Morgunblaðið - 08.03.2017, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.03.2017, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2017 Þverpólitískur hópur þingmanna undirritaði í gær yfirlýsingu um að gerast talsmenn barna á Alþingi. Þar með heita þau að hafa Barnasátt- mála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi við störf sín. Fulltrúar ungmennaráða ávörpuðu þing- menn. Hópinn skipa þingmenn sem hafa setið námskeið á vegum UNICEF á Íslandi, Barna- heilla – Save the Children á Íslandi og umboðs- manns barna um Barnasáttmálann. Fulltrúar ungmennaráða sáu um fræðslu fyrir þingmenn Morgunblaðið/Eggert Þingmenn gerast talsmenn barna á Alþingi Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Arnar Árnason, formaður Lands- sambands kúabænda, segir að Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir land- búnaðarráðherra hafi komið í bakið á kúabændum með frumvarpi sínu um breytingar á búvörulögum um afurðastöðvar í mjólkuriðnaði. „Það er ekki verið að gera hlut- ina eins og samkomulag var um að þeir yrðu gerðir. Það var sam- komulag um það, sem kemur fram í meirihlutaáliti atvinnuveganefnd- ar, sem fylgdi með afgreiðslunni á búvörusamningunum, að frum- varpið sem hún hefur nú lagt fram, skyldi rætt í stóru nefndinni. Ráð- herra er þarna að handvelja ein- hver atriði út úr þeirri sátt sem hafði náðst, sem hún ætlar að af- greiða á þennan hátt og við það er- um við kúabændur ósáttir og telj- um ráðherra vera að ganga á bak orða sinna,“ sagði Arnar í samtali við Morgunblaðið í gær. Orð og efndir fara ekki saman Arnar bendir á að fyrir skemmstu hafi Þorgerður Katrín flutt ræðu á aðalfundi Félags eyfirskra kúa- bænda á Akureyri og þar hafi hún verið spurð út í frumvarpið sem ekki var þá búið að leggja fram. Hann og fleiri hafi tekið eftir því að þetta mál var komið á þingmála- skrá og hún hafi verið spurð hvern- ig stæði á því, þar sem málið hafði ekki verið rætt í stóru nefndinni. „Ráðherrann svaraði því til að menn þyrftu ekki að hafa áhyggj- ur af því vegna þess að hún hefði enga trú á því að búið væri að vinna frum- varpið í ráðu- neytinu. Þetta væri sett á þing- málaskrá, svona til þess að sýna með táknrænum hætti, að málið væri ekki gleymt og yrði unnið. Ekki væri fullfrágengið að málið færi í gegnum stóru nefndina, en allar líkur væru á því,“ sagði Arn- ar. „Þegar ráðherrann svarar með þessum hætti, veit hún auðvitað að textavinnan í ráðuneytinu er langt komin. Það fer ekki saman hljóð og mynd hjá ráðherra. Orð og efndir fara ekki saman.“ Ráðherra hnoðast undan sátt Arnar segir að ráðherrann sé ítrekað að ganga fram með þeim hætti, að hún sé hnoðast undan þeirri sátt sem búið var að ná, eins og sáttinni um samráðshópinn, þar sem hún hafi rekið fjóra og ráðið einn þeirra aftur, en hafi svo bætt fulltrúa Félags íslenskra stórkaup- manna við í hópinn. Og nú komi hún á nýjan leik á fullri ferð í bakið á kúabændum. „Fljótt á litið sýnist mér frum- varpið þýða það að verð á algeng- ustu mjólkurvörunum, drykkjar- mjólk, osti og smjöri muni hækka talsvert, vegna þess að verðtil- færsluheimildir sem hafa verið við lýði, eru felldar út og samstarfs- heimildir milli afurðastöðva og mjólkursamlaga sömuleiðis. Það þýðir ef ekkert annað er að gert, hækkun á þessari grunnvöru, sem eru svokallaðar verðlagsnefndar- vörur, sem verðlagsnefnd ákveður verðið á,“ sagði Arnar. Arnar segir að verðið á þessum vörum hafi verið greitt niður innan iðnaðarins með því að vörur með hærri framlegð greiddu þær niður, en nú falli sú heimild niður. „Þetta bitnar á neytendum og það er það sem við íslenskir kúa- bændur viljum ekki sjá að gerist, að verð til neytenda hækki á ein- hverjum tæknilegum forsendum. Það er bara galið,“ sagði Arnar Árnason, formaður Landssam- bands kúabænda, að lokum. Fer ekki saman hljóð og mynd  Arnar Árnason, formaður Landssambands kúabænda, hugsar landbúnaðarráðherra þegjandi þörfina og segir hana hafa komið í bakið á kúabændum  Verð á algengustu mjólkurvörunum muni hækka Arnar Árnason Eyjólfur Árni Rafnsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í emb- ætti formanns Samtaka atvinnu- lífsins. Björgólfur Jóhannsson, sem verið hefur formaður SA í fjögur ár, tilkynnti í gær að hann hygðist ekki gefa kost á sér áfram. Nýr formaður verður valinn í að- draganda aðalfundar SA hinn 29. mars nk. með rafrænni kosningu meðal aðildarfyrirtækja samtak- anna, að því er fram kemur í til- kynningu frá SA. Eyjólfur Árni hefur setið í stjórn Samtaka at- vinnulífsins frá 2014 og í fram- kvæmdastjórn samtakanna síðast- liðið ár. Frá árinu 2014 hefur hann átt sæti í stjórn Samtaka iðnaðar- ins og jafnframt verið varafor- maður. Eyjólfur Árni er húsasmið- ur að mennt og lauk síðar doktorsnámi í byggingarverkfræði. Hann var forstjóri Mannvits hf. í 12 ár til ársloka 2015. Eyjólfur Árni fer í formannsframboð  Björgólfur gefur ekki kost á sér Björgólfur Jóhannsson Eyjólfur Árni Rafnsson Maðurinn sem fannst meðvitund- arlaus í klefa sínum í ríkisfang- elsinu á Akureyri á laugardag er látinn. Maðurinn var fluttur á sjúkra- húsið á Akureyri þar sem hann lést síðastliðinn mánudag. Rann- sóknardeild lögreglunnar á Akur- eyri staðfesti þetta í samtali við mbl.is. Lögreglan rannsakar dauðsfallið og er sjálfsvíg möguleg dánar- orsök. Maðurinn afplánaði fimm ára dóm sem hann hlaut í Hæsta- rétti árið 2016 fyrir alvarlegt kyn- ferðisbrot. Páll Winkel fangelsismálastjóri sagði við Rúv að fangelsismála- yfirvöld væru slegin yfir málinu eftir að fanginn fannst meðvitund- arlaus á laugardaginn. Fanginn á Akureyri lést á sjúkrahúsi Renndu við hjá okkur í Tangarhöfða 13 Túrbínur í flestar gerðir bíla Ódýrari kostur í varahlutum! Sími 577 1313 kistufell.com TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ Íbúar ætla að loka hringvegi Hópur íbúa í Hornafirði áformar að loka hringveginum um Hornafjarð- arfljót síðdegis næstkomandi sunnudag til að krefjast þess að niðurskurður til samgöngumála verði dreginn til baka. Ný brú og vegur yfir Hornafjarðarfljót er ein- mitt ein af þeim framkvæmdum sem samgönguráðherra hyggst fresta útboði á vegna þess að fjár- veitingar á fjárlögum ársins duga ekki fyrir áformuðum fram- kvæmdum samkvæmt samgöngu- áætlun. Mótmælin eru boðuð sem við- burður á Facebook og í gærkvöldi höfðu um 70 manns boðað þátttöku sína. Boðuð lokun er klukkan 17 á sunnudag. Íbúar í Berufirði lokuðu veginum þar um síðustu helgi og var fjölmenni við þann viðburð. Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi skorar á samgöngu- ráðherra að efna til fundar til að fara yfir verklag við stjórnun sam- göngumála á Íslandi á næstu árum. Stjórnin telur að núverandi kerfi sé gagnslaust. Telur hún að tryggja verði jafnræði og öryggi íbúa um allt land og skorar á stjórnvöld að tryggja þá fjármuni sem þurfi til að unnið verði eftir samþykktri samgönguáætlun.  Mótmæla niður- skurði til vegamála

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.