Morgunblaðið - 08.03.2017, Síða 14

Morgunblaðið - 08.03.2017, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2017 Rafhitarar í skip, hús og sumarhús Ryðfríir neysluvatnshitarar með 12 ára ábyrgð Hitöld (element), hitastillar, hitastýringar og flest annað til rafhitunar Við erum sérfræðingar í öllu sem Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði Sími: 565 3265 rafhitun@rafhitun.is • www.rafhitun.is viðkemur rafhitun. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Fyrir spennufíkla er þetta gaman, það er ekki hægt að neita því. Ef við fáum viku til viðbótar áður en loðnan hrygnir þá næst loðnukvótinn,“ sagði Gunnþór Ingvason, framkvæmda- stjóri Síldarvinnslunnar í Neskaup- stað þegar rætt var við hann um loðnuvertíðina um miðjan dag í gær. Gunnþór lýsir vetrinum sem sér- stakri rússibanareið og þá vísar hann til þess að lengi vel var ekki útlit fyrir að íslensk skip fengju að veiða loðnu vegna bágs ástands veiðistofnsins. Tekist hafi að fá Hafrannsóknastofn- un til að gera lokatilraun í mælingum á stofninum í byrjun febrúar í sam- vinnu við útgerðina. Niðurstaðan leiðangursins leiddi til þess að kvóti íslenskra skipa var 14. febrúar auk- inn úr rúmum 12 þúsund tonnum í rúmlega 196 þúsund tonn. Heildarverðmæti þess afla er áætlað um 17 milljarðar króna. Mikill sprettur að ná þessum afla Þegar ákvörðun um kvótann lá fyrir stóð verkfall sjómanna enn, en skipin héldu úr höfn um leið og samningar höfðu verið samþykktir 20. febrúar. Ljóst var að mikill sprettur yrði við að ná þessum afla og það krefðist mikillar skipulagn- ingar. „Það hefur verið gríðarlega mikið púsl og skipulag að fá þetta allt til að ganga upp,“ segir Gunnþór. „Menn eru búnir að sitja yfir alls konar töl- um allan sólarhringinn í einhverja daga. Við erum búnir að raða niður löndunum út vikuna í kreistingu, en það er ekki búið að veiða allan þann fisk ennþá. Við ákveðum hvenær skipin mega byrja að veiða í Breiða- firðinum og hvenær þau eiga að vera mætt í Neskaupstað til löndunar, það er reynt að láta þetta falla saman með ferskleika hrognanna í huga. Skip hafa þurft að stoppa á mið- unum og bíða eftir að fá að byrja veiða, það hefur reynt á taugar skip- stjóranna að liggja á flekknum og fá ekki að kasta. Ég reikna með að aðrir séu að leggja þetta svipað upp það eru allir að reyna að stýra þessu eins vel og þeir framast geta.“ Auk kraftmeiri loðnugöngu heldur en mörg síðustu ár og einstaks veð- urs á þessum árstíma þegar allra veðra getur verið von nefnir Gunn- þór vana sjómenn, öflug skip og veið- arfæri og í landi hafi afkastageta í frystingu aukist mikið. „Þar er dug- mikið fólk sem tekur á móti aflanum og kemur honum í verðmæti. Þetta er ein virðiskeðja sem verður aldrei sterkari en veikasti hlekkurinn,“ seg- ir Gunnþór. Hann bendir á að burð- argeta skipanna hafi aukist verulega á síðustu árum. Fyrir ekki svo mörg- um vertíðum hafi skipin verið komin með fullfermi þegar 700-1100 tonn voru komin í lestar. Nú beri skipin 2- 3000 tonn og meðferð afla sé betri og fullkomnari en áður. Ekki sé nóg að ausa kvótanum upp. „Eins og staðan er núna þá snýst þetta um að vinna hrogn úr loðnunni, auðvitað er það svo, að hægt væri að veiða mun hrað- ar og tryggja að kvótinn náist, en það eru allir að reyna hámarka verðmæt- in.“ Hrognamarkaðir mjög viðkvæmir fyrir magni Gunnþór telur að áætlun um 17 milljarða útflutningstekjur fyrir loðnuafurðir geti verið nálægt lagi. Hann segist þó hafa áhyggjur ef of mikið verði framleitt af hrognunum, sem eru verðmætasta afurðin. „Það er verið að frysta hrogn á Ljósmynd/Daði Ólafsson Vertíð Bjarni Ólafsson AK að veiðum undan suðurströndinni í upphafi vertíðar og skriðjökullinn virðist innan seilingar. Myndirnar af loðnumiðunum eru teknar af skipverjum á loðnuskipum. Góður tími fyrir spennufíkla  „Ef við fáum viku til viðbótar þá næst kvótinn,“ segir Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar  Sérstök rússibanareið í vetur  Púsl og skipulag að fá þetta til að ganga upp Ljósmynd/Gunnar Ingi Gíslason Ísleifur VE Glaðbeittir skipverjar, frá vinstri: Sveinn Ásgeirsson, Árni Gunnarsson, Björn Stefán Arnarson, Jens Sigurðsson og Halldór Ingi Guðnason. Í baksýn er Heimaey VE á siglingu, en skipin hafa verið fljót að fylla sig.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.