Morgunblaðið - 08.03.2017, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 8. M A R S 2 0 1 7
Stofnað 1913 57. tölublað 105. árgangur
www.lyfja.is
Dekurtjútt
Frábær tilboðá
dekurvörum
MARGIR ERU
LITIRNIR Á
FALLEGU FÉ STÆRÐFRÆÐIN
ERFIÐUST
KRISTÓFER
ACOX Á
KROSSGÖTUM
SAMRÆMD PRÓF 11 KÖRFUBOLTI ÍÞRÓTTIRDÖKKU FÉ FJÖLGAR 12
Reynisfjara í Mýrdal dregur að sér þúsundir ferðamanna á
hverjum einasta degi, árið um kring. Fólkið stormar niður í
fjöruna til að dást að samspili sjávar og strandar og taka
myndir af sjálfu sér og öðrum, gjarnan með Reynisdranga í
baksýn. Misjafnt er hvað fólkið les aðvörunarskiltin vel og
sumir vaða út í sjó, stundum með sorglegum afleiðingum. »6
Reynisfjara laðar að þúsundir ferðamanna á hverjum degi
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
„Það hefur verið mjög lærdómsríkt
að vinna með þeirri goðsögn sem Ro-
bert Wilson er. Ég gat því ekki sagt
nei við þessu tækifæri,“ segir Valgeir
Sigurðsson, upptökustjóri og tónlist-
armaður, sem er tónlistarstjóri Eddu,
viðamikillar leiksýningar sem byggist
m.a. á eddukvæðum og var frumsýnd
í Norska þjóðleikhúsinu um helgina.
»33
Valgeir tónlistar-
stjóri í Eddu í Ósló
Agnes Bragadóttir
Helgi Bjarnason
„Þetta verður allt annað umhverfi
fyrir mjólkurframleiðslu en unnið
hefur verið eftir. Alveg nýr veru-
leiki. Mér sýnist að mjólkurfram-
leiðsla á Íslandi muni helmingast á
tiltölulega skömmum tíma, verði
þetta framkvæmt,“ segir Egill Sig-
urðsson, bóndi á Berustöðum og
formaður stjórnar Mjólkursamsöl-
unnar, um frumvarpsdrög landbún-
aðarráðherra. Arnar Árnason,
bóndi á Hranastöðum og formaður
Landssambands kúabænda, telur
að verð á algengustu mjólkurvör-
um, það er drykkjarmjólk, osti og
smjöri, muni hækka talsvert í verði.
Komið í bakið á bændum
Drög að frumvarpi sem landbún-
aðarráðherra hefur lagt fram á
heimasíðu ráðuneytisins til umsagn-
ar gerir meðal annars ráð fyrir því
að þrengdar verði undanþágur
mjólkuriðnaðarins frá samkeppnis-
lögum. Þá verði afurðastöðvum
óheimilt að semja um verkaskipt-
ingu og verðtilfærslur á milli ein-
stakra afurða.
Frumvarpið virðist koma forystu-
mönnum bænda og mjólkuriðnaðar-
ins á óvart. Arnar Árnason telur að
ráðherra komi í bakið á bændum
með því að virða ekki það sam-
komulag sem fram kom í áliti meiri-
hluta atvinnuveganefndar við af-
greiðslu á búvörusamningum á
síðasta ári um að reynt yrði að ná
sátt um þessi mál til framtíðar í
sérstökum starfshópi.
Hlýtur að fara til nefndar
Ari Edwald, forstjóri Mjólkur-
samsölunnar, segir ekki tímabært
að tjá sig um áhrif umræddra
breytinga á fyrirtækið þar sem
margt sé óljóst í textanum. Gerir
hann ráð fyrir því að þessi frum-
varpsdrög sem grundvallast á til-
lögum Samkeppniseftirlitsins fari
eins og aðrar hugmyndir til úr-
vinnslu í endurskoðunarnefndinni
sem ráðherra hefur skipað.
Egill Sigurðsson segir að svo
virðist sem frumvarpsdrög ráð-
herra séu ekki stjórnarfrumvarp
sem fengið hafi afgreiðslu í ríkis-
stjórn og stjórnarflokkum. Hann
átti sig því ekki vel á gildi þessa
plaggs.
Hann telur að þær breytingar
sem boðaðar eru muni hafa alvarleg
áhrif á mjólkurframleiðsluna í land-
inu. „Ég hef meiri áhyggjur af
bændunum en afurðastöðvunum.
Mikið framleiðslufall hjá þeim hefur
bein áhrif á afkomuna,“ segir hann.
Eykur samkeppni í mjólk
„Við teljum að þetta sé gríðar-
lega mikilvægur áfangi í því að
auka samkeppni á mjólkurvöru-
markaði. Ég bind miklar vonir við
að Alþingi afgreiði málið til að
koma á virkri samkeppni á mjólk-
urmarkaði. Þetta er ótrúlega gleði-
legur dagur,“ segir Ólafur M.
Magnússon, framkvæmdastjóri
mjólkurbúsins Kú ehf., í samtali við
mbl.is.
Telur að mjólk
muni hækka í verði
Frumvarpsdrög ráðherra komu forystumönnum á óvart
MFer ekki saman hljóð og mynd »4
Loðnuhrognataka stendur nú sem
hæst í sjávarplássum frá Vopnafirði,
suður um land til Akraness. Útgerðir
og sjómenn reyna að gera sem mest
verðmæti úr loðnunni enda óvíst
hvað langur tími er eftir af vertíð.
Mikið líf er við höfnina í Vest-
mannaeyjum. Í gær var verið að
landa úr Sigurði VE. Flutningaskip
var í höfninni og Herjólfur að leggja
af stað í sína fyrstu ferð í Landeyja-
höfn í langan tíma. Þá er mok hjá
togskipunum og sum fylla sig á sól-
arhring. Áætlað er að yfir 120 þús-
und tonn af loðnu séu komin á land
en heildarkvóti íslenskra skipa er
um 196 þúsund tonn. »14-15
Ljósmynd/Óskar Pétur
Í Eyjum Loðnu landað úr Sigurði
VE og Herjólfur í fyrstu ferð.
Vertíð í
hámarki
Annir við loðnu-
hrognavinnslu