Morgunblaðið - 08.03.2017, Page 13
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
fléttist inn í. Má þar nefna mikinn fé-
lagsskap sem skapast í kringum féð
t.d. um sauðburð þegar ættingjar og
burt fluttir koma heim til þess að vera
heima og hjálpa til. Vorið er sauð-
burðurinn og sauðburðurinn er vorið.
Það er erfitt að hugsa sér vor án
sauðburðar þegar allt þetta nýja líf er
að koma sem lömbin eru. Þá er það
eftirvæntingin eftir því hvaða litir
koma hjá ánum þegar bær bera.
Göngur og réttir eru líka mikilvægur
tími og það er mikill samhugur og
samheldni hjá fjölskyldum og vinum
um að hittast og hjálpast að. Þetta
fjallar líka um það að mannfólkið er
vanafast og sumir geta ekki hugsað
sér haust án þess að fara í réttir. Það
er fasti punkturinn í tilverunni.
Fjárhúsin staður vellíðanar
Rannsóknir hafa sýnt að áhugi á
kindum er mjög sterkur og heldur
sterkari en áhugi á öðrum búfénaði
t.d. kúm. Margir gamlir bændur loka
fjósum sínum og þó að það séu við-
brigði þá sækja þeir ekki mjög fast að
búa með kýr í frístundum eða fara
með þær með sér á elliheimilið. Áhugi
á kindum er sterkari að því leyti að
margir hafa viljað búa með kindur
fram yfir áttrætt eða nírætt og talið
það sjálfsagðan hlut. Tilbúnir að
hætta með allt nema kindurnar og
dæmi um það er skoskur 95 ára bóndi
sem sagðist ekki hætta meðan hann
gæti gengið um féð og annast það.
Aðrar rannsóknir hafa sýnt að
fjárbændur eru hraustir þó svo að
mataræði þeirra o.fl. sé ekki sérlega
frábrugðið því sem aðrir hafa. Mest
er hreyfingunni þakkað fyrir þá góðu
heilsu sem margir hafa sem hafa
gengið innan um fé alla sína ævi. Oft
er hlaupið á eftir kindunum og úti-
vistin hefur sitt að segja. Þá eru fjár-
bændur oft grennri en annað fólk og
safna ekki á sig óþarfa aukakílóum.
Félagsskapurinn við kindurnar
hefur líka sitt að segja því kindur eru
mannþekkjarar og eru oft í góðu vin-
fengi við eiganda sinn eða fjármann.
Kindur gera mikinn greinarmun á
fólki og þekkja þann vel sem gefur
þeim aukamola eða heytuggu milli
mála eða þann sem klappar þeim.
Fjárhúsin eru, fyrir marga, staður
vellíðanar og mörgum bóndanum
þykir gott að sitja á garðabandinu og
heyra maulið í skepnunum sem eru
að jórtra.
Forystufé viturt og þrautseigt
Sæþór í Presthvammi hefur
mikinn áhuga á forystufé og á annan
tug forystukinda er í fjárhúsunum
hjá honum. Það er því von á mörgum
forystulömbum í vor, en Sæþór er
með hreinræktaðan forystuhrút úr
Klifshaga í Öxarfirði sem er óskyldur
hans stofni. Forystuféð hefur veitt
honum mikla ánægju og ekki aðeins
fyrir að vera viturt heldur líka fyrir
litafjölbreytnina sem því fylgir. Í
hrakningunum 2012 þegar fé fennti í
stórum stíl í Suður-Þingeyjarsýslu
sýndi forystuféð af sér ótrúlega
þrautseigju og visku og segir Sæþór
að það sé auðvelt að bæta við sögum í
bókina Forystufé ef á þarf að halda.
Forystuærnar hans komu þá
flestar með margt fé með sér heim í
Presthvamm eftir að hafa átt í mikilli
baráttu við náttúruöflin. Þá var hægt
að dást að forystufénu.
Kindur elska útivist Ærnar á bænum Engidal í Þingeyjarsveit viðra sig.
Sérstök Þessi kind skartar fallegri krúnu og er það sem kallast mókrúnótt.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2017
Sogavegi við Réttarholtsveg
Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is
Appótek: www.appotek.is
Lyfseðlar • Lyfjaverð • o.fl.
Vefverslun með lyf
„Fjármennskan hefur átt vel við
mig alla daga og þegar mig ber að
landi hinum megin þá vona ég að
komi í fallega og fagurgróna hlíð.
En mér yrði gleðin aðeins veitt til
hálfs ef ég sæi þar enga kind. Ég
myndi tæplega festa þar yndi ef ég
sæi þar hvergi þessa fagurgerðu
lífveru þ.e. kindina sem sameinar
sakleysi og hetjulund. Kindur hafa
veitt mér ánægju og gleði frá því
ég var þriggja ára, en þá byggði ég
mér hornabú á Bárðardalsheiði
þ.e. sumarið 1895. Alla tíð síðan
hef ég verið fjármaður og ég kvíði
því að kveðja kindurnar mínar.“
Svo ritað í hárri elli Óskar Stefáns-
son frá Kaldbak.
Sameinar sakleysi og hetjulund
ÚR LÍFI FJÁRMANNSINS