Morgunblaðið - 07.03.2017, Síða 30

Morgunblaðið - 07.03.2017, Síða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2017 Jóhann Kristinsson barítónsöngv- ari hreppti þriðju verðlaun í al- þjóðlegri söngvarakeppni, Das Lied, sem haldin var í Heidelberg í Þýskalandi. 26 söngvurum frá 22 þjóðlöndum var boðið að taka þátt í keppninni og voru þeir valdir úr hópi um eitthundrað söngvara. Sigurvegari var þýski barítón- söngvarinn Samuel Hasselhorn en í öðru sæti var bandaríski mezzó- sópraninn Clara Osowski. Í þýskum tónlistarmiðlum segir að verð- launahöfunum opnist ýmsar dyr til tónleikahalds. Sigurvegarinn Hasselhorn hreppti um 1,7 milljón króna í verðlaun en alls skiptust um fjórar milljónir króna milli söngvaranna í efstu sætunum. Jóhann Kristinsson er fæddur ár- ið 1988. Hann lauk áttunda stigs prófi frá Söngskólanum í Reykjavík vorið 2013, en hann hóf þar nám haustið 2009 hjá Bergþóri Pálssyni. Árið 2011 veittist Jóhanni styrkur til söngnáms úr Minningarsjóði Vil- hjálms Vilhjálmssonar. Jóhann fór með hlutverk séra Torfa í óperunni Ragnheiði eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson við frum- flutning hennar í Skálholti 2013, hefur sungið hlutverk og í kór Ís- lensku óperunnar, auk þess að halda einsöngstónleika hér á landi og erlendis. Hann er í framhalds- námi í Berlín. Þess má geta að Jó- hann er sonur Kristins Sigmunds- sonar söngvara. efi@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Söngvarinn Baritónsöngvarinn Jóhann Kristinsson hreppti þriðju verðlaun í söngvarakeppninni Das Lied sem haldin var í Þýskalandi. Söng til verðlauna Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Tenórsöngvararnir Ari Ólafsson og Gunnar Björn Jónsson koma fram á hádegistónleikum í Hafnarborg í dag kl. 12. Ari og Gunnar hlutu tvö efstu verðlaunasætin í söngkeppn- inni Vox Domini sem haldin var í fyrsta sinn í janúar sl. og félag ís- lenskra söngkennara stóð fyrir og er fyrst og fremst hugsuð fyrir söngvara og nemendur í klassísk- um söng. Á tónleikunum verða fluttar aríur eftir Verdi, Donizetti og Puccini, við píanóleik Antoníu Hevesi. Yfirskrift tónleikanna er „Tilfinningaríkir tenórar“. Ari Ólafsson á að baki nám í Söngskóla Reykjavíkur undir hand- leiðslu Garðars Thor Cortes og hef- ur tekið þátt í nokkrum leikhús- uppfærslum, lék m.a. Ólíver í sam- nefndum söngleik í Þjóðleikhúsinu og í söngleiknum Galdrakarlinn í Oz í Borgarleikhúsinu. Hann hefur tvisvar sungið dúett með Sissel Kyrkjebö og tekið þátt í Ísland got Talent og The Voice Ísland. Ari landaði 1. sæti í framhaldsflokki í Vox Domini. Gunnar Björn nam söng í Tónlistarskólanum á Akureyri hjá Michael Jóni Clarke og eftir það hóf hann söngnám undir hand- leiðslu Kristjáns Jóhannssonar í Söngskóla Sigurðar Demetz. Þá hélt hann til náms við Civica Scuola di Musica í Mílanó og naut þar leiðsagnar Vicenzo Manno. Hann hefur tekið þátt í ýmsum upp- færslum á vegum söngskóla Sig- urðar Demetz og hefur einnig tekið þátt í tveimur sönggjörningum myndlistarmannsins Ragnars Kjartanssonar. Einn tekinn af lífi Antonía á heiðurinn af yfirskrift tónleikanna og segir Gunnar að lík- lega hafi hún séð á þeim Ara að þeir væru tilfinningaríkir og þá til- finningaríkir í garð persónanna sem þeir túlka í aríunum. En er nokkuð annað hægt en að vera tilfinningaríkur, ætli maður sér að vera söngvari? „Í klassískum söng og öllum þessum óperum er ekkert hægt að vera neitt annað en auðmjúkur og ástfanginn allan tím- ann þegar maður er uppi á sviði. Maður er alltaf að reyna að vera eins væminn og maður getur - en þó í hófi,“ segir Ari. Antonía bætir við að persónurn- ar sem söngvararnir túlki á tónleik- unum sitji allar í tilfinningasúpu. „Þarna er auðmjúkur sveita- drengur m.a. og svo spilltur aðals- maður og hrokafullur og allt þar á milli, líka auðmjúkur aðalsmaður og svo er einn agalega glaður sem heldur að allt sé í lagi en svo hryn- ur allt eftir fimm mínútur í óp- erunni,“ segir Antonía. „Svo er meira að segja einn tekinn af lífi eftir svona kortér,“ bætir hún við. Hún hafi haft þessar ólíku tilfinn- ingar í huga þegar hún setti efnis- skrána saman. Söngvararnir hafi komið með sínar tillögur, hún svo valið aríur og búið til tilfinninga- súpuna. „Ég vona að þetta sé góð uppskrift,“ segir Antonía. Smella vel saman Tenórarnir syngja aríurnar hvor í sínu lagi en eitt aukalag syngja þeir saman og segir Antonía að þeir smelli vel saman í því. Hún vill þó ekki segja hvaða lag verður þar á ferðinni, það á að koma tónleika- gestum á óvart. -Nú er oft talað um í kórum að tenórar séu svo góðir með sig. Hvað segið þið við því? Ari er fyrri til svars og segist ekki taka sig mjög alvarlega. „Þetta er ákveðið grín meðal klass- ískra söngvara, að tenórar séu allt- af rosa fínir og flottir og hugsi vel um sig,“ segir hann kíminn og Gunnar hreyfir ekki andmælum. Ljósmynd/Áslaug Friðjónsdóttir Í Hafnarborg Antonía, Gunnar og Ari halda tónleika í hádeginu í dag. Í tilfinningasúpu  Tenórarnir Ari Ólafsson og Gunnar Björn Jónsson syngja aríur á hádegistónleikum Hafnarborgar í dag Dagskrá Blúshátíðar í Reykjavík, sem haldin verður 8.-13. apríl, ligg- ur nú fyrir og meðal þeirra sem koma fram á henni er bandaríski gítarleikarinn Noah Wotherspoon sem var valinn besti gítarleikarinn í blúskeppninni International Blues Challenge í Memphis árið 2015. Hann kemur fram miðvikudaginn 12. apríl með The Blue Ice Band. Þrennir stórtónleikar verða haldnir á hátíðinni sem fer að vanda fram á Reykjavík Hilton Nordica í dymbilviku, þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöld. Fyrsta kvöldið leikur KK Band, en það skipa KK, Þorleifur Guðjóns- son og Kormákur Geirharðsson. Þorleifur Gaukur munnhörpuleik- ari og hljómsveit hans Berklee Blues Band, sem komu einnig fram í fyrra, leika sama kvöld sem og blúsaðasta band Músíktilrauna árið 2017. Á miðvikudaginn leikur Wother- spoon með Blue Ice Band, en hann þykir stókostlegur á sviði og honum halda engin bönd, eins og því er lýst í tilkynningu. Með honum verða Ró- bert Þórhallsson á bassa, Birgir Baldursson á trommur, Guðmund- ur Pétursson á gítar og Davíð Þór Jónsson á Hammond. Sænski gít- arleikarinn Göran Svenningsson leikur sama kvöld, en hann hefur spilað blús frá unga aldri með helstu blúsmönnum Svíþjóðar og fjölda bandarískra blúsmanna. Með honum spila Erik Qvick á trommur og Þorgrímur Jónsson á bassa. Uncle John jr. hefur leikinn á lokakvöldinu og fer fimum höndum um kassagítarinn en einnig koma fram Blúsmenn söngkonunnar Andreu Gylfadóttur, þeir Guð- mundur Pétursson á gítar, Har- aldur Þorsteinsson á bassa, Jóhann Hjörleifsson á trommur og Einar Rúnarsson á Hammond. Fyrir hlé verður Blúsbræðingur, en hann flytja Óskar Logi Ágústsson, Davíð Þór Jónsson og Ásgeir Óskarsson. Hátíðin hefst, sem venja er, helgina áður með Blúsdegi í mið- borginni 8. apríl þar sem Blúshátíð leggur Skólavörðustíginn undir sig. Við setningu hátíðarinnar verður tilkynnt um val á heiðursfélaga Blúsfélags Reykjavíkur 2017 og boðið verður upp á lifandi blús og grillmat víða á Skólavörðustígnum frá klukkan 14 til 16. Ljósmynd/Noahwotherspoon.com Fingrafimur Noah Wotherspoon var valinn besti gítarleikarinn í blúskeppn- inni International Blues Challenge í Memphis í Bandaríkjunum árið 2015. Noah Wotherspoon leikur á Blúshátíð Friðarlilja sem er einnig þekkt sem Heimilisfriður er ekki einungis falleg pottaplanta því rannsóknir hafa sýnt að hún býr yfir eiginileikum til að eyða eða binda algeng eitur og mengunarefni úr andrúmsloftinu. Friðarliljan er því ekki einungis til prýði heldur hefur jákvæð áhrif á heilsu okkar. hreinsar loftið FRIÐARLILJA 2.590kr 3.390 kr Friðarlilja 17 cm pottur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.