Morgunblaðið - 08.03.2017, Blaðsíða 15
fullu í öllum húsum og framleiðsla
verið stöðug allan sólarhringinn í
marga daga. Hrognamarkaðir eru
mjög viðkvæmir fyrir magni og ég er
hræddur um að við séum að yfirfylla
markaðinn, sem getur lækkað verðið,
en verðin eru ekki fest fyrr en magn-
ið liggur fyrir.
Í fyrra gæti framleiðslan hér á
landi hafa verið 11-12 þúsund tonn. Á
þessari vertíð gæti hún orðið 15-18
þúsund tonn eftir því hvernig gengur
þessa síðustu veiðidaga og ég óttast
að það geti orðið yfirskot í fram-
leiðslunni,“ segir Gunnþór.
Skip Síldarvinnslunnar eiga 1-2
túra eftir, en kvóti fyrirtækisins er
um 34 þúsund tonn að meðtöldum
kvóta Bjarna Ólafssonar AK. Sam-
kvæmt yfirliti Fiskistofu er búið að
landa tæplega 97 þúsund tonnum
eða helmingi kvótans, en hafa ber í
huga að löndunarskýrslur berast
ekki fyrr en eftir nokkra daga og
gæti aflinn verið kominn yfir 120
þúsund tonn.
Álsey VE Einar Gauti Ólafsson dregur blýteininn í nótakassann.
Ljósmynd/Daði Ólafsson
Sigurður VE Sigurfinnur Sigurfinnsson fylgist með aflanum.
Ljósmynd/Þorbjörn Víglundsson
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2017
Allt fyrir gluggana
á einum stað
Z-Brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - Opið mán.-fös. 10-18, lau. 11-15
Frá
Fallegur voal
HLUTHAFAFUNDUR
ICELANDAIR GROUP HF.
Hlutahafafundur Icelandair Group hf. verður
haldinn mánudaginn 3. apríl 2017 á Icelandair
Hotel Reykjavik Natura og hefst kl. 8:30.
DAGSKRÁ:
1. Breyting á samþykktum:
Við 1. málsl. greinar 5.1 bætist: „og einn
karl og eina konu til vara“. Breytingin taki
þegar gildi.
2. Kjör til varastjórnar.
Réttur hluthafa til að fá mál sett á dagskrá
hluthafafundar og kosning
Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin
til meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um
það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar
með það löngum fyrirvara að unnt sé að taka
málið á dagskrá fundarins sem lögð verður fram
tveimur vikum fyrir fundinn. Þannig skulu óskir
hluthafa liggja fyrir eigi síðar en kl. 8:30 mánu-
daginn 20. mars 2017.
Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni
krónu í hlutafé. Eigin bréf félagins njóta ekki
atkvæðisréttar.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á
fundarstað.
Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fund-
inn geta veitt öðrum skriflegt umboð.
Aðrar upplýsingar
Endanleg dagskrá verður birt á heimasíðu
félagsins viku fyrir fundinn, 27. mars 2017
kl. 8:30.
Hluthöfum er bent á að skv. 1. og 2. mgr. 63.
gr. a. hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega,
minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um fram-
boð til varastjórnar. Skal framboðstilkynningum
skilað til stjórnar í síðasta lagi miðvikudaginn
29. mars 2017 kl. 8:30.
Tilkynnt verður um framkomin framboð eigi
síðar en tveimur dögum fyrir fundinn.
Reykjavík, 8. mars 2017.
Stjórn Icelandair Group hf.
+ www.icelandairgroup.is