Morgunblaðið - 08.03.2017, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 08.03.2017, Blaðsíða 21
HINSTA KVEÐJA Hvíl þú í friði elsku amma á Kjartó. Við minnumst þín með hlýhug og ríku þakklæti fyrir allar góðu samveru- stundirnar og heilræðin sem þú gafst okkur bræðrunum. Minning þín lifir í hjört- um okkar. Þú áttir söngva og sól í hjarta er signdi og fágaði viljans stál. Þeir þurftu ekki um kulda að kvarta, er kynni höfðu af þinni sál. (Grétar Fells) Þínir Þorgeir og Ísólfur. ✝ Anna Stefáns-dóttir fæddist 5. desember 1933 að Landbroti í Kol- beinsstaðahreppi. Hún lést á hjarta- deild Landspítalans 24. febrúar 2017. Foreldrar hennar voru Sesselja Sig- urðardóttir, f. 28. nóvember 1900, d. 18. desember 1984, og Stefán Sigurðsson, f. 9. maí 1893, d. 24. maí 1972. Systkini Önnu: Sigurður f. 1932, d. 1960, Friðgeir, f. 1935, d. 2013, Guðrún, f. 1936, Hinrik, f. 1938, d. 1992, Sigrún, f. 1940, d. 2003, Borghild- ur, f. 1942. Anna giftist 31. desem- ber 1954 Þorsteini Auðunssyni, f. þau 3 börn, maki hennar nú er Jó- hann Óskar Jóhannsson, f. 1961, og á hann eina dóttur. 5) Auður Ásta, f. 1973, gift Ólafi Þorgeirs- syni, f. 1955, þau eiga 2 syni og hann eina dóttur. Langömmubörn og langalangömmubörn eru 32. Anna ólst upp í Landbroti í Kol- beinsstaðahreppi til 12 ára aldurs en þá flutti fjölskyldan að Ak- urholti í sömu sveit. Um 16 ára aldur fór hún til Reykjavíkur að vinna og þar kynntist hún eftirlif- andi eiginmanni sínum, Þorsteini Auðunssyni. Þau fluttu í Borg- arnes árið 1955 og bjuggu lengst af á Kjartansgötu 16 eða frá árinu 1961. Anna vann ýmis verka- mannastörf en starfaði lengst hjá Kaupfélagi Borgfirðinga í Brák- arey og í Mjólkursamlagi Borg- firðinga. Útför Önnu fer fram frá Borg- arneskirkju í dag, 8. mars 2017, klukkan 14. 4. desember 1927. Foreldrar Þorsteins voru Ingibjörg Þor- steinsdóttir, f. 12. október 1899, d. 15. desember 1986, og Auðunn Ólafsson, f. 11. febrúar 1891, d. 21. júlí 1933. Börn Önnu og Þorsteins: 1) Ingibjörg, f. 1954, gift Arilíusi Dag- bjarti Sigurðssyni, f. 1953, eiga þau 4 syni. 2) Stefán, f. 1955, giftur Guðríði Guðjóns- dóttur, f. 1954, eiga þau 3 syni. 3) Vigdís, f. 1957, gift Ólafi Emil Sig- urðssyni, f. 1950, eignuðust þau 4 börn en þrjú þeirra létust í frum- bernsku. 4) Guðrún, f. 1963, var gift Helga Samúelssyni og eiga Elskuleg móðursystir mín, Anna Stefánsdóttir, lést að morgni 24. febrúar sl. og langar mig að minnast hennar í nokkrum orðum. Djúpstæðar, hlýjar og innilegar minningar hafa heimsótt huga minn síðastliðna daga. Þegar ég var á fyrsta ári dvaldi ég í nokkra mánuði hjá Önnu og Steina í Borg- arnesi vegna viðgerða á húsnæði foreldra minna. Sagt er að mikil- vægasta mótunarskeið barns sé fyrsta æviár þess. Þó að ég muni ekki mikið frá þessu æviskeiði veit ég að mér leið vel hjá þeim, því til- finningin og hlýjan í þeirra garð hefur fylgt mér allar götur síðan. Ævinlega þegar fjölskylda mín kom í heimsókn var glatt á hjalla. Fullorðna fólkið skemmti sér við að spila og við börnin fundum okkur alltaf eitthvað til dundurs – og ég fékk að sofa á milli Önnu og Steina eins og svo oft áður. Gjarnan var það morgunsólin sem vakti litla telpu, og fyrir augunum varð æv- intýralega teikningin á veggnum við dyrnar af konu og barni horf- andi út um gluggann á fljúgandi fiðrildi og ofurlitla duggu. Í mínum huga var Anna ofur- kona, heimilið var alltaf hreint og fínt þó að húsið væri fullt af börn- um, alltaf eitthvað gómsætt að borða og hvítur þvottur úti á snúru. Þegar börnin uxu úr grasi og fluttu að heiman var tími fyrir áhugamál, garðrækt, sinnti Anna því eins og öllu öðru, vel og vandlega. Anna var glaðlynd og glettin, hún átti það til að segja nokkur vel valin orð þegar henni mislíkaði eitthvað en ég sá hana aldrei reiða, né skammast í nokkrum. Hún hafði það mesta jafnaðargeð sem ég hef kynnst. Það var gæfuspor þeirra beggja er þau kynntust, Anna og Steini, byrj- uðu búskap, byggðu sér húsið að Kjartansgötu 16 og eignuðust fimm mannvænleg börn. Afkomendur þeirra eru rúmlega fimmtíu talsins. Það er með trega að ég kveð elskulega frænku mína, sem var mér hin besta móðir um stund. Henni á ég svo margt að þakka. Elsku Steini minn, ég bið alla góða vætti að gefa þér og afkomendum ykkar Önnu styrk í sorginni. Bless- uð sé minning Önnu Stefánsdóttur. Rósa Karen Borgþórsdóttir. Anna Stefánsdóttir MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2017 ✝ Anna KarólínaKonráðsdóttir fæddist í Keflavík 18. apríl 1946. Hún lést að heimili sínu Mýrarási 2 í Reykja- vík 27. febrúar 2017. Móðir hennar var Magnea Vilborg Þórðardóttir, f. 7.10. 1923, d. 2.5. 2007, og blóðfaðir hennar var Konráð Óskar Sæ- valdsson. Magnea Vilborg giftist 27.1. 1950 Ottó Gíslasyni, f. 9.4. 1921, d. 11.10. 2014. Ottó gekk Anna ólst upp hjá móður sinni og stjúpföður. Hún var sinnti heimilisstörfum og sá gjarnan um að annast matarinnkaup fyr- ir heimilið. Anna fluttist á sam- býlið að Stuðlaseli 2 fljótlega eft- ir stofnun þess og bjó þar á meðan það var starfrækt. Þá flutti hún á sambýlið að Mýrarási 2, þar sem hún bjó síðustu fimm ár ævinnar. Anna vann nokkur ár í Bjark- arási, síðan hóf hún störf í Ási vinnustofu og vann þar lengst af, síðustu árin var hún í Iðjubergi. Anna var félagi í Kvenfélagi Seljasóknar og tók þátt í sam- komum og afmælisveislum, fór í útilegur, dvaldi í sumarbústöðum og ferðaðist innanlands og utan. Útför Önnu fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 8. mars 2017, og hefst athöfnin klukkan 13. Önnu Karólínu í föð- urstað. Börn Magn- eu og Ottós eru 1) Þórður Gísli Ott- ósson, f. 25. 11. 1950. Börn hans eru: Anna Jóna, f. 1973, Birna Sylvía, f. 1976, Svala, f. 10.5. 1981, og Harrý Arn- ar, f. 1988. 2) Ingi- björg Ottósdóttir, f. 10.5. 1956, gift Guð- jóni Hreiðari Árnasyni, f. 17.10. 1947. Börn þeirra eru: Baldvin Ottó, f. 1977, Guðrún Svava, f. 1980, og Árni Björn, f. 1984. Anna systir elskaði lífið, að hlæja og hafa gaman. Hún auðg- aði líf mitt með gleði sinni og hlýju. Kveð ég hana með söknuði, en þakklæti fyrir allar góðu minning- arnar. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Þín systir, Ingibjörg Ottósdóttir. Nú er góð stúlka farin. Anna Karólína, mér fannst gott að tala við þig í Iðjubergi þegar við vorum að kynnast. Þú sagðir margar skemmtilegar sögur. Gaman var þegar við hittumst hjá Óla í Hofs- kjöri og þú varst alltaf svo dugleg. Megi Guð geyma þig og farðu í friði. Þinn elsku bróðir, Stefán Konráðsson. Mig langar til að minnast Önnu Karólínu, mágkonu minnar, í fáum orðum. Kynni okkar Önnu hófust þegar við systir hennar hóf- um búskap. Eftir að við eignuð- umst fyrsta barnið og Inga byrjaði að vinna úti tók móðir hennar að sér að gæta drengsins. Anna varð þá sjálfskipuð aðstoðarkona. Hún var dugleg að keyra hann úti í vagninum og sækja hann í leik- skólann. Hún var einnig iðin við að gæta hans og leika við hann inni og úti. Anna fylgdist alltaf vel með, ekki síst þegar var von á fjölgun í fjölskyldunni, en hún var einkum hænd að börnunum fyrstu bernskuár þeirra. Hún mætti ætíð í afmæli og færði viðkomandi af- mælisgjöf. Hún lagði mikið upp úr að finna afmæliskort sem vektu upp kátínu. Samband Önnu við móður sína var ákaflega náið og töluðust þær við oft á dag, þá sagði hún henni hvað drifið hefði á daginn hjá sér. Seinni árin þegar Anna kom til foreldra sinna um helgar sótti fað- ir hennar hana jafnan og þegar haustaði og von var á hálku kann- aði Anna ætíð hvort bíllinn væri nú ekki örugglega kominn á nagladekkin. Eftir að móðir hennar lést hélt hún nánu sambandi við föður sinn. Hún hringdi í hann daglega til að vita hvernig honum liði og nýtti hann þá gjarnan tækifærið til að bregða á glens við hana. Faðir hennar hélt áfram þeim sið að sækja hana um helgar og bauð henni þá gjarnan upp á kjúkling, sem var í miklu uppáhaldi hjá þeim báðum. Eftir matinn fóru þau oft saman í bíltúr. Ég vil þakka Önnu góð kynni og fyrir mikla umhyggju fyrir okkur í fjölskyldunni. Guðjón Hreiðar Árnason. Elskuleg móðursystir mín, Anna frænka eins og við kölluðum hana alltaf, hefur nú kvatt okkur. Önnu minnar minnist ég með gleði og hlýju í hjarta. Anna vildi alltaf hafa líf og fjör í kringum sig. Hún hafði mjög gam- an af því að fara í afmæli og halda upp á afmælið sitt. Hún elskaði líka marengstertu og hana hafði maður alltaf í boði ef von var á Önnu frænku. Ef mylsna fór á gólfið sagði hún gjarnan þú verður bara að fá þér púddu. Hún sagði alltaf allt þetta fína, stundum allt þetta fína frá Kína. Anna var svolítið stríðin og kom stundum aftan að manni og kitlaði og hló síðan dátt. Oft þegar ein- hver var að gera grín og stríða henni sagði hún oft: þú ert ekkert betri sjálf/sjálfur og hló mikið. Anna var líka dugleg. Þegar hún var hressari var hún eldsnögg að skræla kartöflur og vaska upp. Þau voru ófá skiptin sem við hjálp- uðumst að við uppvaskið hjá ömmu og afa. Elsku Anna mín, takk fyrir samveruna, hvíl í friði. Þín frænka, Guðrún Svava. Kær vinkona mín, Anna Karól- ína, er farin úr augsýn. Mikil voru mín forréttindi að fá að kynnast henni og að starfa með henni á heimili hennar um árabil. Anna Karólína var gædd ótrú- legum lífskrafti, dugnaði, ákveðni og sjálfstæði sem hún varði af ein- urð en tók að sama skapi stöðu með þeim sem þurftu á stuðningi hennar að halda. Æðruleysi henn- ar var undravert eins og oft er beinlínis nauðsynlegt fólki sem þarf að takast á við erfiðleika tengdum fötlunarskilgreiningum í þröngu stöðluðu samfélagi. Hún hafði einstakt lag á að taka lífinu eins og það birtist hverju sinni jafnt í gleði og sorg án þess þó að lúta annarra vilja eða afsala sér rétti til eigin ályktana. Ég var svo lánsöm að eiga með henni samleið á meðan hún hafði þrek og heilsu til athafna, við heimilisstörf, list- sköpun, eða annað í dagsins önn. Einnig að vera þátttakandi í æv- intýrum hennar á ferðalögum og miklu fjöri hérlendis og erlendis, þar sem hún var hrókur alls fagn- aðar. Það sem þó ber hæst í minn- ingunni um Önnu Karólínu er um- hyggjan sem hún bar fyrir fjölskyldunni sinni. Það leið ekki sá dagur að hún hefði ekki sam- band við elskulega foreldra sína og eða aðra í fjölskyldunni til að ganga úr skugga um að öllum liði vel og að tryggja jafnframt að þau hefðu ekki áhyggjur af henni. Það duldist engum að Anna Karólína átti ástríka fjölskyldu sem var henni dýrmætust alls. Nú þegar við kveðjum þessa góðu og merki- legu konu votta ég öllum ástvinum hennar mína dýpstu samúð. Helga Birna Gunnarsdóttir. Anna Karólína Konráðsdóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁSKELL TORFI BJARNASON, verður jarðsunginn frá Þorlákskirkju laugardaginn 11. mars klukkan 14. Anna Guðný Jóhannsdóttir Ásgeir Arngrímsson Árni Áskelsson Jóhanna Marín Jónsdóttir Bjarni Áskelsson Ingibjörg H. Sigurðardóttir Guðmundur S. Áskelsson Þóra Bjarnadóttir Guðni Torfi Áskelsson Júlíana Hilmisdóttir Gestur Áskelsson Sigríður Kjartansdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka, MÁLFRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, Litlagerði 4a, Hvolsvelli, lést á heimili sínu 21. febrúar. Jarðarförin fer fram í kyrrþey. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á slysavarnafélagið á Hvolsvelli. Ingibjörg Jónsdóttir Guðrún J. Kolbeins Eyjólfur Kolbeins Þuríður Jónsdóttir Sigurður H. Sigurðsson Sigurður Jónsson Olga Ólafsdóttir og systkinabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KAROLÍNA HLÍÐDAL, andaðist mánudaginn 6. mars. Útförin verður auglýst síðar. Þorvaldur Hlíðdal Þórðarson Sigurlaug Anna Auðunsdóttir Jóhannes Þórðarson Arndís Inga Sverrisdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EIRÍKUR ÞORGEIRSSON, Túnsbergi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 6. mars. Útförin fer fram frá Hrunakirkju laugardaginn 11. mars klukkan 14. Sigríður Eiríksdóttir Gunnar Kristinn Eiríksson Jóhann Unnar Guðmundsson Sigurður Hans Jónsson og fjölskyldur Faðir minn, fósturfaðir okkar og bróðir, HALLGRÍMUR MAGNÚSSON læknir, lést 5. mars. Jarðarförin fer fram 15. mars klukkan 15 frá Dómkirkjunni. Einar Hallgrímsson Hulda Jóanna Georgsdóttir Hlíf Georgsdóttir Guðmunda Lára Georgsdóttir Vigdís Magnúsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÖF SIGRÍÐUR BENEDIKTSDÓTTIR, Kirkjubæ 2, Kirkjubæjarklaustri, andaðist á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Klausturhólum sunnudaginn 5. mars. Útför hennar fer fram frá Prestsbakkakirkju á Síðu laugardaginn 11. mars klukkan 13. Lárus Siggeirsson Jóhanna Lárusdóttir Martin Howarth Siggeir Lárusson Soffía Lárusdóttir Hjalti Jón Sveinsson Benedikt Lárusson Lilja Magnúsdóttir Njörður Lárusson Halla Lárusdóttir Guðmundur Gíslason Hrund Lárusdóttir Eiríkur Sigurðsson Sigurður Kristinn Lárusson Rúna Lísa Þráinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.