Morgunblaðið - 07.03.2017, Síða 36
ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 66. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. Nafn konunnar sem lést
2. Játar að hafa myrt fjölskylduna
3. Veittu 15 ára pilti áverka
4. Bandaríkjamaður fannst látinn
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Vinkonurnar og höfundar bókar-
innar Elsku Drauma mín, þær Vigdís
Grímsdóttir og Sigríður Halldórs-
dóttir, verða í Bókasafni Seltjarn-
arness í kvöld kl. 19.30 og fjalla um
bókina. Í henni segir Sigríður Vigdísi
frá ævi sinni og m.a. frá æskuheimili
sínu á Gljúfrasteini og foreldrum
sínum, Auði og Halldóri Laxness, og
systurinni Guðnýju.
Vigdís og Sigríður
segja frá bók sinni
Myndlistarmaðurinn Aðalsteinn
Þórsson heldur fyrirlestur í Lista-
safninu á Akureyri, Ketilhúsi, í dag
kl. 17 undir yfirskriftinni Tvær hliðar:
Um Einkasafnið og Mynd dagsins.
Þar fjallar hann um tvö verkefni sem
hann hefur unnið að undanfarið,
annars vegar Einkasafnið, sem verð-
ur sýning hans í Listasafninu, Ket-
ilhúsi í maí næstkomandi og hins
vegar Verk dagsins
sem fólst í því að
birta daglega eina
nýja teikningu á
bloggsíðunni
teikningadag-
2016.blogspot.com,
allt árið 2016.
Um Einkasafnið og
Mynd dagsins
Kvartett ítalska
píanóleikarans
Dino Massa kem-
ur fram á djass-
kvöldi Kex hostels
í kvöld kl. 20.30
og leikur þekkta
djassstandarda.
Massa er þekktur
píanóleikari í
heimalandi sínu og hefur starfað með
fjölda þekktra tónlistarmanna, m.a.
John Abercrombie og Louis Sclavis.
Massa leikur djass
Á miðvikudag Norðaustan 10-15 m/s og snjókoma á Vestfjörðum,
annars 5-10 og skúrir eða él, en bjartviðri suðvestan til á landinu.
Hiti víða 0 til 5 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða austlægir eða suðlægir vindar, 1-6 m/s,
og úrkomulítið norðanlands, en gengur í norðaustan 10-15 með
slyddu á Vestfjörðum í kvöld. Hiti víða 0 til 5 stig.
VEÐUR
Njarðvíkingar eiga enn
von um að komast í úr-
slitakeppnina um Íslands-
meistaratitil karla í körfu-
knattleik eftir sigur á ÍR í
æsispennandi leik í gær-
kvöld, 79:72. Til þess
þurfa þeir þó að vinna erf-
iðan útileik í Þorlákshöfn
og treysta á hagstæð úr-
slit, fyrst og fremst að
grannar þeirra í Keflavík
vinni ÍR-inga á meðan.
»1,3
Njarðvíkingar eru
enn í baráttunni
„Það voru allir svo jákvæðir í liðinu
og kringum það og studdu vel við
bakið á mér. Ég var hvött áfram. Þeg-
ar á hólminn var komið gekk mér
mikið betur en ég hafði búist við,“
segir Selma Þóra Jóhannsdóttir sem
tók 19 ára gömul við sem aðal-
markvörður handknatt-
leiksliðs Gróttu í vet-
ur. Hún átti
stórleik í sigri á
Stjörnunni um
helgina. »4
Allir jákvæðir og studdu
við bakið á mér
Haukar eru með tveggja stiga forskot
á erkifjendur sína í FH á toppi Olís-
deildar karla í handbolta eftir naum-
an sigur á Fram, 27:26, í gær. Fram
situr eftir í fallsæti. Grótta og Sel-
foss skildu jöfn í spennuleik á Sel-
tjarnarnesi og kræktu sitt í hvort
stigið í fallbaráttunni, en Stjarnan
vann sterkan sigur á Val og komst
tveimur stigum frá fallsæti. »2
Haukar einir efstir en
Fram er í fallsæti
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Mér leið nú dálítið eins og krakka
innan um allt þetta góða fólk sem út-
skrifaðist með mér, aldursmunurinn
var töluverður í nokkrum tilvikum,“
segir Valdimar Orri Einarsson, 21
árs nemandi í fjármálahagfræði við
Háskóla Íslands, en á dögunum lauk
hann prófi, ásamt um 50 öðrum, sem
viðurkenndur bókari hjá prófanefnd
á vegum atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytisins. Slík próf fara
fram árlega fyrir þá sem vilja öðlast
réttindi sem bókhaldari.
Sjálft námið stundaði hann við
Endurmenntun Háskóla Íslands og
þá aðallega í fjarnámi.
Af miklum íþróttaættum
„Ég byrjaði í þessu námi samfara
vinnu minni á Hótel Smyrlabjörgum
síðasta sumar sem aðstoðarmaður
kokksins á hótelinu,“ segir Valdi-
mar, sem undanfarin fimm sumur
hefur unnið á hótelinu við ýmis störf.
Byrjaði þar 16 ára. Hann segist eftir
allan þann tíma vera farinn að líta á
sig sem hálfan Hornfirðing þó að
hann hafi verið alinn upp í vesturbæ
Reykjavíkur og föðurættin sé frá
Egilsstöðum og móðurættin úr
Grundarfirði.
Faðir Valdimars er Einar Vil-
hjálmsson, viðskiptafræðingur og fv.
spjótkastari, og móðirin er Halldóra
D. Sigurðardóttir leikskólakennari.
„Ég er hvorki góður í að kasta
spjóti né stökkva í sandi,“ segir
Valdimar og hlær og vísar þar til
föður síns, sem var margfaldur
meistari í spjótkasti og kjörinn
íþróttamaður ársins í þrígang,
og afa síns, Vilhjálms Einars-
sonar, silfurverðlaunahafa í
þrístökki á Ólympíu-
leikunum í Melbourne
árið 1956, sem kjörinn
var fimm sinnum
íþróttamaður ársins.
Spurður hvernig það hafi
komið til að hann fór í bókaranámið
segist Valdimar hafa viljað fá betri
skilning á lestri og gerð ársreikn-
inga og skapa sér betri atvinnutæki-
færi samfara hagfræðináminu, sem
hann byrjaði síðastliðið haust.
„Ég ákvað að senda umsókn um
bókaranámið og komst inn. Eini
grunnurinn sem ég hafði var bók-
haldsnám í menntaskóla og svo vann
ég í eitt ár í bókhaldi fyrir pabba. En
ég get staðfest að þetta er mjög
krefjandi nám, sérstaklega síðasta
annarprófið þar sem mikið er spurt
út í lögfræðina, mér skilst að fallið
þar sé um 50-60 prósent,“ segir hann
og vonast til að bókaranámið nýtist
sér einnig í hagfræðinni.
Þó að þar sé fengist við stóru
heildarmyndina í efnahagsmálum sé
gott að skilja betur alla afkima.
Hvorki kastar né stekkur
Valdimar viður-
kenndur bókari,
aðeins 21 árs
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bókari Valdimar Orri Einarsson stundar nám í fjármálahagfræði við Háskóla Íslands en hefur einnig náð sér í rétt-
indi sem viðurkenndur bókari, aðeins 21 árs gamall. Hann útskrifaðist á dögunum ásamt um 50 öðrum nemendum.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytið stendur fyrir sérstökum
prófum fyrir viðurkennda bókara
sem haldin eru að jafnaði
einu á sinni á ári. Próf-
nefnd viðurkenndra
bókara, sem ráð-
herra skipar til
fjögurra ára í senn,
hefur umsjón með
þessum prófum. Fara
þau fram samkvæmt
reglugerð sem sett var
eftir heimild laga um bók-
hald, nr. 145/1994. Falli nemendur
eða veikist er hægt að taka sjúkra-
og endurupptökupróf.
Auk Endurmenntunar Háskóla
Íslands bjóða fjölmargar mennta-
stofnanir upp á grunn- og fram-
haldsnámskeið sem undanfara
fyrir prófin.
Má þar nefna Háskólann í
Reykjavík, Menntaskólann í Kópa-
vogi, Promennt, Tölvu- og verk-
fræðiþjónustuna og Nýja tölvu- og
viðskiptaskólann. Bókhaldsnám er
í boði á enn fleiri stöðum.
Ráðuneyti heldur prófin
FJÖLMARGIR BJÓÐA UPP Á VIÐURKENNT BÓKARANÁM