Morgunblaðið - 07.03.2017, Qupperneq 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2017
Verðlaun danskra kvikmynda-
gagnrýnenda, sem kennd eru við
Bodil og eiga sér 70 ára sögu, voru
afhent um helgina. Besta danska
myndin var valin I blodet í leikstjórn
Rasmusar Heisterberg. Besti karl-
leikarinn í aðalhlutverki var valinn
Søren Malling fyrir túlkun sína á
Kjeld í Forældre í leikstjórn Christi-
ans Tafdrup, en hann hlaut einnig
Robert, dönsku sjónvarps- og kvik-
myndaverðlaunin, fyrir sama hlut-
verk í seinasta mánuði.
Besta leikkonan í aðalhlutverki
var valin Trine Dyrholm fyrir túlkun
sína á Önnu í Kollektivet í leikstjórn
Thomasar Vinterberg, en áður hafði
Dyrholm unnið bæði Silfurbjörn í
Berlín og Robert fyrir sama hlut-
verk. Með sigri sínum sló Dyrholm
einnig met í Bodil-verðlaunum, því
hún hefur fjórum sinnum áður verið
verðlaunuð fyrir bestan leik í aðal-
hlutverki og einu sinni fyrir bestan
leik í aukahlutverki og á því samtals
sex styttur. „Það er algjörlega galið
og eiginlega alveg ótrúlegt,“ sagði
Dyrholm í viðtali við DR, danska
sjónvarpið, að athöfn lokinni þegar
nefnt var að nú væri sjötta Bodil-
styttan í höfn fyrir bestan leik. „Ég
er einstaklega ánægð með samstarf
okkar Thomasar Vinterberg,“ bætti
Dyrholm við.
„Þegar nafn mitt var lesið upp
læddust örlítil tár fram í augkrók-
ana. Síðan varð mér ljóst að ég yrði
að harka af mér og halda almenni-
lega þakkarræðu,“ sagði Søren Mal-
ling í samtali við DR að athöfn lok-
inni. Sagði hann það mikinn heiður
að bætast í hóp allra þeirra góðu og
hæfileikaríku leikara sem hlotið
hefðu verðlaunin á undan honum.
Þess má geta að Kollektivet var
sýnd hérlendis á síðustu RIFF-
kvikmyndahátíð og sýnd á RÚV 25.
febrúar sl. og verður aðgengileg í
Sarpinum í mánuð. Forældre verður
sýnd á Norrænni kvikmyndahátíð
sem hefst í Norræna húsinu síðar í
vikunni.
Besta leikkonan í aukahlutverki
var Victoria Carmen Sonne í mynd-
inni I blodet og besti karlleikarinn í
aukahlutverki var valinn Lars Mikk-
elsen í myndinni Der kommer en
dag, en Mikkelsen leikur sem kunn-
ugt er Emil, yngsta bróðurinn í sjón-
varpsþáttaröðinni Erfingjunum (Ar-
vingerne) sem sýnd er á RÚV á
sunnudagskvöldum.
Besta kvikmyndin frá öðru landi
en Bandaríkjunum þótti þýska
myndin Toni Erdmann sem Maren
Ade leikstýrði. Myndin var sýnd á
nýafstaðinni Stockfish-kvik-
myndahátíð í Bíó Paradís og er enn í
sýningu þar. Besta bandaríska kvik-
myndin var valin The Revenant í
leikstjórn Alejandro G. Iñárritu.
Maria von Hausswolff var verð-
launuð fyrir bestu kvikmyndatökuna
í Forældre, en myndin var einnig
verðlaunuð fyrir besta handritið.
Besta heimildarmyndin var valin
The War Show eftir Obaidah Zytoon
og Andreas Dalsgaard. Heið-
ursverðlaunin féllu í skaut Hennings
Jensens.
Ljósmyndir/bodilprisen.dk
Hæfileikarík Trine Dyrholm og Søren Malling sýndu besta leik í aðal-
hlutverki að mati danskra kvikmyndagagnrýnenda sem útdeila Bodil.
Bodil-verðlaunin
dönsku afhent
Logan Ný Ný
Rock Dog Ný Ný
Ballerina (Stóra stökkið) Ný Ný
The Lego Batman Movie 2 4
Split 1 2
Fist Fight 3 2
A Dog´s Purpose Ný Ný
Hjartasteinn 11 8
La La Land 5 6
JohnWick Chapter 2 4 4
Bíólistinn 3.–5. mars 2017
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Kvikmyndin Logan skilaði mestum
miðasölutekjum um helgina, tæpum
8,7 milljónum króna og sáu um
6.200 manns myndina. Í henni segir
af Logan sem margir kannast betur
við sem Jarfa úr stökkbreytta of-
urmennagenginu X-Men. Næst-
mestum tekjum skilað teiknimynd-
in Rock Dog, eða Rokkhundurinn,
um 1,7 milljón króna og sjöunda
tekjuhæsta myndin segir einnig af
hundi, A Dog’s Purpose, reyndar
hundi sem endurfæðist nokkrum
sinnum. Þrjár myndir af þeim tíu
tekjuhæstu eru barnamyndir, auk
Rock Dog eru það Stóra stökkið og
The Lego Batman Movie.
Bíóaðsókn helgarinnar
Logan fór á toppinn
Úrillur Ástralski leikarinn Hugh
Jackman í hlutverki Logans.
Wolverine er búinn að eldast, heilsu hans hef-
ur hrakað, hann býr við stöðuga verki, og á við
drykkjuvandamál að stríða. Logan er að nið-
urlotum kominn en þarf að hugsa um hinn
heilsulitla Prófessor X þar sem þeir fela sig
nærri landamærum Mexíkó.
Metacritic 75/100
IMDb 9,0/10
Laugarásbíó 17.15, 20.00, 22.45
Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00, 22.45
Sambíóin Keflavík 20.00, 22.45
Smárabíó 16.30, 16.50, 19.30, 19.50, 22.30, 22.45
Háskólabíó 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.20
Logan 16
A Dog’s Purpose 12
Hundur reynir að finna
tilgang með lífinu, í gegn-
um nokkur æviskeið og
nokkra eigendur.
Metacritic 43/100
IMDb 4,9/10
Sambíóin Álfabakka
17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll
20.00
Sambíóin Kringlunni 20.00, 22.20
Sambíóin Akureyri 20.00, 22.20
Sambíóin Keflavík 20.00
The Lego Batman Movie Það er ekki nóg með að Batman þurfi að kljást við glæpa-
mennina í Gotham borg, heldur þarf hann að ala upp dreng
sem hann hefur ættleitt.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 75/100
IMDb 7,9/10
Laugarásbíó 17.40
Sambíóin Álfabakka 17.40,
20.00
Sambíóin Kringlunni 17.40
Sambíóin Akureyri 17.40
Sambíóin Keflavík 17.40
La La Land Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 93/100
IMDb 8,5/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Sambíóin Egilshöll 17.20,
20.00
Sambíóin Kringlunni 17.20,
20.00, 22.40
Sambíóin Akureyri 22.20
Fifty Shades
Darker 16
Metacritic 32/100
IMDb 5,0/10
Sambíóin Egilshöll 22.15
Sambíóin Kringlunni
20.00, 22.30
Borgarbíó Akureyri 17.30
xXx: Return of
Xander Cage 12
Metacritic 42/100
IMDb 5,6/10
Sambíóin Álfabakka 22.10
Sambíóin Egilshöll 22.40
Gamlinginn 2 IMDb 6,5/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Split 16
Metacritic 62/100
IMDb 7,5/10
Laugarásbíó 22.30
Smárabíó 20.00, 22.40
Háskólabíó 21.10
Borgarbíó Akureyri 20.00
Fist Fight 12
Metacritic 37/100
IMDb 5,9/10
Sambíóin Álfabakka 17.50,
20.00, 22.10
Sambíóin Egilshöll 17.50,
20.00, 22.10
Sambíóin Akureyri 20.00
Sambíóin Keflavík 22.20
Manchester by the
Sea 12
Lee er skyldaður til að snúa
heim og hugsa um yngri
frænda sinn.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 96/100
IMDb 8,1/10
Háskólabíó 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 17.30
The Space
Between Us Metacritic 33/100
IMDb 6,5/10
Smárabíó 17.10, 20.00
Gold 12
Metacritic 49/100
IMDb 6,5/10
Laugarásbíó 20.00
Rings 16
Metacritic 25/100
IMDb 5,7/10
Sambíóin Álfabakka 22.40
Hjartasteinn
Morgunblaðið bbbbm
IMDb 7,9/10
Smárabíó 17.30, 22.45
Háskólabíó 18.10, 21.10
John Wick:
Chapter 2 16
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 75/100
IMDb 8,6/10
Laugarásbíó 20.00, 22.30
Borgarbíó Akureyri 22.40
T2: Trainspotting 12
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 62/100
IMDb 7,9/10
Smárabíó 20.15, 22.50
Moonlight
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 99/100
IMDb 8,2/10
Háskólabíó 18.10
Bíó Paradís 17.30, 20.00
Rogue One:
A Star Wars Story 12
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 66/100
IMDb 8,3/10
Sambíóin Álfabakka 22.20
Rock Dog Útvarp dettur af himnum of-
an og beint í hendurnar á
tíbetskum Mastiff risahundi.
Metacritic 49/100
IMDb 5,7/10
Sambíóin Álfabakka 18.00
Sambíóin Egilshöll 18.00
Sambíóin Kringlunni 18.00
Sambíóin Akureyri 18.00
Sambíóin Keflavík 18.00
Stóra stökkið IMDb 6,9/10
Laugarásbíó 18.00
Smárabíó 15.40, 17.50
Syngdu Metacritic 60/100
IMDb 7,3/10
Smárabíó 15.15
Vaiana Metacritic 81/100
IMDb 8,3/10
Sambíóin Álfabakka 17.40
Tröll Metacritic 45/100
IMDb 6,8/10
Smárabíó 15.10
Toni Erdmann
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 94/100
IMDb 7,7/10
Bíó Paradís 20.00
Elle/Hún
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 89/100
IMDb 7,3/10
Bíó Paradís 17.30
Paterson
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 90/100
IMDb 7,7/10
Bíó Paradís 20.00
Kate Plays Christine
Fréttakonan Christine Chub-
buck fyrirfór sér í beinni út-
sendingu árið 1974. þegar
Kate Lyn Sheil undirbýr sig
fyrir að leika hana 40 árum
síðar reynist erfitt að grafa
upp heimildir um hana.
Metacritic 75/100
IMDb 6,4/10
Bíó Paradís 22.30
The Salesman
Emad og Rana eru ungt par
sem leika aðalhlutverkin í
uppfærslu á leikriti Arthur
Miller, Dauði sölumanns.
Metacritic 86/100
IMDb 8,2/10
Bíó Paradís 17.30
Una
Una kemur í vinnuna til Ray
til þess að gera upp sam-
bandið sem þau áttu í mörg-
um árum áður.
Metacritic 68/100
IMDb 7,0/10
Bíó Paradís 22.30
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna