár og miss- irinn mikill en þó mestur hjá Ólöfu, sonum hans og fjölskyld- unni allri. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð á sorgarstund. Minningin um Viðar Odd- geirsson mun verða vel varðveitt í hjarta mér og dætra minna um ókomin ár. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Valdimar Briem.) Theódóra Friðbjörnsdóttir. Mikið var okkur brugðið þeg- ar okkur bárust þær hræðilegu fréttir að hann Viðar, sambýlis- maður æskuvinkonu okkar, hennar Ólafar Hildar, væri fall- inn frá. Viðar kom inn í vinahópinn þegar hann og Ólöf Hildur kynntust fyrir um það bil sex ár- um. Viðar var opinn og næmur á fólk og féll um leið vel inn í vina- hópinn, eins og áttunda hjólið. Hann var alltaf reiðubúinn að vera með í hópnum og finna upp á einhverju skemmtilegu að gera með eða fyrir þennan litla hóp. Við áttum margar góðar stundir saman. Matarboð, grillveislur, og heimsóknirnar til þeirra Við- ars og Ólafar Hildar voru ekki af verri endanum. Viðar var góður fjölskyldu- maður og þau Ólöf Hildur voru samrýnd. Þau ferðuðust mikið, fóru þá gjarnan á nýjar slóðir þar sem sameinaðist hiti og nýir staðir að skoða, einnig til Flórída þar sem systir Viðars býr. Ekki má gleyma fótboltaferðunum þeirra til Englands til þess að sjá uppáhaldsliðið hans, Man- chester City, spila. Einnig lögðu þau mikið upp úr sumarferðun- um til Apavatns með börnum og barnabörnum. Síðastliðið sumar er í fersku minni með tveimur stórafmæl- um. Það fyrra í Svíþjóð í sex- tugsafmæli Tommys og síðan sextugsafmæli Viðars sem haldið var upp á við Apavatn á ynd- islegu ágústkvöldi. Mikil gleði og gaman þar. Síðasta skiptið sem við hittumst öll saman var í grill- veislu hjá Viðari og Ólöfu Hildi síðastliðið sumar og var þá eitt af tilefnunum að sýna okkur nýju íbúðina þeirra, sem þau voru þá nýbúin að koma sér vel fyrir í. Viðar var mikill íþróttaáhuga- maður og fann hann nokkra sálufélaga í hópnum. Ekki skyggði það á Svíþjóðarferðina síðastliðið sumar að EM í fót- bolta var á sama tíma. Vinahóp- urinn átti góðar stundir saman í Svíþjóð og studdi Ísland úr sóf- anum. Hápunkturinn var þegar Íslendingar náðu sögulegum sigri á Englendingunum, en þá hlupum við öll út á svalir og öskruðum úr okkur lungun, svo að allt hverfið heyrði og senni- lega hefur það líka heyrst til Ís- lands. Ógleymanlegt kvöld. Nú er komið að leiðarlokum, elsku vinur. Við viljum þakka þér fyrir að vera sá góði maður sem þú varst Ólöfu Hildi og góð- ur vinur okkar allra. Þið áttuð greinilega gott samband og nut- uð ykkar vel saman. Þín verður sárt saknað. Kæri vinur, nafnið þitt fær að lifa áfram með yngsta barnabarninu þínu, sem er rétt mánaðar gamalt og var nefnt Leó Viðar. Elsku Ólöf Hildur, börn, barnabörn og ættingjar, við vilj- um með þessum fáu orðum senda okkar innilegustu samúð- arkveðjur og vonum að Guð styrki ykkur á þessum erfiðu tímum. Deisa Karlsdóttir Holl, Tommy Holl, Júlíana Jónsdóttir, Eiríkur Ólafsson, Rósa Jennadóttir og Guðmundur F. Guð- mundsson. Fyrir um 30 árum sló hópur fyrirtækja og fólks saman í púkk, keypti nýja upptökuvél, lét hana í hendur Viðars Odd- geirssonar og bað hann að búa til jákvæðar fréttir af Suður- nesjum. Þetta var svar fólks við þessari áráttu frétta að birta að- eins hið ljóta og neikvæða. Við- ar, Suðurnesjamaður inn að beini, tók áskoruninni og byrjaði að þefa uppi skemmtilegar og já- kvæðar fréttir af svæðinu. Og undrin gerðust: Landsmenn byrjuðu að sjá á RÚV-skjánum alls kyns gleðitíðindi, jákvæð og skemmtileg. Suðurnesin höfðu eignast talsmann gagnvart þjóð- inni. Þarna naut sín vel jákvæði húmoristinn, Viðar, áhugamaður um fólk og ekki síst heimahag- ana. Þessu ögrandi verkefni sinnti hann samhliða kennslu, sem átti svo vel við hann enda vildi Viddi alltaf láta gott af sér leiða. RÚV skynjaði strax hæfi- leika hins naska fréttaritara, sem leiddi til þess að honum var „rænt“ inn í höfuðstöðvarnar, þar sem hann hefur skilað góðu ævistarfi. Engu að síður hélt hann tryggð áfram við heima- hagana og mátti iðulega sjá já- kvæðar fréttir sem honum ein- hvern veginn tókst alltaf að pota inn. Síðast daginn sem hann lést svo sviplega. Okkur er öllum brugðið því Viðar hafði markað sér svo sterk spor í samfélag okkar og var ekkert á leiðinni svo langt í burtu. Við söknum hans sárt. Eftir standa þau miklu verðmæti sem hann tók upp úr mannlífi hér syðra og varðveita merka sögu. Það er hans stóri bauta- steinn en ekki síður minningin um skemmtilegan og umfram allt góðan dreng. Fólkinu hans öllu sendum við hlýjar kveðjur. Blessuð sé minning Viðars Odd- geirssonar. Hjálmar Árnason og Valgerður Guðmundsdóttir. Lífið er ferðalag sem við sem ferðumst sjáum ekki fyrir. Vissulega kann það að gera líf okkar auðveldara að sjá ekki fram í tímann, en mestu máli skiptir að njóta lífsins á meðan það varir. Það var okkur vinunum reið- arslag að frétta af skyndilegu andláti vinar okkar og félaga, Viðars Oddgeirssonar. Við kynntumst Viðari í gegnum sam- eiginlegt áhugamál okkar, knatt- spyrnu, en allir höfum við verið dyggir stuðningsmenn Man- chester City um árabil. Ógleym- anlegar eru ferðir okkar með Viðari út til Manchester, þar sem gleðin og vináttan var ávallt í fyrirrúmi. Fyrir okkur var það heilög stund að hittast á sport- barnum Ölveri eða eftir atvikum í heimahúsi og styðja okkar menn til dáða. Á slíkum stund- um hafa allir skoðun á því hvert leikskipulagið á að vera og hvaða leikmönnum tefla beri fram í hverjum leik. Þetta áhugamál okkar sameinaði okkur í ein- stakri vináttu sem var engu lík. Þriðjudagurinn 21. febrúar síðastliðinn var nákvæmlega þannig dagur og Viðar lét sig ekki vanta. Okkar menn unnu sannfærandi sigur og við dreng- irnir héldum kátir hver til síns heima. Engan grunaði þá að þetta yrði síðasti leikurinn sem Viðars nyti við en við erum sann- færðir um að hann verður með okkur áfram í anda um ókomin ár. Viðar kom okkur fyrir sjónir sem ljúfur fjölskyldumaður og þau voru öfundsverð af sam- bandi sínu hann og Ólöf. Nýverið fluttu þau í nýja íbúð í Lundi í Kópavogi og það kom ósjaldan glampi í augu Viðars þegar hann sagði okkur stoltur fréttir frá nýju heimkynnunum. Á síðasta fundi okkar ítrekaði hann það við okkur að fyrir næsta City- leik í heimahúsi skyldum við mæta til hans og upplifa nýju íbúðina og yfirbyggðu verönd- ina. Viðar var umfram allt einstak- ur drengur sem öllum þótti vænt um. Hann var viðræðugóður og skemmtilegur og naut sín í góðra vina hópi. Umfram allt var hann sannur City-maður. Við erum þakklátir því að hafa kynnst Viðari og hans verður sárt saknað. Með þessum fátæk- legu orðum sendum við Ólöfu, sonum Viðars og ástvinum hans öllum, okkar dýpstu samúðar- kveðjur. Megi góður Guð og minning um góðan dreng styrkja okkur öll í sorginni. Fyrir hönd okkar City-manna, Tómas Hallgrímsson. „Það skein alveg í gegn hvað þetta var mikill toppmaður,“ sagði vinur minn á öðrum fjöl- miðli þegar hann frétti af andláti Vidda. Sá spjallaði við hann á fótboltavöllum landsins endrum og eins, og hafði hitt hann þar sem Viðar fylgdist með sínum mönnum í Manchester City spila í sömu viku og hann kvaddi. Við- ar var nefnilega harður stuðn- ingsmaður Manchester City og hafði verið í mörg ár. Það var því auðvelt að gleðjast með honum þegar peningar tóku að streyma í félagið og titlarnir hrönnuðust upp. Viðar var líka það harður stuðningsmaður City að hann lét sig ekki vanta á völlinn í Man- chester þegar liðið varð Eng- landsmeistari. Þegar ég byrjaði að vinna á RÚV 2009 var Viddi einn af þeim fyrstu sem urðu á vegi mínum og hann tók mér vel. Við- ar sá um að ég fengi þá kennslu sem ég þurfti til að geta klippt fréttir og allar bókanir á töku- mönnum fóru í gegnum hann. Sama hversu seint og illa maður bókaði tökumann hjá honum til að taka upp einhverja íþrótta- viðburði tókst honum alltaf að redda málunum. Ef hann fékk engan í verkið reddaði hann því bara með því að mynda sjálfur. Ég á einmitt sérstaklega góð- ar minningar á ferðum mínum með honum til Keflavíkur á fót- bolta- og körfuboltaleiki. Maður gat alltaf verið viss um að það gæti ekkert klikkað í þeim ferð- um. Viðar var nefnilega svo vel liðinn á sínum heimaslóðum að maður fékk meðferð eins og kóngur, bara fyrir það eitt að vera með Vidda Oddgeirs. Við fórum sérstaklega margar vinnuferðir saman til Keflavíkur í úrslitakeppni karla í körfubolta vorið 2010 og þar var oft knapp- ur tími frá því leik lauk fram að tíufréttum. Allar fréttirnar frá okkur fóru þó í loftið, enda var alltaf hugsað í lausnum. Takk kærlega fyrir gott samstarf, Við- ar. Ég mun alltaf hugsa um þig með hlýju. Fjölskyldu Viðars sendi ég samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson. Það er þyngra en tárum taki að skrifa minningarorð um kær- an vin og samstarfsmann Viðar Oddgeirsson. Fyrirvaralaust er hann tekinn burtu frá fjölskyldu og vinum sem sýnir okkur enn og aftur að enginn ræður sínum næturstað. Viðar var einn af fyrstu samstarfsmönnum mínum á fréttastofu Sjónvarpsins, sem þá hét, fyrir nær aldarfjórðungi. Hann var þá fréttaritari í Kefla- vík og gekk í öll verk og sinnti nánast öllu sem gerðist á suð- vesturhorni landsins á þessum tíma. Á nóttu sem degi var hann ávallt reiðubúinn sem tæknimað- ur, tökumaður og fréttaritari. Reyndar var það svo um Viðar, eins og svo marga hjá Ríkisút- varpinu, að hann var alltaf á vaktinni hvert sem hann fór og hvar sem hann var. Alltaf á tán- um með hag Ríkisútvarpsins að leiðarljósi. Saman fórum við í ófáar fréttaferðir og aldrei bar skugga á okkar samstarf. Viðar hlaut góða lund í vöggugjöf sem fylgdi honum ævina á enda. Verkefni voru til að leysa þau og vanda- mál ekki til. Það hugarfar fylgdi honum líka eftir að hann varð fastur starfsmaður í Efstaleiti og var yfir og allt um kring í tækni- málum okkar. Synirnir voru augasteinar Viðars og sjaldan ljómaði hann jafn mikið eins og þegar hann ræddi fjölskylduna. Ófá samtöl áttum við í aðdraganda utan- landsferðar sem hann fór í fyrra ásamt sonum sínum og sonar- syni á fótboltaleiki í Bretlandi. Ógleymanleg varð ferðin þeim feðgum og óhætt að segja að Viðar hafi haldið þeim minning- um á lofti. Hann var hamingju- samur í einkalífi og ekki er nema ár síðan þau Ólöf Hildur fluttu í nýja íbúð sína í Lundi í Kópa- vogi. Framtíðin var björt. Það er sjónarsviptir að Viðari Oddgeirssyni, vinnustaður okkar er tómlegur. Mestur er missir fjölskyldunnar sem nú tekst á við lífið án hans. Megi góður guð gefa ykkur styrk til að njóta minninganna um góðan dreng. Blessuð sé minning Viðars Oddgeirssonar. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir. Viðar Oddgeirsson  Fleiri minningargreinar um Viðar Oddgeirsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.