Morgunblaðið - 08.03.2017, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 08.03.2017, Blaðsíða 25
verið smeykir og órólegir um borð nema hann, sem fannst þetta mjög þægileg tilfinning. Það má segja að Jói hafi siglt einhvern veginn svona gegnum líf sitt. Svo fórum við á gelgjuna og leiðir skildi að sinni; ég fór inn í mitt skammdegisþunglyndi en Jói fór að drekka eins og sjó- manna þá var siður, varð ofur- töffari og barn brátt á leiðinni. Þrátt fyrir það fékk Jói verðlaun á landsprófi fyrir frábæran námsárangur, þótt hann hefði dottið í það eftir hvert einasta próf. Svo náðum við saman aftur vinirnir nokkrum áratugum seinna og það var alltaf svaka- lega gaman að hitta Jóa, hann sagði afar skemmtilega frá, mest sögur á eigin kostnað, en ein- hvern veginn er það svo að þær sögur gera sig ekki í minning- argrein. Jói var ekki bundinn af neinu eða neinum, það var ekk- ert í heiminum sem bögglaðist fyrir honum. Þetta eru góðir eig- inleikar til þess að verða skemmtilegur vinur en kannski ekki eins góðir eiginleikar til þess að verða fyrirmyndar eig- inmaður og faðir; samt voru syn- irnir sífellt í huga hans. Það síð- asta sem Jói sagði við mig, eftir að honum höfðu hlotnast slysa- bætur var: „Nú get ég farið og heimsótt drengina mína í Dan- mörku.“ En Jói var orðinn of veikur og vannst ekki tími til þess. Þótt Jói sé farinn þá lifa samt æskuminningarnar. Ég votta að- standendum innilegustu samúð mína. Andrés Magnússon. Jói, góði og fallegi vinur. Brottför þín var svo óvænt en um leið svo viðbúin. Mér er orða vant og ég leyfi mér að fá þessi orð lánuð: Síst vil ég tala um svefn við þig. Þreyttum anda er þægt að blunda og þannig bíða sælli funda það kemur ekki mál við mig. Flýt þér, vinur, í fegri heim. Krjúptu að fótum friðarboðans og fljúgðu á vængjum morgunroðans meira að starfa guðs um geim. (Jónas Hallgrímsson.) Farðu vel, kæri. Aðalsteinn Jónsson. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2017 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, morgunleikfimi kl. 9.45, Útskurður 2 kl. 13, postulínsmálun 2 kl 13, söngstund við píanóið kl. 13.45, Bókaspjall Hrafns Jökulssonar kl. 15. Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 9-16. Handavinna m/leiðb. kl. 8.30- 16.30. Stóladans m/Þóreyju kl. 9.30-10.10. Heilsugæslan kl. 13-14. Opið hús/m.a. spiluð vist og bridge kl. 13-16. Ljósbrotið – prjónaklúbbur m/Guðnýju Ingigerði kl. 13-16. Áskirkja Aðalfundur Safnaðarfélags Áskirkju verður í Dal, neðra safnaðarheimili kirkjunnar þann 20. mars kl. 19.30. Allir velkomnir og tökum með okkur gesti. Stjórnin Boðinn Vatnsleikfimi kl. 9, handavinnustofa opin frá 9 - 15. Leshópur kl. 15 í Bjartasal. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa 9-16. Morgunkaffi 10-10.30. Leikfimi með leikfimikennara 10.30-11.20. Prjónaklúbbur 13-16. Glerlist 13-16. Spiladagur, frjáls spilamennska 12.45-16. Opið kaffihús 14.30-15.30. Breiðholtskirkja Starf eldri borgara kl. 13.15. Handavinna, spjall og spil. Allir hjartanlega velkomnir. Bústaðakirkja Í dag fáum við heimsókn frá eldriborgurum í Akraneskirkju, falleg stund í kirkjunni hjá okkur og kaffihlaðborð í safnaðarsal á eftir. Við fáum góða gesti til þess að skemmta okkur yfir kaffinu. Hlökkum til að sjá ykkur. Dalbraut18-20 Handavinnusamvera kl.9, verslunarferð í Bónus kl.14.40. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Herraklúbbur kl.10.15. Postulíns- málun kl.13. Kaffiveitingar kl.14.30-15.30. Nánari upplýsingar í síma 411-2550. Verið öll velkomin. Félagsmiðstöðin Vitatorgi/Lindargata 59 Bókband kl. 9-17. Handavinna m/leiðsögn kl. 9-12. Ferð í Bónus: rúta v/Skúlagötu kl.12.20 Upplestur, framh.saga kl. 12.30-13. Myndlistarnarnámskeið kl. 13.30-16.30. Dansleikur m/Vitatorgsbandi kl.14-15. Garðabæ Opið og heitt á könnuni í Jónshúsi frá 9.30-16. Vatnsleik- fimi hefst á ný eftir frí. Kvennaleikfimi í Sjálandsskóla kl. 9, stólaleikfimi í Sjálandsskóla kl 10 og kvennaleikfimi í Ásgarði kl 11. Leir/glernámskeið í Kirkjuhvoli kl 13. Zumba fyrir félagsmenn FEBG í Kirkjuhvoli kl 16.30 Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Útskurður m/leiðbeinanda kl. 9-12. Söngstund m/Kára kl. 10.30-11.30. Útskurður/Pappamódel m/leiðb. kl. 13-16. Félagsvist kl. 13-16. Gjábakki Kl. 9, handavinna, kl. 9.30 Boccia, kl. 9.30 glerlist, kl. 13 félagsvist, kl. 13 Gler- og postulínsmálun. Skemmtikvöld í félags- miðstöðinni Gjábakka í kvöld 8. mars. Húsið opnar kl. 19.30 og Sigga Kling heldur uppi stuðinu kl. 20, áætlað að skemmitkvöldi ljúki 22. Kaffi og meðlæti í boði. Grensáskirkja Samvera eldri borgara kl. 14. Verið velkomin. Guðríðarkirkja Félagsstarf fullorðina 8. mars kl. 13.10. Helgistund í kirkjunni. Eldri borgarar úr Árbæjarkirkju heiðra okkur með nærveru sinni. ÁstvaldurTraustason þenur harmonikkuna og við brestum í söng. Sr. Karl fer með gamanmál og svo verður sýndur línudans. Kaffi og meðlæti að hætti Lovísu. Gullsmári Myndlist kl. 9, ganga kl. 10, postulínsmálun kl. 13, kvenna- bridge kl. 13, línudans kl. 16.30, línudans byrjendur kl. 17.30, hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa á staðnum. Allir velkomnir! Hvassaleiti 56 - 58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8 -16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi. Zumbadans og líkamsrækt með Carynu kl. 9, morgunleikfimi kl. 9.45. Samverustund kl. 10.30, lestur og spjall, matur kl. 11.30. Línudans kl. 13.30, kaffi kl. 14.30. Félagsmiðstöðin er öllum opin óháð aldri og búsetu og allir eru velkomnir. Hæðargarður 31 Qigong kl. 6.30. Við hringborðið kl. 8.50, upples- trarhópur Soffíu kl. 9.30. Stafaganga-ganga með Björgu kl. 10, línudans með Ingu kl. 10.15, framhaldssagan kl. 11. Prjónahópur kl. 13, hláturjóga kl. 13.30, tálgun í ferskan við með Valdóri kl. 14.30, síðdegiskaffi kl. 14.30. Bókmenntahópur kl. 19.30. Allir velkomnir í Hæðargarð óháð aldri og búsetu. Nánar í síma 411-2790. Korpúlfar Glerlistanámskeið kl. 9 í Borgum, gönguhópar ganga frá Borgum kl. 10 og kl. 10 frá Grafarvogskirkju og kl. 10 inni í Egilshöll. Keila kl. 10 hjá Korpúlfum í Egilshöll. Korpúlfabingó kl. 13 í Borgum. Qigong kl. 16.30 í Borgum. Skráðir í leikhsúferð í Þjóðleikhúsið að sjá HÚSIÐ hittast kl. 18.30 við Borgir og fara saman á einkabílum kl. 18.45 frá Borgum, sýningin hefst kl. 19.30. Neskirkja Krossgötur kl. 13.30. Borg og byggð, skipulag, verkefni og áskoranir. Hilmar Þór Björnsson, arkitekt, er afkastamikill í sínu fagi og hefur sterkar skoðanir á því hvernig á að skipuleggja byggð í þéttbýli. Hann er annar höfundurinn að Grandahverfinu hér í Vest- urbænum. Seltjarnarnes Leir, Skólabr. kl. 9. Botsía, Gróttusal kl.10. Kaffispjall í króknum kl.10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Handavinna, Skóla- braut kl. 13.Timburmenn, Valhúsaskóla kl.13. Vatnsl. í sundlauginni kl. 18.30. "Óvissuferð" Harpa og Ský í dag. Lagt af stað frá Skólabraut kl. 13.30. Ath. síðasti skráningard. á morgun fimmtudag vegna leikhúsferðar á Ellý í Borgarleikhúsinu nk. fimmtudag. S. 893 9800. Sléttuvegi 11-13 Kaffi, spjall og blöðin kl. 10 / Framhaldssaga kl. 10.10 / Handavinna kl 13 / Kaffi og meðlæti 14.30-15.30 Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Göngu-hrólfar ganga frá Ásgarði, Stangarhyl 4, kl. 10 - Söngvaka kl. 14 stjórnendur: Sigurður Jónsson píanóleikari og Karl S Karlsson. Allir velkomnir. Söngfélag FEB kóræfing kl. 16.30 stjórnandi Gylfi Gunnarsson. Félagslíf Samkoma kl. 20 í Kristni- boðssalnum. Ragnar Gunnars- son segir frá ferð til Keníu. Ræðumaður Ragnar Gunnars- son. Allir velkomnir. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00.  HELGAFELL 6017030819 VI Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Aðalfundur Lóðafélagsins að Móhellu 4, Hafnarfirði verður haldinn kl. 16.30 í veitingastaðnum Kænunni við Óseyrarbraut 2, Hafnarfirði, fimmtudaginn 16. mars 2017 Dagskrá: 1. Kosning fundarstjóra og fundar- ritara 2. Skýrslur stjórnar 3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar 4. Stjórnarkosning 5. Kosning skoðunarmanna 6. Lögð fram fjárhagsáætlun til næsta árs 7. Tillögur stjórnar um mánaðargjöld 8. Önnur mál 9. Reikningar liggja frammi í veitingastaðnum Kænunni við Óseyrarbraut 2, Hafnarfirði, á milli kl. 16.30 til 18.30, þriðjudaginn 14 mars 2017 www.mohella.is Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald VIÐHALD FASTEIGNA Lítil sem stór verk Tímavinna eða tilboð ℡ 544 4444 777 3600 jaidnadarmenn.is johann@2b.is  JÁ Allir iðnaðarmenn á einum stað píparar, múrarar, smiðir, málarar, rafvirkjar þakmenn og flísarar. FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Viðhalds- menn Tilboð/tímavinna s. 897 3006 vidhaldsmenn.is vidhaldsmenn@gmail.com Hreinsa þakrennur og tek að mér ýmis konar húsaviðhald. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Atvinnublað alla laugardaga ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ? Sendu pöntun á augl@mbl.is eða hafðu samband í síma 569-1100 Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og ámbl.is fasteignir Snæju enda lífsglöð og fé- lagslynd með eindæmum og hrókur alls fagnaðar með skemmtilegar sögur og frásagn- ir af mönnum og málefnum. Snæja var gæfukona jafnt í tón- listinni sem einkalífinu en Kaj, eiginmaður hennar og börnin þrjú studdu hana ætíð, bæði í leik og starfi. Snæja er sannur örlagavaldur í mínu lífi, heilladísin sem veifar sprotanum og dásamlegir hlutir gerast. Lítil ástarsaga á fögru sumarkvöldi á Sauðárkróki árið 1990 er fallegur vitnisburður um töfra hennar þegar hún kynnti mig fyrir systursyni sínum, Andra Kárasyni, núverandi eig- inmanni mínum. Ég kann Snæju ómældar þakkir fyrir að sýna mér inn í töfraheim sönglistarinnar og styðja mig ætíð með ráðum og dáð. Arfleifð Snæju endurspegl- ast sterkt í öllu því sem ég hef tekið mér fyrir hendur. Mín gæfa hefur verið að sinna söng- kennslu, kórstjórn og söng, líkt og minni gamli góði kennari og söngmóðir. Við fjölskyldan kveðjum elsku Snæju með söknuði í hjarta en minningar ylja. Við vottum elsku Lollu, Dittu og Snæbirni, barnabörnum og barnabarni okkar innilegustu samúð. Guð styrki ykkur í sorginni. Minn- ingin lifir. Sem dropi tindrandi tæki sig út úr regni hætti við að falla héldist í loftinu kyrr þannig fer unaðssönnum augnablikum hins liðna. Þau taka sig út úr tímanum og ljóma kyrrstæð, meðan hrynur gegnum hjartað stund eftir stund. (Hannes Pétursson) Ingibjörg Guðjónsdóttir. Snæja, „söngmamma mín“ eins og ég kallaði hana, er horfin yfir móðuna miklu. Eftir situr söknuður og harmur en jafn- framt þakklæti fyrir að hafa fengið að vera undir verndar- væng hennar frá því við kynnt- umst í stiganum í Söngskólanum í Reykjavik. Rúmlega tvítug var ég í þann mund að syngja inn á plötu með Kristni Sigmundssyni lög eftir Jóhann Helgason og var ég laf- hrædd við að syngja, óreynd söngkona, með stórum lista- mönnum. Ég tjáði Snæju raunir mínar og kvöldið eftir var hún komin með mér á upptökustað og sleppti ekki hendinni af mér eftir það. Platan varð metsölup- lata, gull og platínu, en án Snæju hefði ég aldrei getað sungið þessi brothættu ljóð. Ég útskrifaðist síðar undir leiðsögn hennar frá Tónlistarskólanum i Garðabæ eftir ógleymanlegar stundir við söng og nám, sem náði langt út fyrir skólatíma, því Snæja var kennari af lífi og sál og lét ekki klukkuna ráða. Á þessum tíma kynntist ég einnig yndislegu fjölskyldunni hennar, sem studdi hana einatt. Hún var rík af ást og kærleika, gleði og endalausri ástríðu fyrir öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Ég var sannarlega heppin að kynnast þvílíkri fyrirmynd. Sönggyðjan hafði gefið Snæ- björgu einstaka rödd og hefði hún getað orðið skær stjarna á erlendri grund ef hún hefði kært sig um enda voru henni boðin hlutverk eins og Aida á Scala, sem hún afþakkaði. Íslensku fjöllin, Skagafjörðurinn og fjöl- skyldan toguðu sterkar í hina ungu efnilegu óperusöngkonu. Snæbjörg kom heim og hóf þeg- ar að yrkja þann garð sem nú skartar óteljandi rósum. Eftir lokapróf hvatti Snæja mig til að fara utan í frekara nám og hélt ég til Ítalíu. Í fríum kom ég heim og lét Snæju tékka á mér og er hún heyrði að mér hafði ekki farið fram eins og hún vildi ráðlagði hún mér að skipta um kennara en er hún heyrði framfarir hvatti hún mig til dáða og þannig studdi hún ávallt við sinn gamla nemanda. Iðulega er ég kom heim að syngja bað ég Snæju um að fylgjast með undirbúningi og var ómetanlegt að geta leitað í hafsjó hennar af fróðleik jafnt á íslenskum sönglögum svo og er- lendum enda reynsla hennar óendanleg sem kennara auk þess að vera ein glæsilegasta óp- erusöngkona síns tíma. Margar sögur hef ég fengið af tónleik- um, er hún söng á Íslandi, og hvarvetna heillaðist fólk upp úr skónum og sérstaklega með arí- unni Vissi d’arte úr óperunni Toscu e. G. Puccini. Er ég fékk fregnir af láti hennar var ég ein- mitt við æfingar á Toscu og á frumsýningu helgaði ég Snæju hlutverkið og ég fann að allt sem hún hafði gefið mér flæddi fram af vörum mínum og ég hef aldrei sungið hlutverkið eins vel á ævinni. Þannig lifir hún áfram í söng og list á meðal allra okkar sem fengum að njóta leiðsagnar hennar, og við munum öll halda verki hennar á lofti og miðla áfram af þeirri ástríðu, sem hún gæddi okkur. Megi Guð styrkja ættingja hennar, blessa verkin hennar og leiða hana á veg hins eilífa söngs. Halla Margrét Árnadóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.