Morgunblaðið - 07.03.2017, Page 27

Morgunblaðið - 07.03.2017, Page 27
ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2017 stöðum, í litlu og vinalegu sam- félagi, en það er óneitanlega líka gott að koma aftur í bæinn og vera nær foreldrum og ættingjum.“ Ruth var endurskoðunarfulltrúi Skattstjórans í Reykjavík 1992-93, fjármálastjóri hjá Klassík hf 1992- 94, fjármálastjóri Skógræktar ríkis- ins 1994-98, deildarstjóri fjárreiðu- deildar Skeljungs hf 1998-99, deildarstjóri Hagdeildar Skeljungs hf 1999-2000, var deildarstjóri hag- og bókhaldsdeildar Samskipa 2000- 2005 og hefur verið fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs Alcoa Fjarðaráls frá 2005. Hún er nú að taka við verkefnastjóri fjármála hjá Alcoa í Evrópu með búsetu í Reykjavík. Ruth sat í stjórn Randalín hand- verkshús ehf. 1994-95, í stjórn Stjórnvísi, faghóps um BSC 2001- 2002, hefur starfað í samtökum kvenna í stjórnunar- og leiðtoga- störfum, Leiðtoga Auður, setið þar í stjórn frá 2013 og var formaður samtakanna 2014-2016. Hún hefur setið í stjórn KER eigna ehf. frá 2011. Ruth tekur að sjálfsögðu fjöl- skylduna fram yfir allt annað í þessu lífi. Í vinnunni kann hún að meta ögranir og áskoranir, metur mikils samhæf og góð vinnuteymi. Henni er það sérstakt hugðarefni að ungar konur sæki af meiri krafti í leiðtoga- og stjórnunarstörf. „Við hjónin og fjölskyldan erum samhent í því að njóta ferðalaga fram í fingurgóma. Ég hef reyndar svolítið smitast af eiginmanninum hvað varðar ævintýraferðir, en hann er gamall flugbjörgunarjaxl með sérþjálfun í ýmsum þáttum björgunarstarfa frá Bandaríkj- unum. Við förum mikið á skíði, innan- lands og í Ölpunum, fórum í nokk- urra daga fjallahjólaferð á Mal- lorka með góðum vinahópi, ég hjólaði tvisvar í vinnuna frá Egils- stöðum og í Reyðarfjörð, við fórum í vikuferð á kajökum um Jökulfirð- ina og ég synti Urriðavatnssundið sem er hluti af Landvættinni svo nefndu og er 2.500 metra sund í 17 gráðu heitu vatni. Ég lét mig meira að segja hafa það að fara í fallhlíf- arstökk á sólbjörtum degi fyrir rúmum 20 árum fyrir austan. Það var ógleymanleg reynsla.“ Fjölskylda Eiginmaður Ruthar er Kristófer Ragnarsson, f. 28.7. 1963, sem starfrækir útivistarverslun á Egils- stöðum og sinnir eignaumsýslu. Foreldrar hans: Hjördís Kristófers- dóttir, f. 20.10. 1929, d. 30.6. 1998, húsfreyja, og Ragnar Hansen, f. 17.4. 1923, d. 1.7. 2011, múrara- meistari. Þau bjuggu í Reykjavík. Börn Ruthar og Kristófers eru Friðrik Dagur Kristófersson, f. 31.10. 2003, nemi í Réttarholtsskóla og mikill Anime-teiknari, og María Ósk Kristófersdóttir, f. 30.7. 2013, framtíðar skipulagsstjóri. Hálfsystir Ruthar, samfeðra, er Þórhildur Elfarsdóttir, f . 3.6. 1958, skólastjóri Varmárskóla í Mos- fellsbæ, búsett í Reykjavík. Alsystur Ruthar eru María Elfarsdóttir, f. 13.9. 1970, sölu- og vörustjóri Provision, búsett í Mos- fellsbæ, og Hildur Elfarsdóttir, f. 3.1. 1974, markaðsstjóri Advanced Bionics í Danmörku. Foreldrar Ruthar eru Elfar H. Þorvaldsson, f. 13.10. 1938, fyrrver- andi stjórnarformaður Hreyfils, fyrrv. formaður Tölvubíla og heið- ursfélagi Hreyfils, og k.h., Marsibil Harðardóttir, f. 30.9. 1941, fyrrver- andi leiðbeinandi. Þau búa í Reykjavík. Úr frændgarði Ruthar Elfarsdóttur Ruth Elfarsdóttir Guðrún Brynjólfsdóttir húsfr. í Rvík og Hafnarfirði Björn Sumarliði Jónsson verkam. í Rvík og í Hafnarfirði María Björnsdóttir leiðbeinandi í Rvík Hörður Guðmundsson járnsmiður, húsasmiður og fasteignasali í Rvík Marsibil Harðardóttir leiðbeinandi í Rvík Marsibil Eyjólfsdóttir húsfr. í Rvík Guðmundur Guðlaugsson vélstj. í Rvík, fórst með ES Goðafossi Lárus Jónsson læknir í Höfðakaupstað Guðmundur Sigurðsson b. á Svertingsstöðum Skúli Guðmundsson alþm. og ráðherra Egill Stefánsson slökkviðliðsstj. á Siglufirði Guðmundur Jónasson öræfabílstj. og ferðamálafrömuður Ingibjörg Jónasdóttir ljósm. á Hvammstanga Þórunn Valgerður Guðmundsdóttir húsfreyja Sigurður Sæmundson útgerðarm. Svanhildur Sigurðardóttir fiskverkunark. í Rvík Þorvaldur Jónasson bifvélavirki í Rvík Elfar Þorvaldsson stjórnarform.Hreyfils, form.Tölvubíla og heiðursfélagi Hreyfils Margrét Þorsteinsdóttir húsfr. í Hlíð Jón Jónasson b. í Haga Jónas Jónasson b. í Hlíð á Vatnsnesi Sigurður Jónasson b. á Svertingsstöðum. Stefán Jónasson b. á Hallgilsstöðum Eggert Melsted slökkviliðsstj. á Akureyri Guðmundur Hlíðdal póst- og símamálastj. Jónas Jónsson b. í Múla 90 ára Þórarinn Guðmundsson 85 ára Friðþjófur Þórarinsson 80 ára Erla Gunnlaugsdóttir Guðmunda Guðmundsdóttir Guðrún Borghildur Skúladóttir Hákon Halldórsson Hrafnhildur Guðjónsdóttir Kristján Garðarsson Margrét Sigurjónsdóttir Skúli Sigurjónsson 75 ára Guðmundur Bergsson Lára Margrét Gísladóttir Sigurlína Káradóttir 70 ára Magnea Katrín Guðmundsdóttir Þórhildur Svanbergsdóttir 60 ára Ása Jónsdóttir Björk Jónsdóttir Ingibjörg Dagmar Gunnarsdóttir Ingibjörg Ingadóttir Józef Tomasz Michalak Líneik Haraldsdóttir Margrét Jónsdóttir Oddgeir Erlendur Karlsson Sigurður Stefánsson Vilhelm M. Frederiksen 50 ára Adda María Jóhannsdóttir Agata Ólafsdóttir Atli Guðjón Helgason Erik Martin Eineborg Guðný Kristjánsdóttir Guðrún K. Aðalsteinsdóttir Heimir Finnsson Hrafnhildur Björk Baldursdóttir Karólína Inga Guðlaugsdóttir Svanhildur Ruth Elfarsdóttir Þórhallur Leósson 40 ára Áslaug Anna Kristinsdóttir Brynjar Guðmundsson Eyjólfur Ari Bjarnason Hlín Einarsdóttir Mats Peter Ålander Monika Stysial Óskar Einar Hallgrímsson Pálmi Sævar Þórðarson Þorgerður Kr. Guðmundsdóttir 30 ára Albert Þór Þórhallsson Davíð Georgsson Elmar Víðir Másson Freyr Hjálmþórsson Heiða Rún Bjarnadóttir Hrafnhildur Hallsdóttir Ísak Ívarsson Kristina Bugiene Regína Sóley Valsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Hrafnhildur býr í Reykjavík og stundar nám í umhverfis- og bygg- ingaverkfræði við HÍ. Maki: Ingólfur Hreims- son, f. 1983, gæðastjóri. Börn: Líf, f. 2006; Emilía, f. 2012, og Ísak, f. 2016. Foreldrar: Hallur Þor- steinsson, f. 1962, húsasmíðam. og versl- unarstjóri hjá Kemí, og Ingibjörg Brynjarsdóttir, f. 1964, aðstoðarleikskóla- stjóri. Hrafnhildur Hallsdóttir 30 ára Heiða Rún ólst upp á Húsavík, býr í Reykjavík, er fyrst til að ljúka MSc- prófi í lífupplýsingafræði og starfar hjá Qlik Data- market. Maki: Haraldur Gunn- arsson, f. 1986, tölv- unarfræðingur. Börn: Flóvent Bjarni, f. 2007; Amelía Líf, f. 2009, og Fjóla Margrét, f. 2016. Foreldrar: Bjarni Ásmunds- son, f. 1956, og Birna Hreið- arsdóttir, f. 1961. Heiða Rún Bjarnadóttir 40 ára Hlín ólst upp í Reykjavík, býr þar enn, lauk MA-prófi í bók- menntafræði og er rit- stjóri Sykurs.Kvenna- blaðinu.is. Börn: Alvin, f. 2004, og Blædís, f. 2006. Foreldrar: Valgerður Brand, f. 1947, d. 2008, húsfreyja, og Einar Odd- geirsson, f. 1949, d. 2005, rafeindavirkja- meistari. Þau voru búsett í Hafnarfirði. Hlín Einarsdóttir  M. M. Mahbub Alam hefur varið doktorsritgerð sína við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Ís- lands. Ritgerðin ber heitið: Uppruni og stofngerð meginrækjutegunda í Bangladesh (Origin and population structure of major prawn and shrimp species in Bangladesh). Leiðbeinandi var dr. Snæbjörn Pálsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ. Indlandshaf og Kyrrahaf búa yfir einstöku vistkerfi og mesta líf- fræðilega fjölbreytileika jarðar. Upp- runi og stofngerð sex rækjutegunda sem eru mikilvægar jafnt efnahags- lega sem og fyrir vistkerfi Bangladess er viðfangsefni þessarar ritgerðar. Tegundirnar eru fimm þursarækjur: Fenneropenaeus indicus, Penaeus monodon, Penaeus semisulcatus, Metapenaeus monoceros, Parapena- eopsis sculptilis, og strandrækjan Macrobrachium rosenbergii sem lifir að mestu í ferskvatni. Flokkunartré Fenneropenaeus og Metapenaeus ætt- kvíslanna sýndu fjölstofna tengsl inn- an þeirra. Duldar tegundir greindust innan F. indicus og í P. monodon með athugun á hvatberaerfðaefni tegund- anna. Greining á upprunalandafræði tegundanna sýndi samsvörun milli erfðafræðilegrar aðgreiningar og þekktra lífland- fræðilegra svæða, milli Bengalflóa og austurstrandar Afríku, og báðum megin við Malakkaskaga. Að- greining milli stofna greindist í erfðamengi P. monodon meðfram strönd Bangladess frá vestri til suðausturs og einnig meðal stofna M. rosenbergi, frá vatna- svæðum fjögurra áa innan Bangla- dess. Erfðabreytileiki rækjanna var mikill, þrátt fyrir grunnættartré sem bendir til stórra stofna sem hafa vaxið ört á síðustu 466 þúsund árum. Hinar landfræðilega aðskildu hvatberagerðir sem greindust í þessari rannsókn flokkast sem þróunarfræðilega mark- tækar einingar sem taka ætti tillit til við stjórnun á þessum mikilvægu teg- undum, bæði í eldi og í veiðistjórnun, til að vernda þennan mikla breytileika innan tegundanna. Stofnana sem greindust innan Bangladess P. mono- don og M. rosenbergii ætti að flokka sem sérstaka veiðistofna. Niðurstöður úr þessari rannsókn má einnig nýta til að rekja uppruna rækja af óljósum uppruna, m.a. frá ólöglegum veiðum. M. M. Mahbub Alam M. M. Mahbub Alam lauk BSc-gráðu í fiskifræði frá Landbúnaðarháskóla Bangla- dess 1995 og MS í fiskveiðistjórnun 2000 við sama skóla og stundaði nám við Sjávarútvegsskóla SÞ á Íslandi 2010-2011. Hann er núna aðstoðarprófessor við Landbúnaðarháskóla Sylhet í Bangladess. M. M. Mahbub Alam er kvæntur og tveggja barna faðir. Doktor Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Sameinar það besta í rafsuðu Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.